Alþýðublaðið - 27.09.1995, Síða 5

Alþýðublaðið - 27.09.1995, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐK) 5 þar sem hann talaði jafnan máli lítil- magnans. Skólafélagar breska rithöfiindarins, G.K. Chestertons, lpgðu hann í ein- elti í æsku, aðallega vegna offitu hans. Honum leið afar illa í skóla, sýndi lítil framför og varð ekki læs fyrr en hann var átta ára gamall. Einn kennara hans sagði við hann: ,,Ef við gætum opnað hausinn á þér þá kæmumst við að því að þar sem heilinn í þér ætti að vera er einungis hvítur fitukögguli.“ Lengi vel var Chesterton neðstur í sínum bekk, en endir var bundinn á einangrun hans þegar hann vingaðist við skólafélaga sína og verðandi rit- höfund E.C. Bentley. Þegar Chestert- on lauk framhaldsskóla beið hans björt framtíð á ritvellinum, og frægðin fullkomnaðist með sakamálasögum hans um föður Brown. Chesterton hafði einungis þarfnast vinar og upp- örvunar og eftir að þá næringu gekk honum allt í haginn. Ciacomo Pucc- ini þarfnaðist einungis geðugs kenn- ara og þá blómstraði hann. Höfundur Toscu, La Boheme og Madame Butt- erfly var fæddur inn í tónlistarfjöl- skyldu, sem gerði til hans miklar væntingar en hann virtist fullkomlega metnaðarlaus. Skólaganga hans gekk brösuglega og meira að segja tónlist- arkennari hans fómaði höndum í ör- væntingu og sagði að nemandinn hefði enga hæfileika. Puccini litli eignaðist þá einkakennara í tónlist og sá hafði svo gott lag á drengnum að hann tók stöðugum framförum og helgaði líf sinn tónlistinni upp ffá því. Pablo Picasso náði litlum árangri í skóla, einfaldlega vegna þess að hann neitaði að gera nokkum skapaðan hlut annan en mála. Þegar Pablo var.tíu ára tók faðir hans hann úr skóla. Drengur- inn var þá hvorki læs né skrifandi. Einkakennari sem fenginn var til að kenna drengnum gafst upp á hinum dáðlausa námsmanni sem harðneitaði áð læra stærðfræðf Pablo var þá send- ur í listaskóla og náði háum prófum, en hætti fljótlega vegna þess að hon- um leiddist. Hann stundaði síðan sjálfsnám og varð einn frægasti málari aldarinnar. ■ Messan á Möðru völlum Ásdís Kvaran lögfræðingur var við nám í Menntaskólanum á Akureyri árið 1958 þegar fræg messa varð til að binda endi á skóladvöl hennar. Það var 15. mars 1958 sem hún fór ásamt vinum sínum Ara Jós- efssyni, Birni Thoroddsen, Þor- valdi BoIIasyni Thoroddsen, Ág- ústi Sigurðssyni að Möðruvöllum í Hörgárdal í þeim tilgangi að skíra Þorvald sem var óskírður. Þegar liðið var á nótt gengu félag- arnir í kirkju. Ágúst, sem síðar varð prestur á Möðruvöllum, varpaði hempu yfir Ásdísi en hún skrýddi hann hökli. Síðan vígðu félagarnir vatn í skírnarfontin- um. Ásdís var skírnarvottur, Björn Thoroddsen lék á orgelið og Ari var meðhjálpari. Þorvald- ur var síðan skírður Þorvaldur Hörgull Bollason Thoroddsen. Síðan hringdu félagarnir kirkju- klukkum. Tiltækið vakti almenna hneykslun á Norðurlandi, og reyndar hvar sem hneykslunar- hellur var að finna. Félögunum var vikið úr skóla. Ásdís Kvaran tók síðar lögfræðipróf frá Há- skóla íslands. í stuttu samtali við Alþýðu- blaðið sagðist hún ævinlega hafa rekist illa í skóla því hún hefði átt svo erfitt með að sitja. Skóla- meistari hennar á Akureyri hafi því oft orðið til beina til hennar áminningarorðunum: „Þér hafið ekki akademískt frelsi ennþá.“ Tll varnar dúxunum Undarlegt var það, að sú skoðun virtist nokkuð almenn, að það væri Ijóður á ráði hvers skólapilts að liggja yfir bókunum, þangað til hann kynni lexíurnar sínar almennilega, öðru nafni að kúrera. Til þess. m.a að læra eitthvað þóttumst við nú samt vera komnir í skólann. En þá er okkur sagt, að það sé kallað að vera kúristi og þyki hin mesta smán. Já, fúxar nutu að öðru jöfnu meiri virð- ingar en kúristar. Eitthvað er nú bog- ið VÍð þetta. Þúrhallur Þorgilsson bókavörður. Skilgreining á kúristum Svo voru þeir menn nefndir, sem með iðni og nuddi tókst að skara fram útfélögum sínum sem gáfaðir voru taldir en voru latari við lær- dóminn og því neðar í röðinni. Björgúlfur Ólafsson lœknir Um prófessor Níels Finsen Níels Finsen settist í Latínuskólann haustið 1876, féll í þriðja bekk, sat hann aftur og lauk stúdentsprófi. Hann fluttist til Kaupmannahafnar, gerðist læknir og helgaði líf sitt rann- sóknum á áhrifum sólarljóssins á mannslíkamann og lækningarkrafti þess. Hann hlaut Nóbelsverðlaun í læknisfræði 1904, ári áður en hann lést, fjörtíu og fjögurra ára að aldri. „Æviferill hans sýnir að ekki er allt komið undir góðum prófum á náms- árunum og þótt hann hafi verið tal- inn aðeins meðalmaður í skóla, auðnaðist honum þó að verða heimsfrægur maður fyrir uppgötv- anir sínar í læknisfræði og dáður af mannkyni öllu á komandi árum." Siguröur Thoroddsen „Ég hefði viljað hugga hann" Kristján Jónsson Fjallaskáld sagði sig úr skóla ári áður en hann lést. Hann er hér sem fulltrúi þeirra íslensku skálda sem flosn- uðu frá námi vegna þess að reglufesta námsstofn- anna féll ekki að eðli þeirra. „Því miður var það svo sem honum ætti ávallt að Ifða illa, því hann hneigðist til drykkju meira en hent- aði fyrir mann undir skóla- aga, og þess vegna sagði hann sig úr skóla 1868. Hans ógæfa var sú að hann sá aldrei sólskinsstundirnar í lífinu. Mér er enn minnisstætt síðasta kvöld Kristjáns Jónssonar í Latínu- skólanum... Mánaðarfrí hafði verið um daginn og sumir piltar komu drukknir eftir klukkan átta. Hann var einn af þeim og kom svo seint að umsjónarmaðurinn sá hann og sagði að hann mundi fá nótu. Ég sat hjá honum uppi við efsta borið í bekknum allt kvöld- ið. Ég hefði viljað hugga hann, en þess var ekki kost- ur. Hann orti þar um kvöld- ið kvæðið Ekki er allt sem sýnist, en ég las það úr pennanum. Hann strikaði lítið út. Það er eitt af miklu Ijóðunum hans sem er yfir- komið af heimsþjáningu. Morguninn eftir þegar við gengum frá bænum kl. 8 hneig hann niður i dyrum salarins. Hann sagði að sér hefði sýnst maður stinga sig í hjartað. Hann var borinn í rúm sitt, en síðar um daginn sagði hann sig úr skóla. Indriði Einarsson rithöfundur. „Vakandi Frægasta skólauppþot Islandssögunnar er pereatið í janúarmánuði 1850. Haustið 1849 voru logandi deilur í Lærða skólanum milli rektors Sveinbjarnar Egilssonar og flestra nemenda hans. Sauð upp úr þegar fimmtán nemendur sögðu sig úr bindindisfé- lagi skólans. Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli rektors neit- uðu þeir harðlega að ganga aftur í bindindi. Við svo búið vildi rektor ekki una og lagði að stiftsyfirvöld- um að vfsa sex piltum úr skóla, og svipta átta heima- vist í skólanum. Hann krafðist þess einnig að öllum nemendum yrði veitt ofanígjöf og þeir skyldaðir til að halda bindindislög. Stiftsyfirvöldum þótti rektor sýna fullmikinn ákafa í þessu máli og tóku ekki und- ir erindi hans. Daginn eftir hélt Sveinbjöm Egilsson þmmuræðu yfir nemendum sínum, sagði rneðal annars: „Lifið nú betur en áður. Vakandi augu eru yfir yður frá þessum degi. Enginn af oss kennurum skal sleppa augu eru auga af yður, að því er verða má, svo lengi sem nokkur af oss lafir við skólann." Þessi ræða kallaði á uppreisnaróp nemenda sem héldu úr skólanum, en rektor og kennarar héldu heim til rektors til að sentja klögunarskýrslu til stiftsyfirvalda. Þangað komu skólapiltar og hrópuðu: „Rektor Sveinbjöm Egilsson, pereat!" Var síðan far- ið að hverju húsi í bænum og kallað hið sama. Sveinbjöm rektor brást við hart, sigldi til Kaup- mannahafnar til að bera málin undir skólastjómar- ráðherra. Þegar rektor kom heim var foringja pilt- anna Arnljóti Ólafssyni vikið úr skóla, en aðrir pilt- ar vom áminntir. 5. mars skrifaði Sveinbjöm rektor til Jóns Sigurðssonar: „Nú er ástand skólans hið besta, svo að það þarf engan að fæla og ffá því ég kom til skólans hefi ég aldrei reynt pilta eins auð- sveipa og nú. Eg bjóst alltaf við því að eftir storm mundi koma logn.“ yfir yður" Af uppreisnarpiltum flestum fóm góðar sögur eft- ir þetta. Foringi þeirra Arnljótur Ólafsson varð al- þingismaður, Steingrímur Thorsteinsson ástsælt skáld, Lárus Sveinbjörnsson gerðist háyfirdómari og Magnús Stephensen landshöfðingi. Láms og Magnús áttu mörgum ámm síðar skond- in viðskipti þegar syni þess síðamefnda var vísað úr Lærða skólanum fyrir brot á skólareglum ásamt fé- lögum sínum. Landshöfðinginn sneri sér þá til háyf- irdómarans sem, kannski minnugur fomra synda, úr- skurðaði drenginn á ný inn í skóla, svo og félaga hans, en þar á meðal var Tryggvi Þórhallsson. Þessi vetur 1903- 1904 einkenndist af miklum ærsl- um nemenda og alls kyns broti á skólareglum. Hurfu þeir þá frá skóla skáldin Jónas Guðlaugsson og Jón Thoroddsen sem þóttu hinir mestu vandræðag- emsar. „Menn með snilli- gáfu rek- ast ekki í skólum" Jón Baldvin Hannibalsson á af- rekaskrá sem hvaða skólastjóri gæti verið fullsæmdur af, en með rögg- samri stjóm tókst honum, á níu áram, að reka milli tuttugu og þrjátfu nem- endur úr skóla. „Þetta var ein- faldlega þannig að ég rak heimavistar- skóla úti á landi. Heimavistarskól- inn var í verstöð. Verstöðin var á fylliríi laugardaga og sunnudaga. Eg var að stofna skóla sem stóð og féll með því orðspori sem af honum fór. Eg er íhaldsmaður í skólamálum og hafði strangan aga í skólanum. Þar giltu mjög einfaldar reglur og þær voru afdráttarlausar. Skólinn átti að vera vinnustaður. Þar átti að vera vinnuagi og vinnufriður. Þar átti ekki að vera drykkjubæli og letigarður. Þarna voru dæmigerðir kraftmiklir landsbyggðastrákar sem fóm til sjós á sumrin og ætluðu svo að slappa af í vellystingum um veturinn, vera fullir og liggja í leti. Þeim var gefm ein við- vömn og ef hún ekki dugði þá vom þeir reknir. Jafnframt var sagt við þá: „Jæja vinur, ef þú finnur að þú hefur áhuga á að stunda nám þá skaltu koma aíitur“. Ef ég lít til baka þá gaf þetta góða raun. Nemendum vom sett mörk og þeir lærðu að taka afleiðingum gerða sinna. Mörgum þeirra hefur lánast vel í lífinu og flestir þeirra fóru aftur í skóla þegar þeir höfðu áhuga á því sjálfir. Ég hef ekki fylgst með þeim öllum en ég fylgdist vel með flestum. Þetta em þeir nemendur sem ég man einna best eftir og margir þeirra em persónulegir vinir mínir. Og þakka mér reyndar oft og iðulega fyrir brott- reksturinn." Afhverju vegnar snillingum iðulega illa í skóla? „Einu sinni flutti Einar Magnús- son þáverandi rektor Menntaskólans í Reykjavík erindi á skólastefnu þar sem hann ætlaði að færa sönnur á að það væri ósatt að dúxar gætu aldrei orðið að mönnum. Hann gerði það með því að lesa upp nöfn allra dúxa í Lærða skólanum frá aldamótum og vel fram yfir miðbik þessarar aldar. Þá kom í ljós að dúxamir urðu yfirleitt ráðuneytisstjórar. Það var að verða að manni, að hans sögn. Þeir urðu topp embættismenn. Það lýsir dúx; sam- viskusamur maður sem hefur röð og reglu á hlutunum. Menn með sérgáfu eða vott af snilligáfu rekast ekki í skólum. Skólar em ekki til fyrir svo- leiðis fólk.“ Hef ekki rekið n snillinga n Guðni Guðmundsson. rektor Menntaskólans í Reykjavík í aldar- fjórðung segist lítt hafa iðkað þann sið að reka nemendur úr skóla: „Það var voða lít- ið um það. Það er svo lítið um það að það er næsta ótrú- legt. Ég er að eðlisr fari andvígur því að reka menn.“ Þannig að þú ert ekki sekur um að hafa rekið snillinga. „Nei, ég hef ekki storkað örlögun- um á þann hátt.“ Af hverju rekast snillingar illa í skólakerfinu? „Það er sennilega bara af því að þeir em að hugsa um annað. Það er kenn- urum alveg djöfullega við, sama hversu djúpviturlegt það er.“

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.