Alþýðublaðið - 21.07.1995, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ1995 ALÞÝÐUBLAOIÐ 3
s k o ð a n i r
Móðir mín í kví, kví.
ISú var tíð að sólin settist aldrei í
breska heimsveldinu. Og floti
hennar hátignar réði yfir heimshöfun-
um. Og það var misjafn sauður í
mörgu fé í svo víðlendu heimsveldi.
Pallborðið |
Jón Baldvin
Hannibalsson
skrifar
Fyrsta hugmynd Breta var auðvitað
sú að innfæddir ættu að semja sig að
háttum „siðmenntaðra“ Breta: Sækja
messu í ensku biskupakirkjunni, láta
af kynlífi nema fólk hefði bréf uppá
það og halda hvfldardaginn heilagan
(bjórlausan).
En þeir komust nú fljótlega að því
að heimurinn lætur ekki að sér hæða
og að sigurvegarinn kemst ekki lengi
upp með múður. Hann verður fyrr en
síðar að laga sig að hætti innfæddra,
til þess að lifa af sem sigurvegari.
Ætli það hafi ekki verið út af þess-
ari lífsreynslu heimsveldissinna sem
það hefur þótt þjóðráð í breskum há-
skólum að sem flestir fengju forsmekk
af mannfræði - nánar tiltekið villi-
mannafræði, eins og það var kallað í
þá tíð. Anþrópólógía heitir þetta á út-
lensku. Og er vel til þess fallið að
opna augu manna fyrir hinni siðferði-
legu afstæðiskenningu lífsreynslunn-
ar.
2Allavega fékk ég að kenna á þessu
forðum daga í Edinborg - og sé
ekki eftir því. I minn hlut kom ætt-
bálkurinn X í Afríkulandinu Y. Ég las
mér til af áfergju allt sem til var um
búskapar- og hjúskaparhætti þessa
fólks, sem hafði orðið þeirrar náðar
aðnjótandi að gerast um hríð þegnar
hennar hátignar, Viktoríu drottningar.
Og fann í því mannlífi urmul dæmi-
sagna sem á þarf að halda til að styðja
lærðar kenningar í hagfræði - sem all-
ar gefa sér að lokum einhverjar for-
sendur um mannlega hegðun.
Að vísu hvarflaði stundum að mér
að ég hefði leitað langt yfir skammt.
Þessu mannlífi svipaði nefnilega um
margt til þess sem tíðkast hafði meðal
formæðra minna og feðra við Djúp.
Þetta voru eins konar útvegsbændur -
það er að segja karlpeningurinn stund-
aði veiðar en kvenfólkið hafði grasnyt,
stundaði akuryrkju fyrir nú utan að
annast matseld, uppeldi æskunnar og
umönnun hinna öldruðu.
í góðæri búnaðist þeim þokkalega.
En á þurrkatímum (aflaleysisárum)
vildi margt fara úr skorðum. Þá reyndi
heldur betur á innviði samfélagsins,
því að hungurvofan beið þá skammt
undan og horfellir á næsta leyti.
f veiðimannasamfélaginu var það
sonurinn sem bar nafn ættarinnar
(framhaldslífið); hann erfði eignir og
mannaforráð (valdið). Hann bar
ábyrgð á umönnun hinna öldruðu (al-
mannatryggingar). Dóttirin var hins
vegar gefm úr föðurgarði við heiman-
mundi. Hún fjölgaði veiði- og stríðs-
mönnum annars ættbálks. Hún annað-
ist velferð hinna aldurhnignu í annarra
manna húsum.
Dóttirin var því dýr í rekstri. Þegar
harðnaði á dalnum bitnaði það á
henni. Ef stúlkuböm fæddust of mörg
í fjölskyldu voru þau borin út (fóstur-
eyðingar nútildágs). Þegar jafnvægi
náttúrunnar milli kynjanna raskaðist,
þannig að unga sveina skorti gjaforð,
kallaði það á stríð (brúðarrán). Og
stríðin urðu æ tíðari eftir því sem
harðindatímabilum fjölgaði.
3Breskur heimspekingur komst að
þeirri niðurstöðu eftir ævilanga
umhugsun að lífið væri „nasty, bmtish
and short“. Nýlenduyfirvöld Breta
gerðu ekki ágreining um það. Þau
gerðu sér heldur ekki neinar grillur út
af því, hvemig var umhorfs á munað-
arleysingjahælum og þrælkunarbúð-
um (Poorhouses) móðurlandsins á tíð
Dickens og fram á þessa öld.
Hallæri og hungursneyð, barna-
dauði og útburður bama hefur verið
íylgifiskur meirihluta mannkyns fram
„Og svo stelast nokkrir Bretar með falda kvik-
myndavél inn á örtröð munaðarleysingjahæia
í Kína og varpa þannig brotabroti veruleikans inn
á gafl stássstofu vesturlandabúans. Og hneykslunin
á ekki orð: Allt í einu er það fullkomlega siðlaust
að halda kvenréttindaráðstefnu í Kína (eins og
kirkjuþing í Helvíti)."
á þennan dag - og er enn. Fóstureyð-
ingar af mannavöldum em hins vegar
nýleg tækni; einnig hitt að skjóta böm
á færi á götum stórborga eins og er
daglegt brauð í gleðiborginni Ríó þar
sem samban dunar dag og nótt.
Og svo stelast nokkrir Bretar með
falda kvikmyndavél inn á örtröð mun-
aðarleysingjahæla í Kína og varpa
þannig brotabroti veruleikans inn á
gafl stássstofu Vesturlandabúans. Og
hneykslunin á ekki orð: Allt i einu er
það fullkomlega siðlaust að halda
kveriréttindaráðstefnu í Kína (eins og
kirkjuþing í Helvíti).
Móðir mín í kví, kví,
kvíddu ekki því, því,
ég skal Ijá þér duluna mína,
duluna mína að dansa í...
Meðal annarra orða, var það ekki á
kirkjuþingi sem Rannsóknarétturinn
ákvað að fjölkunnugar konur skyldu
dæmast út á bálköstinn? ■
Höfundur er formaður Alþýðuflokksins -
Jafnaðarmannaflokks Islands - og
áhugamaður um sögu Kína...
Auk hinna heilbrigðu hafa
sjúkir og þjáðir hópum
saman sótt samkomur hjá
kraftaverkapredikaranum
Benny Hinn í Laugardalshöll-
inni í von um lækningu. Á
samkomunni á miðvikudags-
kvöld kom á svið meðal ann-
arra ungur enskumælandi
maður og lýsti því hvernig
kvalir sem hann hefði haft í
bakinu hefðu horfið meðan á
samkomunni stóð. Benny
spurði manninn hvers vegna
hann hefði verið svo þjáður í
baki. Hinn læknaði kvaðst
hafa verið í tygjum við stúlku
en móðir hennar verið ósátt
við sambandið. Fór svo að sú
gamla ákvað að hrekja þenn-
an óæskilega vonbiðil dóttur-
innar í burtu í eitt skipti fyrir
öll og skaut hann í bakið.
Maðurinn var hins vegar svo
heppinn að lifa af skotárásina
en greri þó ekki alveg sára
sinna fyrr en þarna á sam-
komunni...
Allar líkur eru nú taldar á
því að ekkert framboð til
varaformanns Alþýðubanda-
lagsins komi fram áður en til-
skilinn frestur rennur út, sem
er 27. júlí. Systkinin Bryndís
og Valþór Hlöðversbðrn
hafa hafnað þvi að bjóða sig
fram. Nöfn Jóhanns Ársæls-
sonar og Hildar Jónsdóttur
hafa verið nefnd í þessu sam-
bandi en framboð þeirra er
ekki á döfinni. Að vísu er
heimilt að auglýsa á nýjan leik
eftir framboði hafi enginn
boðið sig fram, en litlar líkur
eru taldar á að gripið verði til
þess ráðs. Þeir Svavar
Gestsson, Ólafur Ragnar
Grímsson og Steingrímur
Jóhann Sigfússon hafi bar-
ist fyrir því leynt og Ijóst að
enginn bjóði sig fram til vara-
formanns og hann verði því
kosinn á landsfundinum sjálf-
um í haust. Þeir geti þar með
ráðið varaformannskjörinu á
fundinum sjálfum. Sá mis-
skilningur er víða uppi að sá
sem tapar í formannskjöri geti
þá sjálfkrafa orðið varafor-
maður. Um er að ræða sjálf-
stæðar kosningar, annars veg-
ar til formanns og hins vegar
til varaformanns...
r
Ogrynnin öll af myndlist
standa þannig þenkjandi
menningarvitum til boða yfir
þessa helgi. Á sunnudaginn
iýkur sýningum á verkum
Peter Schmidt, Diddu
Hjartardóttur Leamann og
Þorbjargar Þorvaldsdóttur í
Nýlistasafninu. Sýndar eru
vatnslitamyndir eftir Peter
Scmidt, sem hann málaði á is-
landi í lok 8. áratugarins.
Didda sýnir olíumálverk og
teikningar sem hún hefur unn-
ið á undanförnu ári. Þorbjörg
sýnir Ijósmyndir og mynd-
band. Á laugardaginn klukkan
16.00 opnar í Gallerí Greip
sýning á verkum Snædísar
Ulriksdóttur húsgagnahönn-
uðar. Á sýningunni verða hús-
gögn sem Snædís hefur unn-
ið á síðustu mánuðum. Snæ-
dís lauk mastersnámi frá Roy-
al College of Art í London
1993 og hefur verið með
vinnustofu þar í borg síðan.
Þetta er hennar fyrsta einka-
sýning. Bandaríski mynd-
höggvarinn Jane Darov-
skikh hefur dvalið í gesta-
vinnustofunni í Grófargiliá
Akureyri undanfarna þrjá
mánuði. Jane opnar sýningu
á verkum sínum í Deiglunni
föstudaginn 21. júlí. Verkin
sem hún sýnir eru öll unnin á
þeim tíma sem hún hefur
dvalið á Akureyri. Jón Laxdal
myndlistamaður og Ijóðskáld
opnar sýningu í Glugganum,
sýningarrými Listasumars í
glugga Vöruhúss KEA...
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson.
„Jæja, Tómas minn, loksins fáum við Gylfi að hitta þig. Það var
aldeilis tími tilkominn úrþví að það ert þú sem munt feðra
barnabörnin og giftast litla augasteininum okkar — fáðu þér
smá te með hundakexinu... Hún Ingunn okkar minntist á það í
gær við matarborðið, að þú ynnir í öryggisvörsludeild bíla-
partasölu í Hafnarfirði. Hefurðu hugsað þér að klifa metorða-
stigann þar, eða ætlarðu kannski að bæta við þig námi á næst-
unni? Ég veit nefnilega að það losnar bráðum þægileg staða
hjá Tryggingamiðstöðinni; staða sem væri tilvalin fyrír þig
uppá framtiðina að gera, skilurðu... “
Andrés Hannesson, sölu
maður: Nei. Ég held ekki.
Gísii 'Jónsson, rafeinda-
virki: Nei. Alls ekki. Nema þá
kannski að hann breyti messu-
forminu.
Gústaf Ingason, verka-
maður: Nei. Ég efast um að
hann gæti það. Maðurinn er
svo leiðinlegur.
Ólöf Kristjánsdóttir,
bankamaður: Nei. Ólafur
stenst ekki samanburð við
Benny.
Hrafnhildur Borgþórs-
dóttir, borgari: Nei. Það er
svo lítið líf í þessu venjulegu
messum.
v i t i m e n n
Hún er afskaplega greind, getur
verið mjög skemmtileg og kann
mjög vel að vinna. Ingibjörg er
Iíka mjög sjarmerandi manneskja.
Kvennalistakonan Anna Ólafsdóttir
Björnsson dáist aö flokkssystur sinni.
Helgarpósturinn í gær.
Kynjamismunun hjá
Tryggingastofnun? Styrkir
konur til hárkollukaupa en
ekki karla. — Forstjóri
Tryggingastofnunar segir
karla kynþokkafyllri með skalla.
DV skemmti sér konunglega í gær
vegna „hárkolluhneykslisins".
Mikilvægt að forðast flokkadrætti.
Steingrímur Jóhann Sigfússon var
friðsemdin uppmáluð í frétt Mogga
gærdagsins um formannsslag Allaballa.
Ef fólk hefur áhuga á því að
vinna saman og sameina þessi
svokölluðu félagshyggjuöfl,
þá er byrjunin náttúrlega sú
að tala saman.
Kristín Ástgeirsdóttir, þingkona Kvennalistans,
var með allt á hreinu í forsíðufrétt Tímans í gær.
Evrópusambandið er í stöðugri
þróun og íslensk stjórnvöld þurfa
að vera mun athafnasamari
gagnvart þeim möguleika að
ísland gerist aðili að sambandinu.
Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður
og framkvæmdastjóri Verslunarráðs
íslands, lét vaða á flokkinn sinn enn einu
sinni í gær. Kjallaragrein í DV.
Ekki vegna þess að mér leiðist
að vinna og langi í frí þess vegna.
Síðast fór ég í frí í nóvember
1988 og hef liðið ágætlega síðan.
Lífsjátningar Póstmannslns Gunnars
Smára Egilssonar voru með
athyglisverðara móti í gær. HP.
Borgarfulltrúar
Reykjavíkurlistans undrandi
á lokuðum sameiningarfundi
félagshyggjufólks hjá Ingibjörgu
Sólrúnu í Ráðhúsinu. — Að
sögn Arna Þórs Sigurðssonar,
borgarfulltrúa og eins
forystumanns Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík, hafa
lokuð fundahöld af þessu tagi
mjög skaðleg áhrif á samstarfið
innan Reykjavíkurlistans.
Árni Þór er einn af mörgum sem þykjast eiga
harma að hefna vegna þess að þeim var ekki
boðið á „sameiningarfundinn". Tíminn í gær.
Hallur Hallsson, formaður
Víkings svínaði á knattspyrnudeild
félagsins við undirskrift
félagaskipta — Skrifaði sjálfur
undir félagaskipti sonarins.
Einn af skandölum dagsins í HP.
Tsjetsjiníju-deilan — Ekki
vilja allir frið.
Fróðleg fyrirsögn á forsíðu Mogga gamla í gær.
Bubbi Morthens var tuttugu
og þriggja ára, kallaður
neðanjarðarsöngvari, og var
að hljóðríta sína fyrstu plötu sem
átti að fá nafnið Hve þungt er yfir
bænum. Hann sagði í viðtali að
einu samtökin sem hann tryði á
væru samtök farandverkafólks
og rauðsokkuhreyfingin.
Úr Helgarpóstsannáli ársins 1980. HP í gær.
veröld ísa
Numberg-annállinn heitir fyrsta yfir-
gripsmikla alfræðiorðabók veraldar
og var hún gefin út í þremur bindum
árið 1493. Það var þýðverskur læknir,
Hartmann Schedel að nairii, sem tók
sig til og skrifaði verkið aleinn síns
liðs. Schedel þessi var haldinn mikilli
bókasöfriunarástríðu og gerði einnig
töluvert af þvf að affita sjaldgæf
handrit til varðveislu fyrir komandi
kynslóðir. Innihald bókasafris læknis-
ins var svo yfirgripsmikið, að það
stóð undir heimildasöfnun fyrir meg-
ininntak annálsins. Það er síðan at-
hyglisvert að geta þess, að vegna bág-
borinnar „fjölmiðlunar" þessa tíma,
þá háttaði þannig til að þrátt fyrir að
þessi fyrsta alfræðiorðabók veraldar
hafi verið gefin út síðla árs 1493 náð-
ist ekki í tæka tíð að bæta inní hana
markverðustu tíðindum ársins á und-
an: sögulegri siglingu Kristófers
Kólumbusar til landfundar Ameríku.
Byggt á Isaac Asimov's
Book ofFacts.