Alþýðublaðið - 11.08.1995, Page 9
HELGIN 11.-13. ÁGÚST 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
s n
9
í I I a i*
Hann sagði rétta hluti,
en kallaði þá röngum
nöfnum.
Robert Browning, 1812-1889
Maðurinn er í eðli
sínu trúað villidýr.
Edmund Burke, 1729-1797
Því hefur verið haldið
fram, að ást á peningum
sé rót alls hins illa.
Skortur á peningum
er það sömuleiðis.
Samuel Butler, 1835-1902
Hinn heilbrigði magi er
ekkert nema íhaldssamur.
Fáir róttæklingar geta
státað afgóðri
meltingarstarfsemi.
Samuel Butler, 1835-1902
Lífið er of skammvinnt
fyrir skák.
Henry J. Byron, 1834-1884
Hversvegna er hjarta-
kóngurinn sá eini sem
ekki hefur yfirskegg?
James Branch Cabell, 1879-1958
Þegar manni hefur ekki
verið ógnað með miklu
óréttlæti, þiggur maður
smávegis óréttlæti
sem greiða.
Jane Welsh Carlyle, 1801-1866
Einu góðu ríkisstjórnirn-
ar... eru vondar ríkis-
stjórnir í algjöru
skelfingarlosti.
Joyce Cary, 1888-1957
Ef bækur mínar hefðu
verið öllu verri þá hefðu
þeir ekki boðið mér til
Hollywood. Ef þær hefðu
hinsvegar verið öllu
skárri þá hefði ég náttúr-
lega ekki komið.
Raymond Chandler, 1888-1959
Ekki ganga í hjónaband
ef þú hræðist einmana-
leikann.
Anton Tsjékov, 1860-1904
Vertu vitrari en annað
ef fólk ef þú mögulega
getur, en ekki tilkynna
þeim það.
Jarlinn af Chesterfield, 1692-1773
Það er ekkert bjánalegra
en bjánalegur hlátur.
Catullus, 87-54 fyrir Krist
Ég er þess fullviss að þar-
sem ég hef haft fullt vald
á skynseminni hefur eng-
inn heyrt mig hlæja.
Jarlinn af Chesterfield, 1692-1773
Góð skáldsaga segir
okkur sannleikann um
söguhetjuna; en slæm
skáldsaga segir okkur
sannleikann um
höfund hennar.
G.K. Chesterton, 1874-1936
Ef maður þarf að vera
nógu snjall til öðlast alla
þessa peninga, þá þarf
maður sömuleiðis að
vera nógu heimskur til
að vilja þá.
G.K. Chesterton, 1874-1936
Herra Shaw er - grunar
mig - eini maðurinn í ver-
öldinni sem aldrei nokk-
urn tíma hefur ort Ijóð.
G.K. Chesterton, 1874-1936
Blaðamennska saman-
stendur mestmegnis af
því að segja „Jones lá-
varður látinn" við fólk
sem aldrei vissi að Jones
lávarður væri á lífi.
G.K. Chesterton, 1874-1936
Ekkert er svo fjarstæðu-
kennt að einhver heim-
spekingurinn hafi ekki
þegar sagt það.
Marcus Tullius Cicero, 106-43 fyrir Krist
Menn eru til í að játa á
sig föðurlandssvik, morð,
íkveikju, falskar tennur og
hárkollur... En hversu
margir þora að viður-
kenna skort á skopskyni?
Frank Colby, 1865-1925
Ég er ekki andvígur
skyndigiftingum þegar
ástarblossa brúðhjón-
anna er haldið vakandi af
viðunandi tekjum.
Wilkie Collins, 1824-1889
Ég gæti vel hugsað
mér að kvænast yður ein-
ungis til þess að vera
laus við yður.
William Congreve, 1670-1729
Mér verður óglatt á
göngu - ég hef viðbjóð á
göngutúrum; að ganga er
dreifbýlisdægradvöl og
ég fyrirlít dreifbýlið.
William Congreve, 1670-1729
Ég hef alltaf kunnað illa
við sjálfan mig á hvaða
tiltekna augnabliki sem
er; summa þessara
augnablika er líf mitt.
Cyril Connolly, 1903-1974
Engin borg skyldi vera
svo stór að maður geti
ekki gengið útúr henni á
morgunstund.
Cyril Connolly, 1903-1974
Raunveruleg innsýn í per-
sónuleika hvers manns er
heilsa eiginkonu hans.
Cyril Connolly, 1903-1974
Enginn maður er hetja í
augum einkaþjóns síns.
Anne Bigot de Cornuel, 1605-1694
Ákveðnar konur ætti að
löðrunga reglulega.
Noél Coward, 1899-1973
Óðir hundar og
Englendingar fara út í
síðdegissólina.
Noél Coward, 1899-1973
Ég hefverið fimm mínút-
um ofsein allt mitt líf.
Hannah Cowley, 1743-1809
„Leikurinn," sagði hann,
„er aldrei tapaður
fyrren sigur næst."
George Crabbe, 1754-1832
Stjórnmálamaður er rass-
gat sem allir hafa setið á
- nema manneskja.
e.e. cummings, 1894-1962
Dúdú-fuglinn átti aldrei
nokkurn einasta mögu-
leika. Hann virðist hafa
verið fundinn upp til þess
eins að verða útdauður
og var ekki til nokkurs
annars nýtur.
Will Cuppy, 1884-1949 H
Ég tala spænsku við guð,
ítölsku við konur, frönsku
við karlmenn og þýsku
við hestinn minn.
Charles V, 1500-1558
Menningarsjóður
útvarpsstöðva auglýsir
Samkvæmt útvarpslögum og reglugerð um Menning-
arsjóð útvarpsstöðva er hlutverk sjóðsins m.a. að veita
styrki til eflingar innlendri dagskrárgerð fyrir hljóðvarp
og sjónvarp, þeirri er verða má til menningarauka og
fræðslu.
Stjórn sjóðsins auglýsir hér með eftir umsóknum um
styrki úr sjóðnum. Til úthlutunar eru u.þ.b. kr.
30.000.000. í umsóknum skulu eftirfarandi upplýsingar
komarfram:
1. Nafn umsækjanda, kennitala og heimilisfang, ásamt
upplýsingum um aðstandendur verkefnis og sam-
starfsaðila og skriflegum staðfestingum allra aðila um
þátttöku í verkefninu.
2. Heiti verkefnis og megininntak.
3. ítarleg og sundurliðuð kostnaðaráætlun ásamt grein-
argerð um fjármögnun, þ.m.t. um framlög og styrki frá
öðrum aðilum, sem fengist hafa eða sótt hefur verið
um, eða fyrirhugað er að sækja um.
4. Fjárhæð styrks sem sótt er um.
5. Nákvæm áætlun um framvindu verkefnis og greinar-
gerð um það til hvaða verkþátta sótt er um styrk til.
6. Handrit eða nákvæm lýsing verkefnis.
7. Yfirlýsing útvarpsstöðvar um að fyrirhugað sé að
taka dagskrárefni, sem sótt er um styrk til, á dagskrá.
Umsóknum og öllum fylgigögnum ber að skila í þríriti
á skrifstofu ritara stjórnar, Bjarna Þórs Óskarssonar
hdl., Laugavegi 97, 101 Reykjavík, eigi síðar en 30. ág-
úst nk. Úthlutunarreglur sjóðsins og umsóknareyðu-
blöð fást afhent á sama stað.
Þeir aðilar sem sóttu um styrk sumarið 1994 og vilja að
tillit verði tekið til umsókna þeirra við úthlutun nú ber
að senda viljayfirlýsingu þar um, á sama stað og um-
sóknir, fyrir lok umsóknarfrests.
Ekki verður tekið tillit til umsókna sem ekki uppfyllla öll
framangrein skilyrði, né eldri umsókna, nema framan-
greind viljayfirlýsing berist.
Farþegaflufningar
með hópbifreiðum
Að gefnu tilefni vill samgönguráðuneytið vekja athygli
á því að til að stunda fólksflutninga í atvinnuskyni með
hópbifreiðum sem rúma níu farþega eða fleiri þarf lög-
um samkvæmt hópferðaleyfi. Jafnframt þarf hópbif-
reiðin að vera tryggð til fólksflutninga og bifreiðastjóri
hennar að hafa tilskilin ökuréttindi.
Til að öðlast hópferðaleyfi þarf að uppfylla skilyrði laga
um óflekkað mannorð, fullnægjandi starfshæfni og fjár-
hagsstöðu.
Samgönguráðuneytid, 9. ágúst 1995