Alþýðublaðið - 19.10.1995, Síða 4

Alþýðublaðið - 19.10.1995, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 t A-mynd: E. Ól. Kjarvalsstöðum einlægur í listinni ■ Benjamín HJ. Eiríksson 85 ára í dag Hagfræðinc sem ætlar i verða koni Auður: Þetta er mjög litrík sýning. ■ Unga kynslóðin á Að vera Kjarvalsstaðir hafa tekið upp þann sið að bjóða gestasýningarstjórum að setja upp sýningu um sjálfvalið efni. Auður Ólafsdóttir ríður á vaðið og hún valdi sextán manna hóp ungra myndlistarmanna sem sýna á Kjar- valsstöðum á samsýningu sem nefnist Einskonar hversdagsrómantík. Sýn- ingin verður opnuð klukkan 16 á Kjar- valsstöðum. Alþýðublaðið náði tali af Auði Ósk- arsdóttur sem valdi sýningarhópinn og sþurði hvað hún hefði einkum haft í huga við valið. Auður svarar á þennan veg: „Lista- mennimir eru allir fæddir á sjöunda áratugnum, þeir yngstu 1970. Þeir hafa allir lokið myndlistamámi og starfa í dag sem myndlistarmenn, en em hins vegar mis sjóaðir í sýningar- haldi. Ég tók þá stefnu að velja ekki verk eftir jafnaldra þeirra, ef þeir em orðnir mjög þekktir og hafa kannski haldið einkasýningar í þessum sama sal. Af þeim sextán manna hóp sem ég valdi hafa þrettán lokið framhalds- námi sínu erlendis, eftir nám í MHÍ. Hugmyndin með vali þessara lista- manna og þessara verka var súð að gera sýnilegar vissar áherslubreytingar sem hafa orðið í myndhstarheiminum og hafa verið í geijun síðustu ár og em í deiglunni í dag. Heitið á þessari sýn- ingu er Einskonar hversdagsrómantík, og það er þannig til komið að mjög fljótlega, þegar ég var að vinna að þessari sýningu, þá komu fram tveir mjög áberandi þræðir, bæði í samtöl- um við listamennina og í verkunum. Það var annars vegar eitthvað í ætt við rómantík, í anda 19. aldar, og við get- um kennt við aldarlokarrómatík. Þessi rómantík kemur fram í hugmyndum þessa unga listafólks um listina sem galdur. Hún kemur fram í mjög sterkri einstaklingshyggju og kemur fram í spumingum um hlutverk listamanns- ins og hlutverk áhorfanda í sköpunar- ferlinu og í spumingu sem virðist vera mjög brennandi í dag hjá ungu mynd- listarfólki, og kannski listafólki al- mennt, og það er spumingin um það hvort enn sé hægt að vera einlægur í listinni eftir allt það sem á undan hefur gengið. Það er leitin að því að vera maður sjálfur og tjáningin í listinni sem ég kenni þama við rómantík. Og vera maður sjálfur getur alveg eins þýtt að vinna úr annarra manna áhrif- um, en á frumlegan og persónulegan hátt. Svo er það hinn þráður sýningarinn- ar, sem er hversdagsleikinn. Mjög margir þátttakendanna tala um og skírskota til hversdagsleikans. Það finnst mér mjög merkilegt. Þeirra hversdagsleiki þarf ekki að vera neitt hversdagslegur. Litur hans er ekki endilega grár. Alls ekki. Þetta er mjög litrík sýning. Listamennimir nota þetta hugtak á alla mögulega vem. Þeir nota það á mjög ólíkan hátt, allt frá þessu smáa, einfalda og kyrra í nánasta um- hverfi og til þess að vera ímynd draumsins.“ Auður er að síðustu spurð um al- menn einkenni á sýningunni og svar- ar: „Það er mjög mikið um frásagnar- verk, sviðsetningar og verk sem skír- skota til bemskunnar, ímyndaðar, eig- in bemsku, eða annarra. Það er tals- verð skírskotun til eldri listar. Þess sem hefur áður verið gert. En það er venjulega með fyrirvara, oft með útúrsnúningi, og þá í formi íroníu eða húmors. Mér sýnist að þessi kynslóð virðist mjög eðlislægt að hafa fyrirvara gagnvart gömlum listasannindum." ■ Sex ára var hann sendur á eyr- ina að vinna fyrir sér. Hann var hafnarverkamaður og sjómað- ur. Komst til mennta, dúxaði í menntaskóla og hélt til fram- haldsnáms í hagfræði. Hann hefur unnið hjá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum, var bankastjóri Framkvæmdabankans og efna- hagsráðunautur ríkisstjórna. Fékk síðan vitrun og dró sig í hlé frá opinberu starfí, en hefur sinnt ritstörfum af töluverðu kappi. Hann heitir Benjamín H. J. Eiríksson og hann er áttatíu og fimm ára í dag. í tilefni dagsins átti Kolbrún Bergþórsdóttir við hann afmælisspjall. Nú ert þú hagfrœðingur, segðu mér afhverju svo margt virðist í vitleysu he'r á landi? „Það er ekki allt í vitleysu. Þú ert allt of trúgjöm. Þú átt ekki að hlusta á kvabbið. Forysta launþegasamtakanna sagði fyrir nokkmm ámm að kaup- máttur launa verkamannsins hefði ní- faldast síðan um aldamót. Við emm á framfarabraut. Ég hef lifað langa ævi. Ég sá miðaldimar hverfa. Ég lifði tím- ana þegar það vom engir vegir, engar brýr, engin hafnarmannvirki, svo dæmi séu talin. En þjóðin hafði annað í staðinn. Hún hafði holdsveiki, sulla- veiki, berkla og lúsina. Svo komu há- launamennimir og færðu henni veg- ina, brýmar og hafnarmannvirkin. Það vom verkfræðingamir, hagfræðing- amir, læknamir, kennaramir skip- stjómarmennimir sem fleyttu okkur áffam til framfara. Ég er fijálshyggjumaður. Auðvalds- skipulagið er eina efnahagsskipulagið sem hefúr gert þjóðir ríkar.“ Hvaða viðhorf hefurðu þá til verka- lýðsforustunnar? „Ég er ekki ánægður með það sem forustumenn verkalýðsins segja, en flestir ættu þeir að geta orðið skyn- samir eftir að hafa fengið sér góðan morgunverð og borðað sín eigin orð. Forseti Alþýðusambandsins vill ekki vitleysuna. Hann er búinn að átta sig á því hvemig hlutimir geta orðið og er þess vegna tregur til að taka þátt í ruglinu. Svo em aftur á móti angur- gapar af ýmsu tagi sem heimta og beija í borðið. Og ætla að hefja enn eina verkfallavitleysuna.“ Þú varst sanntrúaður kommúnisti um tíma. „Það er rétt. A sínum tíma þóttist ég hafa fundið fyrirheitna landið. En ég kaus að týna því aftur." Viltu þá ekki finna annað land og verða sannfœrður jafnaðarmaður? „Ég held mig frekar frá pólitík, en ég hef taugar til jafhaðarmanna. Já, svo þú vilt gera mig að jafnaðarmanni. Ég er reyndar aðdáandi þíns manns, Jóns Baldvins. Hann er greindur mað- ur og veit hvað hann vill. Svo er hann hagfræðingur." Eru það meðirueli? „Ég skal segja þér að hagfræðingar vita ýmislegt." Af hverju varðst þú hagfrœðingur? „Ég ætlaði mér að fara í framhalds- nám í stærðfræði, en velti því svo fyrir mér hvað ég ætti að gera við það nám. Ég hefði líklega orðið kennari. Eða fengið vinnu þar sem ég hefði lokast inni í fílabeinstumi. En ég þóttist sjá að það væri meira gagn að hagfræði- námi. Ég varð doktor ffá Harvard 1946, eftir ljórtán ára framhaldsnám. Það var langt nám og strangt." Hvaðfinnst þér um að eyða svo mörgum árum í nám? „Það heimtar vissa tegund af ein- beitni. Og það er ekki hægt að hverfa að öðm, ekki fá sér vinnu, gifta, sig, stofha heimih, eignast fjölskyldu. Það er útilokað. Samt gifti ég mig árið 1942, þegar ég var orðinn þijátíu og tveggja ára.“ Og hvaða augum líturðu hjóna- bandið? „Það er afskaplega gagnleg stofnun og menn ættu að gera meira fyrir hjónabandið. Mér finnst þessi sam- búðarform ekki nógu góð. Fólk á að giftast. Alveg skilyrðislaust. Og ekki skilja. Það er eiginlega flest betra en skilnaður. Hjónaskilnaður er voðaleg- ur fyrir bömin." „Ég er ekki ánægður með það sem forustumenn verkalýðsins segja, en flestir ættu þeir að geta orðið skynsamir eftir að hafa fengið sér góðan morgunverð og borðað sín eigin orð." En er luegt að gera þá skilyrðis- lausu kröfu til tveggja manneskja að þœr elski hvor aðra þar til hinfellur frá? „Hvemig elskar fólk? Það er svo misjafnt. Það er til rómantísk ást og ég segi ekki orð gegn henni. En það er miklu fleira í h'fmu sem gefur því gíldi en rómantísk ást.“ Já, en það á ekki að hafha rómant- ískri ást þegar hún gefst. Menn eiga ekki að kasta henni fyrir hversdags- leikann. „Segðu ekki svona ljótt! Menn geta fengið vissa lífsfyllingu í því að eiga bömin sín. Þannig að ég er alveg á móti hjónaskilnuðum. Það er allt betra en þeir.“ Hefur hjónabartdið hjálpað þér í líf- inu? „Já, afskaplega mikið." Finnst þér ofmikið siðferðilegt los í þjóðfélaginu? „Alltof rnikið. Er ekki til kvikmynd sem heitir Nei er ekkert svar. Ég held að nei sé svar. Ég er harður í afstöð- unni gegn ofbeldi karlmanna. Og það er allt of linlega tekið á því. Ég vil láta hengja alla nauðgara." Þú segir þetta varla í alvöru. „Ég er að tala við þig af fullri al- vöru. Þessi skoðun mín hefur komið á prent. Það verður að koma meiri reglu

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.