Alþýðublaðið - 03.01.1996, Side 8

Alþýðublaðið - 03.01.1996, Side 8
Miövikudagur 3. janúar 1996 1. tölublað - 77. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk ■ Sú ákvörðun Olafs Skúlasonar biskups að fara með Langholtskirkjumálið til ráðherra vekur hörð viðbrögð meðal presta sem átelja vinnubrögð biskups og segja þau fordæmalaus. Hrafn Jökulsson kynnti sér málið Skil ekki hvað blessaður maðurinn er að hugsa - segir séra Geir Waage formaður Prestafélagsins og telur trúnaðar- brest orðinn milli biskups og presta. Herra Sigurður Sigurðsson vígslubiskup í Skálholti: Margra mat að trúnaðarbrestur hafi orðið. Meðferð margra mála umdeild. Séra Flóki Kristinsson: Gífurleg vonbrigði að biskup skuli ekki nota myndugleika sinn. Herra Sigurður Sig- urðsson vígslubiskup hefur mótmælt ákvörð- un Ólafs Skúlasonar og segir margra mat að trúnaðarbrestur hafi orðið milli biskups ís- lands og presta. Séra Geir Waage for- Séra Flóki Kristinsson: maður Prestafélagsins: „Ég á eftir að sjá að Kjarni málsins sá, að ráðherra taki að sér séra Flóki hefur ekkert kirkjustjórn með þess- brotið af sér. Ákvörðun um hætti einsog bisk- biskups óskiljanleg. upinn vill." „Þetta er algerlega óskiljanlegur hlutur og án nokkurs fordæmis, mér vitanlega, „ sagði séra Geir Waage formaður Prestafélags íslands í sam- tali við Alþýðublaðið um þá ákvörðun Ólafs Skúlasonar biskups að vísa málefnum Langholtskirkju til Þor- steins Pálssonar dóms- og kirkju- málaráðherra. A laugardag tók biskup þá ákvörðun að vísa deilu séra Flóka Kristinssonar sóknarprests og Jóns Stefánssonar organista til ráðuneytis- ins. Ákvörðun biskups hefur vakið hörð viðbrögð presta. „Þetta er bara mál sem liggur á starfssviði biskups að leysa, þetta er innra mál kirkjunnar og hann á ekki að vísa því eitt eða neitt. Deila organista við prest er ekk- ert ráðherramál. í ummælum biskups á laugardag fólst, að úr því ráðherra réði presta væri hann sá eini sem gæti rekið þá. Með þessu er hann að varpa með alveg ótvíræðum hætti ábyrgð og sök á séra Flóka í þessu máli - sem séra Flóki á ekki. Kjami málsins er sá, að séra Flóki hefur ekkert brotið af sér. Hann hefur ekkert það brotið af sér sem verðskuldi embættismissi eða það, að ýjað sé að því, að hann ætti að hrekjast frá embætti,“ sagði séra Geir. Ráðherra sigað á presta Hvernig horfir þetta við félags- mönnum íPrestafélaginu? „Þetta horfir bara einfaldlega þann- ig við þeim, að við erum undrandi. Þú getur ímyndað þér hvaða nóta er sleg- in gagnvart okkur með þessum mála- tilbúnaði öllum. Við eigum þá allir í framtíðinni von á því, að biskupinn nánast sigi ráðherranum á okkur með þessum hætti,“ sagði Geir. Er þetta þá í reynd að stuðla að trúnaðarbresti milli biskups og presta? ,Já, þetta er trúnaðarbrestur. Þetta er mjög alvarlegur trúnaðarbrestur biskups og presta, það er alveg á hreinu.“ Mun félagið bregðast við á ein- hvem hátt?" „Það er alveg ljóst að félagið mun ekkert líða það, að gengið sé að séra Flóka með þessum hætti. Þetta eru allt saman hlutir sem liggja í augum uppi.“ Greinilega ekki í augum biskups. „Nei, ég veit ekki hvað hann er að hugsa, blessaður maðurinn. Mér er al- veg útilokað að skilja það. Þetta er án fordæmis, ég kannast ekki við nein fordæmi fyrir svona löguðu,“ sagði séra Geir Waage. I/ígslubiskup mótmælir „Ég hef þegar mótmælt þessu við ráðherra enda get ég ekki séð annað en þetta sé fordæmalaust," sagði herra Sigurður Sigurðsson vígslubiskup í Skálholti um ákvörðun biskups. Vígslubiskupinn sagði að ekki væri endalaust hægt að „hlaupa á eftir fólki“; organistinn hefði lýst yfir því, að hann léti af störfum ef prestur viki ekki og því yrði einfaldlega að una. Aðspurður um þau ummæh séra Geirs Waage formanns Prestafélagsins, að ákvörðun Ólafs Skúlasonar fæli í sér trúnaðarbrest milli biskups og presta sagði herra Sigurður: „Það er margra mat. Meðferð þessa máls, Seltjamar- nessmálsins og fleiri mála eru umdeild meðal presta." Efast um umboð ráðherra „Biskup spilaði þessu út á laugar- daginn. Það var mjög óheppilegur tími þar sem ráðuneytið var lokað yfir há- tíðirnar, og þetta sáir efa og jafnvel tortryggni í minn garð. Með því að segja að ráðherra ráði presta og reki er fólginn áfellisdómur yfir mér persónu- lega. Ég undra mig á því að biskup skuli ekki nota þann myndugleika sem hann hefur sem andlegur leiðtogi, og æth nú að víkja sér undan allri ábyrgð og afhenda ráðherra hirðisstafinn,“ sagði séra Flóki Kristinsson sóknar- prestur í Langholtskirkju um þá ákvörðun biskups að vísa Langholts- kirkjumálinu til ráðherra. Séra Flóki kvaðst aðspurður efast um umboð ráðuneytisins til að skerast í málið. ,,Ég hef nú verið að reyna að fletta því upp, en það er mér alveg hulin ráðgáta. Það voru lög á sínum tíma sem fjölluðu um málefni geist- legra manna, en þau ákvæði voru af- numin í lagahreinsuninni íyrir þremur árum.“ Séra Flóki taldi ekki að málið leyst- ist með þessu útspili biskups: „Ég á eftir að sjá að ráðherra taki að sér kirkjustjóm með þessum hætti einsog biskupinn vill.“ „Það mun draga til tíðinda" Flóki kvaðst hafa fengið mikil við- brögð frá kollegum í prestastétt eftir að biskup ákvað að vísa málinu til ráðherra. „Þú getur rétt ímyndað þér. Símalínumar hafa verið rauðglóandi. Ekki bara til mín, heldur milli presta almennt.“ Finnst þá prestum yfirleitt að bisk- up hafi skort myndugleika í þessu máli? „Það get ég ekki fullyrt fyrir allan hópinn. Allir skynsamir hljóta hins- vegar að sjá, að það hafa verið gífur- leg vonbrigði með að biskup skuli ekki hafa beitt myndugleika sínum. Jafnvel þótt kirkjuréttarleg ákvæði skorti, þá hefur biskup myndugleika og umboð að því marki sem hann hef- ur andlegan styrk. Þetta á við okkur prestana líka, við höfum myndugleika að því marki sem við höfum andlegan styrk. Ef menn skynja það ekki, en kalla bara eftir kirkjuréttarlegum ákvæðum, þá er illa komið." Aðspurður um framhaldið sagði séra Flóki: „Það gæti eins farið að hvessa. Það er eitthvað að gerast sem ég átta mig ekki alveg á, en það mun draga til tíðinda," sagði séra Flóki að lokurn. „Biskup klúörar öllu sem hann kemur nálægt" Af samtölum Alþýðublaðsins við aðra presta í gær er ljóst, að bullandi óánægja er í stétt þeirra með fram- göngu biskups. „Eg held að það sé alveg ljóst, að biskup dettur á andlitið í þessu máli,“ sagði sóknarprestur á höfuðborgar- svæðinu sem ekki vildi láta nafns síns getið. „Ef biskup stendur ekki með presti sínum þegar organisti hrekur hann út í hom og endar með því að vísa málinu til ráðuneytis, þá eru það náttúrlega gífurleg vonbrigði íyrir alla presta." „Spurðu hversu margir innan prestastéttarinnar veita Ólafi trúnað, og þú munt komast að því að þeir em ekki margir. Það er hið vandræðaleg- asta ástand innan kirkjunnar. Spum- ingin er hvort biskup á nokkum eftir sem þorir að eiga nokkum trúnað und- ir honum.“ Aðspurður hver væri skýringin á því, að svona væri komið sagði þessi viðmælandi blaðsins: ,,Ég held að það sé alveg ljóst. Hann tekur aldrei nokkrum ráðleggingum og klúðrar öllu sem hann kemur nálægt." ■ Ólafur Skúlason biskup hafnar því alfarið að óstjórn einkenni þjóðkirkjuna Einangrun mín er bókstaflega engin Tala við óskaplega marga presta hvern dag, segir biskup í viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur. Kveðst eiga ágætis samskipti við 95-96% presta. Ólafur Skúlason biskup segir að Langholtskirkjumálið hafi verið kom- ið á það stig, að nauðsynleg hafi reynst að ræða það við dóms- og kirkjumálaráðherra. Biskup hafnar því alfarið að hann sé einangraður og vís- ar gagmýni presta til föðurhúsanna. Þá upplýsir biskup að hann hafi rætt við séra Flóka Kristinsson um að hann léti af störfum í Langholtskirkju og fengi annað brauð. Því hafi séra Flóki alfarið hafnað. Alþýðublaðið ræddi við biskup síðdegis í gær. Hversvegna ákvaðst þú að vísa Langholtskirkjumálinu til ráð- herra? Þetta mál er þannig, að þó það hafi ekki verið stórt í byijun þá hefur það hlaðið svo utan á sig að mér þótti ekki eðlilegt annað en gefa ráðherra kirkju- mála og ráðuneytinu greinargóða lýs- ingu á því. Ég sat fund í morgun með ráðherra og starfsmönnum ráðuneytis- ins og fólki frá biskupsembættinu. Við vorum sammála um að ég freistaði þess að finna mann sem setti sig inn í þessi viðkvæmu mál, einhvern sem kæmi utan að og hefði ekki haft af- skipti af því áður og sá kæmi með til- lögur fyrir okkur. Það er misskilningur sem hefur komið fram að ég hafi ætl- að að draga mig í hlé eða láta ráðherra einan um að leysa málið. Það kom aldrei til mála. Þannig að afskiptum þínum er ekki lokið? Nei, og stóð aldrei til. Ég vildi hins vegar gefa ráðherra skýrslu og ráðgast við hann um næstu skref. En er þetta ekki mál sem ætti að leysa innan kirkjunnar fremur en utan hennar? Prófastar tveir em búnir að vinna í þessu máli um langa hríð. Fyrst séra Jón Dalbú og svo eftirmaður hans séra Ragnar Fjalar Lárusson. Niðurstaða séra Ragnars var sú, að hann sæi ekki lausn á málinu. Kirkjulegir aðilar og sóknarnefnd eru búnir að vera með þetta mál mánuðum ef ekki árum sam- an. Því er engin uppgjöf hjá kirkjunni þó leitað sé til manna utan hennar því þeir sjá jafnvel betur en þeir sem eru alltaf með málið íyrir augunum. Prestar eru uggandi um sinn hag vegna ákvörðunar þinnar, og telja að í framtíðinni verði ráðherra sig- að á presta komi upp ágreiningur. Þegar ég var að skýra frá því að ég ætlaði að tala við ráðherra þá var það í framhaldi af spumingu um yfirmenn þessara aðila sem þama væm að deila. Stjórnsýslulega séð hefur ráðherra veitingarvaldið og þar af leiðandi einnig uppsagnarheimild með ákveðn- um skilyrðum, en gagnvart organist- anum er það sóknarnefndin. Eg var eingöngu að skýra þessi mál. En þegar fljótt er talað í fjölmiðlum þá kemst ekki allt til skila. Ég var ekki einungis að tala um prestinn og ráðherrann heldur líka organistann og sóknar- Ólafur Skúlason: Aldrei hvarflað að mér að segja af mér embætti enda ég sé engan mann sem ég treysti betur en sjálfum mér til að taka á þessum málum. nefndina sem hafa yfir honum að segja. Viðmælendur úr prestastétt segja að trúnaðarbrestur sé milli biskups og presta. Hver eru þín viðbrögð við svo afdráttarlausum yfirlýsing- um? Ég hef ekki orðið var við það og ég hef átt ágætis samskipti við 95-96% prestastéttarinnar. Það eru alltaf ein- hverjir setp hafa hom í síðu biskups síns. Ég veit um þá einstaklinga og þeir hafa ekki haft hljótt um andúð sína, hvort sem það er nú til gagns fyr- ir kirkjuna eða ekki. En ég held að það sé langt í frá að trúnaðarbrestur sé á milli biskups og presta. Prestur sagði í samtali við blaðið að biskup ætti ekki trúnað presta, hann færi ekki eftir ráðleggingum og væri einangraður. Er þetta rétt mynd sem er upp dregin? Þetta finnst mér alveg óskaplega vitlaust. Ég tala við marga presta hvem einasta dag. Það eru ekki allir ánægðir með allt sem maður gerir og ég er heldur ekki ánægður með allt sem prestar gera. En að ég njóti ekki trúnaðar presta, það er mér framand- legt mjög og einangrun mín er bók- staflega engin. Þannig að yfirlýsingar eins og þessar særa þig? Sérstaklega ef viðkomandi vill ekki koma fram undir nafni og láta mig vita hver hann er sem ber slíkan hug til biskupsins. Deilurnar í Langholtssókn, mála- reksturinn á Seltjamarnesi og fleiri mál em notuð til marks um óstjórn kirkjunnar, að mati presta. Kirkjan getur nú lítið gert í sam- bandi við hjúskaparmál þjóna sinna frekar en annarra og þá tók ég það til bragðs að bjóða Solveigu Lám að fara í leyfi meðan málið var kannað og öldumar lægði. Hún hafði alls ekkert á móti því sjálf. Ég hef leitað leiða í sambandi við séra Flóka, stungið upp á því, ef vandinn væri bundinn einni sókn, að hann fengi hliðstætt starf. Það hefur hann ekki viljað. Ég hef ekki farið fram á það við hann að hann færi í leyfi. Ég vísa því til föður- húsanna að þessi mál séu dæmi um óstjóm kirkjunnar. Hefurðu einhvem tímann hvarfl- að að þér að segja af þér embætti vegna stöðugra deilna og ókyrrðar innan kirkjunnar? Nei, ég sé engan mann sem ég treysti betur en sjálfum mér til að taka á þessum málum.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.