Alþýðublaðið - 09.08.1995, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
ó r n m á I
■ Athygliverð grein Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur og Ingu Dóru Bjömsdóttur í
evrópsku kvennafræðitímariti fjallar um eðlishyggju Kvennalistans og þau áhrif sem hún
hefur haft á innri störf Kvennalistans. Guðrún Vilmundardóttir kynnti sér málið í gærdag
og ræddi við Kristínu Ástgeirsdóttur og Helgu Sigurjónsdóttur
Refsingar
innan Kvennalistans
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir: Þrátt fyrir að
eðlishyggjan hafi að mörgu leyti reynst sterk
aðferð hefur hún leitt til þess að konum, sem
hafa ekki uppfyllt öll skilyrði Kvennalistans, hef-
ur verið refsað.
Helga Sigurjónsdóttir: Kvennalistinn er rang-
lega ásakaður fyrir að gera lítið úr barnlausum
konum. Það sem mér hefur fundist að Kvenna-
listanum frá fyrstu tíð er það sem er einfaldlega
hægt að kalla skoðanakúgun.
Kristín Ástgeirsdóttir: Ég kannast ekki við þá
iýsingu á Kvennalistanum, að konur hafi verið
hraktar í burtu. Ég kannast ekki við að Sigríði
Dúnu hafi verið hafnað, hvað sem hún hefur
upplifað sjálf. A-myndir: E.Ói.
Leigjenda-
skipti
Leiguhorn þetta er hér endurbirt
vegna tveggja meinlegra villna sem á
óskiljanlegan hátt slœddust inn við
setningu þess síðastliðinn fimmtu-
dag. Hlutaðeigandi eru beðnir vel-
virðingar:
Leigan
_______________i
Jón Kjartansson
frá Pálrciholti,
formaður
Leigjendasam-
takanna, skrifar
í grein í tímaritinu The European
Joumal of Women 's Studies gera þær
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og
Inga Dóra Björnsdóttir að umtals-
efni sínu eðlishyggju Kvennalistans
og þau áhrif sem sú hyggja hefur haft
á innri störf og áherslur Kvennalist-
ans.
I greininni segir að Kvennalistinn
hafi lagt áherslu á að konur séu í eðh
sínu ólíkar karlmönnum og að þær
hafi eitthvað allt annað og betra en
þeir að bjóða samfélaginu. Rauðsokk-
umar vildu meina að til að ná jafn-
rétti, völdum og virðingu í karlasam-
félaginu yrðu konur að haga sér eins
og karlmenn. En samkvæmt eðlis-
hyggju Kvennalistans er leiðin til
kvenfrelsis að leggja áherslu á kven-
legt og móðurlegt eðli, sem er inn-
byggt í svokallaða kvennamenningu.
Inni í hugmyndinni um eðlislægan
mun karla og kvenna var að konur
áttu að vera sterkari siðferðislega og
réttlátari, og var það ein ástæða til að
nærvera þeirra-í stjómsýslunni var tal-
in nauðsynleg.
í greininni segir ennfremur að þó
að eðlishyggjan hafi að mörgu leyti
reynst sterk aðferð, hafi hún þó sínar
neikvæðu hliðar. Hún hefur leitt til
þess að konum, sem hafa ekki upp-
fyllt öll skilyrði Kvennalistans, heftir
verið refsað, það hefúr verið þaggað
niður í þeim og þær jafnvel látnar
yfirgefa Kvennalistann.
Upphaflega var kvennamenning
álitin spretta upp af öllum sérstökum
upplifunum kvenna ffá blautu bams-
beini til gamals aldurs. En með tíman-
um var aðaláhersla lögð á reynslu
kvenna af barnsburði og á liefð-
bundnu móður og húsmóðurhlutverk-
in og þessi atriði urðu samnefnari fyr-
ir kvennamenninguna. Hið sanna eðli
konu kemur ekki fram fyrr en hún
eignast bam.
Ástæðan fyrir því að Kvennalistinn
hefur refsað konum innan sinna vé-
banda er meðal annars sú mótsögn
sem felst í eðlishyggjunni. Eðli kon-
unnar, ákvarðað af bamsburði, er háð
hjálp karlmanns og það verður meira
að segja að vera réttur maður, skoðan-
ir hans og siðferðileg hegðun verður
að vera Kvennalistanum þóknanleg.
Neikvæð viðbrögð gagnvart konum
sem hafa tekið saman við „óvininn“
em tengd þeirri hugmynd að konur
séu siðferðilega sterkari og heiðarlegri
en karlmenn, en það var ein aðal-
ástæðan fyrir því að kvennahreyfingin
ákvað að taka þátt í stjómmálum.
í niðurlagi greinarinnar segir að
þegar eðlishyggjan stýri málflutningi
feminista, eins og hjá Kvennalistan-
um, séu konur með ólfkar skoðanir og
ólíkan bakgrunn kúgaðar en kven-
frelsishreyfingin var einmitt sett á
laggirnar til að frelsa konur undan
kúgun.
Alþýðublaðið leitaði álits Helgu
Sigurjónsdóttur kennara og fyrrver-
andi Kvennalistakonu og Kristínar
Ástgeirsdóttur þingkonu Kvennalist-
ans á fullyrðingum um að Kvennalist-
inn refsi konum sem falli ekki að
ákveðinni ímynd, að konum hafi verið
refsað fyrir „syndir" eiginmannanna
og að móðurhhitverkið sé sett á slíkan
stall að bamlausum konum finnist þær
úti á kanti.
Helga Sigurjónsdóttir,
kennari
„Við Helga Kress vomm upphafs-
konur þess að tala um kvennamenn-
ingu. Tilgangurinn var sá að hverfa
frá þeirri neikvæðni sem hafði ein-
kennt kvennabaráttuna, allt sem
tengdist konum og þeirra störfum var
neikvætt og minna virði en það sem
við köllum karlamenningu. Það er
staðreynd að konur em mæður og það
skiptir gífurlega miklu máh fyrir líf
kvenna. Ég held að það væri ekki
mikil þörf á kvennabaráttu ef konur
þyrftu ekki að taka ábyrgð á bömum
og heimili. Það hefur ákaflega lítið
þokast í rétta átt í því sambandi. Það á
ekki að líta á konur eingöngu sem
mæður en það má ekki horfa ffam hjá
því að konur em mæður og það verð-
ur að skipa málum þannig að konur
tapi ekki á nokkum hátt þó að þær séu
mæður.
Ég get ekki um það sagt hvort bam-
lausum konum finnist þær úti á kanti í
Kvennalistanum en ég kannast við
það úr Rauðsokkuhreyfingunni, sem
þó var talin karlmannleg, að bamlaus-
um konum fannst þær útundan. Þann-
ig að ég held að Kvennalistinn sé
ranglega ásakaður fyrir að gera lítið úr
bamlausum konum.
Það sem mér hefur fundist að
Kvennalistanum frá fyrstu tíð er það
sem er einfaldlega hægt að kalla skoð-
anakúgun. Aftur og aftur var ég tekin
á beinið og sagt við mig: „Þú mátt
ekki segja...“ og svo var vimað í eitt-
hvað sem ég hafði áður sagt. Á sínum
tíma mátti ég til dæmis alls ekki segja
að mér fannst hlutimir vera að endur-
taka sig úr Rauðsokkuhreyfingunni.
Ég var örugglega ekki ein um þetta.
Þess vegna meðal annars sagði ég
mig úr Kvennalistanum, maður nennir
ekki að standa í svona skoðanakúgun.
Ég útskýri hana með óöryggi kvenn-
anna; þær hljóta að vera óöruggar
með sig og sitt til að láta svona, til að
þurfa á einni sameiginlegri hækju að
halda.
Ég þekki báðar konumar sem em
nefndar sem dæmi um að hafa verið
refsað fyrir syndir eiginmannanna.
Það er alveg út í hött að bendla konu
við viðskipti manns hennar og enn
verra að skipta sér af því hvort eigin-
maður konu er hægri eða vinstrisinn-
aður.“
Kristín Ástgeirsdóttir,
þingkona Kvennalistans
„Eg hef ekki lesið greinina, en það
sem þú berð undir mig finnst mér
stórar og alvarlegar fúllyrðingar, enda
veit ég til þess að þessari grein var
hafnað af Norræna kvennatímaritinu
Noru. Ég met Sigríði Dúnu mikils og
finnst leitt að hún skuli vera að skrifa
svona.
Það er auðvitað ljóst að það hafa
alltaf verið uppi hugmyndir um
hvemig konur eigi eða megi vera, en
ég h't þannig á að það sé einmitt gegn
þeim hugmyndum sem Kvennalistinn
vill beita sér; við höfúm lagt áherslu á
hugtakið kvenffelsi. Ég kannast ekki
við þá lýsingu á Kvennalistanum, að
konur hafi verið hraktar í burtu.
Ég kannast við bæði dæmin sem
eru nefnd um konur sem er refsað
vegna eiginmannanna; annað er nú af
greinarhöfundi og það er ein ástæðan
fyrir því að Norræna kvennatímaritið
hafnaði greininni. Þetta er dáh'tið und-
arleg fræðimennska, mér finnst grein-
arhöfundar tefla fræðimannsheiðri
sínum á tæpasta vað. Hitt dæmið var
erfitt að því leyti að sem eiginkona
bar konan fjárhagslega ábyrgð í erfiðu
máli. Hún hefúr sjálf gagnrýnt hvem-
ig var brugðist við en hún er enn í
Kvennalistanum.
Maður veit auðvitað ekki hvað sá
upphfir sem á í hlut og það er erfitt í
þessu tilfelli af því að Sign'ður Dúna
er að skrifa um sjálfa sig. Ég veit ekki
betur en að við höfum gengið á eftir
henni með grasið í skónum til að fá
hana til að vera í ýmsum stjómum og
nefndum fyrir okkur og þetta var
margra ára gamalt mál þegar hún
hætti í Kvennalistanum f fyrra. Ég
kannast ekki við að henni hafi verið
hafnað, hvað sem hún hefúr upplifað
sjálf.
1990 var staða bamlausra kvenna
tekin til umræðu í Kvennalistanum,
og síðan þá hafa áherslur breyst mjög
mikið. Við leggjum meiri áherslu á
konur sem einstaklinga, þeirra frelsi
til að vera eins og þær vilja. Frá 1970
hefur hópur útivinnandi mæðra verið
kjaminn í kvennahreyfmgunni og það
hefur kannski komið fram f stefnu-
mótun, en hafi einhvem tímann verið
einhver móðurdýrkun er það liðin tíð.
Það hefur reyndar komið ffam í grein
eftir Auði Styrkársdóttur að ef ein-
hver var talsmaður mæðrahyggjunnar
svokölluðu var það Sign'ður Dúna, en
hafi það verið er það hðin tíð.
Hugmyndir eðlishyggjunnar um að
konur séu betri, friðsamari og um-
hyggjusamari en karlar, sem em 19.
aldar hugmyndir karla um konur, em
gamlar og löngu úreltar. Kvenna-
menning sú sem við tölum um kemur
eðlinu ekkert við, heldur er mótúð af
aðstæðum, menningu og verkaskipt-
ingu.“ ■
Maður hringdi, hann var að flytja úr
íbúð og annar að flytja inn. Sá sem
flytur út hafði samið við eiganda um
að fara áður en uppsagnarfrestur er
liðinn. Þar sem nýr leigjandi (ekki
„eigandi") er kominn strax er um
tvennt að ræða; nýr leigjandi tekur við
samningi þess sem fór, en það er svo-
kölluð framleiga, eða eigandi gerir
upp málin við þann sem fer og af-
hendir honum tryggingafé eða leggur
ffam kröfúr, ef einhverjar em. Síðan
gerir eigandi nýjan samning við þann
sem kemur.
Sem maðurinn er að ljúka ffágangi
íbúðarinnar er hann flytur úr, er hringt
til hans frá leigumiðlun og honum til-
kynnt að hann eigi að greiða fyrir
samningsgerð hins nýja leigjanda og
eigandans. Því neitaði hann vitaskuld.
f 1. málsgrein 77. greinar húsaleigu-
laga segir: „Leigumiðlara ber þóknun
úr hendi leigusala fyrir að koma á
leigusamningi." Og síðar í 2. máls.-
grein: „Óheimilt er leigumiðlara að
taka þóknun af leigjanda (tvö orð sem
féllu út) fyrir miðlunina og gerð leigu-
samnings."
Telji eigandi sig eiga eitthvað óupp-
gert við ffáfarandi leigjanda, ber hon-
um að snúa sér til hans því leigumiðl-
ari getur ekki krafið leigjanda um
greiðslu. ■
Höfundur er formaður
Leigjendasamtakanna.
Vinningstölur
5. ágúst 1995
| VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
H 5 af 5 0 2.017.272
PH +4af 5 2 149.320
1R1 4 af 5 76 6.770
□ 3 af 5 2.388 500
Aðaltölur:
3^(4
11 22 35
BÓNUSTALA;
@
Heildarupphasð þessa viku:
kr. 4.024.432
UPPLVSINGAR, SÍMSVARI 91- 68 15 11
UJKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451