Alþýðublaðið - 24.11.1995, Síða 3

Alþýðublaðið - 24.11.1995, Síða 3
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o ð a n Af festu og ábyrgð 4 I"Reynslan segir okkur að bændaforystan og framsóknarmenn allra fiokka eru tilbúnir til að mæta í góðar veislur en þéir er að sama skapi of uppteknir fyrir jarðarfarir." Fyrir hálfum öðrum áratug sat sá er þetta ritar á aðalfundi Búnaðarsam- bands Suðurlands. Utan hefðbundinn- ar dagskrár var sérstök kynning á loð- dýrarækt. Varpað var á vegg línurit- um, súluritum og allskyns tölulegum fróðleik. Loðdýrarækt var það sem koma skyldi. Hefðbundinn landbún- aður var á krossgötum og taka þurfti afstöðu til framtíðar. ísland, land tæki- færanna var kjörið til loðdýraræktar. Veðurfarið gott. Feldur dýranna yrði fallegur hér á íslandi. Fóðurkostnaður borðleggjandi helmingi minni en á öðrum Norðurlöndum. Pallborðið | iBP . Tryggvi T Skjaldarson skrifar Bændur sperrtu eyrun. Ekki skemmdi fyrir að allar dyr að fjár- magni opnuðust upp á gátt við töfra- orðið „loðdýrarækt". I hillingum sást betri tíð og blóm í haga. Velþóknun landsfeðra og bændaforystan (sem stýra fjármagni til landbúnaðar) var föískvalaus. Og að sjálfsögðu af fullri ábyrgð eins og sagt er þegar launakjör eru réttlætt. I súpunni sitja loðdýrabændur ásamt ættingjum og vinum, sem formsins vegna, skrifuðu á skuldabréfin. Þeir sem ábyrgðina bera horfa í hina áttina og segja: „Á ég að gæta bróður míns?“ - ef þeir segja yfirleitt eitt- hvað. Enda er komið á daginn að bændasamtökin gera ekkert og því síður ríkisvaldið, ef ifá er talinn dugn- aður við að ganga að loðdýrabændum og bera út á götu. Meðan ráðamenn eru blóðugir upp að öxlum við slátrun á þeim sem hlustuðu, trúðu og framkvæmdu, heyrist að skinnaverð er á uppleið. Framleiðsla og markaður í jafnvægi. Seinheppnin er alger. Upp á síðkastið hefur varla brugðist að í Bændablaðinu birtast lærðar greinar um bleikjueldi. Bleikjan er það sem koma skal. Nú horfa bændur á bæjarlækinn og allar nærliggjandi sprænur og velta fyrir sér hvort aðstæður séu góður til bleikkju- eldis. Ekki hafa sést neinar greinar í Bændablaðinu um hvernig eigi að selja fiskinn. Reynslan segir okkur að bændafor- ystan og framsóknarmenn alka flokka eru tilbúnir til að mæta í góðar veislur en þeir er að sama skapi of uppteknir fyrir jarðarfarir. Enda stöðugt að vinna að lausn vandamála í landbúnaði og að sjálfsögðu af fullri ábyrgð. Með kveðju úr Rangárþingi. Höfundur er bóndi í Þykkvabæ. JÓN ÓSKAR v i t i m e n n Leifur heppni var fyrsti íslenski homminn. Richard O'Brien höfundur Rocky Horror Picture Show í viðtali við Helgarpóstinn. Málamyndakristnir einsog Davíð Þór og fleiri verða hlessa þegar hin- ir kristnu láta í sér heyra, prédika grimman, afbrýðissaman og ein- ráðan guð er boðar mönnum að ekki skuli aðra guði hafa. Þorri Jóhannsson í HP í gær. Það, að Þjóðvaki skuli leggja fram tillögu um breytingu á stjómar- skránni, er því í rauninni tillaga um að leggja þingflokk Þjóðvaka niður. Garri Tímans vekur athygli á því, aö veröi frum- varp Þjóðvaka um stjórnarskrárbreytingu sam- þykkt þarf aö rjúfa þing og kjósa aftur - en fylgi Þjóðvaka mælist nú eitt til tvö prósent. Hjartastaður hlýtur að teljast með þvi besta sem Steinunn hefur sent frá sér. Ritdómur Þrastar Helgasonar um nýja skáld- sögu Steinunnar Siguröardóttur. Til dæmis ef þau drekka um hverja helgi, endar það bara á einn veg. Þau ánetjast áfenginu og enda ann- aðhvort í ræsinu, inni á Vogi eða í gröflnni. Sigurgeir Haraldsson góðtemplari íTímanum ( gær. fréttaskot úr fortíð Landráðaniálið þýska Frá Miinchen er símað: Við yfir- heyrslu fyrir réttinum í gær játaði Hitler hvítliðaforingi, að tilgangur sinn með byltingunni 8. nóvember fyrra árs hafi verið sá að steypa alrík- isstjóminni í Berlín af stóli og koma á einvaldsstjóm í anda þjóðemissinna. Hins vegar hefðu þeir Ludendorff og Lossow eigi viljað gera breyingu á stjóm alríkisins, heldur að eins breyta stjómarfyrirkomulaginu í Bayem og koma á einvaldsstjóm þar. Alþýðublaðið 28. febrúar 1924. hinumegin "FarSido" eftir Gary Larson Þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, Árni Johnsen, er þekktur fyrir að eiga erfitt með að tjá í orðum þær hugsanir sem stundum bær- ast innra með honum, og þetta kom í Ijós á Alþingi fyrr í vikunni. Þegar Össur Skarphéðinsson var í ræðustól í utandagskrárum- ræðu í vikunni svaraði hann frammikalli Árna með því að segja að honum heyrðist háttvirtur þingmaður Árni Johnsen hrista höfuðið. Árni mun hafa talið að þarna væri átt við meintan greind- arskort sinn, en þingmenn munu stundum gantast með að svo lítið sé á millum eyrna hins sunnlenska þing- manns að þegar hann hreyfi höfuðið heyrist kvarnirnar hristast. Eftir að Össur var kominn úr ræðustól gekk Árni aftan að honum, greip þéttingsfast um annað eyra hans og sneri harkalega uppá. Ekki lét stjórnarliðinn það nægja, því þegar Össur gekk skömmu síðar, að um- ræðum loknum, niður stig- ann ásamt formanni Alþýðu- flokksins gekk Árni Johnsen á eftir honum og veitti hon- um bylmingsspark í ásýnd nokkurra þingmanna. Ýmsir töldu að Össur ætti að bera þessa árás upp við forseta þingsins, en Össur mun hafa svarað að því tæki ekki, enda við öllu að búast af manni sem hefði verið allt sitt líf á greindarstigi sauðkindarinn- Amorgun verður haldinn stofnfundur sameinaðs félags Alþýðubandalagsfé- laganna Birtingar og Fram- sýnar í Reykjavík. Ákvörðun um sameiningu ertilkomin vegna þess að félögin hafa komist að því að þau hafa áþekka stefnu í flestum grundvallarmálum. Stutt ávörp flytja Margrét Frí- mannsdóttir formaður flokksins, Björn Guðbrand- ur Jónsson formaður Birt- ingar, Leifur Guðjónsson formaður Framsýnar og Guðmundur Andri Thors- son rithöfundur og vikupilt- ur. Fundarstjóri verður Hild- ur Jónsdóttir nýkjörin for- maður Sellanna... f i m m f ö r n u m v e g i Telur þú að friður komist á í fyrrum Júgóslavíu? Rafn Gestsson bankamað- ur: Við skulum vona það en það er engu að treysta. Friðný Möller sjúkraliði: Eg vona það svo sannarlega. Elva Egilsdóttir gjaldkeri: Þorsteinn Helgason kenn- Nei. Það er ekkert að marka ari: Það eru mjög góðar horfur þessa menn. á því. Magnús Óli Ólafsson veg- farandi: Það er erfitt að segja til um það. Persónulega hef ég ekki trú á því.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.