Alþýðublaðið - 31.10.1995, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 31.10.1995, Qupperneq 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995 Menntamálaráðuneytið Styrkur til handrita- rannsókna í Kaup- mannahöfn í framhaldi af lyktum handritamálsins ákváðu dönsk stjórnvöld að veita íslenskum fræðimanni styrk til hand- ritarannsókna við Stofnun Árna Magnússonar (Det Arnamagnæanske Institut) í Kaupmannahöfn. Styrkur- inn veitist til allt að tólf mánaða dvalar en miðast þó að jafnaði við styttri dvöl. Hann nemur nú um 16.900 dönskum krónum á mánuði, auk ferðakostnaðar. Styrkur Árna Magnússonar (Det Arnamagnæanske Legat) Sjóðurinn Det Arnamagnæanske Legat hefur það verk- efni að veita íslenskum ríkisborgurum styrki til rann- sókna í Árnasafni eða öðrum söfnum í Kaupmannahöfn. Styrkir eru veittir námsmönnum og kandídötum, sem hafa sýnt svo mikla þekkingu á norrænni tungu, sögu eða bókmenntum, að vænta megi að þeir muni inna af hendi verk í þessum greinurm sem þyki skara fram úr. Til úthlutunar á næsta ári eru 30.000 danskar krónur. Umsóknarfrestur um ofangreinda styrki á árinu 1996 er til 4. desember nk., en umsóknir ber að stíla til Árna- nefndar (Den Arnamagnæanske Kommision) í Kaup- mannahöfn. Nánari upplýsingar um styrkina og tilhög- un umsókna fást í menntamálaráðuneytinu, Stofnun Árna Magnússonar á íslandi og skrifstofu heimspeki- deildar Háskóla íslands. Menntamálaráðuneytið, 27. október 1995 Félag ungra jafnaðarmanna í Reykjavík Aðalfundur Þriðjudaginn 31. október 1995, kl. 20.00 verður aðal- fundur Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík haldinn að Hverfisgötu 8-10 í húsi Alþýðuflokksins - Jafnaðar- mannaflokks íslands. Nánari staðsetning er Ingólfskaffi 1. hæð. Aðaifundurinn verður með hefðbundnu sniði. Dagskrá fundarins er á þessa leið: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Kosningar. 3. Önnur mál. Það er mælst til þess að þú, félagi góður, látir sjá þig á aðalfundinum. Allir félagsmenn hafa atkvæðarétt, til- lögu og málfrelsi. (Sem er nú ekki lítið). Kristinn Ásgeirsson formaður. Alþýðublaðið þótt þú þutfir að stela því Vinningstölur 28. okt. 1995 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING H 5af5 0 7.702.015 g+4af5 4 152.110 R1 4 af 5 129 8.130 H 3af5 4.162 580 Aðaltölur: BÓNUSTALA: 38 HeildarupphæO þessa viku: kr. 11.773.185 TJPPLÝSINGAR, SIMSVAR1568"!51TTÐA GRÆN NR. 800 6511 • TEXTAVARP 453 BIRT MEO FYRIR VARA UM PRENTVILLUR t Minning Bárður D. Jensson Bárður D. Jensson fyrrverandi formaður verkalýðsfélagsins Jök- uls í Ólafsvík fæddist í Ólafsvík 16. október 1916. Hann lést á Borgarspítaianum í Reykjavík 20. október síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Metta Kristjáns- dóttir og Jens Guðmundsson. Bárður var yngstur fjögurra systkina, hin voru Sigríður, Guð- mundur og Kristján, sem öll eru látin. Auk þess er eftirlifandi uppeldisbróðir þeirra Eggert Kristjánsson, sem dvaldi um ára- bil á heimili foreldra Bárðar og er nú búsettur í Ólafsvík. Eftirlif- andi kona Báðar er Áslaug Ara- dóttir, sem fædd er 7. ágúst 1924, en þau giftu sig árið 1944. Börn þeirra hjóna eru: Auður, Friðrik, en hann lést af slysförum árið 1981, Garðar, Jennetta, Sigurður Skúli og Jóhanna. Auk þess eign- uðust þau hjónin dóttur árið 1947 en hún lést, óskírð, fljótlega það sama ár. Bárður tók minna mót- orvélstjórapróf í Reykjavík 1940. Hann var vélstjóri af og til hjá Guðmundi Jenssyni 1940-70, meðal annars á vélbátunum Hrönn, Agli, Snæfelli og Pétri Jó- hannssvni, en vann þess á milli ýmis önnur störf, var vagnstjóri hjá SVR 1942-43 og aftur 1966- 72, vélstjóri hjá Örnólfi Valdi- marssyni í Ólafsvík á Sindra 1947 og aftur 1954- 56, hjá Víglundi Jónssyni í Ólafsvík á Snæfelli 1951 og á Fróða 1958, hjá G.Guð- mundssyni 1953, á Lyngey á Höfn í Hornafirði 1977 og Ioks hjá Þor- varði Lárussyni 1978. Hann var formaður og framkvæmdastjóri Verkalýðsfélagsins Jökuls í Ólafs- vík 1978-90, sat í stjórn Verka- mannabústaða Ólafsvíkur 1978- 91, þar af formaður stjórnar í átta ár. Hann hefur setið í stjórn VMSÍ, ASÍ, SSÍ og hann var for- maður Umferðarráðs Ólafsvíkur í 10 ár. Hann hefur hlotið heið- ursmerki og viðurkenningu frá Sjómannadagsráði Ólafsvíkur. Útför Bárðar fór fram frá ÓI- afsvíkurkirkju á laugardaginn. Á ferð um Snæfellsnes síðastlið- inn þriðjudag var mér sagt að ágætur vinur, Bárður D. Jensson, hefði látist skömmu eftir aðgerð sem hann gekkst undir á sjúkrahúsi í Reykjavík. Hann hafði verið orð- inn hress og kátur eftir aðgerðina þegar hann skyndilega varð alvar- lega veikur, sem leiddi til andláts. Okkar kynni urðu fyrst þegar ég heimsótti þau hjón Bárð og Ás- laugu þegar Eiður Guðnason nú- verandi sendiherra íslands í Osló og Sveinn Elinhergsson kynntu mig fyrir þeim í fyrstu ferð minni til Ólafsvíkur í aðdraganda Al- þingiskosninga 1991. Mér eru hug- stæðar hþýjar móttökur þeirra hjóna. Þó Áslaugu væri þá ekki létt um tjáningu var gleðin og glettnin augljós. Bárður var þá hreystin og gleðin uppmáluð en hann var þá orðinn 72 ára. Samræður snerust um útgerð, sjómennsku, fiskverndun og tog- veiðar á grunnslóð. Skoðanir og rök Bárðar á þessum málum voru skýrar og settar fram með rökum sem óhrekjandi voru og eru, til dæmis um hver áhrif það hefur haft að togveiðiskip hafa hreinlega brotið niður skjóltinda og standa á slóðum sem alltaf var unnt að fá fisk á færi, með þeim afleiðingum að botninn er nær sléttur þar sem áður voru 20 metra standar og fiskurinn er horfinn. Svona voru rökin sett fram með sönnun á dýpt- armælispappír frá sömu slóðum en mismunandi tíma. Það bar einnig við að hann hringdi og segði mér að nú væri málum svo komið í málefnum trillukarla að ekki mætti við svo búið standa. Gleði og kátína einkenndu sam- töl okkar Bárðar, umræða um leik- list, gamanvfsur, harmonikkuspil og ýmislegt sem gefur ekki hvað síst lífinu svo mikið gildi. Málefni þeirra sem lakar eru settir voru honum alveg ljós og bar hann sérstaka umhyggju fyrir þeim og ýmsum sem hafa orðið fyrir áföllum í lífinu. Þó það sé ekki í stíl Bárðar að ræða slíka hluti þá segi ég hér frá því að mér er kunn- ugt um ungan mann sem átti í erf- iðleikum fyrir nokkrum árum vegna skuldaf Hann leitaði til Bárðar sem gekkst í ábyrgð og út- vegaði peninga, með þessum orð- um: „Peningar eru ekki allt í lífinu vinur minn, en að standa við það sem maður segir - það er manns- bragur að því.“ Þessum fjármunum hefur öllum verið komið í skil og umræddur ungur maður eignaðist trúnaðarmann og félaga sem hann leit á sem föður. Þessi ungi maður sagði við mig: „Eg mun aldrei framar koma mér f slíka fjárhags- stöðu sem ég var í. Nú skulda ég engum og mun ekki gera.“ Ég get líka sagt frá ferðamanni sem fyrir nokkrum áruin átti leið um Ólafs- vík og tjaldið hans bilaði og engin leið var að fá það viðgert. Bárður sagði honum að koma með sér heim þar sem hann fór inn í bíl- skúr, náði í tjaldið sitt og afhenti ferðamanninum með þessurn orð- um: „Þú sendir það svo vinur þeg- ar þú ert búinn að nota það.“ Þessi eru kynni mín af þessum ágæta fé- laga sem í dag er kvaddur héðan í Ólafsvíkurkirkju. Okkar sameiginlega áhugamál, harmonikkan, var á sínum stað í íbúð þeirra Bárðar og Áslaugar og fékk ég að grípa í hana öðru hverju. Síðastliðið haust var haldið kjördæmisþing Alþýðuílokksins á Vesturlandi í Ólafsvík. f lok fund- arins var borðað saman og tekið upp léttara hjal. Jón Baldvin sagði gamansögur, en hann var í sér- stöku uppáhaldi hjá Bárði, menn sungu saman og hápunkturinn var þegar Bárður reis upp frá borðum og söng undir laginu Domínó gam- anvísur sem hófust með orðunum Ólafsvík, Ólafsvík, með Ijúfri og tónvissri rödd. Það var mikil ánægja okkar félaganna að kynnast þessari hlið Bárðar og hefur nær alltaf verið nefnt þegar minnst er þessa fundar þegar félög jafnaðar- manna í Snæfellsbæ sameinuðust. Okkar síðasti fundur var nú í ág- úst. Þá leit ég til þeirra hjóna og meiningin var að hittast nú í þess- ari viku, en engin veit hvenær kall- ið kemur, af þeim fundi varð ekki. Ég vil að lokum þakka góð kynni við þennan sómamann sem nú er látinn og votta öllum börn- um, ættingjum og vinum innilega samúð og sérstaklega Áslaugu sem hefur misst þennan elskulega föru- naut sem Bárður D. Jensson var. Fyrir hönd félaga á Vesturlandi, Gísli S. Einarsson. Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00 1983- 2.fl. 1984- 3.il. 01.11.95 - 01.05.§6 12.11.95 - 12.05.96 kr. 68.603,20 kr. 85.833,10 *) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, 27. október 1995 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.