Alþýðublaðið - 24.11.1995, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 24.11.1995, Blaðsíða 8
Föstudagur 22. nóvember 1995 Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk ■ Heimsóknartími fanga á Litla-Hrauni verður styttur úr sjö klukkustundir á viku niður í tvær Verið að hegna aðstandendum - segir Kristín Haraldsdóttir og telur þetta brjóta í bága við alþjóðlega sáttmála. „Það skýtur nokkuð skökku við að á sama tíma og gerðar hafa verið úr- bætur í húsnæðismálum fanga er hag- ur þeirra þrengdur. Þeir mega ekki lengur hafa aðra persónulega muni í klefum sínum en fjölskyldumyndir og lesefni í takmörkuðum mæli. Það sem er síðan allra verst fyrir fanga og að- standendur þeirra er að nú á að stytta heimsóknartímann úr sjö og hálfri klukkustund á viku í tvo klukkutíma," sagði Kristín Haraldsdóttir í samtali við Alþýðublaðið. Kristín er aðstandandi fanga sem afplánar dóm á Litla-Hrauni. Hún sagði að nýjar reglur hefðu verið sett- ar í fangelsinu sem bönnuðu föngum að hafa ýmsa persónulega muni í klefum sínum sem hefði verið leyft til þessa. Fangarnir skildu ekki hvaða hagsmunum þetta þjónaði og þetta væri tilefhi til óánægju. Nú væri verið að breyta gömlum fangaklefum í heimsóknarhergi og ættu þau að vera 12 talsins, þar af tvö fjölskylduher- bergi. Fram til þessa hefðu fangar mátt hafa gesti í klefum sínum fram til klukkan 18 á sunnudögum en nú ætti að stytta þann tíma sem hver fangi fær að taka á móti ættingjum og öðrum gestum niður í tvær klukku- stundir á sunnudögum. „Heimsóknartíminni er eina tæki- færið sem við aðstandendur fáum til að ræða við fangana. Þetta er eini tím- inn til að ræða okkar mál og efla tengsl og samband. Með því að stytta heimsóknartímann er verið að hegna okkur aðstandendum og takmarka möguleika á að viðhalda og mynda nauðsynleg tengsl við ástvini sem þama dvelja. Það er verið að hegna börnum sem eiga feður þarna inni. Þetta hlýtur að brjóta í bága við Barnasáttmálann og Mannréttinda- sáttmálann. Það er ekki einu sinni svo að föngum sé tilkynnt um þessa breytingu með formlegum hætti held- ur frétta þeir þetta annars staðar frá. Ég fékk munnlega staðfestingu á því hjá starfsmanna Fangelsisstofnunar að það ætti að stytta heimsóknartím- ann,“ sagði Kristín. Upplýsingar um fyrirhugaða stytt- ingu heimsóknartímans á Litla- Flrauni komu fyrst fram í opnu bréfi til dómsmálaráðherra frá Ólafi Gunnarssyni í Alþýðublaðinu síðast liðinn miðvikudag. I ffamhaldi af því hafði blaðið samband við Harald Jo- hannessen fangelsismálastjóra og spurði hvort það væri rétt að stytta ætti heimsóknartímann. Haraldur neitaði að svara spumingunni á þeim forsendum að hann svaraði aldrei skrifum Ólafs Gunnarssonar. „Til viðbótar því sem ég hef áður nefnt þá hefur sú öfugþróun átt sér Sigurður Pálsson samgleðst skáldbróður sínum Thor Vilhjálmssyni við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu í fyrradag. a -mynd: E.ÓI. r ■ Thor sæmdur einni æðstu orðu Itala „Er ekki að safna - segir Thor og kveðst stilla sig um að spássera um borgina Grande Ufficiale al Merito bella Republica Italiana. Thor Vilhjáhnsson var á miðviku- dag sæmdur einni æðstu orðu ítala: Grande Ufficiale al Merito bella Republica Italiana. Athöfnin fór fram í Norræna húsinu. Ragnar Borg, fyrr- um aðalræðismaður Italíu á Islandi, segir þessa ítölsku orðu samsvara stór- riddaraorðu með stjömu. Thor Vilhjálmsson er forseti Dante Alighieri stofnunarinnar, sem er menningarstofnun ftalíuvina. Rithöf- undurinn hefur þýtt ítalskar bækur á íslensku, skrifað ferðabækur frá ítah'u, og lagt sitt á vogaskálar til að efla menningarleg samskipti landanna. Áhugi rithöfundarins á Ítalíu endur- speglast einnig í mörgum þekktustu skáldsögum hans er þar sem sögusvið- ið er greinilega Róm. í viðtali við blaðið sagði Thor Vil- hjálmsson: ,JÉg hef ekki verið að eltast við orður. En mér þykir vænt um þennan góða hug, ekki síst vegna þess að hann kemur úr þessari átt. Ég á skrauti" með Ítalíu mikið að þakka. Ég kom þangað ungur og Ítalía tók mér vel og reyndist mér vel. Hún var mér góð og gaf mér mikið." Þegar rithöfundurinn var spurður hvort hann myndi bera orðuna opin- berlega sagðist hann ætla að stilla sig um að spássera um borgina með hana, enda væri hann ekki að safna skrauti utan á sig. Hann ítrekaði þakklæti sitt fyrir þann góða hug sem sér hefði ver- ið sýndur. stað á Litla-Hrauni að fangar fá nú aðeins einn útivistartíma á dag í stað þriggja áður. Þegar þeir leita skýringa segja fangaverðir að vegna þess hve verðir eru fáir sé ekki talið hægt að koma meiri útivist við. Enda er það svo að fangavörðum hefur ekki verið fjölgað þrátt fyrir fangaplássum hafi stórfjölgað þegar nýbyggingin var tekin í notkun. Ég er ekki að mæla gegn því að þeir sem hafa verið dæmdir fyrir brot taki út sína refs- ingu. En með því að stytta heimsókn- artímann er verið að þyngja refsing- una og það bitnar ekki síður á okkur aðstandendum en föngunum. Ég er líka viss um að það auðveldar mörg- um föngum að koma aftur út í þjóðfé- lagið ef þeir fá að byggja upp fjöl- skyldutengsl meðan þeir sitja inni. Það gerist ekki með styttingu heim- sóknartímans," sagði Kristín Haralds- dóttir. Kjarnorkusprengingar Frakka íslensk stjómvöld lýsa megnustu óánægju fslensk stjórnvöld lýsa megnustu óánægju með ákvörðun franskra stjórnvalda um að halda áfram til- raunasprengingum með spreng- ingu fjórðu kjarnasprengjunnar í gær. Skorað er á frönsk stjórnvöld að taka tillit til almenningsálitsins um allan heim og hætta við áform sín um þær tvær til þrjár tilrauna- sprengingar sem fyrirhugaðar eru á næsta misseri. Atlanta eykur umsvif sín Samningur við ríkis- flugfélag Columbiu Flugfélagið Atlanta h/f hefur ný- lega gert samning við Avianca La Aerolinea de Colombia, sem er ríkisflugfélag Columbiu. Um er að ræða daglegt flug milli Bogota, höfuðborgar Columbiu, og New York. Samningurinn er frá 1. des- ember og fram til 14. janúar á næsta ári og mun Atlanta nota eina Boeing 747 breiðþotu í verk- efnið. Alls munu um sextíu starfs- menn á vegum félagsins starfa við verkefnið. írskt rokk í Höllinni Norður-írska hljómsveitin Ash, sem prýðir forsíður poppblaða víða um heim, er stödd hér á landi og skemmtir aðdáendum sínum á dúndrandi rokktónleikum í Laugar- dagshöllinni í kvöld. Tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar Skrífstofumenn fá þjálfun og atvinnulausir vinnu Á morgun fóstudaginn 24 nóvember kl. 16 boðar Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri til blaðamannafimd- ar í Ráðhúsi Reykjavíkur. Á fundinum verður kynnt tilraunaverkefhi á vegum Reykjavíkurborgar sem staðið hefur yf- ir síðast liðnar tólf vikur. Verkefnið fellst í því að skrifstofumenn hjá Reykjavíkurborg fá tækifæri til að sækja starfsþjálfunamámskeið í tíu vik- ur og einstaklingar af atvinnuleysisskrá leysa þá af á meðan í samtals tólf vikur. í lok fundarins á morgun mun borgar- stjóri afhenda þátttakendum umsagnir og viðurkenningarskjöl, en öllum þátt- takendum í verkefninu er boðið til fundarins. Helga Kress og vinkonur í Leikhúskjallaranum Skáldskapur kvenna Prýði á kvenfólki er yfirskrift dag- skrár Listaklúbbs Leikhúskjallarans mánudagskvöldið 27. nóvember, klukkan 21.00. Dagskráin er um konur og kvenlega hefð í íslenskum bók- menntum frá upphafi seinni hluta ní- tjándu aldar þegar fyrsta ljóðabók eftir íslenska konu kom út. Fjallað verður um einkenni á skáldskap kvenna og stöðu þeinra í íslenskri bókmenntasögu. Meðal skálda sem rætt verður um og lesið eftir eru Steinunn Finnsdóttir, Látra-Björg, Vatnsenda-Rósa, Guð- ný frá Klömbrum og Júlíana Jóns- dóttir. Einnig verður fjallað um ónafn- greindan skáldskap sem varðveist hefur í munnmælum og prentuð ljóð úr hand- ritum. Umsjónarmaður er Helga Kress bókmenntafræðingur. Lesarar með henni eru skáldin Ingibjörg Haralds- dóttir, Nína Björk Amadóttir og Vil- borg Dagbjartsdóttir. Alþýðublaðið - stærsta blaðið í bænum! Alþýðublaðinu var í gær útbreiddasta blað Reykjavíkur: því var dreift í öll hús i borginni. Viðbrögð voru mjög góð, og næsta fimmtudag munum við endurtaka leikinn. Kolbrún Bergþórsdóttir og Hrafn Jökulsson brugðu sér af bæ í gær og tóku þátt í dreifingu stærsta blaðs bæjarins. A-mynd: E.ÓI.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.