Alþýðublaðið - 05.12.1995, Page 1

Alþýðublaðið - 05.12.1995, Page 1
I Verkalýðsfélög sem sagt hafa upp samningum boða til félagsfunda Hlutur forystu ASÍ aumastur - segir Sigurður T. Sigurðsson formaður Hlífar í Hafnarfirði. „Mér finnst hlutur forystu ASÍ í þessum málum aumastur af öOum og það eitt er víst að ef menn fara ekki að athuga sinn gang er voðinn vís. For- menn þeirra félaga sem hafa sagt upp kjarasamningum koma aftur til fundar á föstudag en fram að því skoða menn hver í sínu lagi hvað er við hæfi að gera,“ sagði Sigurður T. Sigurðsson formaður Verkamannafélágsins Hlífar í samtali við Alþýðublaðið. Formenn 16 verkalýðsfélaga af 23 sem hafa sagt kjarasamningum laus- um komu saman til fundar í Reykjavík í gær. Engin ákveðin niðurstaða virð- ist hafa orðið á fundinum en formenn munu halda fundi í sínum félögum og ræða stöðuna. Bjöm Grétar Sveins- son formaður Verkamannasambands- ins og einn af fulltrúum verkalýðs- hreyfingarinnar í launanefnd vinnu- veitenda og launþega skrifaði ekki undir samkomulag ASÍ og VSÍ í síð- ustu viku. Vinnuveitendur gefa þeim félögum sem sagt hafa upp frest til föstudags að draga uppsagnirnar til baka. „Fresturinn rennur út klukkan fjög- ur á föstudag og ég vænti þess að á fundi okkar formannanna þann dag verði komin einhver niðurstaða. Þá verða menn búnir að fara heim í hérað með málið. Við í Hlíf verður með fund í stjóm og trúnaðarmannaráði á þriðjudagskvöld og síðan félagsfundur á miðvikudagskvöld," sagði Sigurður. Sýnist þér að þið standið höllum fœti lagalega varðandi þessa upp- sögn? „Mín skoðun er alfarið sú, burtséð frá því hvað lög segja eða túlkanir á þeim, að það vanti verulega mikið uppá að það hafi verið staðið við febrúarsamninginn miðað við þær for- sendur að láglaunafólkið ætti að vera í allt að því sérklassa með launahækkun til launajöfnunar. Sá sem segir að þessar forsendur séu enn við lýði hlýt- ur að vera stórkostlega brenglaður. Það vita allir sem fylgjast með að þeir hærra launuðu hafa fengið margfalt meiri hækkanir en þær sem láglauna- fólkið fékk. Þessar forsendur em því brostnar. Láglaunafólkið fékk 2.700 krónur að viðbættum þúsund krónum til þeirra allra launalægsm sem dóu út við 84 þúsund króna mörkin. Allir sem sömdu síðar fengu langtum hærri upphæðir og dæmi em um tugþúsunda króna hækkun á mánuði. Það hefur hvergi verið samið um jafn lága krónutölu og prósentutölu og þeir lægst launuðu fengu í febiúar." Hvað á að gera til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig? „Ef gerðir verða samningar þegar þessir renna út verðum við að setja viðmiðanir við aðra hærra launaða hópa. Ef aðrir hærra launaðir hópar sem við tiltökum fá meiri launahækk- anir komi sama hækkun í krónutölu eða prósentum til þeirra lægst laun- uðu,“ sagði Sigurður T. Sigurðsson. Sigurður: Sá sem segir að forsendur kjarasamninga séu enn við lýði hlýtur að vera stórkostlega brenglaður. Sex skáld um hituna Steinunn Sigurðardóttir, Þorsteinn frá Hamri, Ingibjörg Haraldsdóttir, Gunnar Karlsson — full- trúi Böðvars Guðmundssonar - , Sigurður Pálsson og Kristín Ómarsdóttir voru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fagurbókmennta 1995 við hátíðlega athöfn í Listasafni íslands í gær. Aðrar sex bækur voru tilnefndar í flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Þær eru: Barnasálfræði eftir Álfheiði Steinþórsdóttur og Guðfinnu Eydal, Bókmenntakenningar síðari alda eftir Árna Sigurjónsson, Handbók um málfræði eftir Höskuld Þráins- son, íslenska garðblómabókin eftir Hólmfríði A. Sigurðardóttur, Milli vonar og ótta eftir Þór Whitehead og Ströndin í náttúru íslands eftir Guðmund P. Ólafsson. Ein bók úr hvorum flokki hlýtur íslensku bókmenntaverðlaunin, og mun niðurstaða liggja fyrir í febrúar á næsta ári. I Alþýðublaðinu í dag eru ritdómar Kolbrúnar Bergþórsdótur um þrjú af skáldverkunum sem tilnefnd eru, Dyrnar þröngu eftir Kristínu, Híbýli vindanna eftir Böðvar og Hjartastað eftir Steinunni Sigurðardóttur. Allt um það á blaðsíðu 7. A-mynd: E.ÓI. ■ Höfundar Vöku-Helgafells Upplestur í Leikhúskjall- aranum Bókmenntakvöld verður haldið í Leikhúskjallaranum miðvikudags- kvöldið 6. desember 1995 og hefst dagskráin klukkan 20.30. í Leikhús- kjallaranum verður lesið úr nýútkomn- um bókum en þær em: María - konan bak við goðsögnina, ævisaga Maríu Guðmundsdóttur efúr Ingólf Marg- eirsson, Vetrareldur eftir Friðrik Er- lingsson, Milli vonar og ótta eftir Þór Whitehead, Hin hljóðu tár, ævisaga Ástu Sigurbrandsdóttur eftir Sigur- björgu Arnadóttur, Steinn Steinarr - Ævi og skoðanir og Ljóðasafn Davtðs Stefánssonar. Bókmenntakvöldið í Leikhúskjallaranum er öllum opið og aðgangur ókeypis. Allar bækumar em gefnar út af Vöku- Helgafelli. Steinn Steinarr. Lesið verður úr nýrri útgáfu á verkum hans í lausu máli. ■ TurakThéatre íTjarnarbíói ■ Vinnuveitendasambandið Viðförum ímál - ef uppsagnirnar verða ekki afturkallaðar, segir Hannes G. Sigurðsson hjá VSÍ. C r i t Franski leikhópurinn Turak Théatre d’objets er kominn til landsins og sýn- ir hér nýjasta verk sitt: Critures - fom- leifauppgröftur í eldhúsinu. Sú sýning hefur fengið frábæra dóma, meðal annars í dagblaðinu Le Monde. Leik- hópurinn var stofnaður af Michel Laubu árið 1985 og hefur farið víða með sýningar stnar. Leikhús Laubu er leikhús hlutanna. Á sviðinu verður okkar vanalega um- u r e s hverfi að draumkenndum heimi á mörkum hins raunverulega - Turakía verður til. Turakía er heimur sem Lau- bu hefur skapað sögum sínum og byggir á draumum og hugmyndaflugi. Sýningar hópsins em án orða og höfða jafnt til bama sem fúllorðinna. Sýningar verða í Tjamarbíói þriðju- daginn 5. desember klukkan 20.30, og á laugardag og sunnudag klukkan 17. Miðaverð er 800 krónur. „Við höfum sent bréf til þeirra 23 félaga sem hafa sagt upp samningum og farið fram á að uppsagnimar verði dregnar til baka. Að öðmm kosti verð- ur um málaferli að ræða en félögin hafa frest til föstudags að afturkalla uppsagnir kjarasamninga," sagði Hannes G. Sigurðsson hagfræðingur Vinnuveitendasambandsins í samtali við blaðið. ,,Ef ekki verður orðið við þessum óskum fá þessi félög ekki þá hækkun á desemberuppbótina sem ákveðin var því þau em þá búin að af- sala sér henni. Ef við vinnum málið fyrir dómi verður dómsniðurstaðan væntanlega í því formi að við fengjum þá dæmda til að taka launahækkun um áramót,“ sagði Hannes ennfremur. Nú í vikunni fer fram málflutningur fyrir Félagsdómi í máli því sem VSÍ höfðaði á hendur Verkalýðsfélaginu Baldri á ísaftrði fyrir meinta ólöglega uppsögn samninga. Félagsdómur mun kveða upp úrskurð sinn í næstu viku. Sighvatur Björgvinsson um staðfasta framsóknarmenn Leiðarinn Gísli Sigurðsson um Ólaf Davíðsson um íslenska og Davíð Oddsson þjóðernishyggju Kolbrún Bergþórsdóttir um Steinunni, Kristínu og Böðvar

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.