Alþýðublaðið - 21.07.1995, Síða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ1995
■ Hinn gagnmerka dúett Exem skipa þeir Þorri Jóhannsson og Einar MelaK Exem gerði sér
á vegum Smekkleysu s/m. Platan nefnist Kjöttromman og á plötuumslaginu segir að tónlist Exem b
Þeir Exemistar telja sköpunarverk sitt einhverskonar ofnæmisviðbrögð við huglægum innri kláða höfi
Hlóa og valkyrjunni Hrist. Stefán Hrafn Hagalínvar í súrrealísku skapi í gær—einu sem oftar—og
Þorri Jóhannsson er
fæddur og uppalinn í
Vesturbænum, stundaði
íþróttir og bar út blöð.
Góður matreiðslumaður
og dansari. Uppgötvaði
Dadaismann sem ung-
lingur en áttaði sig ekki á
úrkynjun og páfadómi
súrrealismans. Dvaldi
upp úr 1980 í Norður-
Afríku og Suður- Afríku
og hlustaði á hljómfallið
og sönglið í tónlist mára
og berba. Einn af stofn-
endum Inferno 5 árið
1984 og rekur nú gern-
ingaþjónustu og list-
miðlun Inferno 5. Hefur
unnið við gerningalist á
íslandi og í fleiri Evrópu-
löndum. Gefið út blöð,
Ijóð og textabækur. Bar-
ið á trommur og sitt-
hvað fleira. Þorri hefur
lengi aðhyllst indóevr-
ópska heiðni og reynt að
bjarga Heiðnum sið á ís-
landi frá skriffinnum og
eingyðistrúarmönnum
síðustu ár. Þeirri leiðin-
legu lútersku erennþá
mengar huga margra ís-
lendinga. Þar hefur
reynsla hans í mat-
reiðslu og gerningalist
komið að góðum notum
á blótum félagsins þar
sem engin lognmolla
hefur ríkt. Hefur þarfyrir
utan stundað sjálfsnám í
ýmsum fræðum og lífs-
listum.
Þessi plata — ég var að hlusta á
hana í gœr meðan ég var að mála
íbúðina mína — hún er svolítið
þung...
Það er að segja: mérfannst hún tU-
tölulega létt í byrjun, en síðan fór hún
að þyngjast. Ég þuifii reyndar að setj-
ast niður og hlusta afmikiUi ein-
beitni. Á endanum varð ég hinsvegar
að halda áfram að mála og neyddist
því tU að setja Michael Jackson í
plötuspilarann...
,Jájá. Þetta er svona stofutónlist.
Það er erfítt að hlusta á hana með öðm
eyranu. Annars er ég ekki dómbær a
þetta.“
Nú? Ég sem cetlaði að spyrja þig
hvernig ÞÚ fUaðir plötuna ÞINA...
,Ég hef verið dálítið í því að gefa út
alvarlegar ljóðabækur og vinna við að
skrifa, þannig að Exem er eiginlega
mirtn vettvangur til að bulla í texta-
gerðinni. Ég hef áður verið í þessum
bransa með öðrum og komst fljótlega
að þvf, að ómögulegt var að raula þessi
ljóð mín. Ég tók þannig bestu frasana
úr ljóðunum og bullaði útfrá þeim.
Bullið er nokkuð sem maður leyfir sér
síður í ljóðunum.“
Ertu ekki bara mikill bullari að eðl-
isfari?
, Já. En semsagt á þessum vettvangi.
Guðbergur sagði reyndar, að það væri
ennþá betra að hafa textana á ensku því
þá gæti maður fyrst farið að bulla af
þunga.“
Jaa... Ég sé að þið hafið látið al-
vöru verða úr því og á textablaðinu er
búið að snara textunum yfir á engU-
saxneska tungu.
, Jújú. Þetta er jaðartónlist og ísland
er algjör smámarkaður fyrir svonalag-
að. Það eru í mesta lagi nokkur hundr-
uð manns sem kaupa og hlusta á þetta.
Maður er kannski að vona að sérvitr-
ingar útí heimi uppgötvi tónlistina okk-
ar og kaupi.“
I œviágripi á plötuumbúðunum
stendur að þú hafir borið út blöð í
œsku. Hvaða blöð voru þetta?
„Ég byijaði að bera út Moggann
þegar ég var níu ára og braust sam-
viskusamlega í gegnum hríðina klukk-
an hálfsjö að morgni áður en ég fór í
skólann. Seinna bar ég út Vísi eftir há-
degið, en fannst það nú ekki eins fúit.
Þá var ég ellefu ára gamall. Svo kleif
ég metorðastigann og gerðist sendill
hjá SIS. Ég átti vegna þessa alltaf pen-
inga sem bam til að fara með útí sjop-
pu og bíó. Ég náði hinsvegar aldrei að
vinna mig upp í forstjórastólinn SÍS og
eftir að ég var rekinn þaðan varð
framaferillinn frekar slitróttur. Annars
verð ég að viðurkenna, að ég hafði allt-
af dálitla ímugust á SÍS. Það var eitt-
hvað í blóðinu sem kunni ekki við
þetta; Framsóknarflokkurinn skilurðu.
Andinn í byggingunni var skrýtinn og
mér fannst ég alltaf staddur í gini ljóns-
ins; óvinaherbúðunum. Nokkrir skrif-
stofumenn höfðu til dæmis gleymst
þama frá tímum Jónasar frá Hriflu."
Þannig að þú hefur verið var um
þig hjá SIS og óöruggur kannski?
„Eg var náttúrlega rekinn á endan-
um. Að vísu ekki fyrren eftir fjögur
eða fimm ár því þá var kominn ákveð-
inn leiði og mótþrói í mann og uppá-
tækjunum í vinnutímanum fór ört
fjölgandi. Maður var orðinn latur, með
fætuma uppá borði og skipaði hinum
sendlunum að vinna vinnuna fyrir sig.
Og því fór sem fór.“
Tók ef til vUl gjörvallt líf þitt þessa
stefnu eftir það: að vera bara með
lappirnar uppá borði og taka öllu
meðstóískri ró?
„Ég er vitaskuld alveg húðlatur og
þjáist af einhverri tilbreytingaþörf. Mér
fmnst samt voða gaman að kíkja á
vinnustaði almennings og heyra hljóð-
ið í fólkinu. En ég get ekki verið lengi
á sama stað. Eftir dálítinn tíma verð ég
að fara.“
Ég held áfram að vitna tU plötuum-
búðanna: hvað varstu að gera í Norð-
ur-Afríku og Suður-Evrópu?
,JEg var bara í skóla, hlusta á tónlist,
slappa af, ferðast — og vinna smáveg-
is.“
En ekki ofmikið?
.JJeinei... Aldrei að vinna meira en
maður þarf.“
Ertu þá sammála Hallgrími Helga-
syni íþví, að vinnan sé dauði listu-
mannsins?
„Nei. Það er að segja: ég held að all-
ir listamenn verði að kynnast vinnunni
til að geta verið síðan færir um að
hafha henni. Enda vita flestir að enda-
lok vinnunnar blasa við á Vesturlönd-
um. Listamenn ættu því ekki að taka
vinnuna frá fólki sem getur ekki lifað
án þess að mæta eitthvað flesta daga.
Þegar ég var að byrja yrkja, þá ortu all-
ir raunvemleikaljóð og listamennimir
fóm í verkamannavinnu; fisk og þess-
háttar. Og ég var alveg á því. En eftir
að ég prófaði þetta nokkuð oft myndi
ég aldrei nenna í þetta aftur.“
Og svo tekurðu þátt íþví að stofna
Inferno 5 árið 1984...
, Já. Það var eftir að ég kom heim,
að við stofnuðum þennan félagsskap
furðufugla."
Er það ekki ferlegt „kitsj“ að vera
rembast við að vera furðulegur?
„Ég tók nú bara til þessara furðu-
fuglaorða í háði. Infemo 5 er fjöllista-
hópur sem ég stofnaði með Óskari
Thorarensen og fleirum í upphafi. Ósk-
ar er núna tónlistarstjóri og mér lynti
ekki við haim þarsem ég er vita laglaus
og kann ekki að hlýða. Þessvegna
hætti ég í hópnum og fór að vinna með
Einari Melax — við höfðum hvort sem
er ákveðið að gera það löngu fyrr.“
Já, einmitt. Þú ert semsagt rekinn
allsstaðar...
„Neineinei... Ég dró mig í hlé, en
rek þó ennþá gemingaþjónustu Infemo
5.“
Er mikil eftirspum fyrir sUka þjón-
ustu?
„Ég hef því miður lítið geta sinnt
gemingaþjónustunni þarsem svo mikið
hefur verið að gera í öðm. Þjónustan
gefur nú samtsem áður út á næstunni
gemingahandritabók með 25 gem-
ingauppskri ftum.“
Hefiir fólk ekkert ruglað þessari
gemingaþjónustu við hrein-gerninga-
þjónustu?
„Ég hef nú aldrei hugleitt það. Of
augljóst. Hrein- gemingar. Þetta er
nokkuð góð hugmynd: hrein-geminga-
list... Fara í listasöfnin og skrúbba
málverkin? Ræstingalistamenn...“
En þessi indevrópska heiðni sem
þú ert sagður ástunda afmiklu
kappi?
, J>etta er tilkomið vegna þess, að ég
uppgötvaði að ég væri heiðinn — fjöl-
gyðistrúar — og trúi á krafita náttúr-
unnar í kringum okkur og í sjálfúm
okkur. Mér er illa við að kalla þetta
ásatrú því það em bara æsimir — og
aukþess hefur íslenski ásatrúarfélags-
skapurinn einhveija tilhneigingu til að
haga sér einsog saumaklúbbur."
Já. Þúforðast semsagtfélög sem
Imfa vafasamt orð á sér...
„Ég starfaði með ásatrúarmönnum í
mörg ár, en hef nú dregið mig í hlé.“
Enn eittdœmið um hversu illa þú
rekst í hópi...
„A að negla mig núna í eitt skipti
fyrir öll? Við getum sagt, að ég vil ekki
vera í félögum nema ég fái að ráða öllu
sjálfur. Ég held að það sé bara málið.“
Þú ertsvona dœmigerð leiðtoga-
manngcrð?
, Já. Fæddur leiðtogi, en fólkið í
kringum mig hefur ekki uppgötvað það
ennþá.“
Og svo ertu andsnúinn lúthersk-
unnL Afhverju? Vegnaþess að hún
er svo plebbaleg?
„Þrælslund mótmælenda og allt tuð-
ið í þeim mengar ofboðslega mikið hið
íslenska þjóðfélag — og f raun öll
Norðurlöndin og þennan hluta Evrópu.
Ég lít á Iútherstrúarmenn sem sértrúar-
söfhuð þótt þeir séu að vísu mjög
áhrifamiklir. Miðað við restina af
heiminum er þetta ekki stór hópur.
Kreddumar og meinlokumar — þessi
forræðishyggja — hafa að sjálfsögðu
eyðilagt öll íslensk stjómmál. Annars
er þetta eina ádeilan sem hægt er að
finna á plötunni."
Er það ekki bara lygi á plötuum-
búðunum, að þú Iwfir stundað
íþróttir?
„Ég hljóp. Tefldi smá.“
Geturðu ekki heldur dansað?
, Jújú. Ég er vel liðtækur dansari og
gerði mikið af því að dansa á diskótek-
unum á Spáni.“
Kanntu ekki sitthvað fleira?
„Ég er góður í kássunum."
Að elda kássur?
, Já. En því miður er mesti aðdáandi
matreiðslulistar minnar, Dagur Sigurð-
arson, látinn."
Hver er þessi Jafet Melge sem
skrifar formála plötunnar?
, Jafet Melge hefur fylgt Infemo 5
mjög lengi og skrifað afar mikið um
hópinn. Þetta er ungversk-hollenskur
listfræðingur: algjör heimsborgari sem
hefur skrifað í mörg helstu stórblöð
Evrópu og Pressuna og jafnframt notið
þess heiðurs að Súsanna Svavarsdóttir
hafnaði grein eftir hann í menningar-
blaði Moggans. Samt var Súsanna búin
að taka við þessari grein til birtingar.
Einkar móðgandi fyrir Jafet. Hann er
annars alltaf á ferð á flugi: Súðavfk-
Mexíkó-Trékyllisvík. Infemo 5 hefur
nokkmm sinnum skipulagt og auglýst
fyrirlestra Jafets, en hann mætir aldrei.
Jafet er eitthvað voðalega slappur í
tímasetningunum.“
Jafet er eitthvað að röfla hér ífor-
málanum um „gervigleði heimsku-
hamingjunnar '...
„Þetta er ekkert frá mér, maður. Ég
skrifa ekki undir svonalagað."
Hlustarðu mikið á útvarp?
„Gömlu Gufuna auðvitað: þætti,
tónlist og vitaskuld þjóðlegan ffól-
leik.“
Ertu mikið fyrir þjóðlegan fróð-
leik?
, Já. An gríns. Núorðið. Þetta kemur
með aldrinum."
Þetta em nokkuð „skœslegar“ um-
búðir utanum plötuna.
, Já, finnst þér það ekki. Kjartan
Pierre Emilsson kaosfræðingur gerði
þær og hannaði. Hann er allur í svona
núna. Ég var eiginlega hræddastur um
að fólki myndi þykja umbúðimar betri
en innihaldið. Var næstum farinn að
sjá eftir öllusaman. Þetta em einhveijar
hugmyndir frá mér sem hann útfærði
mun betur en ég átti von á.“
Hvað gerirðu svona dags daglega
— ertu að starfa eitthvað með list-
inni?
„Ég skrifa. Ljóð, smásögur, greinar
og gemingahandrit."
Ncerðu þá að lifa af listinni ein-
göngu?
„Neineinei... Ég lifi auðvitað á at-
vinnuleysisbótum."
Vill enginn fá þig í vinnu eða finn-
urðu ekkert við hœfi? — Sœkirðu
kannslá um þessar forstjóra- ogfram-
kvœmdastjórastöður sem losna ann-
aðslagið, í samrcemi við illa dulda
leiðtogahœfileika þína?
„Ég er svo hógvær og raunsær, að
ég sæki bara um kokkastörf og þess-
háttar. Ég fæ aldrei neitt og skil ekkert
í því. Heyrðu jú, svo sæki ég um
blaðamannastörf?1 ‘
Sóttirðu um hjá Degi þegar þeir
auglýstu um daginn?
„Nei, ég gleymdi því. Ég vil nú
reyndar minnast á að ég er líka ritstjóri
því ég ritstýrði einu tímariti. Þarafleið-
andi sæki ég dáh'tið um þær ritstjóra-
stöður sem losna. Framar öllu er ég
sennilega atvinnulaus ritstjóri."
Ertu bara að bíða eftir að Matthías
og Styrmir hcetti?
„Nei, mér finnst Mogginn ekki al-
veg nógu skemmtilegt blað. Helst vildi
ég ritstýra Morgunpóstinum."
Hvað myndirðu gera þar— Jylgja
ótrautt ífótspor Gunnars Smára?
„Nei. Ég myndi hafa blaðið al-
mennilegt og taka alvöm málefhi fyrir
í stað þess að vera stöðugt á höttunum
eftir smáköllunum. Síðan myndi ég vil
auka umfjöllun um næturlífsdrottning-
ar og skemmtanamenningu, poppa
þetta almennilega úpp. Gaman þætti
mér einnig að ritstýra DV og fjölga þá
strax löggu- og slysafréttum ásamt hin-
um ómissandi fréttaskotum. Og svo
væri ég náttúrlega til í að vera ffétta-
stjóri Stöðvar 2. Ég er afskaplega hrif-
inn af fréttunum þar, en myndi samt
leggja þyngri áherslu á mannlegu ffétt-
imar. Jón Ársæll Þórðarson fengi næst-
um þvf allan fiéttatímann. Ég myndi
afturámóti reka Elínu Hirst. Hún er
alltof hörkuleg. Maður verður bara
hræddur. Mannlegu nótumar.er það
sem gildir. Valgerður Matthíasdóttir er
sterkur kandídat í stöðu Elínar að vísu.
Hún er svona manneskjuleg. Ég þoli
nefnilega ekki fasisma í nafni mannúð-
ar. I nafni mannúðar á að stoppa allt af.
Forræðishyggjan er í fyrirrúmi hjá
þessu liði: vantrúin á manninn. Ég vil
breyta því.“ ■
Einar Melax hóf tónlist-
arferil sinn 1978 í hljóm-
sveitum eins og „Reið
kona í austurbæn-
um.eða?" ásamt Sjón
og Kristni Árnasyni og
Fan Houtens kókó á gós-
enpönktímabilinu
1980-1983. Var meðlim-
ur í súrrealistaklúbbnum
Medúsu á þessum sömu
árum. Þorri var söngvari
í dótturhljómsveit F.H.K.
er kallaðist „Síðasta
stunan" á þeim árum
heimsósóma og svart-
sýni. Var í hljómsveitinni
Rokkarokkadrömm
ásamt Sjón, Þór E. og
Björk sem ásamt Oxmá
stóð fyrir uppsveiflu
rokkabillýs á íslandi.
Hljómborðsleikari í Kukli
1983-1986 og við stofn-
un Sykurmolanna 1986.
Fór í leiðangur til Mið-
austurlanda 1987 til að
rannsaka Miðjarðarhafs
og austurlenska tónlist
og afrekaði þar meðal
annars að leika í Rambó
III ásamt Sly Stallone og
spila með palestínskri
barhljómsveit. Hélt heim
og eftir stutta viðdvöl í
Sykurmolunum gekk
hann í ballhljómsveitina
Melodíu. Með henni
ferðaðist hann víða um
landið og kynnti sér vel
menningu á jaðarsvæð-
um íslands. Hefur starf-
að sem tónskólastjóri
síðustu ár og kom
stundum fram sem
gestaleikari með hljóm-
sveit Þorra „Inferno 5".
Stundar nú tónsmíða-
nám við T.R.
Ég cetla í byrjun að láta þig fá
sömu staðhœfuigu og Þorra: Þessi
plata — ég var að hlusta á hana í gœr
meðan ég var að mála íbúðina mína
— hún er svolítið þung...
, Jaá... Ég prófaði nú að láta spila
hana á kaffihúsi um daginn. Tónlistin
var lágt stillt og svona í bakgrunninum
og það kom enginn og kvartaði. Þetta
rann ljúflega gegnum hlustir fólksins."