Alþýðublaðið - 14.09.1995, Side 7
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
r ú s s I a n d
Þingkosningar verða í Rússlandi í desember.
Nú þegar hafa 250 stjórnmálaflokkar verið formlega skráðir- og þeim fjölgar stöðugt
Rússnesk flóamarkaðshyggja
Viktor Tsjernómýrdin, forsætis-
ráðherra Rússlands, kvartaði einu
sinni yfir því að í Rússlandi ríkti flóa-
markaðskerfi. Þegar þrír mánuðir eru
til næstu alþingiskosninga bendir ým-
islegt til að flóamarkaðsstjómmál nái
yfirhöndinni.
Rúmlega 250 stjórnmálaflokkar
hafa verið formlega skráðir - og þeim
fjölgar stöðugt. Þar á meðal em flokk-
ar fyrir bjórunnendur, múslima og
herforingja. Kosningaloforðin eru
margvísleg; það á leggja Alaska undir
Rússland, lækka skatta og hækka hita-
stig til samræmis við Miðjarðarhafs-
lönd. Á síðustu þremur mánuðum hafa
fjórir frægir stjómmálamenn stofnað
sinn eigin flokk. Tsjemómýrdin stofn-
aði flokk sem heitir því undarlega
nafni Rússland er okkar heimili. Alex-
ander Lebed, fyrrverandi herforingi
sem er frægasta herfígúra Rússlands,
gekk til liðs viðNý samtök rússneskra
kommúnista. ívan Rybkin, forseti
neðri deildar rússneska þmgsins hefur
stofnað ívan-Rybkin-flokkinn (gríp-
andi nafn!) og Nikolæ Rýzhkov, sem
var forsætisráðherra Gorbatsjovs í
fimm ár, hefur stofnað flokkinn Vald-
ið til fólksins. Hvað varð um þá hug-
mynd að einn góðan veðurdag þróað-
ist almennilegt flokkakerfi í Rúss-
landi?
Hugmyndin er raunar enn til. Þessi
flokka-offjölgun skiptir ekki miklu
máli vegna þess að sófaflokkarnir
(flokkar sem geta haldið flokksþing á
venjulegum stofusófa) verða kæfðir af
kosningalögunum. Flokkur sem ætlar
að bjóða fram í kosningum verður að
safna 200.000 undirskriftum. Og
flokkurinn verður að fá 5% atkvæða
til þess að tryggja sér eitt af 225 þing-
sætum rússneska þingsins, Dúmunnar.
Um það bil tíu flokkar eiga eftir að
uppfylla þessi skilyrði.
Það eru tvær ástæður fyrir því að
kosningamar skipta máli. I fyrsta lagi
hefur Dúman verið helsti vettvangur
stjómmálaumræðu í Rússlandi síðustu
tvö ár, og þó að vald hennar sé lítið í
samanburði við vald forsetans, er lík-
legt að hún haldi þessum eiginleika.
Dúman verður líka að samþykkja fjár-
lög og hefur því stjóm á opinberum
fjárútlátum.
Stjómmálamaður sem kemst ekki
þama inn í Desember verður útí kuld-
anum næstu fjögur árin.
í öðru Iagi eru þingkosningarnar
generalpmfa fyrir forsetakosningamar
sem verða í júní 1996. Rússneskir
stjómmálaflokkar em oft ekki mikið
meira en frama-vagnar formanna
þeirra; Yabloko-flokkurinn fyrir Gríg-
orý Javlinský, Áfram Rússland fyrir
Bóris Tedórov og Ný samtök rúss-
neskra kommúnista fyrir Alexander
Lebed.
Rússan munu hafa tvenns konar at-
kvæðisrétt. I fyrsta lagi kjósa þeir
kjördæmakjörinn fulltrúa með meiri-
hlutakosningu og í öðm lagi em flokk-
ar kosnir með hlutfallskosningu.
Hjá kjördæmakjörnu fulltrúunum
225 era það pólitísk völd - og pening-
ar sem gera útslagið. Framboðsher-
ferðin kostar þá líklega 200 til 300
þúsund dollara. Það er ekki mikið ef
miðað er við Ameríku eða Japan, en
þó nokkuð fyrir Rússa - ef undan em
skildir tveir hópar; biznesmeni; við-
skiptaspekúlantar sem geta keypt sér
leið inná þing og stjórnkerfiselítur,
það er að segja embættismenn og
stjómendur stórra fyrirtækja, eins og
einokunar-gasfyrirtækjsins Gazprom,
sem Tsjemómýrdin stjómaði. Flokk-
urinn Rússland er heimili okkar (oftar
en ekki kallaður Gazprom er heimili
okkar) er flokkur stjómkerfiselítunnar.
Hann á eftir að geta notað opinbert fé,
sambönd og ríkisrekið sjónvarpið til
að styðja við bakið á sér í kosninga-
baráttunni.
Hin 225 sætin í Dúmunni skiptast á
milli flokka sem hala inn meira en 5%
atkvæða. Flokkaframbjóðendurnir
þurfa á sigrast á Rússland er heimili
okkar - í raun gengur flokknum þó
ekki allt í haginn, hann varð fyrir
áfalli þegar einn stofnandi flokksins,
forsætisráðherraefnið Sergei Sjakharí
gekk út 30. ágúst síðastliðinn.
Tíu dögum áður féll kandídat
flokksins í kosningu um landsstjóra-
embætti Sverdlosk-héraðsins. Flokk-
urinn gat þó huggað sig við það að
frambjóðandinn, Strakhov, fékk 26%
atkvæða í fyrstu umferð kosninganna
- og frambjóðendurnir voru ekki
nema sex. Næðist svona hátt hlutfall
aftur fyrir alþingiskosningamar yrði
flokkurinn vísast stærsti stjómmála-
flokkur Rússlands.
Um alla Austur-Evrópu hafa endur-
reistir og endurbættir kommúnista-
flokkar unnið aðrar kosningar eftir fall
kommúnistakerfisins. Kosningamar í
desember eru aðrar kosningar eftir
hrun Sovétrfkjanna, svo rússneskir
kommúnistar eru fullir bjartsýni.
Kommúnistaflokkurinn var þriðji
stærsti flokkurinn eftir kosningamar
1993, og miðað við það sem gengur
og gerist í Rússlandi er hann samheld-
inn og sameinaður. Hann á vísan
bandámann þar sem Bændaflokkurinn
er; þeir eiga dreifbýlið sameiginlegt.
Báðir flokkamir tveir em aðeins hálf-
endumýjaðir og eiga líklega erfitt með
að ná til annarra en þeirra sem em nú
þegar harðir stuðningsmenn þeirra -
Kommúnistaflokkurinn horfir til 37
milljóna ellilífeyrisþega og Bænda-
flokkurinn til bænda og verkamanna
úr gamla Sovétkerfinu.
Róttækir umbótasinnar fyrstu ríkis-
stjómarinnar eftir hmn Sovétríkjanna
virðast ekki ætla að bera barr sitt í
þessum kosningum. Skoðanakannanir
benda til að þeir njóti stuðnings 18%
kjósenda; það er fólkið sem hefúr náð
að fóta sig í nýju kerfi. Fræðilega ætti
það að duga til þess að gefa þeim
nokkur þingsæti. En í raun og vem em
umbótasinnarnir þrasarar. Fimm
helstu umbótasinnamir hafa stofnað
fimm ólíka flokka. Þeirra á meðal em
Yabloko-flokkur Javlinskis, Jegor
Gædar stofnaði Val Rússlands og
Fedórov Áfram Rússland. Líklegt
þykir að hver þessara smáflokka fengi
3 til 4% atkvæða - þar fæm mörg at-
kvæði til spillis.
Ef, eins og allt virðist benda til,
enginn stóru, traustu flokkanna fær
meira en 20% atkvæða - eins og mál-
in em á því þingi sem nú situr - verð-
ur næsta þing alveg eins að því er
varðar að enginn meirihluti verður
fyrir nokkru. Verði það, hentar það
Bórís Jeltsín og núverandi ríkisstjóm
alveg hreint prýðilega: Helsta mark-
mið þeirra er að koma í veg fyrir að
stjómarandstaðan nái 2/3 þingsæta -
það er fjöldinn sem þarf til þess að
breyta stjómarskránni og koma í veg
fyrir neitunarvald forsetans.
í síðustu kosningum var einn sem
skar sig úr hópnum; ný- fasistinn
Vladimír Zhírinovský. Núna á hann
von á harðri samkeppni frá Lebed
hershöfðingja. Hershöfðinginn sagði
sig nýlega úr hernum og lét að sér
kveða í stjórnmálum með því að
ganga til liðs við Ný samtök rúss-
neskra kommúnista. Stefnur þess
flokks eru undarleg mixtúra. Hann
stendur fyrir vömum Rússlands í „ná-
lægum löndum," en er þó á móti sum-
um nýlegum ævintýrum á þeim slóð-
um (til dæmis í Tatsjikistan). Einn
þáttur í stefnu þeirra er að endurreisa
herinn, sem gæti þó þýtt að minnka
hann. Hagfræðiráðgjafi þeirra er
Sergei Glazíev, sem var ráðherra í
ríkisstjóm Gædar, áður en hann varð
talsmaður sósíalisma. Lebed vonar að
hann geti notað þingkosningamar sem
stökkpall fyrir forsetakosningaslaginn
næsta sumar. ■
-gv / Byggt á The Economist
„Viktor Tsjernómýrdin,
forsætisráðherra Rússlands,
kvartaði einu sinni yfir því að
í Rússlandi ríkti flóamarkaðs-
kerfi. Þegar þrír mánuðir eru
til næstu alþingiskosninga
bendir ýmislegt til að
flóamarkaðsstjórnmál
nái yfirhöndinni."
„Rúmlega 250 stjórnmáia-
flokkar hafa verið formlega
skráðir - og þeim fjölgar
stöðugt. Kosningaloforðin
eru margvísleg; það á leggja
Alaska undir Rússland,
lækka skatta og hækka
hitastig til samræmis við
Miðjarðarhafslönd."
Stjórnmálaflokkar í Rússlandi
Rússland er okkar
heimili
Flokkur sameiningar
og samstöðu
Kommúnista-
flokkurinn
Bændaflokkurinn
Ný samtök
rússneskra
kommúnista
Mikil völd
Frjálslyndir
demókratar
Valdið til fólksins
Val Rússlands
Jablokó
Afram Rússland
Konur Rússlands
Formaður
Viktor
Tsjernómýrdin
Sergei Sjakharí
Gennadý Zjúganov
Mikhail Lapshín
Júrí Skókov og
Alexander Lebed
Alexander Rútskoj
Vladimír
Zhírinovský
Nikolæ Rýzhkov og
Sergei Babúrin
Jegor Gædar og
Sergei Kóvalev
Grígorý Javlinský og
Vladimír Lúkin
Bóris Fedórov
Alevtína Fedúlóva
% atkvæða 1993
6,8
12.4
7,9
22,8
15,4
7,8
8,1
Kosningaloforð
Stöðugleiki, góð
afkoma og órofið
samhengi
Meiri sjálfstjórn
héraða
Meiri opinber
fjórútlát
Mótmæla nýjungum
í sveitum
Verndun Rússa á
erlendri grundu
Endurreisa
rússneska
heimsveldið
Leggja Alaska undir
Rússa, ókevpis
vodka og skjóta
glæpamenn á færi
Endurreisn
Sovétríkjanna
Róttækar breytingar,
frjálslynd, félagsleg
markmið og ákveðin
utanríkisstefna
Frekari umbætur, ná-
in samskipti við ná-
grannaríki
Lýðskrum og um-
bætur
Femínismi i anda
Sovétríkjanna
Aðalstuðnings-
menn
Embættismenn
Átthagaunnendur
Eftirlaunaþegar
Bændur
Þjóðernissinnar
Karlrembur
Verkamenn
Fortíðarhyggju-
sinnað fólk
Umbótasinnar
Umbótasinnar
Þjóðernishyggju- og
umbótasinnar
Heimavinnandi hús-
mæður
Eiginleikar
v» V5/
vs/ v»
®®
r\
r\
v» v»
Q ©
NAW
WW
Q ©
ww
ww
Q ©
ww
®®
r^
v» VJ/
Q ©
ww
®®