Alþýðublaðið - 19.09.1995, Blaðsíða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1995
I e i k I i s t
®Lóðaúthlutun
í Reykjavík
Til úthlutunar eru neðangreindar lóðir vij> Vættaborgir í
Borgarhverfi:
• 33 lóðir fyrir einbýlishús,
• 5 raðhúsalóðir (samtals 29 íbúðir)
• 7 parhúsalóðir (samtals 14 íbúðir)
• 22 keðjuhúsalóðir (samtals 44 íbúðir)
Gert er ráð fyrir að flestar lóðirnar (a.m.k. 75 íbúðir) verði
byggingahæfar sumarið 1996, en aðrar ekki fyrir en haust-
ið 1996 eða vorið 1997.
Tekið verður við umsóknum um lóðirnar frá og með föstu-
deginum 22. september nk. kl. 8.20 á skrifstofu borgarverk-
fræðings.
Borgarstjórinn í Reykjavík
ik Auglýsing
[Jf um kosningarétt íslenskra ríkisborgara
****** sem b^gettjr eru erlendis.
Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis hafa íslend-
ingar sem flust hafa af landi brott og sest að erlendis kosn-
ingarétt hér í átt ár frá því þeir fluttu lögheimili sitt, talið frá
1. desember næstum fyrir kjördag. Þeir eru því sjálfkrafa á
kjörskrá þann tíma. Að þessum átta árum liðnum falla
menn af kjörskrá nema sérstaklega sé sótt um að fá að
halda kosningarétti.
Því þurfa þeir, sem vilja vera á kjörskrá, en fluttu af landi
brott fyrir 1. desember 1987 og hafa verið búsettir erlendis
síðan, að senda umsókn til Hagstofu íslands fyrir 1. des-
ember 1995, tii þess að halda kosningarétti. Kosningarétt-
urinn gildir þá til 1. desember 1999, en endurnýja þarf
hann með nýrri umsókn til Hagstofunnar eftir 1. desember
1998.
Umsókn skal senda Hagstofu íslands en eyðublöð fást í
sendiráðum íslands, sendiræðisskrifstofum, skrifstofum
kjörræðismanna og hjá fastanefndum við alþjóðastofnan-
ir. Einnig er hægt að fá eyðublöðin á afgreiðslu Hagstof-
unnar.
Umsækjandi verður sjálfur að undirrita umsókn sína.
Einungis þeir sem einhvern tíma hafa átt lögheimili á ís-
landi geta haft kosningarétt hér. Kosningaréttur fellur nið-
ur ef Islendingur gerist ríkisborgari í öðru ríki. Kosninga-
réttur miðast við 18 ára aldur. Reglur þessar gilda með
sama hætti um kjör forseta íslands en ekki um kosningar
til sveitarstjórnar.
Sé umsókn fullnægjandi verður umsækjandi tekinn á kjör-
skrá í því sveitarfélagi þar sem hann seinast átti lögheimili
á íslandi samkvæmt þjóðskrá.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
12. september 1995.
ALÞÝÐUFLOKKURINN
- JAFNAÐARMANNAFLOKKUR ÍSLANDS
Flokksstjórnarfundur
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands - heldur
flokksstjórnarfund laugardaginn 23. september.
Fundurinn hefst klukkan 10:15 og verður í fundarsal á Hótel
Loftleiðum.
Dagskrá:
1. Framtíð jafnaðarstefnunnar í íslenskum stjórnmálum.
2. Almennar umræður.
3. Önnur mál.
Dagskráin verður nánar auglýst síðar.
Formaður.
Ungir jafnaðarmenn
Næ tkomandi miðvikudagskvöld verður haldinn opinn
fun ur í málstofu SUJ um atvinnu- og efnahagsmál. Nán-
ar; glýst í Alþýðublaðinu á morgun.
„Takið hinnikostulegu kveðju"
Verkefni: Himnaríki
Höfundur: Ámi Ibsen
Leikstjóri: Hilmar Jónsson
Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson
Búningar: Þórunn Elísabet
Sveinsdóttir
Lýsing: Bjöm Bergsteinn
Guðmundsson
Aðstoðarleikstjóri:
Hafliði Helgason
Sýningarstaður:
Hafnarfjarðarleikhúsið.
Hermóður og Háðvör
Það vekur alltaf nokkra eftirvænt-
ingu í huga manns þegar ný íslensk
verk em frumsýnd. Og ekki minnkar
hún þegar um er að ræða nýtt leikhús í
nýju húsnæði. Öllu þessu var til að
dreifa hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu á
fimmtudaginn var. Verkið „Himna-
ríki“ eftir Áma Ibsen og fymtm hús-
næði Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar
pússað upp til nýrra nota. En það er
nú svo með eftirvæntinguna að hún
getur verið viðsjáll fömnautur í leik-
húsið og oftar en ekki uppspretta von-
brigða.
Leiklist
Arnór
Benónýsson
skrifar
Óþarfi að orðlengja nokkuð um
það, að svo var ekki að þessu sinni.
Gamla fiskvinnslustöðin þjónar sínu
nýja hlutverki með prýði, leiksalurinn
auðvitað nokkuð lágur til loftsins en
rúmgóður, og með útsjónarsemi hefur
leikhópnum tekist að koma sér þar
fyrir og vel fer um áhorfendur á
gömlu bekkjunum úr Iðnó. Fyrrum
kaffistofu starfsfólks hefur síðan verið
breytt í hlýlegt og aðlaðandi veitinga-
rými leikhússins.
Ámi Ibsen hefur þegar getið sér
gott orð sem leikskáld. Kannski ekki
með þeim afkastamestu, en vand-
virkni og fagmennska hafa verið hans
aðal. Og svo er enn. Að þessu sinni
hefur hann valið sér farsaformið til að
glíma við. 1 því nýtist honum vel sá
hæfileiki að leika sér að tungumálinu,
gefa orðum og hugtökum nýja,
óvænta merkinu og skapa ný ef svo
ber undir. Og það er ekki bara tungu-
málið sem Árni leikur sér með að
þessu sinni heldur einnig leikrýmið.
Verkið segir frá helgarferð sex ung-
menna í sumarbústað, þriggja para vel
að merkja. Salnum er skipt til helm-
inga með framhlið bústaðarins, með
verönd, heimm potti og öðru því sem
tilheyrir. Helmingur áhorfanda fylgist
með því sem þar gerist íyrir hlé. Hinn
helmingurinn situr hinum meginn við
þilið og sér hvað gerist inn í bústaðn-
um. Síöan er leikið samtímis bæði úti
og inni. Eftir hlé skipta áhorfendur um
sæti, þannig að þeir sem úti voru fara
inn og öfugt. Verkið byrjar að nýju og
er leikið óbreytt, aðeins sjónarhorn
ic spoon in my mouth
e Who:Substitude.
ólfum dapur..."
irmundur Valtýsson.
here..."
Ikine Heads.
§ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR
Jón Baldvin á fundi
Alþýðuflokksfélag Reykjavík-
ur heldur opinn fund um
stjórnmálaástandið, mánu-
daginn 25. september næst-
komandi.
Fundurinn verður haldinn á
Kornhlöðuloftinu við Banka-
stræti og hefst klukkan 20:30.
Frummælandi verður Jón
Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins -
Jafnaðarmannaflokks ís-
lands.
„Árni Ibsen hefur með þessu verki skapað al-
íslenskan ærslaleik, þar sem fer saman fersk-
ur og bráðfyndinn texti og hröð, fljótandi at-
burðarás, full af óvæntum uppákomum."
Alþýðuflokksfélag Reykja-
víkur.
áhorfenda hefur breyst.
Nú er það svo að ekkert er nýtt und-
ir sólinni. En ég minnist þess ekki að
íslenskir áhorfendur hafi fyrr átt þess
kost að horfa á leiksýningu með þessu
formi. Og satt best að segja hafði ég
nokkrar efasemdir um þessa tilraun.
En sjón er sögu ríkari. Tilraunin geng-
ur fullkomlega upp og jafnvel ekki
laust við að það auki manni eftirvænt-
ingu að heyra hinum megin við þilið
hlátrasköll og gleðilæti.
Ami hefur með þessu verki skapað
alíslenskan ærslaleik, þar sem fer sam-
an ferskur og bráðfyndinn texti og
hröð, fljótandi atburðarás, full af
óvæntum uppákomum svo sem vera
ber.
Hilmar Jónsson verður að teljast til
byrjenda í leikstjórn. Vinna hans á
þessari sýningu ber þess þó lítil merki.
Þannig er stíllinn vissulega ærsla-
kenndur, en þó agaður og listavel tekst
að þræða einstigið milli ærsla og of-
leiks. Hrynjandi og hraðabreytingum
er beitt af smekkvísi. Þó leikgleðin og
krafturinn séu vissulega hreyfiaflið í
persónusköpuninni og stundum farið
fram á bjargbrúnina í þeim efnum,
missir leikstjórinn aldrei tökin. Ut-
koman er því þétt, kraftmikil og lif-
andi sýning, sem nær fullkomlega
þeim tilgangi sínum að skemmta
áhorfendum.
Leikararnir njóta þess að vera að
vinna með þjálan og vel skrifaðan
texta, undir öruggri leikstjóm. Þannig
skapar Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir
trúverðuga og bráðíyndna persónu úr
Unni. Sýnir að hún er leikari sem hef-
ur á valdi sínu hið erfiða form gaman-
leiksins. Sérstaklega var gaman að
fylgjast með hversu tilfinning hennar
fyrir tímasetningu var örugg. Það er
hæfileiki sem oft skilur á milli feigs
og ófeigs þegar gamanleikurinn er
annars vegar.
Þórhallur Gunnarsson virtist örlítið
stífur og óöruggur í upphafi, sem hinn
kvensarrú töffari Beggi. En óx ásmeg-
in og skilaði vel byggðri og heil-
steyptri persónu.
Tryggvi er frá höfundarins hendi
hlédrægur og hikandi lúser. Erling Jó-
hannessyni tekst vel að byggja á þeim
grunni og skilar persónu sem hvað
helst kallar á samúð áhorfenda.
Jóna Guðrún Jónsdóttir leikur Anítu
og tekst vel að koma til skila bams-
legu hrekkleysi, sem gerir hana að
kjömum leiksoppi.
Gunnar Helgason skapar hinn of-
virka Gaua og gerir það vel. Þó var
það helst hann sem mátti vara sig á
því að falla ekki í gryfju ofleiksins.
Steinunn er frá hendi höfundar
veikasta persónan, stjómsöm frekju-
tófa. Eða, svo alls velsæmis sé gætt,
ákveðna konan í verkinu. Björk Jak-
obsdóttir nýtti þó vel það sem hún
fékk til að moða úr og verður ekki
sökuð um að Steinunn verður manni
síst eftirminnileg af persónum verks-
ins.
Leikmynd Finns Amars er raunsæ-
isleg og þjónar sýningunni vel.
Lýsing Bjöms Bergsteins og bún-
ingar Þómnnar Elísabetar vom hvort
tveggja fagmannlega unnin verk, án
allra stæla studdu þau og ýttu undir
vinnu leikara og leikstjóra.
Niðurstaða: Glœsileg frumraun
hjá nýju leikhúsi, þar sem saman fer
vel skrifað verk, vönduð leikstjórn og
kraftmikill, agaður leikur. ■