Alþýðublaðið - 27.09.1995, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 27.09.1995, Qupperneq 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 Skin og skúrir Þjódleikhúsið: Þrek og tár Höfundur: Ólafur Haukur Símonarson Lýsing: Páll Ragnarsson Búningar: María Ólafsdóttir Leikmynd: Axel H. Jóhannesson Hljóðstjórn: Sigurður Bjóla Dansstjórn: Ástrós Gunnarsdóttir Tónlistarstjórn: Egill Ólafsson Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson Leikhús Sæmundur 'r 'I Guðvinsson skrifar um leiklist Stétt íslenskra leikritahöfunda er fá- menn en þar er Olafur Haukur Símon- arson afkastamestur. Þrek og tár mun vera 13. leiksviðsverk hans og þar af hefur um helmingur þeirra verið frum- sýndur í Þjóðleikhúsinu undir leik- stjórn Þórhalls Sigurðssonar. Mig rámar í að hafa séð fyrsta leikrit Olafs Hauks, Blómarósir, sem Alþýðuleik- húsið sýndi fýrir hálfurn öðrum áratug eða svo. Það fannst mér ekki gott leik- rit. Sfðan hefur Ólafur samið mörg verk og sum þeirra öðlast miklar vin- sældir, svo sem Bílaverkstæði Badda, Hafið og Gauragangur. Þrek og tár fer hægt af stað. Framan af er vart hægt að tala um atburðarás og lítið um óvænt atvik sem skapa spennu. Persónur koma og fara á svið- inu og spjalla um allt og ekkert. Mörg hnyttin tilsvör falla af og til út allt leikritið en inn á milli bregður fyrir hátíðlegu bókmáli sem jafn reyndur höfundur og Ólafur Haukur ætti fyrir löngu að hafa lagt fyrir róða. Fram að hléi er þetta nokkurs konar umhverfis- lýsing svo langt sem hún nær. Hér reynir mjög á leikstjórann að brjóta upp þetta oft og tíðum daufa sam- ræðufonn og þar beitir Þórhallur leik- stjóri ýmsum velheppnuðum tilbrigð- um. Tónlistin hjálpar mikið til þar sem flutt eru brot úr ýmsum velþekktum lögum, allt frá erlendum slögurum til íslenskra sönglaga. Hefði að skað- lausu mátt stytta textann fram að hlé og lofa tónlistinni að njóta sín betur. Þar slær Hljómsveit Áka Hansen enga feilnótu undir öruggri stjóm Egils Ol- afssonar. Leikurinn gerist í Vesturbænum upp úr 1960 og hefst með heimkomu námsmannsins Davfðs og lýkur þegar hann heldur burt til frektyi náms. Höf- undur leitast við að bregða upp mynd af þröngu samfélagi þar sem skiptast á skin og skúrir. Þar er ekki allt sem sýnist í upphafi þótt ýmislegt sé gefið í skyn varðandi það sem síðar kemur í ljós. Persónur leikritsins glíma við sitt daglega amstur og kalda stríðið gægist á glugga. Verkið er í heild ljúft og skemmtilegt með hæfilegri dramatfk enþað ristir ekki djúpt. I Fréttabréfi Þjóðleikhússins ritar Stefán Baldursson leikhússtjóri inn- gang þar sem hann segir að leikhópur Þjóðleikhússins hafi eflst og styrkst Alþýðublaðið 0 -ekki fyrir alla Ungir jafnadarmenn! «■ íþróttaæfingar Samband ungra jafnaðarmanna mun í vetur standa fyrir íþróttaæfingum í anda nýrrar heilsubótarstefnu. Æfingarnar verða með eftirfarandi hætti: Knattspyrnutímar verða í íþróttahúsi Álftamýrarskóla á mánudögum klukkan 22:10 Körfuboltatímar verða í íþróttahúsi Háskólans á fimmtudög- um klukkan 21:45. Þátttökugjöld eru 100 krónur í hvert skipti og eru allir ungir jafnaðarmenn velkomnir. Heilsubótarnefnd ungra jaf naðarmanna ^ Alþýðuf lokkskonur! Áríðandi fundur alþýðuflokkskvenna, miðvikudaginn 27. sept- ember kl. 20.30 í Hamraborg 14a, Kópavogi. Samband alþýðuflokkskvenna hyggur á öflugt starf í vetur. Stjórnin er með ýmsar hugmyndir og lýsir eftir hugmyndum þínum. Mætum allar! Stjórn Sambands alþýðuflokkskvenna Þórhallur Sigurðsson leikstjóri og hans lið ná miklu út úr gloppóttu leikverki og sýningin í heild er hin besta kvöldstund. með ári hverju. Honum sé til efs að nokkum tíma fyrr í sögu leikhússins hafi jafhmargir frábærir leikarar verið við störf þar samtímis. Óhætt er að taka undir þess orð Stefáns og raunar ástæða til að óska leikhússtjóranum til hamingju með þann árangur sem hann hefur náð í starfi. Það er hvergi veikur hlekkur í þeirri keðju leikara sem flytur okkur Þrek og tár. Af hálfu höfundar eru persónur leiksins ekki allar dregnar skýrum dráttum en leikaramir fylla upp í þær eyður á snilldarlegan hátt oft og tíð- um. Til dæmis er athyglisvert hvað Anna Kristín Amgrímsdóttir nær að gera vel í vandræðalegu hlutverki Vil- helmínu ráðskonu. Sama má segja um Jóhann Sigurðsson sem leikur Einar verkamann og komma sem gefur verkalýðsbaráttuna upp á bátinn. Einar heldur til Ameríku þar sem hann ætlar að meika það en kemur til baka með umboð fyrir amerískan kjúklingarasp. Ekki beint trúverðug sinnaskipti en Jóhann fær okkur til að trúa því að annað eins geti nú gerst og dregur upp skemmtilega mynd af manni sem á erfitt með að fóta sig í tilverunni. Edda Heiðrún Bachman tekur Helgu söngkonu og húsmóður með trompi og glansar í leik og söng. Þá er Edda Arnljótsdóttir ekki síðri í hlutverki Kristínar, systur Helgu. Með komu Kristínar frá Ameríku fara hjólin að snúast og Edda fer á kostum í hlut- verkinu. Föður þeirra systra og yfirafa sam- kundunnar leikur Gunnar Eyjólfsson. Þessi gamalreyndi leikari á létt með að finna sig í Jóhanni í Framnesbúðinni og sama má segja um Bessa Bjama- son sem Hall Fengel skókaupmann. Þóra Friðriksdóttir er ekki í vandræð- um með að kalla fram hlátur í hlut- verki frú Fengel og er gaman að fylgj- ast með vinnubrögðum þessara leikara sem svo lengi hafa verið í landsliðinu. Hilmir Snær Guðnason sýnir okkur einkar geðþekka mynd af Davíð. Elva Ósk Ólafsdóttir sem Margrét dóttir Fengelhjóna gerir hosur sínar grænar fyrir Davíð með litlum árangri og er samleikur þeirra oft hláturvaki. Egill Ólafsson er hæfilega hátíðlegur sem Aki rakari, tónlistarmaður og sósíal- demókrat. Öm Ámason er stórgóður sem Árni á Vellinum og flutningur hans á Draumlandinu eftirminnilegur. Stefán Jónsson er hæfilega ógeðfelld- ur sem Gunni Gæ. Þá em ótalin Vig- dís Gunnarsdóttir, Magnús Ragnars- son, Sigríður Þorvaldsdóttir og Sveinn Þórir óeirsson sem standa öll fyrir sínu. Ekki síst nær Vigdís sér vel á strik í leik og söng. Sviðsmyndin er afar einföld en þjónar sínu hlutverki með skemmti- legri lýsingu. Búningamir féllu vel að tíðaranda og persónum. Fmmsýning- argestir fögnuðu vel og lengi í leikslok og höfðu greinilega hrifist af sýning- unni. Niðurstaða: Þórhaliur Sigurðsson leikstjóri og hans lið ná miklu út úr gloppóttu leikverki og sýningin í heild er hin besta kvöldstund. ■ Mál og menning Bætiefna- bókin Mál og menning hefur sent frá sér Bœtiefnabókina, handbók um vítamfn, steinefni og fœðubótarefni eftir Har- ald Ragnar Jóhannesson og Sigurð Óla Ólafsson. Þetta er gagnleg hand- bók handa almenningi þar sem finna má svör við spumingum eins og: Em bætiefni nauðsynleg? Hvemig verka þau? Hve mikið magn er æskilegt að taka? I bókinni er safnað saman á einn stað aðgengilegum upplýsingum um vítamín og bætiefni af ýmsu tagi sem er á markaðnum hér á landi. Fjallað er um fituleysanleg og vatnsleysanleg vítamín, steinefni, snefilefni og margskonar fæðubótarefni, jafnt þau sem hafa sannað gildi sitt, svo sem lýsi og önnur óhefðbundnari, svo sem blómafijókom, ginseng, gersveppi og margt fleira. Höfundar bókarinnar em báðir lyfjafræðingar. Bókin er 132 blaðsíður, unnin í Odda en kápu gerði Bergþóra Huld Birgisdóttir. Verð bókarinnar er 1.980 krónur. ■ Afmæli Karlakór Reykja- víkur sjötugur Karlakór Reykjavíkur verður sjötugur 3. janúar 1996 og af því tilefni er verið að undirbúa veglega afmælisdagskrá. Segja má að hún hefjist með fyrsta verkefni vetrarins 2. og 3. des- ember í Hallgrímskirkju, þegar kórinn heldur þar aðventutón- leika ásamt Drengjakór Laug- arneskirkju. Sérstakir afmælistónleikar verða síðan haldnir í febrúar og þá munu ýmsir listamenn koma fram með kórnum. Árlegir vortónleikar kórsins verða í Langholtskirkju 14. til 20. apríl á næsta ári. Þessir tón- leikar verða fimm að tölu og með sérstökum hátíðarbrag vegna afmælisins. Þeir eru fyrst og fremst ætlaðir styrktarfélög- um. I lok apríl er fyrirhuguð söngferð um Norðvesturland. f vetur Iýkur kórinn við að syngja inn á geisladisk með Kristni Sigmundssyni og einnig verða sungin nokkur lög eftir Sigfús Halldórsson inn á geisla- disk við undirleik Sinfóníuhljó- sveitar íslands. Ymis önnur verkefni eru á döfinni hjá kórnum en stærsta verkefnið er þó bygging tón- leikahúss við Skógarhlíð. Húsið mun rúma um fjögur hundruð manns í sæti og er sérstaklega hannað með hljómburð í huga. Ef allt fer að óskum endar Karlakór Reykjavíkur afmælis- árið með tónleikum í nýja hús- inu við Skógarhlíð. Staðgreiðsla af húsaleigubótum 1. september tók gildi reglugerð um staðgreiðsu skatts af húsaleigu- bótum. Bæturnar voru skattskyldar frá upphafi, öfugt við vaxtabætur, en ekki með staðgreiðslu. Stað- greiðslan kemur mörgum verr og dregur úr þýðingu bótanna, því margir hafa ekki ónotað skattkort til að mæta þessu. Leigjendasamtökin hafa lagt áherslu á að vaxtabætur og húsa- leigubætur verði sameinaðar í eitt húsnæðisbótakerfi þar sem allir Leigan Jón Kjartansson frá Pálmholti skrifar búi við sömu reglur. Félagsmála- ráðherra segir að kerfið muni að líkindum verða óbreytt næsta ár. Ástæða er til að þakka formanni V.R. fyrir að vekja sérstaka athygli á skattlagningu húsaleigubóta á útifundi nýlega. Því er von að menn spyrji: Geta leigjendur átt von á stuðningi verkalýðsfélaga við að ná þeim rétti að mega sitja við sama borð og aðrir hvað varðar opinbera húsnæðisaðstoð? Höfundur er formaður Leigjendasamtakanna.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.