Alþýðublaðið - 14.09.1995, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 14.09.1995, Blaðsíða 8
* 4- 'm'ÍVFILL/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar 5 88 55 22 MIYÐUBLM9 t> * 'mtVFILL/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar 5 Fimmtudagur 14. september 1995 139. tölublað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk Könnun Frjálsrar verslunará meðaltekjum ýmissa starfshópa á síðasta ári Meðallaun forstióra 588 þúsund Þingmenn og ráðherrar lækkuðu um 11,7% í tekjum milli ára Tímaritið Frjáls verslun birtir nið- urstöður könnunar sem það gerði á tekjum á sjötta hundrað manns í 22 starfshópum. Þar kemur fram að tekj- ur forstjóra í þekktum fyrirtækjum hér á landi voru að meðaltali 588 þúsund krónur á mánuði á síðasta ári. Um er að ræða 3,3% hækkun frá fyrra ári umfram launavísitölu. Athygli vekur að meðallaun ráðherra og þingmanna voru á sama tíma 325 þúsund og höfðu lækkað um 11,7% að raungildi frá árinu áður. Af 93 forstjórum í könnuninni reyndust 32 vera með tekjur yfir 588 þúsund á mánuði en hinir voru með tekjur undir þessari upphæð. Flestir forstjóranna voru með 500 til 800 þús- und króna mánaðartekjur að jafnaði. Fjórir voru með 900 þúsund til eina milljón og fjórir með yfir milljón á mánuði. Hins vegar voru 28 forstjórar með 300 til 500 þúsund í mánaðar- tekjur. Fram kemur að lítið samhengi er á milli tekna ífamkvæmdastjóra og afkomu þeirra fyrirtækja sem þeir stjóma. Frjáls verslun segir það at- hyglisvert að stjómendur fjármálafyr- irtækja reyndust vera með umtalsvert hærri tekjur að jafnaði en fram- kvæmdastjórar og athafnamenn, eða um 629 þúsund á mánuði. Bent er á að ríkið eigi og ráði yfir, beint og óbeint, um 80% af öllum fyrirtækjum á fjár- málamarkaðnum. Stjómarmenn í lyrirtækjum virðast komast bærilega af því meðallaun þeirra reyndust vera 758 þúsund krón- ur á mánuði í fyrra. Tekjur tannlækna í tannréttingum lækkuðu verulega á síðasta ári eða um 28%. í úrtakinu eru allir þekktustu tannréttarar á höfuðborgarsvæðinu. Meðaltekjur þeirra lækkuðu úr 923 þúsund krónur á mánuði 1993 í 673 þúsund krónur í fyrra, enda var komið böndum á greiðslur til þeirra úr ríkis- sjóði. Tannlæknar hafa einnig misst spón úr aski sínum og lækkað um 9% í tekjum milli ára. Meðaltekjur þeirra í fyrra voru 329 þúsund á mánuði. Lyf- salar náðu hins vegar að auka tekjur sínar um tæp 19% á mánuði að jafnaði og slefa yfir eina milljón. Lyfsalar reka apótekin undir eigin nafni og þvf kemur hagnaður fyrirtækjanna fram sem tekjur lyfsalanna sjálífa. Meðaltekjur 45 lögfræðinga reynd- ust vera hálf milljón á mánuði í fyrra og höfðu rauntekjur þeirra lækkað um 8,4% frá árinu á undan. Kannaðar voru tekjur 24 endurskoðenda og vom þær 465 þúsund krónur á mánuði að jafnaði. Þeir lækkuðu um 7,6% frá fyrra ári. Kannaðar voru tekjur níu stjómenda ríkisfyrirtækja og reyndust meðallaun þeirra vera 454 þúsund krónur á mánuði. Meðaltekjur 27 op- inberra embættismanna námu 378 þúsund á mánuði í fyrra og höfðu hækkað um 2,4% milli ára. Þegar litið er til lækna kemur í ljós að meðaltekj- ur 28 úr þeirri starfsstétt vom 452 þús- und á mánuði. Laun þingmanna og ráðherra hafa verið mjög til umræðu að undanfömu. Frjáls verslún kannaði tekjur 21 ráð- herra og þingmanna og reyndust með- allaun á mánuði í fyrra vera 325 þús- und krónur. Arið áður vom meðallaun þeirra 364 þúsund og höfðu því lækk- að um 11,7% að raungildi. Af þeim 22 starfshópum sem könnunin náði til reyndust þingmenn og ráðherrar vera í 18. sæti. Þeir hópar sem em neðar í meðallaunum em aðilar vinnumarkað- arins með 318 þúsund, verkfræðingar og arkitektar með 293 þúsund, prestar með 292 þúsund og í 22. sæti eru listamenn með 279 þúsund krónur í meðallaun. Könnun Fijálsrar verslunar byggir á upplýsingum úr álagningarskrám skattyfirvalda á meðan skrámar liggja ffammi. Tímaritið segist ekki geta birt nöfn einstaklinga í könnuninni vegna úrskurðar Tölvunefndar um að fjöl- miðlum sé aðeins heimilt að birta slík- ar upplýsingar þær tvær vikur sem álagningarskrá liggur frammi. Frjáls verslun gagnrýnir þennan úrskurð nefhdarinnar harðlega. ■ Kennsludeildir Háskóla íslands fóru 37 milljónirfram úrfjárveitingum á síðasta ári Mestur halli á félagsvísindadeild Kennsludeildir Háskóla íslands fóm liðlega 37 milljónir króna framúr fjárveitingum á síðasta ári. Mestur var halli félagsvísindadeildar eða 11,2 milljónir króna og halli heimspeki- deildar nam nær níu milljónum króna. Þetta kemur fram í nýútkominni ársskýrslu Háskóla fslands fyrir síð- asta ár. Fjárveitingar til kennslu vom óbreyttar en nemendum hélt áfram að Qölga. Þrátt fyrir aðhald varð kostnað- ur við kennslu vemlega meiri en nam fjárveitingum. Bókfærður kosmaður á kennsludeildir nam 988 milljónum króna en fjárveiting 951 milljón. Þrátt fyrir vemlegan niðurskurð á kennslu varð halli á rekstri flestra deilda. Halli á raunvísindadeild var 6,7 milljónir, á viðskipta- og hagfræðideild var hall- Háskóli íslands: Kennsludeildir Háskóla íslands fóru liðlega 37 milljónir króna framúr fjárveitingum á síðasta ári. Mestur var halli félagsvísinda- deildar eða 11,2 milljónir króna og halli heimspekideildar nam naer níu milljónum króna. inn fimm milljónir og 3,6 milljónir á verkfræðideild. Einnig var umtals- verður halli á guðfræðideild og laga- deild. Læknadeild, tannlæknadeild, lyfjafræði lyfsala, námsbraut í sjúkra- þjálfun og hjúkrunarfræði tókst að halda innan fjárveitinga. Alls hafði Háskóli íslands 2.448 milljónir króna til ráðstöfunar í fyrra en útgjöld skól- ans námu alls 2.478 milljónum. Ljóst er að Gullnáman malar Há- skólanum gull. Framlög frá Happ- drætti Háskólans til viðhalds bygg- inga, framkvæmda og tækjakaupa jukust vemlega í fyrra sem var fyrsta heila starfsár Gullnámunnar. Fram- lögin námu 280 milljónum króna samanborið við 188 milljónir árið á undan. Nú eru að hefjast aftur sýningar á breska gamanleikritinu Taktu lagid, Lóa, eftir Jim Cartwright, sem var sýnt við miklarvin- sældir á síðasta leikári. Leikendur eru Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Pálmi Gestsson, Ragnheiður Stein- dórsdóttir, Hilmar Jónsson og Róbert Arnfinnsson. Leik- stjóri er Hávar Sigur- jónsson. Fyrstu sýn- ingarverða um helgina... Hljómsveitin Unun heldurtónleika í Rósenbergkjallaranum á laug- ardagskvöldið. Unun, sem leggur í sex vikna tónleikaferð um Evrópu seinna í september, mun kynna tón- leikaprógrammið - og verður þetta í fyrsta og eina sinn sem hljómsveitin syngur eigin lög á ensku á íslandi. Ásamt Unun kemur hljómsveitin Be- atrixfram... Fyrstu tónleikar Kammermúsik- klúbbsins verða á sunnudags- kvöld, klukkan 20:30 í Bústaðarkirkju. Sigrún Eðvaldsdóttir, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Helga Þórarinsdóttir og Richard Talkowsky ætla að leika verk eftir Beethoven, Schubert og Brahms... Ragna Fróðadóttir fata- og textílhönnuður og Hulda B. Ágústsdóttir skartgripahönnuður halda tískusýningu í anddyri Loft- kastalans, Héðinshúsi, í kvöld klukk- an 21:00. Fatnaðurinn og skartgrip- irnir á sýningunni verða til sýnis í versluninni Kirsuberjatrénu, Vestur- götu 4, frá föstudegi til miðviku- dags... Sýningunni Ljós úr norðri - norræn aldamótalist lýkur ann- an sunnudag, svo nú fer hver að verða síðastur að skoða þessa far- andsýningu. Héðan fer sýningin, sem samanstendur af 81 málverki sem eru máluð á árunum 1880 til 1910, til Þjóðlista- safnsins í Stokk- hólmi... Sýningum á verk- um norsku lista- konunnar Grete Borgersrud í Lista- safni Sigurjóns Ólafs- sonar lýkur á sunnu- daginn. í verkum sín- um sameinar Grete handavinnu og lista- verk því hún „málar" myndir sínar með efn- isbútum og útsaumi... Sigríður Júlía Bjarnadóttir opnar á laugardag- inn sýningu á verkum sínum í sýn- ingarsalnum Við Hamarinn, Strand- götu 50, Hafnarfirði. Yfirskrift sýn- ingarinnar er Renningar... Sigurbjörn Eldon Logason opn- aði 2. september sýningu á vatnslitamyndum sínum í hinu ágæta kaffihúsi Við Fjöruborðið á Stokkseyri. Nú er síð- asta sýningarhelgin framundan, en henni lýkur 23. september. Sýningin er opin alla daga frá klukkan 13:00 til 23:00. Þetta er 8. einkasýning Sigur- björns Eldons... Idag klukkan 17:00 heimsækir Helga Arnalds Ævintýra-Kringluna með brúðuleikhús sitt Tíu fingur. Hún flytur brúðu- leiksýninguna Englaspil, en hún hefur sjálf samið þáttinn og hannað brúðurnar. Leikstjóri er Ása Hlín Svavarsdóttir. Leikritið er ætlað 2ja til 8 ára börnum og eru þau látin taka virkan þátt í sýningunni... Hörgur, 1995. Verkið er unnið í blikk og gjall. ■ Sýning Ingu Ragnars- dóttur í Gerðubergi Hett upp í ímyndun- araflinu Inga Ragnarsdóttir opnar á laug- ardaginn sýningu á skúlptúrum í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Inga er fædd í Reykjavík árið 1955 en hefur undanfarin ár starfað mestmegn- is í Þýskalandi þó hún dvelji alltaf drjúgan hluta ársins á Islandi. Sýningin í Gerðubergi ber yfirskriftina Hörgur. í sýningarskrá bendir Hannes Sig- urðsson listfræðingur á að Hörgur sé ekki nýgerving sem listakonan hafi skáldað upp til að veita verkum sínum háleitt inntak, heldur úrelt samheiti fyrir blóthús, gróðursnautt landslag, fjallstind eða grjóthól sem sérstakur átrúnaður fylgir. Nafnið kemur ankannalega fyrir sjónir og ýtir þarm- eð undir að hluturinn sé skoðaður á allskyns vegu. ,,Það er þó ekki meiningin að áhorf- andinn finni sér orðabók til að fá botn í verkin, heldur að hann fletti upp í ímyndunaraflinu. Sú heilastarfsemi getur leitt okkur í ólíkar áttir. En kveikjan að því ferðalagi, upphaf þess og endir, er samt alltaf form og litur,“ segir Hannes - skorinorður að vanda.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.