Alþýðublaðið - 31.08.1995, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 31.08.1995, Blaðsíða 8
\V\WEVfW 4 - 8 farþega og hjólastólabílar 5 88 55 22 Fimmtudagur 31. ágúst 1995 131. tölublað - 76. árgangur * * 'míWILl/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk ■ Bændasamtökin leita leiða til sparnaðar Ihuga að flytja af Hótel Sögu Stjórn Bændasamtakanna hef- ur ákveðið að kanna hagkvæmni þess að flytja alla sína starfsemi frá Hótel Sögu og leita eftir sam- vinnu við aðra aðila sem tengjast iandbúnaðarkerfinu um sameig- inlegt húsnæði. Bændasamtökin eru nú í einu dýrasta húsnæði borgarinnar. Þetta kemur fram í málgagni samtakanna, Bændablaðinu. Á stjórnarfundi Bændasamtakanna á dögunum var samþykkt tillaga frá Hrafnkatli Karlssyni um að kanna hvort ekki væri hagkvæmt að flytja alla starfsemina í hent- ugra og ódýrara húsnæði. í grein- argerð með tillögunni segir að nú- verandi húsnæði samtakanna sé eitt hið dýrasta í Reykjavík. „Framboð af skrifstofuhúsnæði er talsvert og verð fremur lágt og því eðlilegt að velta fyrir sér hvort hægt sé að spara með flutningi. Ef starfsemin á að vera áfram í Bændahöllinni verður ekki hjá því komist að gera talsverðar breytingar á því. Lögun þess og innkoma gerir allt skipulag erfitt og verður ekki séð hvernig það verður leyst nema með æmum til- kostiiaði,“ segir í greinargerð Hrafnkels. Gert er ráð fyrir að leitað verði til Framleiðsluráðs og annarra sem lcigja í Bændahöllinni um að taka þátt í að kanna möguleika á flutningi. Ennfremur er ráðgert að leita til Skógræktar ríkisins og Landgræðslunnar og kanna möguleika á samnýtingu á öðru húsnæði. Samkvæmt tillögunni á ennfremur að kanna hvort hag- kvæmt sé að flytja starfsemi Bændasamtakanna út á land. Alþýðublaðinu tókst ekki að ná tali af framkvæmdastjóra Bænda- samtakanna í gær til að afla frek- ari upplýsinga um málið. r Ikvöld verða síðustu tónleikar Lista- sumars '95 í Deiglunni á Akureyri. í Klúbbnum, sem rekinn er í Deiglunni í samstarfi við Kaffi Karólínu, spila þeir Karl Olgeírsson á píanó, Örv- ar Atli Örvarsson á Hammondorg- el, Jón Rafnsson á kontrabassa og Karl Petersen á trommur. Tónleik- arnir hefjast klukkan 22:00 og þeirfé- lagar ætla að spila djasstónlist úr ýmsum áttum... r Asunnudaginn lýkursýningum á verkum Doris Halfmann, Mark de Weijer, Birgittu Silfverhielm og Baldurs Helgasonar í Nýlista- safninu, Vatnsstíg 3b. Doris vinnur með tímahugtakið, Mark dvaldi á Snæfellsnesi í fyrrasumar og sýnir vinnu sína þaðan, Birgitta hefur ís- lenskt landslag að viðfangsefni og Baldur sýnir Myndir aftilfinning- um... Sýning á verkum Sigurborgar Jóhannsdóttur verður opnuð á laugardaginn klukkan 15:00, í List- húsi 39, Strandgötu 39 í Hafnarfirði. Þetta er önnur einkasýning Sigur- borgar sem sýnir nú olíumálverk unnin á þessu ári. Sýningin stendur til 25. september... Frá og með laugardeginum hefst vetraropnun Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Safnið er opið á laugar- dögum og sunnudögum milli klukk- an 14:00 og 17:00 og kaffistofan er opin á sama tíma. Nú stendur yfir sýning á verkum norsku textíllistak- onunnar Grete Borgersrud sem og sýning á völdum andlitsmyndum eftir Sigurjón Ólafsson... Örvar Atli Örvarsson, Akureyring- urinn knái, sýnir snilli sína á Hammondorgel í kvöld á Kaffi Kar- ólínu þegar haldnir verða þar síð- ustu tónleikar Listsumars '95 á Ak- ureyri. A- mynd: E.ÓI. Fimmfaldur risalottópottur í annað sinn i sogunni „Lottópotturinn hefur einungis einu sinni áður verið fimmfaldur, en það var í desember 1994. Síðastliðinn laugardag endaði fjórfaldi potturinn í 13,5 milljónum og við áætlum að þegar sölustöðum lokar á laugardaginn verði hann kominn uppí 20 til 22 milljónir króna. Þetta kemur allt í Ijós," sagði starfsmaður íslenskrar Getspár i stuttu spjalli við Alþýðublaðið í gær. Að sögn sama starfsmanns hefur íslensk getspá gert tæplega 370 íslendinga að milljónamæringum frá stofnun ár- ið 1986 og um 610 manns hafa fengið fimm rétta. „Það er alltaf mjög ánægjulegt að tala við fólk eftir að það hefur unnið svona háar upphæðir. Flestir skjálfa nú dálítið. Neinei, það er ekki brottrekstrarsök ef maður spilar ekki í lottóinu - en ég held nú að flestir hérna spili samt." Meðfylgjandi mynd var tekin í gær í höfuðstöðvum íslenskrar getspár í Laugardalnum. A- mynd: ÓI.Þ. ■ Tár úrsteini, dramatísk mynd um líf tónskáldsins Jóns Leifs, verður frumsýnd 22. september Vid erum að boða fagnaðarerindið - segir Hilmar Oddsson leik- stjóri í samtali við Guðrúnu Vil- mundardóttur. Tár úr steinum hefur verið sex ár í smíðum. Hvað tók allan þennan tíma? „Upphaflega var meiningin að gera heimildarmynd fyrir sjónvarp, um líf og starf Jóns Leifs, í sam- vinnu við Ríkissjónvarpið. Þá ætl- uðum við að gera fræðilega úttekt en samt í leiknu formi; leikna heimildarmynd. Við Hjálmar H. Ragnarsson, handritshöfundarnir, fengum aðgang að persónulegum gögnum Jóns, sem höfðu ekki leg- ið á lausu fyrr. Þá komumst við að því að líf hans var miklu dramat- ískara en gengur og gerist. Þannig að ég hugsaði með mér að ég fengi ekki betra efni í leikna bíómynd. Þetta var þá bara spurning um að stíga skrefið til fulls. Svo kemur það til að sannleikur- inn er svo afstæður í þessu öllu saman; við gerð heimildarmyndar er hægt að velja og hafna og raða hlutunum í það samhengi sem þyk- ir henta, og ég held ekki að ég sé fjær svonefndum sannleika þó ég geri kvikmynd en ekki heimildar- mynd. Þetta er alla vega mín túlk- un á sannleikanum." „Fóruð þið þrír handritshöf- undarnir saman af stað í upphafi, þegar til stóð að gera heimildar- mynd? „Við Hjálmar ætluðum að gera heimildarmyndina, en þegar við ákváðum að stíga skrefið til fulls bættist einn handritshöfundur í hópinn, Sveinbjörn I. Baldvins- son. Ætli það hafi ekki verið árið 1992 sem við tókum þessa ákvörð- un. Við höfum ekki talið það sam- an nákvæmlega, en við giskum á að við eigum um það bil 17 hand- ritsgerðir - sem eru 40-100 síður hver. Það tók lengri tíma en við höfðum gert ráð fyrir að skrifa sig frá staðreyndutn. Maður vissi svo mikið um líf Jóns og var alltaf að taka tillit til þess - það fer illa saman að ætla að byggja upp sögu dramatískt og þurfa að taka tillit til einhvers sem gerðist akkúrat svona en ekki hinsegin og í einhverri ákveðinni röð. Við tökum okkur visst skálda- leyfi í handritinu. Ef nauðsynlegt var að færa atburði til um eitt eða tvö ár, hikuðum við ekki við að gera það. Spurningin er hversu ná- lægt sannleikanum heildarsögn myndarinnar er. Og ég held satt að segja að hún sé merkilega nálægt sannleikanum." Takið þið fyrir ákveðið tímabil í lífi tónskáldsins? „Þegar við ákváðum að gera leikna mynd sáum við í hendi okk- ar að það þýddi ekki að ætla að gína við öllu lífi Jóns. Flestar myndir sem fjalla um heilt lífs- Hilmar Oddsson: Þetta eru ástir og örlög, líf og dauði. Þetta er drama. hlaup mistakast. Þannig að við ein- beittum okkur að tíu árum í lífi hans. Við miðuðum í rauninni við árin frá .1932 til 1942. Ég nota ekki ártöl í myndinni, viðmiðunin er bara spurning um innri byggingu hennar, sem ég nota til að gera mér grein fyrir hvað er að gerast. Fyrir mér endar myndin árið 1942 - á atburði sem gerðist í rauninni tveimur árum seinna. En þetta er eitt af þeim skáldaleyfum sem ég tek mér.“ En þrátt fyrir skáldaleyfi er þetta mynd um líf Jóns? „Persónurnar sem koma við sögu heita allar sínum réttu nöfn- um; kona hans og dætur - annað væri bara hallærislegt. Við erum ekkert að fela það að þessi mynd var meðal annars gerð til þess að heiðra Jón Leifs. Það er mitt tak- mark; ég lít þannig á að við séum að breiða út fagnaðarerindið. Það er mjög mikilvægt að fólk tengi tónlist Jóns Leifs alveg ákveðið við þessa mynd. Tónlistin er mikið notuð í myndinni og hún er svo sterk að ég nálgast hana eins og um persónu væri að ræða. Ég lít þannig á að það sé ekki hægt að skilja persónu Jóns Leifs til fulls nema maður heyri tónlistina. Þann- ig fást víddir í karakterinn og í allt tilfinningalíf, sem fást ekki í gegn- um orð og athafnir. Ég held að tónlistin hjálpi áhorfendum til að skilja gjörðir hans í myndinni. Tónlistin er afl í myndinni, hún er ekki bara bakgrunnur. Sinfónfuhljómsveit íslands flyt- ur tónlistina í myndinni og rétt fyr- ir frumsýningu kemur út geisla- diskur með kvikmyndatónlistinni. Hann mun þjóna hlutverki sem innvígsla í heim Jóns. Hjálmar er tónlistarstjóri myndarinnar, en ég skipti mér mikið af þeim málum, því fyrir mér er það leikstjórn; það er verið að búa til stemmningu.“ Er myndin mjög dramatísk? „Þetta eru ástir og örlög, líf og dauði. Þetta er drama. Og ég held að ég sé að fylla upp í eyðu í ís- lenskri kvikmyndagerð. Atómstöð- in er eina tilraun til að gera drama, sem ég man eftir í fljótu bragði. Og ég held að margir hafi saknað þess að sjá ekki mynd af þessari tegund. Ég er búinn að sýna myndina svona fimm sinnum - bara vinum og vandamönnum. Frumsýningin verður í Stjörnubíói 22. september - það er of snemmt að segja hvar hún verður sýnd næst.“ Og ertu hamingjusamur yfir henni? „Ég er mjög hamingjusamur." Tár úr steini Handritið skrifuðu Hilmar Oddsson, sem einnig er leikstjóri, Hjálmar H. Ragnarsson, sem jafnframt er tónlistarstjóri, og‘ Sveinbjörn I. Baldvinsson. Fram- leiðandi myndarinnar er Jóna Finnsdóttir Kvikmyndataka var í höndum Sigurðar Sverris Pálssonar, nema hvað útitökur á íslandi voru í höndum pólska tökumannsins Slawomir Idziac. Leikmyndahöf- undar voru Sigurjón Jóhannsson og Andreas Olshausen og bún- inga gerði Helga Stefánsdóttir. Kjartan Kjartansson sá um hljóðhönnun og Kerstin Eriks- dotter um klippingu. Tónlist Jóns Leifs í myndinni er flutt af Sinfóníuhljómsveit íslands og er hún væntanleg á geisladiski frá íslenskri tónverkamiðstöð. Leikarar myndarinnar eru: Þröstur Leó Gunnarsson sem leikur Jón Leifs, Ruth Ólafsdótt- ir, Annie Riethof. Bergþóra Ara- dóttir, Sigrún Lilliendahl, Heinz Bennent, Ingrid Andrce, Jóhann Sigurjónsson Ulrich Tukur, Thomas Brasch og Benedikt Er- lingsson. Tár úr steini er önnur bíómynd Hilmars Oddssonar í fullri lengd - sú fyrri var Eins og skepnan deyr árið 1986 Myndin er íslensk- sænsk-þýsk samframleiðsla Tóna- bíós hf. Idé Film, Peter Rommel Productions og íslensku Kvik- myndasamsteypunnar. Myndin er framleidd með styrkjum frá evr- ópska kvikmyndasjóðnum Eurima- ges, evrópska handritasjóðnum European Script Fund, Norræna kvikmynda og sjónvarpssjóðnum og Kvikmyndasjóði íslands. A-mynd: ÓI.Þ.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.