Alþýðublaðið - 19.10.1995, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 19.10.1995, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 jurinn að jngur á hlutina. Sjáðu O.J. Simpson. Hann sker konuna sína fyrrverandi í stykki, eins og kjöt, og einnig mann sem hann þekkir ekki neitt. Og hann sleppur frá því eftir margra mánaða réttarhöld. Þetta er ekki réttlæti. Þetta er óskemmtilegt mál.“ Og það óskemmtilegt að e'g held að við verðum að víkja að öðru og skemmtilegra efni. Hvert er skemmti- legasta staifsem þú hefur fengist við um œvina? „Það er freistandi að segja að það haft verið þegar ég var bankastjóri, en það var nú ekki alltaf skemmtilegt starf. Ahugaverðasta starf, eigum við að orða það þannig?" Segjum það. „Það var þegar ég var efnahagsleg- ur ráðunautur samsteypustjómar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Steingrímur Steinþórsson var forsætis- ráðherra. Þeir gátu náttúrlega hvomg- ur verið forsætisráðherra Hermann Jónasson og Ólafur Thors. Þetta vom báðir stórir menn sem vildu embættið en sættust á þriðja mann sem forsætis- ráðherra." Já, og re'ðu svo öllu sjálfir, eða hvað? „Það er annað mál. En svo kom viðreisnarstjóm og Eysteinn Jónsson bað mig um að vera áfram. í þessu staríi fékk að ég vinna hlutina eftir eigin höfði. Ég hafði áhrif. Það var vímugjafi." Nú varstu mjög áberandi í íslensku þjóðhfi um margra ára skeið, en dróst þig svo frá skarkala heimsins. Hvað gerðist? „Það sem gerðist var að ég fékk heimsókn. Guð kom til mín. Það þykir ágætt þegar Móses segir frá þessu eða Múhammed, en ekki þegar ég segi frá því. Þá œttum við kannski ekki að hafa mörg orð um það. En segðu me'r efþú hefðir mátt breyta einhverju í lífi þínu, hverju hefðirðu þá breytt? „Eg hefði óskað að lífið hefði ekki verið alveg svona erfitt. Mig minnir að Brynjólfur Bjamason hafi skrifað bók sem hann kallaði Með storminn í fanginu. Ég hafði kannski ekki storm- inn í fanginu á sama hátt og hann, en ég hefði samt óska mér þess að lífið hefði ekki verið svona erfitt. Ólafúr Thors sagði einu sinni við mig: ,,Þú ert fátækur maður". Ég hafði aldrei hugsað um mig sem fátækan mann. Hann var kannski bara að hugsa um að gera mig svolítið ríkari en ég var. Ég hugsa það, hann var þannig rnaður, og vildi mér vel. Ég hef aldrei hugsað um að vera ríkur. En lífið hefur alltaf verið „á fótinn", eins og sagt er. Það hefði gjaman mátt vera svolítið auð- veldara. Ég ætla ekki að rekja það nánar fyrir þér en ég hef alltaf orðið að vinna fyrir mér hörðum höndum. Og oft hef ég haft áhyggjur af því hvað tæki við. En allt hefur þetta verið holl og góð lífsreynsla." Og hvað œtlarðu að gera við árin sem þú átt eftir? „Ég ætla að verða konungur í ísra- el.“ Þannig að þú hefur til nokkurs að hlakka. „Hlakka? Ja, það má orða það þannig. Mundir þú taka að þér greiða' úr vandamálum heimsins, ef þér væri boðið það?“ Sem jafnaðarmaður svara ég því til að slíku tilboði sé ekki hœgt að hafna. „Akkúrat. Því tilboði er ekki hægt að hafna og má ekki hafna og því verður ekki hafnað.“ ■

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.