Alþýðublaðið - 20.07.1995, Side 3
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Pólitískt skírlífi og umburdarlyndi
„Sameining vinstri manna í einn stóran flokk
...er vitaskuld eina vonin til þess að hægt verði
að breyta þjóðfélaginu í nútímalegt og opið
þjóðfélag ... Hins vegar er þetta pólitíska skírlífi
Jóns Baldvins mér með öllu óskiljanlegt þar sem
Alþýðuflokkurinn hefur aldrei náð hreinum
meirihluta á Alþingi, illu heilli. Þess vegna er það
einfaldlega ekki rétt hjá Jóni að Alþýðuflokkurinn
einkennist af málefnalegum hreinleika."
Eftir kosningarnar í vor blossaði
upp mikil umræða um sameiningu
vinstri manna og sú umræða hefur í
raun aldrei farið útaf borðinu síðan.
Og er það vel (sérstaklega er ég ham-
ingjusamur með nflegan skerf mál-
gagns okkar jafnaðarmanna í þeirri
umræðuvakningu).
Sameining vinstri manna í einn
stóran flokk sem hefur burði til þess
að verða raunverulegt og trúverðugt
afl gegn Sjálfstæðisflokknum er vita-
skuld eina vonin til þess að hægt verði
að breyta þjóðfélaginu í nútímalegt og
opið þjóðfélag. Nú veit ég að Jón
Baldvin spyr nærstadda þegar hann
les þessa grein um hvað eigi að sam-
einast og dregur því næst fram öll þau
mál sem flokkana greinir á um. Vissu-
lega er það rétt að flokkana greinir á
um margt. Hins vegar er þetta pólit-
íska skírlífi Jóns Baldvins inér með
öllu óskiljanlegt þar sem Alþýðu-
flokkurinn hefur aldrei náð hreinum
meirihluta á Alþingi, illu heilli. Þess
vegna er það einfaldlega ekki rétt hjá
Jóni að Alþýðuflokkurinn einkennist
af málefnalégum hreinleika.
Alþýðuflokkurinn hefur nefnilega
setið í ríkisstjóm hálfan lýðveldistím-
ann og vegna smæðar sinnar hefur
hann þurft að vera í stjórn með að
minnsta kosti einum öðrum flokki í öll
þessi ár. Engin þessara ríkisstjóma
hefur tekið upp stefnu Alþýðuflokks-
ins hreina og ómengaða. Alþýðu-
flokkurinn hefur vissulega staðið að
baki mörgum mikilvægum stefnumál-
um með aðstoð an'narfá, en Alþýðu-
flokkurinn hefur einnig aðstoðað aðra
samstarfsflokka meðjjví að standa að
málum sem ekkert tengjast stefnu
flokksins og fæst okkar vilja kannast
við. Þar getum við tekið af handahófi
dæmi eins og viðhald landbúnaðar-
báknsins, ósanngjama sjávarútvegs-
stefnu og láglaunastefnu. Samstarf
flokka í ríkisstjóm snýst auðvitað um
það hversu mikið hver flokkur er til-
búinn til þess að fóma af sinni stefnu
til þess að komast til valda og koma
hluta af stefnu sinni í framkvæmd.
Alþýðuflokkurinn er því ekki pólit-
ískt skírlífúr flokkur heldur smáflokk-
ur sem neyðist vegna smæðar sinnar
til þess að fóma stómm hluta stefnu
sinnar í hverri einustu ríkisstjóm. Það
er þannig hræsni af verstu gerð þegar
menn halda þvf fram að Alþýðuflokk-
urinn geti ekki tekið þátt í að sameina
vinstri menn vegna þess að málefna-
leg staða þessara flokka sé svo ólík.
Eða er kannski einhver grundvallar-
munur á því að vera umburðarlyndur í
ríkisstjóm eða utan hennar?
Viðhorf manna sem starfa í flokk-
um á vinstri væng em býsna ólík þeg-
ar öllu er á botninn hvolft. En innan
Alþýðuflokksins rífast menn á fund-
um og em ósáttir hver við skoðanir
annars, en ná síðan nær alltaf sam-
komulagi um að fara ákveðna leið að
markmiðinu þrátt fýrir að fæstir hafi í
raun ætlað þá leið þegar farið var af
stað. Ég geri fastlega ráð fyrir að
þessu sé svipað farið í öðmm flokk-
um.
Milli vinstri flokkanna er vissulega
málefnalegur ágreiningur um mörg
mál, enda væri annað í hæsta máta
óeðlilegt. En eftir kosningar stöndum
við svo alltaf frammi fyrir því að eng-
inn flokkur hefur burði til þess að bera
uppi ríkisstjóm og því þarf að fmna
málefnalegan grundvöll sem gerir
ólíkum flokkum kleift að standa sam-
an í ríkisstjóm. Og merkilegt nokk þá
tekst alltaf að fmna þennan flöt, jafti-
vel milli ólíkra afla. Dæmi um það em
til að mynda þær ríkisstjómir sem Al-
þýðuflokkur og Framsóknarflokkur
hafa staðið saman að.
Þess vegna spyr ég aftur: Er einung-
is hægt að vera umburðarlyndur þegar
setjast skal að völdum? Væri ekki nær
að viðurkenna bara þá staðreynd að
vinstri vængur íslenskra stjómmála
hefur málað sig út í hom með skítkasti
í garð hvors annars. Við emm komin í
þrot og svo hefur verið áratugum sam-
an og mun verða áfram þar sem innan
allra flokkanna er verið að ala upp
andstæðinga sem þegar fram líða
stundir munu taka við vendinum úr
höndum núverandi forystumanna. Og
allt er þetta gert til þess eins að halda
áfram að berja á hihum flokkunum,
flokkunum sem við eigum í raun
mesta samleið með. Þessu fólki æfla
ég ekki að bjóða í afmælið mitt. ■
Höfundur er félagsráðqjafi
og jafnaðarmaour.
Steingrímur
vinur okkar
J. Sigfússon
mætti boru-
brattur á skrif-
stofur Alþýðu-
bandalagsins
yið Laugaveg í
gær og afhenti
þar formanni
framkvæmda-
stjórnarflokks-
ins, Sigríði Jóhannesdótt-
ur (kennara við Myllubakka-
skóla í Keflavík), formlega
framboð sitt til formennsku í
flokknum. Sigríður þakkaði
pent fyrir sig og sína og að
lokinni afhendingunni (sem
fórfram stundvíslega klukk-
an 14:00) svaraði formanns-
kandídatinn nokkrum lau-
fléttum spurningum frétta-
manna. Vel fór á með
mönnum og nokkuð gantast
að sögn viðstaddra. Seint
verður hægt að segja, að
þetta framboð Steingríms
Jóhanns komi á óvart þar-
sem kappinn hefur verið í
frekar opinskáu formanns-
framboði i vel á annað ár —
samkvæmt afar
óábyrgri fram-
boðsyfirlýsinga-
talningu kunn-
ugra, Við óskum
Steingrími Jó-
hanni hinsvegar
að sjálfsögðu
hjartanlega til
hamingju með
þessa allra-allra-
allra síðustu
framboðsyfirlýsingu. Megi
sá hæfasti bera sigur úr být-
um í fyrstu flokksformanns-
kosningu kjörtímabilsins...
á hefur það veri staðfest
sem okkur hefur lengi
grunað; Noregur er spillt-
asta land Norðurlanda. Þetta
kemur fram í könnun sem
óháð samtök sem berjast
gegn spillingu, Transpar-
ency International, hafa gert
meðal forvígismanna við-
skiptalífsins í 41 landi. Nor-
egur er í tíunda sæti á lista
yfir lönd þar sem spilling
viðgengst í heimi viðskipta,
eitt Norðurlanda. Það skal
hins vegar tekið fram að
þessi könnun mun ekki hafa
náð til íslands... -
Hún er ansi fjölbreytt ís-
lenska sýningaflóran
þetta sumarið. Tilkynning
um eina af þeim sérstæðari
barst okkur í gær. Þannig er
að Norræna húsið — í nánu
samráði við Náttúrustofnun
íslands — hefur nú sett upp
sýningu á íslenskum fléttum
í anddyri Norræna hússins.
Sýndar eru um 40 tegundir
af runnafléttum, blaðfléttum
og hrúðurfléttum. Lifandi
eintök eru áf nokkrum teg-
undum, af öðrum eru sýnd-
ar litmyndir. Ýmsar upplýs-
ingar um tegundirnar fylgja:
skýrt er frá íslenskum nöfn-
um þeirra, vaxtastöðum, út-
breiðslu og nýtingu fyrr og
nú. Sýndareru nokkrarteg-
undir sem notaðar hafa ver-
ið til litunar ásamt garni sem
litað hefur verið með þeim.
Sagt er frá notkun fjalla-
grasa og áhrifum loftmeng-
unar á fléttur. Frábært. —
Fléttufólk: þið látið ykkur
ekki vanta...
"FarSide" eftir Gary Larson.
„Andskotinn hafi þad, Birgir Andrésson!!! Geturðu ekki
bara látið þér nægja að berja þér á brjóst — einsog
allir hinir górilluaparnir...? Alltaf þarft þú að vera með
einhverjar fjandans tiktúrur!"
Ingimar Loftsson, nemi:
Ég hef aðeins heyrt um þessa
samkomu. En ég hef því miður
ekki aldur til að fara þangað.
Olga Sigurðardóttir, lífslista-
kona: Þetta er frábært ffamtak.
Að vísu kemst ég ekki nema ég
vinniíLottóinu—eða þá að prins-
inn á hvíta hestinum láti sjá sig.
Sólrún Axelsdóttir, verka-
kona: Ég hef ekki heyrt um
þessa hátíð. Og hef þarafleið-
andi ekki [hjuxað mér að fara.
Halldór M. Sigurðsson,
nemi: Mér finnst þetta hið
besta mál. Frekar færi ég nú
samt til Eyja ef ég kæmist á
annað borð í ffí vegna vinnu.
Björn Norðfjörð, nemi:
Mér líst ýkt vel á Uxa. Verð þó
í London á þessum tíma þannig
að ég kemst ekki.
m e n n
Þátttakendur frá fimmtán löndum
sitja nú 32. heimsþing jólasveina,
sem haldið er í Danmörku. Tilkall
Finna, sem ákváðu að sniðganga
ráðstefnuna, til jólasveinsins hefur
valdið deilum á þinginu.
í litmyndarskreynri stórfrétt a forsiou Moggans
í gær var ekki minnst einu orði á þá undarlegu
tilhögun að halda heimsþing jólasveina í
Danmörku, því flata og fjallalausa landi.
(Vissi Ketill Larsen annars af þessu þingi
— var honum boðiö?)
Mannvitsbrekkumar á
Alþýðublaðinu ættu kannski
að lesa blaðið sitt betur.
Háæruverðugur Jón Kristjánsson, alþingis
, maður með meiru og ritstjóri, var hundfúll
Á víðavangi í Tíma gærdagsins — og reyndar
virðist hálfþunglyndisleg lægð hvíla yfir
Þverholtinu um þessar mundir.
Því er það niðurstaðan að konur
munu fjölmenna til Kína til að
vinna að nýrri áætlun um betri
. heim fyrir konur.
Kristín Ástgeirsdóttir er enn jafn sannfærð
um væntanlegan árangur IV. kvennaráðstefnu
SÞ — í Kína. Allavega samkvæmt aðsendri
grein hennar í Mogga gærdagsins.
Ef B-2 sprengjuþotan er
ósýnileg..., þá getum við
einfaldlega tilkynnt öllum að við
höfum smíðað 100 stykki af þeim
til viðbótar — þrátt fyrir að við
höfum ekki gert það.
Formaður fjárlaganefnaar fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings, John Kasich, brá fyrir sig
gamansemi þegar hann var spurður af
fréttamönnum um frekari framleiðsluáætlanir
á hinni radarfælnu B-2 sprengjuþotu.
Newsweek greindi frá.
Sex minnispeningar, þar á
meðal einn með mynd af Adolf
Hitler, seljast nú eins og heitar
lummur í Kína hvað sem líður
hneykslan ýmissa fræðimanna.
Mogginn greindi frá í gær.
Peking-fundurinn: Engin
afloll verið boðuð.
Auðvitað ekki — hver vill missa af
Kínaferö? Tíminn greindi frá í gær.
Mel Blanc, sem ljáði Kalla
kanínu rödd sína, hafði ofnæmi
fyrir gulrótum. — Alexandría
prinsessa af Bæjaralandi var
sannfærð um að hún hefði gleypt
píanó í æsku. — Rakarar mega
ekki borða lauk í Milwaukee.
Fólk í fréttum Moggans dundaöi sér áfram í gær
við að fleyta undarlegum slúðþirsögum áfram.
Vefnum
Það er svosém ekkert nýtt að frétta á
þessum vígstöðvunum Ldag... Ekki þá
nema það, að.Villtir hafa eignast enn
fleiri nýja vini á Spjallsvæði Miðheima
prefect, gigi, piotr, olit, saj, jfk, nori,
surreal — og reyndar nokkra óvini:
madmax, bangsa & kó — ásamt því
sem konukind ein úr Kópavogi (spi-
der) gerir sitt til besta til að æsa óss
upp hvenær sem tækifxri gefst með
kyn-legum athugasemdum og léttum
leiðindaskætingi (það tekst í hvert ein-
asta skipti, vér höfum nú ekki betri
stjórn á oss en það!). I fyrrakvöld
mættum við þannig með hroðaleg frá-
hvarfseinkenni á SpjallsVæðið um
kvöldmatarleytið og losnuðum ekki
fyrren klukkan átti aðeins eftir örfáar
mínútur í þrjú. Eitt gott kom þó útúr
þessu fíknardæmi: eftir nokkra eftir-
grennslan og umræður við ritstjóra og
framkvæmdastjóra Miðheima var
ákveðið að setja úrval bestu texta
Alþýðublaðsins á Vefinn (til dæmis
Hallgrím, Guðmund Andra, fram-
bærilegustu pallborðshöfundana,
Kollu, Einar, JBH, bestu fítsjörana
og fréttirnar...) og munu samninga-
viðræður fara fram næstkomandi föstu-
dag á sérvöldu kaffihúsi í miðbæ
Reykjavíkur. Hugmyndin er að setja
upp flottustu en jafnframt einföldustu
og aðgengilegustu heimasíðu dagblaðs
á Vefnum. Nethausar er hérmeð ein-
dregið hvattir til að meila til bald-
stef@centrum.is allar þær fínu hugdett-
ur sem þeir fá um málið. Allt um það á
Spjallsvæðinu næstu daga... takethat:
veröld ísaks
Athafnir Japana í annarri Heimsstyrjöld-
inni þóttu að sönnu grimmilegar, en
snilldairlegur úrræðaneisti leyndist engu
að síður í röðum þeirra. Þannig notuðu
japanskir hermenn líkamsleifar krabba
til að lesa hemaðarlega mikilvæg landa-
kort og gögn að nóttu til svo þeir mættu
fprðast að draga athygli óvinarins að sér.
Ymsar krabbategundir gefa nefhilega frá
sér líffræðilega tilbúio ljós vegna en-
sýmaframleiðslu líkama þeirra. Það sem
Japanimir gerðu síðan var að veiða
Þei
ávegis
síðan
igm t
landað saman við duftið að nóttu til
myndaðist dauft blátt ljós sem ógreinan-
legt var nema úr afar lítilli fjanægð.
(Það hefur nú verið einhver skátinn sem
fann upp á þessum fjanda!)
Byggt á Isaac Asimov's
Book of Facts.