Alþýðublaðið - 14.09.1995, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 14.09.1995, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1995 r ú s s I a n d ALÞÝÐUFLOKKURINN - JAFNAÐARMANNAFLOKKUR ÍSLANDS Flokksstjórnarfundur Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands - heldur flokksstjórnarfund laugardaginn 23. september. Fundurinn hefst klukkan 10:15 og verður í fundarsal á Hótel Loftleiðum. Dagskrá: 1. Framtíð jafnaðarstefnunnar í íslenskum stjórnmálum. 2. Almennar umræður. 3. Önnur mál. Dagskráin verður nánar auglýst síðar. Formaður ALÞÝÐUFLOKKURINN Á VESTFJÖRÐUM Aðalfundur kjördæmisráðs Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðuflokksins á Vestfjörðum verður haldinn að Núpi í Dýrafirði hinn 15. og 16. septem- ber næstkomandi. Fundurinn hefst með sameiginlegu borðhaldi klukkan 20:00 á föstudagskvöld og síðar um kvöldið verða rædd málefni Alþýðuflokksins í kjördæminu. Fundur hefst að nýju klukkan 10:00 á laugardag og verður þar - auk venjulegra aðalfundarstarfa - meðal annars rætt um stjórnmálaviðhorfið, atvinnu- qg sjávarútvegsmál og önnur mál. Gestir fundarins verða alþingismennirnir Sighvatur Björgvinsson og Rannveig Guðmundsdóttir. Allt Alþýðuflokksfólk er velkomið á staðinn. (Athugið: Boðið verður upp á ódýra gistingu.) Stjórn kjördæmisráðsins. ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR Jón Baldvin á fundi Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur heldur opinn fund um stjórnmálaástandið, mánudaginn 25. september næst- komandi. Fundurinn verður haldinn á Kornhlöðuloftinu við Banka- stræti og hefst klukkan 20:30. Frummælandi verður Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands. Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur. Alþýðublaðið -fyrir geníin ■ Rússneski rithöfundurinn Vladimír Vojnovitsj „Sovétkerfið i inrlir lr\|x on i er liðið OA\ /Óol/O Ul lUli IC/K tíf 1 þjóðin er em bUVtíoKcl i til" Vladimír Vojnovitsj: Áður lugu Sovét-fjölmiðlarnir - en þeir lugu allir á sama hátt. Núna lýgur hver á sinn hátt. Vladimír Vojnovitsj er best þekkti háðsádeilurithöfundur Rússlands. Á meðal verka hans eru The Life and Extraordinary Times of Privat Ivan Chonkin, The Fur Hat og Moskva 2042. Vladimír var sviptur sovéskum ríkisborgararétti sínum árið 1980 en boðinn velkominn aftur heim níu ár- um seinna. Árið 1990 endurheimti hann ríkisborgararéttinn og hefur síð- an þá dvalist til skiptis í Moskvu og Míinchen. Sem stendur er hann að skrifa skemmtiþættina Nýir Rússar fyrir rússneskt sjónvarp. Viðtalið sem hér fer á eftir var tekið fyrir skemmstu í Moskvu. Hver er helsti munurinn d því Rúss- landi sem þú yfirgafst árið 1980 og því Rússlandi sem þú þekkir núna? „Þegar ég kom aftur árið 1989 hafði ekki margt breyst. Sömu bílamir voru á götunum, og almennt voru reglur og venjur þær sömu. Það átti víst að ríkja mun meira frelsi. En þegar ég fór á skrifstofur Fnnoít-tímaritsins vegna þess að mig vantaði ljósrit af einni stuttri grein og fékk svarið: „Allt í lagi, við förum í Rithöfúndasamband- ið og tölum við félaga Vertsjenkó, hann skrifar undir rétt plögg og setur stimpil á greinina og svo getum við afritað hana,“ sá ég að flest var við það sama. En mikið hefur breyst síðan þá“ Hvað hefur ekki breyst? „Sovétkerfið er liðið undir lok, en sovéska þjóðin er enn til. Fólkið á göt- unum er sovéskt og það verður það lengi til; það er þeirra eðli.“ Hvemig kemur sovéska eðlið fram? „Það er skortur á getu til að halda loforð. Ef einhver segist ætla að líta við á ákveðnum tíma á morgun, þýðir það ekki endilega að hann ætli að koma. Það þýðir ekki neitt. Það er ómögulega hægt að treysta fólki. Áður lugu Sovét-fjölmiðl- amir - en þeir lugu allir á sama hátt, svo maður vissi hvar mað- ur hafði þá. Núna lýgur hver á sinn hátt. Blöðin birta nákvæm- lega það sem þeim hentar. Þegar ég hiingdi á eitt dagblað til þess að biðja þá um að birta leiðrétt- ingu var mér svarað á þá leið að þetta blað birti ekki leiðrétting- ar.“ Er erfiðara að vera háðs- ádeiluhöfundur núna en það var á valdatíma kommúnista? „Eg vil sýna framá að það er það ekki. Áður fyrr var Sovétkerfið eina viðfangsefni háðsádeilunnar. Nú þegar það er farið, segir hver það sem honum sýnist og allir eru miklu skemmtilegri en þeir vom. Ég hef í nokkur ár verið að skrifa skáldsögu en ákvað að snúa mér að sjónvarpsþátta- gerð vegna þess að það er svo erfitt að endurspegla lífið í dag í skáldsögu. Frá 1990 hefur þetta líf breyst með hverjum deginum. Það er afskaplega erfitt að skrifa skáldsögu um skipbrot þegar þú ert um borð í skipinu. Það er miklu einfaldara að taka myndir - þess vegna held ég að sjónvarpið sé eini miðillinn sem getur endurspeglað lífið eins og það er núna.“ Sumir hafa sagt að sjónvarpsþátta- raðir séu merki um vond vestrœn áhrif á rússneskt líf. ,,Ég er ekki að skrifa vestræna sápu- ópem. Ég er kannski ekki mjög hóg- vær - en ég ætla að skrifa almennilega gamanþætti, listræna en sem höfða til fjöldans á sama tíma - eins og bókin mín um Chonkin gerði. Ég hef ekki áhuga á ómerkilegum sápuóperum. Auðvitað hafa vestræn áhrif markað líf og menningu í Rússlandi og al- mennt em áhrif sjónvarpsins vond. En sjónvarpið er óumflýjanlegt, það þýðir ekki að fordæma það eða beijast gegn því.“ Með nýfengnu frelsi œtti menning- arlif að blómstra - en það virðist ekki hafa gerst í Rússlandi. „Frelsið býður upp á öðmvísi líf og annarskonar afþreyingu. Fijálst fólk er uppteknara. Nú hef- ur enginn tíma til þess að lesa bækur eða eltast við menningar- viðburði. Áður fór fólk í leikhús til þess að finna vísanir \ rikjandi ástand. Þegar kom að setningunni ’Það er eitthvað rotið í ríki Dana’ í Hamlet klappaði fólk og hló vegna þess að Danmörk stóð fyrir Sovétríkin. Nú þarf enginn lengur á óbeinum vísunum að halda; Danmörk er Danmörk. Á þessum tíma gekk saga af leikstjóra sem hafði verið beðinn um að skil- greina vísun. Hann svaraði: Það er þegar þú ferð í bíó og sérð ský, skóg eða himin á tjaldinu og þú hugsar með þér: ’Hvernig sem það nú er, þá er Brésnev asni.’“ Hvenœr verður Rússland byggt nýjum Rússum? „Ég átti nýlega tal við mann sem sagði að það myndi aldrei verða, Rússland myndi alltaf vera eins og það væri vegna þess að Rússar væm latir og myndu aldrei laga sig að vest- rænu lífi. Én ég held að þeir muni gera það. Japanir em ólíkir Ýesturlandabú- um, en þeir lifa á vestrænan hátt, þó að japanskir eiginleikar haldist. Þegar kapítalismi og lýðræði þróast í Rúss- landi verða Rússar að læra að vinna og lifa á Vestrænan hátt.“ ■ -gv/Byggt á Newsweek Samkvæmt skýrslu Húsaleigubóta- deildar Félagsmálastofnunar fá nú 2160 manns húsaleigubætur hér í borginni. Þetta segir að enn fer fjöldi þeirra sem rétt eiga á bótum á mis við þær. Mér sýnist meginástæðumar vera tvær: 1. Slæm kynning laganna. 2. Húseigendur neita að gera réttan lög- giltan leigusamning, þótt þeir fái 80% af leigunni skattfrjálst. Mér finnst ástæða vera fyrir stjórnvöld að gefa þessu gaum, ekki síst í tengslum við opinbera aðstoð við húseigendur. ■ Höfundur er formaður Leigjendasamtakanna. Húsaleigubætur í Reykjavík Samkvæmt áfangaskýrslu Samráðs- nefndar um greiðsluvanda heimilanna, (útgefandi: Félagsmálaráðuneytið 1995), búa 74% Islendinga í „eigin húsnæði," það er húsnæði sem þeir eiga sjálfir. Þetta er byggt á úrtaki fólks 18 til 75 ára af öllu landinu. Samkvæmt þessu búa þá 26% í hús- næði sem aðrir eiga. Trúlega búa sum- ir í húsnæði ættingjá og eiga því ekki rétt á húsaleigubótum. Ef maður gefúr sér að helmingur eða 13% búi í al- méhnum leiguíbúðum og að leigjend- ur séu hlutfallslega flestir í Reykjavík, einsog kannanir hafa bent til, má ætla að um 15 þúsund heimili í Reykjavík séu rekin í leiguíbúðum. Ef frá eru Leigan J Jón Kjartansson frá Pálmholti skrifar dregnir þeir sem ekki eiga rétt á húsa- leigubótum (leigjendur sveitarfélaga til dæmis) hljóta 12 þúsund heimili í Reykjavík að eiga rétt á þessum bót- Ég vil sýna framá að það er ekki erfiðara að vera háðsádeiluhöfund- ur eftir hrun kommún- ismans. Áður fyrr var Sovétkerfið eina við- fangsefni háðsádeilunn- ar. Nú þegar það er far- ið, segir hver það sem honum sýnist og allir eru miklu skemmtilegri en þeir voru.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.