Alþýðublaðið - 11.08.1995, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HELGIN 11.-13. ÁGÚST 1995
MÞYÐUBllBIÐ
20966. töiublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SiguröurTómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín hf.
Prentun (safoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverö kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Húrra. Fyrir Thor
Alþýðublaðið í dag hefur óvæntar fréttir fram að færa: Thor
Vilhjálmsson verður sjötugur laugardaginn 12. ágúst. Trúlega
þarf að segja mörgum þessi tíðindi að minnsta kosti þrisvar, því
fáir menn íslenskir virðast fjær því að verða nokkurskonar elli að
bráð. Þvert á móti. Það er líktog Thor vaxi ásmegin með hveiju
ári - síðasti áratugur hefur verið mestur blómatími hans sem rit-
höfundar. Hvert snilldarverkið hefur rekið annað, skáldsögur,
endurminningar, þættir, ljóð. Allar götur síðan 1950, þegar fyrsta
skáldverk Thors kom út, Maðurinn er alltaf einn, hefur hann
haldið áfram að ausa af gnægtabrunni; algerlega óháður tísku-
straumum, sveiflum, ólundarlegu nöldri. Thor hefur sýnt dirfsku
og heiðarleika, ævinlega farið sínu fram af því hann vissi hvert
ferðinni var heitið. í dálitlum leiðarastúf er ekki tóm til að gera
Thor Vilhjálmssyni viðhlítandi skil en athygli lesenda er vakin á
ritgerðum Sigurðar Pálssonar og Kolbrúnar Bergþórsdóttur sem
birtast hér í blaðinu í dag. Þó er enn meiri ástæða til að örva þá til
dáða sem ekki hafa kynnst verkum Thors Vilhjálmssonar, eða í
mesta lagi fengið nasasjón; þeir sem eru þegnar í skáldríki hans
eru menn auðugir.
Alþýðublaðið óskar Thor Vilhjálmssyni til hamingju með af-
mælið. Þó er enn meiri ástæða til óska unnendum skáldskapar til
hamingju með Thor.
Gott ár fyrir
samviskuna, ’56
íslendingar hafa tekið á móti þremur flóttamönnum frá lýð-
veldum fynum Júgóslavíu. Skálmöldin hefur staðið í ijögur ár og
milljónir eru landflótta. Þrátt fyrir að Evrópuríkjunum hafi farist
vesældarlega í svokölluðum friðarumleitunum sínum hafa þau,
hvert og eitt einasta, tekið við flóttafólki. Nema íslendingar.
í Alþýðublaðinu í dag er rætt við þijá þingmenn um afstöðu ís-
lands til viðtöku flóttamanna. í máli Láru Margrétar Ragnarsdótt-
ur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, kemur fram að hún hefur
ekki (ffemur en þingmenn upp til hópa) hugleitt málið að nokkm
marki, en telur sjálfsagt að ljá því nokkra þanka og kannski gera
eitthvað í framhaldi af því. Lára Margrét rifjar upp að árið 1956
tóku íslendingar við flóttamönnum frá Ungveijalandi og fmnst
greinilega að það sé nokkur búningsbót.
Þeir íslendingar sem kjósa að taka mark á þeim alþjóðasamn-
ingum sem við höfum undirritað hafa bent á, að okkur ber skylda
til þess að skjóta skjólshúsi yfir að minnsta kosti 25 flóttamenn á
ári. Við höfum bmgðist þeirri skyldu. Þessvegna ætti nú, án tafar,
að bæta fyrir þær vanrækslusyndir. Fyrsta skrefið gæti verið fólg-
ið í því að bjóða hingað ekki færri en eitthundrað landflótta íbú-
um Júgóslavíu sálugu. Þá gæti 1995 orðið álíka gott ár fyrir sam-
visku þjóðarinnar og ’56.
Milli fjalls og fjöru
Á morgun, laugardaginn 12. ágúst, er skógræktardagur og þá
mun mörg plantan skjóta rótum á hrjóstmgu berangri. Hvorki
fleiri né færri en 51 skógræktarfélag er á Islandi og em félags-
menn sjö þúsund. Miklu fleiri leggja vitaskuld þeim góða mál-
stað lið að klæða landið gróðri, enda hefur orðið ánægjuleg vakn-
ing í þessum efnum hin síðari ár. Með skógræktardeginum vilja
félögin sem að honum standa vekja athygli á því sem áunnist hef-
ur, og glæða enn áhuga landsmanna á þessum málum. Framtakið
er lofsvert og vonandi munu sem flestir leggja sitt af mörkum. ■
s k o ð a n i r
r
Island: Fyndnasta land heims
íslendingar eru séní. Skemmtileg-
asta þjóð heims.
I ríkinu á föstudegi hitti ég kunn-
ingja austan af fjörðum, grannleitan
grínara og lúmskan snilling sem þegið
hefur laun á flestum af merkustu
vinnustöðum heimsins: Smugunni,
Bylgjunni, Roskilde, Lagarfossi og
ljósmyndastúdíóum Parísar. Við emm
að ræða verðlagningu á bjór þegar ég
spyr hann hvemig hann haldi að helg-
in verði.
„Helgin verður ein Ragnheiður,
kannski tvær...“ svarar hann og fatt-
laus við kassann fuðra ég upp í eitt
spumingamerki. Ragnheiður = 5000
kall útskýrir hann. Og svo er hann þot-
inn í apótekið að útvega sér „standar-
dútbúnað" fyrir kvöldið.
Itar |
Hallgrímur
Helgason
skrifar
Af nokkuð óskiljanlegum orsökum
hefur mér 12 tímum síðar skolað inn í
litla eldhúskompu baksviðs á Kaffi
Reykjavík eftir að staðnum hefur verið
lokað og sit þar í einhverskonar eftir-
partýi ásamt nokkrum stórsnillingum
að norðan; gömlum og góðum Skrið-
jöklum í bland sem nýlokið hafa spila-
mennsku. Ég spyr hvernig kvöldið
hafi verið - og reyni að flagga mínum
fínasta norðan-frasa með tilheyrandi
framburði - ég spyr hvort þetta hafi
ekki verið „algjör Toyota“? Þetta
finnst þeim fyndið en samt ekki nógu
fyndið, þetta er gamalt.
„Þetta var algjört steisjon“ segja
þeir.
Bílunnandi Akureyringar sækja
gjaman líkingar sínar og lýsingarorð í
eða aftur í skott á bflum.
Nokkm síðar er ég staddur á ættar-
móti á Fljótsbökkum austur á Héraði
þar sem Skógargerðisættin hittist á
sfnu ættaróðali og þar er farið með vís-
ur og þar em sagðar sögur og þar em
haldnar ræður. Eina flámælisvísu
lærði ég þar:
Magnast élin mjög í ár
margan kelur smáfuglinn.
Nú er elur ruesta smár
nú er belur drengur minn.
Ekki er víst að öðmm þjóðum sé
gefinn sá sálarhúmor að sjá glitta í
grínið í miðri norðanstórhríð.
Undir kvöldverði í Valaskjálf flutti
Dagný Marinósdóttir á Sauðanesi stór-
snjalla ræðu þar sem hún reifaði helstu
einkenni á talsmáta ættarinnar, þó
einkum rammíslenskri kúnst hennar
að segja sem minnst þegar mest liggur
við. Understatement heitir það.
Seinir til vandræða og latir til orða
lauma Skógargerðismenn útúr sér að
lokinni langri ræðu viðmælanda sem
hefur hreinlega ofboðið þeim með
málæðandi vitleysu:
„Þetta er speki“.
Þegar enn æstari viðmælandinn hef-
ur í löngu orði hvatt þá til dáða, til „að
drífa sig“ og „gera eitthvað í þessu" og
fara nú „að ákveða sig“, „áður en það
verður of seint" (allt þetta sem Skógar-
gerðismenn telja með hvað mestum
Vikupi
óþarfa) þá svara þeir með hægð og
stillingu:
^Já, það er sjálfsagt."
I liðinni viku var óg fenginn ásamt
fleiri höfundum til að lesa upp á
kvöldvöku hjá Norræna Sumarháskól-
anum á Nesjavöllum, fýrir formennt-
aða skandínava, alkvörulesið fólk sem
drekkur til að huggheita sig og hefúr
orðið „roligt" yfir skemmtun. Við
Steinunn Sig, Didda og Einar Már fór-
um að sjálfsögðu á kostum. Salurinn
átti erfitt með að halda bjómum í glös-
unum og sprakk svo endanlega þegar
ungmennahljómsveitin Kósí (þrátt fýr-
ir meint skoðanaleysi í pólitík) steig á
svið. Norrænir gestir áttu ekki von á
því að „kulturprogram" gæti verið
svona morsamt.
Þeir hefðu betur einnig verið við-
staddir hagyrðingamótið á Vopnafirði
þar sem Hákon Aðalsteinsson og fé-
lagar voru ennþá fyndnari, í þeirri
íþrótt þar sem íslensk menning rís
hæst: Að botna vísur og kasta fram
nýjum á staðnum. Er ekki kominn U'mi
á það að skemmtun þessi sé leidd írarn
í vikulegum sjónarpsþætti?
Hvers vegna erum við Islendingar
svona skemmilegir? Jú, við búum í
gamansömu landi. Sjálft nafn þess er
hálfgert öfugmæli, gamall brandari
sagður á Glámu á einhveijum sunnu-
dagsmorgninum þegar menn voru að
leika sér að nefna lönd og allt var
fýndið eins og jafhan verðu í þynnku.
,JJey! Eigum við ekki bara að kalla
þetta þama Grænland strákar?"
Og yfir jtetta land okkar dæla grín-
aktugir veðurguðir í sífellu nýjum
bröndurum. Hálendið alhvítt í júh'. 17
gráður á Seyðisfirði í janúar. Haust-
veður í byrjun ágúst. Brumhnappar
birtast í mars og segja svo: Nei, bara
að grínast.
Hér er engu hægt að treysta.
ísland stendur vel undir nafni sem
fyndnasta land heims. Til jarðfræði-
legra skemmtiatriða má telja hin ár-
vissu landris og sig. Af og til glotta
virknisvæðin upp úr sér hraunglettum,
búa jafnvel til ný fjöll eins og til að
stríða Landmælingum eða rísa með
eyjar úr sæ. Annað slagið sleppa
sprungusvæðin upp úr sé innibyrgðum
hlátursstunum sem koma svo fram á
jarðskjálftamælum, í dag fýrir sunnan,
fyrir norðan á morgun, og engin skýr-
anleg ástæða; enginn veit að hverju
verið er að hlæja. Húmorinn liggur
svo djúpt í þessu landi. Og jöklamir
springa reglulega af hlátri og og gusa
útúr sér aurskríðandi hlaupum niður á
sandana. Af sértakri hótfyndni er
Geysir gamli hættur að troða upp
nema hann fái vænan skammt af sápu,
lflct og aldurhniginn poppari sem ekki
fæst á svið án þess að fá skammtinn
sinn.
Er hægt að taka slfkt land alvarlega?
Nei. Og það vita íslendigar, og vita
það einnig að ekkert fer þeim jafh illa
og taka sjálfa sig alvarlga. Slíkt hendir
menn helst hér á mölinni, í þessu
,Jiagsmunaástandi“ sem hér ríkir. Líkt
og sést af framansönnuðu lifir íslensk-
ur húmor best á landsbyggðinni þar
sem fólk er enn að kljást við þetta háð-
glettna land.
Helst em það ftalir sem slaga uppí
okkur á grínskalanum; þeir em næst
skemmtilegasta þjóð í heimi, enda
land þeirra að mörgu leyti líkt okkar,
tijálaust og eldfjallað. Að vísu skortir
þá hið stöðuga skemmtiprógramm
verðurguðanna en á móti hafa þeir
kaþólsku kirkjuna, páfann og allt það
absúrdleikhús.
Kæm landar. Gemm okkurt grein
fyrir því að við munum aldrei verða
„teknir alvarlega í samfélagi þjóð-
anna“ wegna þess að við búum ekki í
„alvarlegu" landi. Gemm oss grein
fýrir því og gemm útá það. Við emm
ekkert annað en kolbrjálaðir vitleys-
ingar og djókarar sem byggjum ffíkað
eyland sem rís eins og hver annar
brandari úr húmorslausu úthafinu. En
gleymum því ekki að einmitt þess
vegna emm við sém'. ■
Atburðir dagsins
1519 Johann Tetzel erkibiskup
í Leipzig deyr: hann átti hug-
myndina að því að selja afláLs-
bréf til að safna fé til byggingu
Péturskirkju í Róm. 1919 Iðn-
jöfurinn og mannvinurinn
Andrew Carnigie deyr. Hann
var kallaður „stálbarón með
hjarta úr gulli“. 1938 Skátafor-
inginn Baden-Powell kemur í
heimsókn til fslands. 1956
Listmálarinn, drykkjurúturinn
og snillingurinn Jackson
Pollock deyr í bílslysi. 1962
Chad öðlast sjálfstæði frá
Frakklandi.
Afmælisbörn dagsins
Hugh MasDiurmid skoskt
ljóðskáld og stofnandi Skoska
þjóðemisflokkins, 1892. Enid
Blyton enskur höfundur bama-
bóka, 1897. Alex Haily banda-
rískur rithöfundur, skrifaði
meðal annars Rætur um kjör
svertingja sem fluttir voru
nauðugir frá Afrfku og gerðir
að þrælum í Bandaríkjunum,
1921.
Annálsbrot dagsins
Stór tíðindi spurðust úr Múla-
sýslu að austan, að einn maður
hafði átt barn með sinni eigin
holdlegri dóttur, og síðan, er
brotið opinberaðist, sér sjálfum
tortíml og að bana orðið. Þetta
skeði með því móti, að þessi
hans dóttir vildi frá föður sín-
um víkja og fékk ei íýrir presú
og hreppstjóram, því faðirinn
sagði henni óhlýðni valda og
viljaleysi sér að þjóna.
Eyrarannáll 1671
Málsháttur dagsins
Kvíð ei fyrr en á dettur.
Orð dagsins
Ég hefi reynt í éljum nauða
jafnvel meira þér.
Á landamerkjum lífs og dauða
leikur enginn sér.
Snæbjörn Krlstjánsson.
Snilld dagsins
Þetta virtist allra huggulegasti
staður.
Warren Christpher utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna eftir heim-
sókn í höll soldánsins á Brúnei.
Höllin er lögö gulli og marmara,
herbergin eru 1788 og bíl"skúr-
inn" rúmar 800 bifreiðar.
Skák dagsins
Englendingurinn John Nunn
er stærðfræðingur og mikill
heiðursmaður. Hann hefur síð-
asta áratuginn verið í hópi öfl-
ugustu meistara og lætur ekki
bilbug á sér flnna. I skák dags-
ins er hann að vísu í hlutverki
fómarlambsins: Rajkovic hef-
ur hvítt og á leik.
1. Hxf5! Hxf5 2. Re6 g5 3.
Dg4 Da5 4. b4! Rxb4 5. RxdS
h5 6. He8+ og nú hafði Nunn
reiknað dæmið til enda og
gafst upp.