Alþýðublaðið - 02.08.1995, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Naggar og fiðurfé
Ég þurfti í smáaðgerð í heilbrigðis-
kerfmu vegna slæmsku í baki nýlega.
Ekki veit ég hvort veikindin stöfuðu
af þungum áhyggjum vegna verkleys-
is ríkisstjómarinnar eða vegna þess að
einhverjir hafi verið að naga mig í
hrygglengjuna... Þrátt fyrir niður-
skurð á spítölunum er ennþá til eitt-
hvað af svefnlyíjum og fékk ég smá-
skammt fyrir lítið fé.
En það er einmitt fé í annarri og
mikilvægari merkingu sem er tilefni
þessa greinarkoms. Mér gekk nefni-
lega illa að sofna og þegar ég kvartaði
yfir því við svæfmgalækninn, þá benti
hann mér á þá gömlu góðu aðferð að
telja kindur. Það gekk vel; ein, tvær,
þijár... og tíu. Þama hef ég sennilega
hætt að telja og sofnað svefni hinna
réttlátu (jafhaðarmanna).
En undirmeðvitundin hélt greini-
lega áfram að telja, enda af nógu að
taka þegar íslenski fjárstofninn er ann-
ars vegar. Ekki veit ég hvursu lengi ég
svaf þama á aðgerðaborðinu, umvaf-
inn rándýmm tækjum og hálaunuðum
sérfræðingum, en þegar ég vaknaði
hafði ég talið 499.110 rollur. Hvorki
fleiri né færri. Ég var sannfærður um
að þessi tala hefði einhverja djúpa
merkingu - þetta hlyti að vera ráðgáta
sem ég yrði að leysa.
Ég leit á rúmborðið og sá þar dag-
blaðið Tímann og tvo bækfinga. Ann-
ars vegar Hagtölur landbúnaðarins og
hins vegar auglýsingabækling frá
Benny Hinn, sem ég hafði gripið með
mér ef aðgerðin á sjúkrahúsinu myndi
nú misheppnast. Ég fletti upp í hinu
upplýsandi riti landbúnaðarins sem
hinir vösku hagsmunaverðir bænda-
hallarinnar gefa út árlega og sá að það
var rétt sem mig grunaði: talan
499.110 stendur fyrir fjölda sauðfjár í
landinu. Og af því að við vitum að
kvótakerfið í landbúnaði þvingar
bændur til þess að hafa talsvert fleiri
ær í húsum sínum en opinberar tölur
gefa til kynna þá má áætla að sauð-
fjárstofninn sé vel yfrr hálfa milljón.
Þetta þýðir átta rollur á hveija fjögurra
manna fjölskyldu í landinu.
Þegar ég fór síðan að fletta Tíman-
um mundi ég að martröðin á skurðar-
borðinu hafði ekki einungis snúist um
tölur. Ég mundi að um leið og ég taldi
kindumar þá hófu þær sig á loft, fengu
vængi eins og alvöru fiðurfénaður og
flugu inn í opinn faðm landbúnaðar-
kerfisins. En hvemig tengist þetta hinu
bráðfjöruga málgagni framsóknar-
manna? Jú, á forsíðu Tímans mátti
lesa athyglisverða frétt um að það
væri búið að leysa vanda sauðfjár-
bænda. Lausnin er fólgin í því að
breyta sauðfé í kjúklinga. Þama stóð
Sigurgeir Þorgeirsson, nýr fram-
kvæmdastjóri Bændasamtakanna og
fyrrnrn aðstoðarmaður landbúnaðar-
ráðherra, brosandi með einhveija litla
gúllasbita sem hafa hlotið nafnið
Naggar, samanber McNuggets kjúk-
lingabita. Þetta er ákaflega lystauk-
andi nafngift, því nú munu íslenskir
neytendur verða neyddir til þess að éta
allt gamla „naggið" í bændaforyst-
unni.
Jafnaðarmenn hafa lengi bent á
galla þess kerfis sem íslenskir bændur
hafa búið við undanfarna áratugi.
Fjötrar kerfisins em með þeim hætti
að bændur geta hvorki lifað af né dáið
(hætt búskap) í dag. Alþýðuflokkurinn
hefur talað fyrir því að afhema fram-
leiðslustýringu í landbúnaði sem
myndi leiða til þess að sauðfé yrði
stórlega fækkað og bændum hjálpað
við að bregða búi, í stað þess að moka
milljörðum á ári hveiju í vonlausa of-
framleiðslu. Forsætisráðherra og jafn-
vel landbúnaðarráðherra hafa nú loks
fengist til þess að taka undir þessa
stefnu. En bændaforystan streitist á
móti þótt hún viti sem er að neyslu-
venjur fólks hafa breyst vemlega und-
anfarin 15 ár, eins og fram kemur í áð-
„Þarna stóð Sigurgeir Þorgeirsson, nýr fram-
kvæmdastjóri Bændasamtakanna, ... brosandi
með einhverja litla gúllasbita sem hafa hlotið
nafnið Naggar, samanber McNuggets kjúkl-
ingabita. Þetta er ákaflega lystaukandi nafn-
gift, því nú munu íslenskir neytendur verða
neyddir til þess að éta allt gamla „naggið" í
bændaforystunni."
umefndum Hagtölum landbúnaðarins.
Þar kemur ffam að kindakjötssala hef-
ur stórlega dregist saman á kostnað
svína-, fugla- og nautakjöts, svo ekki
sé talað um pasta og grænmeti.
En bændahöfðingjamir hafa töfra-
lausnir í farteskinu eins og mig
dreymdi fyrir. í stað þess að taka á
vandanum og fækka sauðfé, þá verður
allt lambakjöt framvegis selt í felu-
búningum. Þegar kaupmenn vilja
koma til móts við neytendur og flytja
inn kjúklinga ffá Svíþjóð, þá er gamla
gúllasinu bara breytt í kjúklingabita
með súrsætri sósu. Þegar hagsýnar
húsmæður ætla að kaupa meira pasta,
þá verður kindahakkinu með ullar-
bragðinu bara vafið inn í hveiti og selt
sem „kjötpasta". Og þegar landinn
ætlar að kaupa sér soðningu á mánu-
dögum verður brugðið á það ráð að
velta lambalæri upp úr raspi og selja
það sem „lambastyrtlu" og gömlu
góðu sviðin munu verða markaðssett
sem „lambagellur".
Það liggur ljóst íyrir að unnt er að
framleiða ansi marga nagga úr
499.110 rollum. Ég hef ekki hugsað
mér að reikna þá tölu út, en það er al-
veg á hreinu að næst þegar ég neyðist
til þess að telja kindur inn í drauma-
landið þá mun ég telja niður; 499.110,
499.109, 499.108... Ef til vill geta
ungir sjálfstæðismenn aðstoðað ríkis-
stjórnina við að telja niður sauðfé,
þegar þeir eru orðnir leiðir á að mæla
skuldir þjóðarinnar í skuldagluggan-
um srnum í Austurstræti? ■
Höfundur er framkvæmdastjóri
Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks
íslands.
r
IDVí gær var sagt frá raun-
um íbúa við Þingholtsstræti í
Reykjavík vegna hávaða frá
skemmtistaðnum Deja'vu.
Einn viðmælandi blaðsins,
Birgir nokkur Hermannsson,
segir farir sinar ekki sléttar:
svefnfriður sé enginn fyrren
eftir klukkan þrjú á nóttunni
um helgar. Honum finnst
furðulegt að borgarráð skuli
nýlega hafa endurnýjað vín-
veitingaleyfi skemmtistaðar-
ins, þrátt fyrir mótmæli íbú-
anna. Birgir væri kannski ekki
svona undrandi ef hann vissi
að móðir eigandans heitir
Kristín Einarsdóttir og út-
skrifaðist af þingi fyrir Kvenna-
listann i vor. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum
beitti Kristín sé einmittfyrir
því að vínveitingaleyfi staðar-
ins yrði endurnýjað. Svona
getur nú verið gott að eiga
góða mömmu...
að fór einsog Alþýðublað-
/ð spáði: Morgunblaðið er
búið að skrifa heilan leiðara
um „hneykslið mikla" Höfða,
en einsog lesendur Mogga
hafa ekki komist hjá að vita,
var nýlega tekin niður mynd af
Bjarna Benediktssyni í
fundarherbergi þeirra Reag-
ans og Gorbatsjovs. Við út-
nefndum fréttir Morgunblaðs-
ins í gær „mestu gúrku sum-
arsins" en nú er komið á dag-
inn að um hápólitískt mál er
að ræða, einsog æfur leiðara-
höfundur stóra blaðsins af-
hjúpaði í gær...
Enn getum við glatt lesend-
ur okkar með fréttum af
formannsslagnum í Alþýðu-
bandalaginu. Steingrímur J.
Sigfússon, sem reiddi sig
mjög á stuðning gamla valda-
kjarnans í flokknum, hefur víst
víða komið að lokuðum dyr-
um upp á síðkastið. Það þykir
tíðindum sæta meðal þeirra
sem til þekkja í flokknum að
Guðmundur Hjartarson,
sem um langt skeið var í fram-
varðasveit Sósíalistaflokksins
og síðar einn af toppunum í
Seðlabankanum, hefur í einka-
samtölum lýst yfir fullum og
einörðum stuðningi við
Margréti Frímannsdóttur.
Þetta er ótvíræð vísbending
um að sigur Steingrims verð-
ur ekki jafn auðsóttur og hann
hugði - þegar hann tilkynnti
framboð sitt fyrir hálfu öðru
ári...
Það vakti talsverða athygli
þegar Katrín Fjeldsted
gaf í skyn í blaðagrein að
Sjálfstæðisflokksmenn í
Reykjavík þyrftu að huga að
nýjum oddvita fyrir næstu
kosningar. Þetta ertil marks
um tæpa stöðu Árna Sigfús-
sonar sem þykir vægast sagt
ekki sannfærandi sem leiðtogi
minnihlutans. Vangaveltur eru
þegar byrjaðar bakviðtjöldin
um hver geti leitt listann til
sigurs gegn Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur og þykir
sýnt að leita þurfi út fyrir raðir
núverandi borgarfulltrúa.
Ýmsirtelja að Katrín sé sjálf
að gefa kost á sér til starfans,
en nafn Friðriks Sophusson-
ar hefur líka heyrst nefnt í
þessu sambandi...
„Sko, ég myndi nú eiginlega ráðleggja ykkur að smella
ykkur á grísku samlokuna, kjúklingasmásteikina eða sjáv-
arréttarsalatið... En ég vil taka það fram þannig svo að
enginn misskilningur eigi sér stað, að ekkert sem við hér á
Solon íslandus erum með á matseðlinum er beinlínis það
sem ég myndi kalla guðafæði...
v i t i m e n n
Um leið og ég greip boltann
eftlr fyrirgjöfina sló Dervic mig
beint í eistun. Um leið varð ég
brjálaður og sló mjög laust í
brjóstkassann á honum.
Frásögn Ólafs Gottskálkssonar markvaröar
KR af blíöulátum í bikarleik Vesturbæinga
og Keflvíkinga. DV í gær.
Minning Bjama Benediktssonar
er ekki fólgin í þessu málverki.
Hún er fólgin í hjörtum Isiendinga.
Katrín Fjeldsted aöspurö hvort þaö hafi veriö
„viö hæfi" aö fjarlægja málverk af Bjarna Bene-
diktssyni úr Höföa. Tíminn í gær.
Bjöm Freyr vann
Robert J. Fischer.
Fyrirsögn í Mogga í gær þarsem sagt
var frá þessu afreki Björns á nýlegu móti í
Bandaríkjunum. Robert J. Fischer reyndist
að vísu ekki Robert J. Fischer.
Stuðningur við landbúnað er
ekki einstakt fyrirbrigði hérlendis.
Hjá þjóðum Evrópusambandsins
er svimháum upphæðum varið til
stuðnings við landbúnaðinn.
Leiðari Tímans í gær, þarsem Stöð 2 var
gagnrýnd fyrir „einhliða fréttaflutning um
landbúnaöarmál".
Hávaðinn er slíkur að maður
sofnar ekki fyrren klukkan 3 á
næturnar þegar staðnum er lokað.
Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur í DV
í gær. Hann hefur skorið upp herör gegn
skemmtistaðnum Deja'vu í Þingholtsstræti
- og ekki aö ástæðulausu.
Ég þykist viss um stuðning þinn
á vettvangi jafnréttismála en
óljósar em leiðimar.
Þórunn Gestsdóttir formaöur jafnréttis- og fjöl-
skyldunefndar Sjálfstæðisflokksins skrifaöi Dav-
íö Oddssyni opið bréf um jafnréttismál í Mogg-
anum í gær. Og væntir svars.
Lífið er ekki dans á rósum hjá
stúlkunni góðu, Pamelu Lee [And-
erson] þessa dagana... Þar að auki
bætist við dólgsleg hegðun eigin-
manns Pamelu, Tommy Lee, en
hann dvelur langtímum saman
með félögum sínum að drykkju.
Morgunblaöið fylgist afar grannt með Pamelu
Anderson þessar vikurnar.
Villtir á
Vefnum
■ I dag, aðeins eitt: Það skal ítrek-
að í síðasta sinn, að tölvupóstfang
Alþýðublaðsins er staffan@centr-
um.is og netvæddir lesendur og
pennar blaðsins eru vinsamlegast
beðnir um að hafa það framvegis í
huga. Vinsamlegast nlífið sjálfum
ykkur og okkur við því óþarfa leið-
indaumstangi (og pirrandi fjárútlát-
um) sem fylgja disklingasending-
um og innslætti setningarfólks
blaðsins. Væntanlegt: „Best of Al-
þýðublaðið" á Veraldarvefnum -
allt um það þegar spennan verður
óbærileg... TAKE THAT!
v e r ö I d
f i m m
f ö r n u m
Hverjir verða bikarmeistarar í knattspyrnu? Rétt svar: Fram
Þórhildur Þrándardóttir Kjartan Jónsson nemi: KR
nemi: Fram vinnur 2-1. vinnur í tveimur leikjum, sá
fyrri verður eitt stórt og hund-
leiðinlegt núll, en KR vinnur
seinni leikinn 2-0.
Sigurður Karlsson glugga-
þvottamaður og tónlistar-
maður: KR-ingar verða miklu
betri en vinna bara 2-1.
Kristín Fenger húsmóðir:
Ég held að Fram vinni öruggan
sigur, 3-1, enda eru þeir miklu
betri.
Þórarinn Kjartansson
nemi: KR vinnur öruggan sig-
ur, 2-0.
Svo óheppilega vildi til þegar Rómar-
veldi hrundi til grunna á fimmtu öld
eftir Krists burð, að læknisfræði-
kennsla varð í leiðinni „útdauð" í
Evrópu. Hinsvegar vildi svo einstak-
lega vel til að blessaðir arabamir -
svo menningarlegir sem þeir jú eru og
hafa ávallt verið - redduðu málunum
því þeir höfðu um langt skeið safnað
gríðarlegum fjölda af grískum læknis-
fræðihandritum, stúderað þau og þýtt
af stakri snilld. Fyrir tilstilli araba
geymdist þekkingin þannig í þeirra
höndum fýrir komandi fróðleiksþyrst-
ar kynslóðir Evrópumanna í stað þess
að gleymast. Sem aukabónus bættu
arabamir heilmiklu við handritin og
löguðu það sem vitlaust var eða af-
laga hafði þar farið gegnum aldir
alda.
Byggt á Isaac Asimov's
Book of Facts.