Alþýðublaðið - 14.09.1995, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1995
s k o ð a n i r
MMÐUBIÍÐIÐ
20985. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Utgefandi
Ritstjórar
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Umbrot
Prentun
Alprent
Hrafn Jökulsson
Siguröur Tómas Björgvinsson
Stefán Hrafn Hagalín
Ámundi Ámundason
Gagarín hf.
ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Le Pen nemur
land á Fróni
Sigur Framfaraflokksins í nýafstöðnum sveitarstjómarkosningum í
Noregi vekur óhug. Rugludallar á hægri væng stjómmálanna hafa á
síðustu ámm sótt í sig veðrið víða í Evrópu. Frægastur þeirra allra er
Frakkinn Le Pen, sem hefur náð miklum árangri í frönskum stjóm-
málum. Óánægja með atvinnuleysi, slæmt ástand í stórborgum Evr-
ópu, auk rótgróinna fordóma á útlendingum og öllu því fólki sem
fjarlægt er í siðum og háttum, á hér hlut að máli. Reynsla Evrópubúa
af millistríðsárunum hvetur eindregið til þess að Evrópuríki bregðist
hart við þessari ógn og að lýðræðissinnaðir flokkar hafi ekkert sam-
starf við flokka sem ala á kynþáttahatri og fordómum í garð útlend-
inga.
Le Pen hefur einnig numið land á Islandi. Ekki í hinni grófu mynd
sem holdgerfist í hinum franska foringja, heldur í þumbaralega ras-
isma að hætti hinna frægu ummæla Guðna Ágútssonar fyrir síðustu
kosningar: Island fyrir Islendinga. Og Framsóknarflokkurinn í heild
sinni er auðvitað holdgerfingur þessarar stefnu hér á landi. Hið nýja
andlit flokksins reyndist vera fordómafullt, afturhaldssamt ög ljótt -
ímynd stöðnunar og hnignunar í íslensku samfélagi. Fijálslýnt fólk
verður að bregðast við þessari þróun af fullri hörku; það dugar ekki
lengur að hrista höfuðið í forundran yfir þumbaraskapnum. I dag
höfúm við Guðna Ágústsson og Pál Pétursson, á morgun gætum við
haft íslenskan Carl Hagen og jafnvel Le Pen.
Páll Pétursson hefur á síðustu vikum alið á þeirri hugsun að
vandamál íslendinga séu útlendingar í fiskvinnslu hér á land. Þetta
sjónarmið er auðvitað í góðu samræmi við þá einangrunar- og af-
dalahyggju sem einkennt hefur stjómmálaferil félagsmálaráðherrans.
Og það er því miður ennfremur í fullu samræmi við eðli Framsókn-
arflokksins að gera slíkan mann að ráðherra, en varla er það ríkis-
stjóm íslands til mikils sóma.
Maðurinn sem
misskildi GATT
Framkvæmdastjóm Vinnuveitendasamband íslands hefur nú bæst
í hóp þeirra sem mótmæla harðlega framkvæmd GATT-samningsins
hér á landi. í ályktun framkvæmdastjómarinnar er á það bent að
verðbólga hefur aukist mjög á síðustu þremur mánuðum og ógnar nú
grundvelli kjarasamninga og stöðugleika í efnahagsmálum. Mest af
þessari verðbólgu er heimatilbúin og stafai af hækkun landbúnaðar-
afurða. GATT-klúður ríkisstjómarinnar er nú viðurkennt af öllum
sem því máli tengjast og ekki verður komist hjá því að taka það mál
til rækilegrar endurskoðunar á riæsta þingi.
Markalínan milli hænunnar og
refsins í íslenskum stjórnmálum
„Hann semur söngva af hænum sem samein-
ast gegn refnum og bera þannig af honum
sigurorð. Söngvar García fara eins og eldur í
sinu um landið og verða með öðru til þess að
alþýðunni tekst að koma íhaldsöflunum frá
völdum. Þessi saga rifjast upp fyrir mér nú
þegar enn einn ganginn er hafin umræða um
sameiningu. Sameiningu vinstri aflanna,
félagshyggjufólks og/eða jafnaðarmanna.
Það er nefnilega ekki á hreinu um hvað
sameiningin á að snúast... Hver er refurinn?"
I þeirri ágætu skáldsögu „Húsi and-
anna“ eftir Isabellu Allende segir af
alþýðusöngvaranum Pedros García
yngri. Hann semur söngva af hænum
sem sameinast gegn refnum og bera
þannig af honum sigurorð. Söngvar
García fara eins og eldur í sinu um
landið og verða með öðru til þess að
alþýðunni tekst að koma íhaldsöflun-
um frá völdum.
Þessi saga rifjast upp fyrir mér nú
þegar enn einn ganginn er hafin um-
ræða um sameiningu. Sameiningu,
vinstri aflanna, félagshyggjufólks
og/eða jaíhaðarmanna.
Það er nefnilega ekki á hreinu um
hvað sameiningin á að snúast: Hver er
refurinn?
Munurinn á því samfélagi sem
García hrærist í og okkar felst í því að
í hans tilfelli var alveg á hreinu hver
refurinn væri. Svo var einnig þegar
stjómarandstöðu flokkamir í Reykja-
víkurborg tóku sig saman til að fella
meirihluta Sjálfstæðisflokksins.
En þegar litið er á stjórnmálin á
landsvísu flækjast hlutimir nokkuð.
Það er engan veginn á hreinu hver
refurinn er í þeirri sögu og því dálítið
á reiki gegn hverju á að sameinast.
Eins og umræðan er að þróast virð-
ist hún bera nokkum keim af forriðar-
hyggju. Menn vísa til sögunnar og
þess eilífa klofnings sem hrjáð hefur
vinstri væng íslenskra stjórnmála í
gegnum tíðina.
Helst verður skilið að nú sé uppi sú
tíð að yngra fólk verði að koma til og
leiðrétta mistök forfeðranna.
Málið er nú bara ekki svona einfalt.
Stjómmálaflokkar em tæki sem fólk
með svipaðar lífsskoðanir kemur sér
upp til þess að hafa áhrif í lýðræðis-
þjóðfélagi. Það er ekki hlutverk þess-
ara flokka að viðhalda sjálfum sér.
Þeim ber að kasta í glatkistuna er þeir
hafa lokið hlutverki sínu.
Pallborðið |
Benónýsson
Þar af leiðandi geta sameiningartil-
raunir framtíðarinnar engan veginn
snúist um það hvort Alþýðuflokkur-
inn, Alþýðubandalag, Kvennalisti og
Þjóðvaki skríði saman í eina sæng.
Refinn vantar.
Nei, það fólk sem nú er af alvöru að
tala um sameiningu, hlýtur að verða
að stíga skrefið til fúlls og viðurkenna
að íslenska flokkaflóran er orðin úrelt.
Stjómmálaflokkamir em þess ekki
lengur umkomnir að spegla lífsskoð-
anir og vonir þorra landsmanna. Af-»
leiðing þessa ástands er sífellt stækk-
andi hópur óánægðra kjósenda, sem
sveiflast milli flokkanna frá kosning-
um til kosninga. Er svo komið að hver
sem er virðist geta boðið fram lista í
kosningum og hirt upp óánægjufylgi
upp á svona ftmm til tíu prósent.
Skýrar línur em ekki lengur til stað-
ar og kjósendum er aldrei ljóst hvaða
stefnu þeir em að kalla yfir sig með
atkvæði sínu.
Hættum því að hlaupa um eins og
ráðvilltur hænsnahópur þar sem ein
talar aftur meðan önnur talar fram.
Setjumst niður og byrjum að ræða
grundvallaratriði. Fortíðinni verður
ekki breytt, en framtíðin bíður; á hana
er hægt að hafa áhrif.
Hver á staða íslands að verða í sí-
breytilegri heimsmynd? Eigum við að
kúldrast í þröngu og hlykkjóttu öng-
stræti fortíðar meðan aðrar þjóðir
fylkja sér saman á hraðbrautum sem
liggja til framtíðar? Geta menn náð
saman um breytingar á kjördæma-
skipulaginu frá því sem nú er? Hvem-
ig eigum við að meðhöndla ftskveiði-
auðlindina? Hvað með landbúnaðar-
málin? Hvert á að stefna með eignar-
hald og rekstrarform ríkisfyrirtækja?
Hvenær eigum við að þora að horfast í
augu við vandamál velferðarkerfisins?
Svona mætti lengi telja, því innan
þessara svokölluðu vinstri flokka eru
skoðanir manna svo skiptar um þessi
meginmál að samleiðin er ekki auð-
séð. Það er raunar einnig svo um
Sjálfstæðisflokkinn.
Það er því alveg ljóst að markalínan
milli hænunnar og refsins í íslenskum
stjómmálum liggur ekki um þann far-
veg sem skilur að stjóm og stjómar-
andstöðu. Byrjum þess vegna á að
skilgreina refinn og sameinumst síðan
gegn honum. ■
Höfundur er leikari og situr í
framkvæmdastjórn Alþýöuflokksins
- Jafnaðarmannaflokks íslands.
í ályktun VSÍ segir meðal annars: „Hækkanir á einstökum vöru-
flokkum búvara skýrast einkum af takmarkaðri innlendri samkeppni
framleiðenda og nýfenginni fullvissu þeirra um að innflutt matvara
sem keppt geti við innlenda beri svo háa innflutningstolla að engin
raunveruleg verðsamkeppni leiði af innflutningi. Sú leið sem Al-
þingi valdi við fullgildingu Gatt samkomulagsins stuðlar þannig að
óbreyttu að hækkandi matvælaverði, meiri verðbólgu og lakari lífs-
kjörum". Síðar segir: „Það er því krafa VSÍ að núverandi tollaígildi
samkvæmt Gatt-samkomulaginu verði tafarlaust lækkuð.“
Alþýðusamband Islands og Vinnuveitendasamband íslands eru
því sammála í fordæmingu sinni á framkvæmd GATT-samningsins
hér á landi. Davíð Oddsson getur bætt þessum áhrifamiklu samtök-
um í hóp þeirra óábyrgu aðila sem ekki skilja út á hvað GATT-samn-
ingurinn gengur og ali þar með á óraunhæfum væntingum um lægra
verðlag í kjölfar innflutnings... Af almennum viðbrögðum í samfé-
laginu að dæma virðist Davíð Oddsson þó vera sá sem misskildi
GATT, enda mun það einsdæmi í veröldinni að samningur um
frjálsa verslun Ieiði til hækkunar á verðlagi til neytenda.
Einsdæmi. ■
t e m b e r
Atburðir dagsins
1901 McKinley Bandaríkjafor-
seti deyr af völdum skotsára.
1944 Marlene Dietrich hélt
sýningu í Tripoli- leikhúsinu í
Reykjavík ásamt leikflokki
handaríska hersins. 1950 Flug-
vélin Geysir brotlenti á Bárðar-
bungu á Vatnajökli. Sex manna
áhöfn komsl af. 1982 Kristján
Eldjárn lést. Hann var þjóð-
minjavörður í níma tvo áratugi
og forseti 1968-80. 1982 Grace
Kelly prinsessa af Mónakó og
fyrrum kvikmyndastjama ferst
í bílslysi.
Afmælisbörn dagsins
Baron von Humboldt 1769,
þýskur v/sindamaður og land-
könnuður. Charlcs Dana Gib-
son 1867. bandarískur lista-
maður. Sigurður Nordal
1886, prófessor og rithöfundur.
einn mestur áhrifamaður sög-
unnar í íslenskum fræðuni.
Jack Hawkins 1910, breskur
leikari. Jökull Jakobsson
1933, leikritaskáld.
Annálsbrot dagsins
Brann upp til ösku einn preslur
á Christianshöfn, þar hann sat
við eitt borð í sínu kamersi að
stúdera, með undarlegum at-
vikum, svo hann fannst allur
uppbrunninn, en bókin og ljós-
ið var kyrt og heilt eptir
óskaddað. Eyrarannáll 1688
Ljóska dagsins
Ég er alls ekkert móðguð því
ég veit að ég er ekki heimsk
ljóska. Ég veit líka að ég«r
ekki Ijóska. Dolly Parton.
Málsháttur dagsins
Vond tíðindi hafa vængi.
Lokaorð dagsins
Góða nótt elskumar mínar. Við
sjáumst í fyrramálið.
Hinstu orö enska
leikskáldsins og leikarans
Sir Noel Coward, 1899-1973.
Orð dagsins
Hér nutu sólar sáHr tvær
liinn sumarlanga dag.
En fölnað lauf og þrotlaus
- þögn
varð þeirra kveðjulag.
Davíð Stefánsson
frá Fagraskógi.
Skák dagsins
Howard Staunton (1810-
1874) var um sína daga fremsti
skákmaður heims, og lagði
drjúgan skerf til nútímaskák-
listar. Nú skoðum við hand-
bragð hans, í skák frá 1842,
þarsem Cochranc, sem hefur
hvítt, er grátt leikinn. Staunton
hefur semsagt svart og á snjall-
an leik.
Cochrane var ágætur skákmað-
ur og þurfti ekki að sjá meira.
Mát er óumflýjanlegt: 3. hxg4
Dh2 mát!