Alþýðublaðið - 19.09.1995, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1995
mannasiðir
■ Mannlegt eðli er svo göddótt að lífið yrði óbærilegt ef hver ræki odda sína og
gadda í annan. Þess vegna þarf að laða sig eftir velsæmistilfinningu annarra og
hæverskum siðum til að gera sambúð manna þolanlegri heima fyrir og út á við
- heitir lítið kver sem sjentilmaðurinn Jón Jacobson tók saman árið 1920.
Guðrún V/7mundardóíí/rkynnti sér nokkrar almennar kurteisisreglur.
Mannasiðir er það sem hjá menntuð-
um þjóðum er skilin kurteisi og hátt-
prýði. Að vísu eru þeir með ýmisleg-
um hætti hjá þjóðunum, en þó er
áreiðanlega margt sameiginlegt öllum
prúðum mönnum meðal allra þjóða.
Eru kurteisi og
háttprýði nauðsynleg?
Já, því að þær eru einkaskilyrði upp-
töku í samfélag siðaðra manna og
samvistar með þeim.
Er þá manngildið komið
undir kurteisi og háttprýði?
Já og nei! Ribbaldinn er ribbaldi, fant-
urinn er fantur og dóninn er dóni inni-
fyrir, hvemig sem hann kemur til
dyra. Úlfurinn er úlfur, þótt hann sé
klæddur í sauðagæm og sú háttprýði
ein er sannfögur og hrein, sem kemur
innan að og geislar út frá prúðu, góðu
hjarta. En það að stjóma geði sínu, að
laða sig eftir velsæmistilfmningu ann-
arra og hæverskum siðum, þótt eldur
og ofbeldi ójafnaðar ef til vill brenni
inni fyrir, er samt góðra gjalda vert,
með því að það gerir sambúð manna
þolanlegri heima fyrir og út á við og
gerir mannh'frð mýkra viðkomu.
Mannlegt eðli er svo göddótt, að hfið
yrði óbærilegt, ef hver ræki odda sína
og gadda í annan.
Hver er vörn gegn þeim, sem
af ásettu ráði og í ofmetnaði brjóta
almennar kurteisisreglur?
Sú, að láta þá hispurslaust, en kurteis-
islega, vita, að framkoma þeirra geri
þá að minni, en ekki meiri, mönnum,
og að oflæti sé ekkert merki yfirburða.
Það að koma vel fyrir sjónir
er nokkurs konar meðmœlingabréf
menntaðs manns.
Sá, sem er skeytingarlaus í klæðaburði
eða óhreinn, er vargur í véum siðaðs
félagsskapar. Yfirburðir heila og
hjarta eiga örðugt uppdráttar og koma
illa fyrir sjónir, og það er ekki að
ástæðulausu, því að felagsskapurinn
verður, afleiðinganna vegna, að sjá
um, að framkoma manna særi ekki
augað né smekkinn. Trassar og
sóðar eiga ekkert samvistarerindi
til siðaðra manna.
Hvað skal varast?
Varist fyrst og fremst allt tildur, allan
mikilmennskubrag, alla falska glæsi-
mennsku. Það er ömurleg sjón, þegar
menn eru að strita við að sýnast meiri
en þeir eru, og reyna að vekja eftirtekt
með sundurgerð í klæðaburði, og
menn verða æhð minni fyrir vikið.
Allt það, sem ekki á við í stöðu eða
hag einstaklingins, er kynlegt og vek-
ur eftirtekt. Það þykir til dæmis skrít-
ið, þegar fátækir menn sýna sig í
veislum með falsaða skartgripi.
Hvað er um vasaklúta?
Sú var tíðin, að með þá var farið sem
mannsmorð í samkvæmum. Nú myndi
hver sá þykjast illa staddur, sem vant-
aði þá, því að alla getur hent að þurfa
að snýta sér - og þá er illt að standa
uppi ráðalaus. Vasaklútar séu af með-
alstærð, úr góðu lérefti (hörlérefti) eða
smágerðu líni (Batist) með ísaumuðu
einföldu en smekklegu fangamarki í
einu hominu. Konur munu þó telja sér
leyfilegt að skreyta rendumar á spari-
kiútum sínum með útsaumi. Svartar
sorgarrendur á vasaklútum niunu ekki
tíðkast hér á landi, enda mun varla
hugsanlegt verra smekkleysi, en að
bera sorg sina í snýtuklútnum.
Hvað er meira athugavert
um klœðaburð?
Búningur bæði kvenna og karla sé
hispurslaus, einfaldur, þokkalegur og
sitji vel. Það er spjátrunga einna æði
að vera tískugikkir, að elta hveija ný-
tísku í klæðaburði, hve fráleit eða
óhentug sem hún kann að vera.
Hvernig skal andlit hirða?
Hreinn og fagur litarháttur er ekki öll-
um gefinn, en skylt er þeim, sem hann
hafa fengið að gjöf, að reyna að halda
honum við. Margir em ljótir á hömnd,
rauðir, blakkir, gulir eða gráir í fram-
an, með nabba í andliti og svo fram-
vegis. Það er oft vöggugjöf og þeim til
sorgar og mæðu, sem fyrir verða,
einkum konum, enda leitast þær oft
við að ráða bót á því með tállitum og
dufti. En það er aðeins til að gera vont
verra, fara úr öskunni í eldinn. Það er
hin mesta fásinna af konum, að þessi
brögð geri þær ásjálegri og eigulegri,
því að „upp komast svik um síðir.“
Karlmennimir komast fljótt á snoðir
um, að þessar litfögra drósir em mál-
aðar manneskjur, og skortir þá sjaldan
hlátur og hnýfilyrði í þeirra garð.
Hvernig skalfara með hárið?
Hreinlæti er hér sem víðar fyrir öllu.
Þvoið yður rækilega um höfuðið, að
minnsta kosti vikulega. Sumir óttast
kælingu og hræðast því höfuðböð og
líkamsþvott, en það er með öllu
ástæðulaust. Vart mun sköllóttum
körlum láandi, þótt þeir noti hárkollur,
svo munu og ýmsir rosknir kulvísir
menn bera þær fyrir hlýinda sakir, en
tæplega verður það talin nayðsyn frá
fegurðar sjónarmiði. Allt öðm máli er
að gegna um konur. Fagurt og mikið
hár er eitt hið fegursta skart kvenna,
og sköllótt mær eða kona er ömurleg
sjón, svo ömurleg, að þær em í mann-
úðarinnar nafni næstum skyldar til að
hylja skallann eða hárlýjumar fyrir
meðbræðmm sínum og systmm með
annarlegu hári.
Hvað er um framgöngu?
Góð framganga ber vott um menntun
og gott uppeldi. Þó má eirrnig temja
sér hana. Það er ófögur sjón að sjá
menn dragast um jörðina hálfbogna
og því nær bæði ferhenda og ferfætta,
með því að þeir hafa enga hugmynd
um hvað þeir eiga að gera með hönd-
um og fótum, að sjá menn vera að
þvælast á milli stóla og vera einlægt
að reka sig á, eða húka á stólum en
sitja ekki, vel ef þeir ekki nudda hnjá-
kollana og róa sér. Góð framganga
gefur oftlega óálitlegri manneskju göf-
ugt yfirbragð, auk þess sem hún styrk-
ir heilsu líkamans. En hér sem annar-
staðar er fyrir öllu, að framgangan sé
eðlileg. Menn verða að forðast, að
vera sem á hjólum, eða Kta út sem
danskennarar í námstundum. Sönn
prúðmennska hatar bæði tildur og
klunnaskap. Þó er - af tvennu illu -
betra að vera stirður sem naut, sé það
meðfætt, en óeðlilegur api.
Hvað eru viðrœður
(konversation)?
Svo er um oss íslendinga sem fleiri
þjóðir, að oss er tamara að nota orðið
,konversation“, sem lánað er úr máli
lipurðarinnar og kurteisinnar, frakk-
neskri tungu, en íslensk orð um kurt-
eisar og liprar viðræður eða samtöl
manna á milli, í veislum og sam-
kvæmum, enda mun mál vort eiga
langt í land að ná þeim tökum á þessu
efni, sem það hefur náð í ýmsum öðr-
um greinum, svo sem sögustíl og
skáldskap, sem eðlilegt er um þjóð,
alda upp í fámennu og stijálbyggðu
landi. Auk þess er létt og lipurt viðtal
sérstök gáfa - ein grein umgengisgáf-
unnar - sem alls ekki er öllum gefin.
Hvemig eru nafnseðlar notaðir?
Þeir standa í nánu sambandi við heim-
sóknir. Þeir em afhentir þeim, sem
kemur til dyra, og hann beðinn að
grennslast eftir, hvort húsbændumir,
eða sá sem gert er boð fyrir, séu
heima. Með þessum hætti er þeim í
sjálfsvald sett, hvort þau taki á móti
heimsækjanda eða ekki, enda alltítt að
telja sig ekki heima, þegar menn ein-
hverra orsaka vegna ekki geta eða
vilja sinna gestum. Komi þjónn eða
þema með þau skilaboð, að húsbænd-
ur séu „ekki við látnir" eða „ekki
heirna," skal heimsækjandi fara. En
það fer eftir ástæðum, hve mörgum
nafnseðlum hann skilar.
Sé sá ókvæntur, sem heim er sóttur,
skal heimsækjandi einungis skila
nafnseðli sjálfs sín, aldrei konu sinna.
Við heimsókn hjá kvæntum manni
skili ókvæntur heimsækjandi tveim
nafnseðlum, en kvæntur maður skilji
eftir sameiginlegan nafnseðil sinn og
konu, eða konunnar og sín, hvom í
sínu lagi. Sé heimsóttur maður ekkju-
maður, og lifi einn út af fyrir sig, fer
um hann sem ókvæntur væri, en sé
fulltíða dóttir eða önnur kona fyrir
framan hjá honum, þá afhendi heim-
sækjandi nafnseðla sem hjá kvæntum
manni. Og sama er að segja um heim-
sóknir hjá ekkjum eða ógiftum kon-
um. Séu dætur heimsækjanda í för
með honum, en vanti nafnseðla, bætir
hann við á seðil sinn „með dóttur" eða
„með dætrum." Fullorðnir synir hafa
sjálfir nafnseðla. Grípi heimsækjandi í
tómt, brýtur hann upp á vinstra hom
seðilsins til merkis um, að hann hafi
sjálfur komið með seðilinn, en ekki
sent hann með þjóni eða leiguboði,
því að slíkt er ókurteisi og ósiður.
Framkoma
í heimsóknum
Hún er list fyrir sig og fátt kemur fyrr
upp um menn, hvemig siðum þeirra er
háttað, en hálfrar stundar dvöl í gesta-
stofu. Hér em þau vaninn og viðleitn-
in, samfara góðri umgengisgáfu, nota-
drýgst. Vanalega fálm í byijun.
Öryggið kemur með æfingunni.
En hér skal sem áður tekið fram, að
menn mega alls ekki fóma séreðli
sínu á altari kurteisinnar.
Mega menn sýna listir
sínar í samkvœmum?
Já, en þó því aðeins, að þeir séu beðnir
um það og hafi hæfileika til þess. Það
er ókurteisi og ffamhleypni að gera
slíkt óbeðið og jafn ókurteist er að
kinoka sér og láta dekstra sig til þess,
sem maður ætlar þó að gera. Sá sem
leikur vel á hljóðfæri, syngur vel, eða
kann einhverja aðra list, sem menn
hafa unun af, gefi sýnishom hennar, ef
um er beðið, án mikilla afsakana og
með sem minnstum formála og endur-
taki það, eða' breyti til, ef allir óska
þess. En menn mega ómögulega vera
eins og spiladós, sem miskunnarlaust
hespar af sér öll lögin sín þegar hún
hefur verið dregin upp.
Hvemig eiga menn að koma fram
við þá sem þeim em ógeðfelldir?
Þá reynir á að geta stjómað geði sínu
og haft vald yfir sjálfum sér. Sumir
brosa yfirburðabrosi að öllu, sem við
þá er sagt, aðrir leggja í vana sinn að
andmæla flestu, sem sagt er. Öllu
slíku ber að taka ýmist með þögn eða
þolinmæði eða hvoratveggja, eftir at-
vikum og afstöðu yðar til þeirra, sem
sekir gerast, enda besta refsingin að
láta lýtalausa ffamkomu yðar sýna
yfirburði yðar yfir þeim. Sumir em
leiðinlegir, aðrir hlægilegir; þann
kross verða menn að þola í nafni fé-
lagsskaparins og láta ekki á sér bera,
þótt þeir ætli a drepast úr leiðindum
eða springa af hlátri. Sögur gamalla
manna verða menn til dæmis að hlýða
með athygli, þótt þær séu hundgamlir
kunningjar.
Það er eitt af einkennum manneðlis-
ins, hve gjamt því er til allra öfga, að
missa taumhald skynseminnar á til-
finningum sínum, svo að jafnvel
dyggðin verður að vandyggð, þegar
svo langt er komið, að ræksla hennar
kæfir niður aðrar dyggðir og gerir oss
hirðulausa um aðrar mannlegar skyld-
ur. En með því a kurteisi og háttprýði
em svamir óvinir allra öfga, þá er
nauðsynlegt að menn temji sér þær ffá
bamæsku, þvf að þær skapa jafhvægi í
sálu og fegurð í lífi. ■
Vinningstölur
VINNiNGAR FJÖLDI VINNINGA UPPH/E< Á HVERN VINNING
H SafS 0 2.024.903
g+4af5 1 343.460
El 4 af 5 89 6.650
H 3af 5 2.968 460
Heildampphæ» flessa viku:
kr. 4.325.493
UPmSINGAB. SfHSVARI 91- 6Í 1S 11
LUKKUUNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451