Alþýðublaðið - 10.11.1995, Blaðsíða 8
Föstudagur 10. nóvember 1995 172. tölubiað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Kai®8
■ Fréttabréf SARK birtir skoðanakönnun Gallup
Forsætisráðherrar funda Forsætis-
ráðherra Eistlands, Tiit Váhi, er staddur hér á landi í opinberri heimsókn
ásamt eiginkonu sinni og fylgdarliði. Heimsókninni lýkur á morgun.
Myndin er tekin á fundi Davíðs Oddssonar forsætisráðherra meö Tiit Váhi
forsætisráðherra Eistlands í gær. A-mynd: E.ÓI.
■ Nýlistasafnið
Guðný og
Thomas sýna
Á morgun verður opnuð í Nýlista-
safninu sýning á verkum Guðnýjar
Richards og Thomas Ruppels. Þau
eru bæði búsett í Þýskalandi og sýna
málverk og grafikverk í safninu.
Guðný lauk námi frá Akademíunni
í Stuttgart á síðasta ári og hefur tekið
þátt í samsýningum í Þýskalandi og
hér heima. Thomas lauk námi frá graf-
íkdeild Akademíunnar í Stuttgart 1990
og hann hefur haldið einkasýningar í
Þýskalandi og Ameríku og tekið þátt í
fjölmörgum samsýningum í Þýska-
landi.
Gestur Nýlistasafnsins í Setustofu
er þýski listamaðurinn Martin Leien-
setter frá Ludwigsburg og sýnir hann
málverk. Sýningamar standa yfir til
26. nóvember.
■ Frumvarp á Alþingi
18 ára fái
að kaupa
áfengi
í gær lögðu fjórir þingmenn
fram á Alþingi frumvarp um að
réttur fólks til að kaupa áfengi
verði lækkaður úr 20 árum í 18.
Jóhanna Sigurðardóttir formaður
Þjóðvaka er fyrsti flutningsmað-
ur, en auk hennar standa að til-
lögunni þau Lúðvík Bergvinsson
Alþýðuflokki, Siv Friðleifsdóttir
Framsóknarflokki og Geir H. Ha-
arde formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins.
„Auðvitað er það
ekkert annað en dæmi-
gerð tímaskekkja að
ganga til móts við 21.
öldina með ríkisrekna
kirkju, á sama tíma og
margvísleg félagsleg
réttarstaða okkar er í
virkri endurskoðun
með tilheyrandi endur-
hæfingu ýmissa laga-
ákvæða," segir Gunn-
ar Ingi Gunnarsson
læknir meðal annars í
nýútkomnu fréttabréfi
SARK, Samtaka um
aðskilnað ríkis og
kirkju. í blaðinu kemur
fram að nær 62%
landsmanna eru
hlynntir aðskilnaði.
I fréttabréfinu eru 30
einstaklingar spurðir
hvers vegna þeir styðji
aðskilnað ríkis og
kirkju og er Gunnar
Ingi f þeim hópi.
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson segir
meðal annars að í svari
sínu að ríkið eigi ekki
að skipta sér af trúmál-
um. „Menn eiga að gjalda keisaranum
það, sem keisarans er, og Guði það
sem Guðs er.“ Mörður Árnason seg-
ir í sínu svari: „Ég hef lengi verið
þeirrar skoðunar að það eigi að skilja
að ríki og kirkju. Ástæðan er einföld;
60°
50%
40%
30%
20%
10%
Vaxnndi stuðningur við
nðskilnnð ríkis og kirkju
□ Árið 1993
Arið 1994
48%
39%
32°
16%
13 /<
Hlynnt
Hvorki né
Andvig
trúfrelsi er meðal sjálfsagðra mann-
réttindaákvæða í stjómarskrá okkar,
og sú skipan að ein kirkjudeild hafi þá
sérstöðu að vera þjóðkirkja stangast á
við anda þessara ákvæða. Skiptir þá
ekki máli í sjálfu sér hversu íjölmenn
NYR 2000 KRONA PENINGASEÐILL
OG 100 KRÓNA MYNT
í umferð 9. nóvember
Heimild: Fréttabréf SARK.
hún er eða hveija kenningu hún boð-
ar.“ Það kemur fram í fréttabréfinu að
Gallup hefur í tvígang spurt fólk hvort
það væri hlynnt eða andvígt aðskiln-
aði ríkis og kirkju. I maí 1993 vildu
rösklega 48% skilja að ríki og kirkju
en á síðasta ári voru tæplega 52%
hlynnt því. Árið 1993 voru tæplega
39% andvíg aðskilnaði en tæplega
32% á síðasta ári. Þegar aðeins er litið
á þá sem tóku afstöðu kom í ljós að
tæplega 62% eru hlynnt aðskilnaði
ríkis og kirkju en rúmlega 38% and-
víg. í blaðinu kemur fram að allar
þjóðir Evrópu hafi fijálsar kirkjur og
óháðar ríkisvaldinu nema Norðurlönd
og Bretland sem enn eru með ríkis-
reknar þjóðkirkjur. Af 745 milljónum
íbúa Evrópu em aðeins 85 milljónir,
eða 11,4%, sem búa við ríkisvemduð
trúarbrögð. Svíar hafa ákveðið að-
skilnað árið 2000 og sterk hreyfing er
fyrir aðskilnaði í Finnlandi og víðar á
Norðurlöndum.
Heimild: Fréttabréf SARK.
Kynningarörk liggur frammi
í bönkum og sparisjóðum
MPMBLMÐ
Góöur pappír
til endurvinnslu
62% landsmanna
hlynntir aðskilnaði
ríkis og kirkju