Alþýðublaðið - 07.09.1995, Qupperneq 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995
s k o ð a n i r
EHNILUD
20981. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SiguröurTómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
200 mílna tollamúr
í allt sumar hefur þjóðin fylgst með fáránlegum skrípaleik, sem
snýst um að koma í veg fyrir innflutning á landbúnaðarvörum til
íslands. Möppudýrin í stjómkerfinu sýna ótrúlega útsjónarsemi
við að fara í kringum ákvæði GATT- samningsins: í samræmi við
steftiu ríkisstjómar Davíðs Oddssonar um að hækka tollamúrinn
umhverfis landið og torvelda innflutning. Jóhannes Jónsson
kaupmaður í Bónus hefur þannig síðan í sumar átt hálft tonn af
sænskum kjúklingum í frystigeymslu á hafnarbakkanum en ekki
getað leyst þá út, þarsem hann er jafnan krafinn um ný skírteini
og vottorð. í samtali við Alþýðublaðið í gær sagði Jóhannes:
„Þetta er greinilega stórmál í kerfinu. Yfirdýralæknir sagði við
mig að ef ég fengi að flytja inn ósoðið kjöt þá væri það meiri
breyting heldur en þegar landhelgin var færð út í 200 mílur.“
Það er ekki að ófyrirsynju að Jóhannes í Bónus segir: „Það
væri heiðarlegra að segja það beint að þessi innflutningur sé
bannaður og eigi að vera það áfram.“ Hann tók einnig dæmi af
dönskum smjörva sem fluttur var inn og seldur með sömu álagn-
ingu og innlend ffamleiðsla. Niðurstaðan var sú, að danski smjör-
vinn var seldur á 279 krónur boxið, en sá íslenski á 110 krónur.
Það er kaldhæðnislegt að himinhár mismunurinn stafar af svo-
kölluðum „jöfnunartollum". Öllum er hulið hvað er eiginlega
verið að „jafna“ - einsog Jóhannes bendir á: „Allavega ekki sam-
keppni eða bæta hag neytenda."
Þögn óbreyttra þingmanna sjálfstæðismanna gerist æ háværari í
þessu máli. Hvað ætla þeir að segja neytendum, hvernig ætla þeir
að réttlæta varðstöðu um hagsmuni hinna fáu á kostnað hinna
mörgu?
Franskur hroki
í fyrrinótt hófu Frakkar kjamorkutilraunir við Mururoa í Suður-
Kyrrahafi. Tímasetning var valin með það í huga að halda um-
fjöllun fjölmiðla í lágmarki, en það var vitaskuld borin von:
Aform Frakka um kjamorkutilraunir hafa vakið bylgju andúðar
og mótmæla um allan heim. Chirac Frakklandsforseti var í raun
búinn að mála sig út í hom með sjálfsbirgingslegum yfrrlýsing-
um. Skammsýni og þvermóðska Chiracs hefur þegar haft afdrifa-
ríkar afleiðingar; ímynd Frakklands á alþjóðavettvangi hefur beð-
ið hnekki og sala á frönskum vörum hefur víða minnkað til
muna.
Við borgum ekki
- við borgum ekki
Nú líður senn að því að fjárlög
ríkisstjómarinnar birtist þjóðinni og
þar með áætlaðar tekjur og áætluð
útgjöld þjóðarbúsins. Þá skerpist
meðal annars umræðan um skatta og
samneyslu, um hvað hver og einn
leggi af mörkum og hvort byrðunum
sé réttlátlega skipt milli þegnanna.
Ákafasta umræðan í skattamálum
snýr yfirleitt að þeim sem sleppa við
að greiða til samneyslunnar og
hvernig við stæðum að vígi ef allir
greiddu sinn réttláta skerf til sameig-
inlegra útgjalda.
Það fólk sem ég umgengst er yfir-
leitt upp til hópa sátt við að greiða
sína skatta en hinsvegar afar ósátt
við það sem svo oft er kallað „að
greiða fyrir nágranna sinn“.
Fyrir löngu heyrði ég sögu af
manni í sjávarþorpi úti á landi sem
staddur var í Kaupfélaginu á laugar-
dagsmorgni þegar maður sem lokað-
ur var inni á stæði af stórum nýjum
jeppa kom inn og kallaði til jeppa-
eigandans: „Siggi ertu til í að færa
útsvarið þitt svo ég komist út af
stæðinu með bflinn minn.“
Athugasemdin og viðbrögð hins
sneypta „útsvars“eiganda vöktu
mikla kátínu viðstaddra og orða-
skiptin flugu með háðung um pláss-
ið.
Víst er að aðhald gagnvart þeim
sem eru í stöðu til að smokra sér hjá
að inna af hendi til samfélagsins
skiptir máli og þar er vissulega pott-
ur brotinn.
Háborðið I
Rannveig
Guðmundsdóttir
skrifar
„Við ríkisstarfsmennirnir í götunni erum
milljón króna menn, sagði hann og benti á að
á meðan fjölskyldurnar þrjár greiddu rekstur
einbýlishúsa, sumarhúsa og margra bíla auk
þess annars sem fylgir umsvifum efnafjöl-
skyldunnar væri framlag þeirra til samneysl-
unnar snautlegt."
Viltu nótu?
í umræðunni um skattsvik og það
hversu mikilvægt er að ná í milljarð-
ana sem fyrirfinnast í svokölluðu
neðanjarðarhagkerfi okkar talar fólk
gjarnan eins og skattsvikarar séu
hvítflibbamenn sem ganga um með
stresstöskur og falið fé.
Trúlega á þó langmesti undan-
dráttur sér stað við hin útbreiddu
nótulausu viðskipti almennings við
hin ýmsu þjónustufyrirtæki. Viltu
nótu? Er spurt í fullkomnu blygðun-
arleysi hvort sem háir eða lágir eiga í
hlut. Þegar maður tekur þá umræðu
við fólk sýnir hið heiðvirðasta fólk
jafnvel þau viðbrögð „að ég skamm-
ast mín ekkert fyrir að borga ekki
virðisaukaskattinn því ég borga svo
mikla skatta, það er alltaf allt tekið
af mínum launum".
Og þarna stendur hnífurinn í
kúnni. Það finnst nefnilega allt of
mörgum að það að eiga nótulaus við-
skipti og sleppa við virðisaukaskatt-
inn sé ekki skattsvik. Menn átta sig
hreinlega ekki á að þar með eru þeir
aðilar að undandrætti.
Gesti mínum var
heitt f hamsi
Fyrir skömmu kom til mín maður
og honum var heitt í hamsi. Hann
kvaðst hafa skoðað skattskrána árum
saman og fylgst með opinberum
gjöldum granna sinna. Hann sýndi
mér þrjú ný sláandi dæmi og spurði
hvernig á því stæði að fólk fengi
jafnvel stórfelldan skattaafslátt án
þess að sýna tekjur og háir eignar-
skattar sýndu að þeir byggju í eign-
um sem þeir ættu ekki að eiga mögu-
Ieika á að reka miðað við þær tekjur
sem þeir gæfu upp.
Mér varð svaravant er ég horfði á
þessar ótrúlegu tölur (SJÁ TÖFLU).
Þessi þijú dæmi eru sláandi vottur
um lögleg en siðlaus framtöl og ekki
að undra að viðmælanda mínum væri
mikið niðri fyrir. Hann benti á að
samtala útsvars þessara þriggja fjöl-
skyldna væri 217.706 krónur, að
meðaltalsárstekjur væru um 800 þús-
und krónur og að þegar fjármálaráð-
herra hefði gefið afslátt - væntanlega
vegna skuldabréfakaupa - væru sam-
aniagðar eftirstöðvar af eignarskatti
um 77.452 krónur, en sumar fjöl-
skyldumar kæmu út í plús eftir upp-
gjörið við hið opinbera.
Hvemig á þetta fólk að geta rekið
sín stóm hús og hvemig á þetta fólk
að geta keypt skuldabréf sem gefa
mikinn skattaafslátt af svo rýrum
tekjum? var brennandi spurning
hans.
Við ríkisstarfsmennimir í götunni
erum milljón króna menn, sagði
hann og benti á að á meðan fjöl-
skyldumar þrjár greiddu rekstur ein-
býlishúsa, sumarhúsa og margra bfla
auk þess annars sem fylgir umsvifum
efnafjölskyldunnar væri framlag
þeirra til samneyslunnar snautlegt.
Hvað er til ráða?
Það em þessar staðreyndir sem em
orsök viðbragða allra þeirra sem
segja: „Ég skammast mín ekkert fyr-
ir nótulausu viðskiptin því það er allt
hirt af því sem ég afla.“ Við verðum
að breyta þessum hugsunarhætti og
við eigum að breyta skattalögum á
þann veg að hægt sé að krefjast svara
um rekstur þegar tekjur „eru“ svo
rýrar að ekki á að vera únnt að
byggja og reka glæsihús og bfla eða
kaupa verðbréf sem gefa skattaaf-
slátt.
Og svo skulum við heimila prenmn
skattskrárinnar á ný því það geftir ótrú-
lega mikið aðhald að slíkar upplýsing-
ar séu opnar öllum almenningi. ■
Höfundur er þingmaður og
formaður þingflokks Alþýöuflokksins
- Jafnaðarmannaflokks íslands.
útsvar tekjusk. eignarsk. skattafsljendurgr.
Eiginm. 61.527.- 0 102.055,- 44.344.-
Eigink. 60.130.- 0 102.055,- 49.856,-
séreignask. 34.396.-
Eiginm. 30.681.- 0 59.238,- 98.197,-
Eigink. 0 0 59.238,- 67.516.-
séreignask. 16.556,-
Eiginm. 12.718.- 0 136.848.- 149.566.-
Eigink. 52.650 - 0 136.848.- 149.293.-
t e m b e r
Chirac ætlaði upphaflega að nota kjamorkutilraunimar til að
sýna í verki röggsemi og sjálfstæði Frakka, en vanmat algerlega
viðbrögð alþjóðasamfélagsins. Auk þess fara nú vinsældir
Chiracs á heimavelli ört dvínandi: kjamorkuvopnin hafa snúist í
höndum hans.
Grænfriðungar á Nýja-Sjálandi gáfu út þá yfirlýsingu að Chirac
hefði nú ritað nafn sitt í sögubækur sem „alger glæpamaður í
stjómmálum og umhverfismálum.“ Óljós fyrirheit hans nú, um
að fækka fyrirhuguðum tilraunum, breyta því ekki að Frakkar
hafa gert sig seka um siðleysi og hroka sem þeir eiga ekki vott af
ínnistæðu fyrir.
íslensk stjómvöld eiga vitanlega að mótmæla framferði Frakka
harkalega. íslenskir neytendur em síðan enn á ný hvattir til að
sniðganga franskar vörur þangað til búið er að koma vitinu fyrir
hrokagikkinn í forsetahöllinni í París. ■
Atburðir dagsins
1812 Napóleon sigrar Rússa í
orrustu við Borodino, 112 kíló-
metra vestur af Moskvu. 1874
Sigurður Guðmundsson málari
lést, 41 árs. 1940 Mörghundruð
þýskar flugvélar taka þátt í
fyrstu loftárásunum á Lundúni.
Eitthundrað þýskar vélar voru
skotnar niður, en breski flug-
herinn missti aðeins 22. 1978
Keith Moon, trommuleikari
hljómsveitar The Who, deyr af
völdum eiturlyfjaneyslu.
Afmælisbörn dagsins
Elísabet I 1533, Englands-
drottning, dóttir Önnu Boleyn
og Hinriks VIII. Elia Kazan
1909, leikstjóri af grískum ætt-
um. Anthony Quayle 1913,
bandarískur leikari. Buddy
Holly 1936, bandarískur rokk-
ari.
Annáisbrot dagsins
Þar fyrir austan við Eyjasand
deildi maður á konu sína um
kveldið, svo hún vildi ei hjá
honum hátta; um morguninn
fannst hann dauður, og hafði
hengt sig.
Eyrarannáll 1673.
Lokaorð dagsins
Að flýja... Ég verð að flýja!
Sannleikur... Ég elska mikið.
Hinstu orð rússneska skáldsins
Leos Tolstoys (1828-1910).
Orð dagsins
Þú ert orðin fjala-fá,
fúinn sérhvörr raftur;
hvað mun dagurinn heita sá,
hefst þín bygging aftur?
Eggert Ólafsson:
Viöeyjarkirkja, 1757.
Máisháttur dagsins
Seg mér að sunnan, ég er ný-
kominn að norðan.
Skák dagsins
Einsog allir sjá er skák dagsins
mjög í dögun, en endalokin er
eigi að síður skammt undan.
Kulmala hefur stýrt hvftu
mönnunum klaufalega og
Lehtonen refsar honum
grimmilega og mátar í fjórum,
snotrum leikjum.
1. ... Dh4+!! 2. Rxh4 Bf2+3.
Ke2 Rd4+ 4. Kd3 Rc5 Skák
og mát! Þetta var eftirminni-
legasta skák prúðmennisins
Lehtonens.