Alþýðublaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 1
Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins Þjóðvaki og Alþýðuflokk ur sameini kraftana „Samstarfið við þingmenn Þjóðvaka hefur gengið ágætlega. Það er málefnaleg samstaða með þeim í ýmsum stórmálum." „Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að þessir flokkar sameini kraftana á þingi og sé það gjaman fyrir mér sem fyrsta skrefið á lengri leið,“ sagði Jón Bald- vin Hannibalsson formaður Alþýðu- flokksins, aðspurður hvort hann væri reiðubúinn til að auka samvinnu við Þjóðvaka með það fyrir augum að flokkamir sameinist. „Samstarfið við þingmenn Þjóðvaka hefur gengið ágætlega. Það er málefnaleg samstaða með þeim í ýmsum stórmálum. Það er því ekki einungis spuming um hvort, heldur hvenær fulltrúar Þjóðvaka á þingi draga rökréttar ályktanir af stöðu sinni,“ sagði Jón Baldvin ennfremur. I viðtalinu, sem birt er í heild á síðu fimm, kemur meðal annars fram að Jón Baldvin ætlar að gefa kost á sér áfram sem formaður Alþýðuflokksins á flokksþingi síðar á árinu. Hann kvaðst ekki reiðubúinn að lýsa yfir, hvem hann styður sem næsta forseta enda eðlilegt að bfða uns rnenn hefðu formlega gefið kost á sér. Hins- vegar sagði Jón Baldvin að sig „fýsti lítt“ að sjá Davíð Oddsson sent hús- bónda á Bessastöðum. „Davíð Oddsson hefur gegnt vel sínu hlutverki sem fulltrúi valdakerfis Sjálfstæðisflokksins í landstjóminni. Eg er formaður í stjórnarandstöðu- flokki og mig fýsir lítt að sjá fulltrúa þessa valdakerfis á Bessastöðum." Jón Baldvin. Gefur kost á sér áfram sem formaður Alþýðufiokksins. ■ Utanríkisráðuneytinu þókn- astekki leiðarar jónasar Skaðar mig ekki - segir Jónas Kristjánsson Utanríkisráðuneytið sendi í gær frá sér tilkynningu þar sem það lýsir yfir vanþóknun á tveimur leiðumm Jónasar Kristjánssonar ritstjóra. Leiðaramir birt- ust í DV 26. október á fyrra ári og 17. janúar á þessu ári. Þar fjallar Jónas um Boris Jeltsín Rússlandsforseta, en í síð- ari leiðaranum segir meðal annars að Jeltsín „velkist um ýmist timbraður eða kófdmkkinn á almannafæri heima fyrir og í útlöndum, leikandi fárveikur hlut- verk fíflsins um vfðan völl...“ Álit utan- ríkisráðuneytisins er að leiðarar Jónasar séu „ósmekklegir og óviðeigandi". Harmar ráðuneytið þessi skrif og lýsir þeirri von að þau „hafi ekki skaðleg áhrif á hið góða samband sem ríkir á milli íslands og Rússlands". „Ég hef ekkert við það að athuga að utanríkis- ráðuneytið telji sig þurfa af diplómatísk- um ástæðum að bregðast við á þennan hátt,“ sagði Jónas Kristjánsson í samtali við Alþýðublaðið. ,,Ég er ekki kunnugur verksviði þeirra í smáatriðum, en ef þeir telja að þetta sé innan þess þá skaðar það mig ekki og enn síður blaðið. Hlut- verk þess í tilverunni er annað en DV.“ Leikskáld taka flugið Á laugardag verður fyrsta verkið úr leiksmiðju Leik- félags Reykjavíkur sýnt. Linda Vilhjálmsdóttir skáld i viðtali á baksiðu. A-mynd: E.ÓI. ■ Skuldasöfnun Reykjavíkurborgar minnkar verulega og rekstrarútgjöld lækka samkvæmt nýrri fjárhagsáætlun Höldum góðum dampi í öllum málaflokkum -segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri „Þetta er náttúrlega búið að vera mikill bamingur að koma þessu sam- an, en ég er sátt með það sem ég sé, sérstaklega yfir því að rekstarúgjöldin hafa lækkað og skuldasöfnun er að minnka. Það hefur þurft að fara mjög vel yfir alla málaflokka til að þetta væri hægt án þess að við færum út í að hækka skatta,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sem í gær lagði fram fjárhagsáætlun Reykjavík- urborgar fyrir 1996. Borgarsjóður er eins og vitað er afar skuldsettur, heildarskuldimar em ríf- lega 13 milljarðar króna. Ingibjörg Sólrún telur það þó ávinning að á fjár- hagsáætluninni sé ekki gert ráð fyrir að skuldasöfnun borgarinnar aukist nema um 500 milljónir, en þess má geta að 1994, síðasta árið sem unnið var eftir fjárhagsáætlun Sjálfstæðis- manna, jukust skuldirnar um 2.675 milljónir. „Það hefði í sjálfu sér verið hægt að eyða þessum mun, til dæmis með því að draga saman framkvæmdir um fjórðung,“ segir Ingibjörg Sólrún. „Það hefði lfka verið hægt að hækka útsvarið úr 8.4 prósentum í 9 prósent. Það hefði gefið okkur 600 milljónir í aukatekjur. Við tókum hins vegar þá ákvörðun að ekki væm forsendur til útsvarshækkunnar, ríkisvaldið hefur hækkað skatta á launafólk svo mikið að við getum ekki fetað í sömu fót- spor.“ En hvenær er þá raunhæft að ímynda sér að Reykjavík geti farið að borga skuldimar sínar? „Við stefnum auðvitað að því að grynnka á skuldunum. Við emm núna að vinna að þriggja ára áætlun um rekstur, fjármál og framkvæmdir borgarinnar, eins og sveitarstjórnar- lögin kveða reyndar á um. Þar emm við að stefna að því að ná rekstrar- gjöldunum enn frekar niður. Sam- kvæmt þessari ljárhagsáætlun em þau komin niður í 79 prósent af skatttekj- um, við stefnum að því að ná þeim niður í 75 prósent. Þá er kannski orðin von til að við séum að komast í jafn- vægi og hugsanlegt að við getum farið Ingibjörg Sólrún setti upp áhyggju- svip á blaðamannafundi í gær þar sem hún kynnti fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar. En hún segist vera sátt eftir barninginn. að borga niður skuldir. Og eins ef gengur eftir með sölu eigna, þá væri náttúrlega markmiðið að nýta andvirð- ið til að greiða skuldir." Ingibjörg Sólrún segir að þama sé einkum átt við fyrirtæki sem vafasamt er að borgin þurfi að eiga, til að mynda Skýrr, Malbikunarstöð, Gijót- nám, Jarðboranir og hlut borgarinnar í Landsvirkjun. I fjárhagsáætlunni er gert ráð fyrir að skatttekjur borgarsjóðs á þessu ári nemi rúmum 11.2 milljörðum króna, en rekstrargjöld verði um 9.8 milljarð- ar króna. Eftir segir Ingibjörg Sólrún að standi um tveir milljarðar sem séu aflögu í framkvæmdir. „Þetta finnst mér dágóð upphæð í framkvæmdir, þótt hún sé auðvitað lægri en á ámnum þegar Ráðhúsið var í byggingu," segir Ingibjörg Sólrún. „Við höfum þurft að hagræða, en það er enginn sársaukafullur niðurskurður. Við erum ekki að leggja niður neinar stofnanir eða gera einhverjar kúvend- ingar. Mér sýnist við vera að halda góðum dampi í öllum málaflokkum." ■ Sveinn Einarsson rekur sögu leiklistar á íslandi í Listaklúbbnum Til skemmt- unarog fróðleiks Mánudagskvöldin 22. og 29. janúar verða dagsskrár í Listaklúbbi Leikhús- kjallarans sem bera yfirskriftina Saga leiklistar á Islandi. Dagskrár þessar eru í umsjón Sveins Einarssonar leik- stjóra. „Þetta verður nú svona í léttum dúr,“ sagði Sveinn er við slógum á þráðinn til hans. „Með mér verða tveir leikarar, þau Jóhann Sigurðarson og Ragnheiður Elfa Amardóttir, sem lesa texta sem koma inn í spjallið, og syngja jafnvel og leika. Þannig að þetta verður svona til skemmtunar og fróðleiks. í þessari röð. Fyrri dagskrá- in rekur söguna til 1911, en sú síðari nær fram á okkar daga. Ég tek efnið allt öðrum tökum en í bók minni um leiklistarsöguna og heilmargt nýtt kemur fram, en efnistökin verða ekki eins fræðileg. Þetta er fyrst og fremst hugsað sem ánægjuleg stund og til að sýna fram á að það er margt forvitni- legt og skemmtilegt í leiklistarsög- unni. Og þama er partur af menning- arsögunni, sem kannski hefur ekki verið sinnt nægilega mikið. Og svo finnst mér nauðsynlegt að þekkja leik- listarsöguna til að skilja forsendur leiklistarinnar. En síðast en ekki síst finnst mér sjálfum þetta svo skemmti- legt.“ Dagskráin hefst bæði kvöldin klukkan 20.30. Jóhann Guðm. Jó- hannsson tónlistarstjóri Þjóleikhússins mun sjá um tónlistarflutning. Sveinn í léttum dúr.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.