Alþýðublaðið - 24.01.1996, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 24. JANUAR 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Stóri bróðir?
Kunningi minn var fyrir
nokkru staddur á öldurhúsi.
Hann skrifaði ávísun upp á
nokkra þúsundkalla og framvís-
aði debetkorti til staðfestingar.
Pallborðið |
Tryggvi
Skjaldarson
skrifar
Afgreiðsludamam vildi renna
kortinu í gegnum „pósa“ en
sleppa ávísuninni.
Upphófst nokkuð þref þar sem
minn maður hélt fast við að
borga með ávísun, enda fullgild-
ur gjaldmiðill. Afgreiðsludaman
lét ekki undan fyrr en minn mað-
ur sagði:
„Kannski vil ég ekki að skráð
sé í tölvu að ég sitji núna hér og
drekki öl, enda er það mitt
einkamál."
Hann fékk skjóta afgreiðslu og
skílning í ábæti.
Nú er búið að lögleiða að Póst-
ur og sími má tölvuskrásetja öll
símtöl. Oll símtöl löng og stutt.
Hvert hringt er, hvenær og hve
lengi hvert símtal stendur yfir.
Þrír til fimm starfsmenn, vald-
ir starfsmenn. fá einir aðgang að
upplysingunum, ef satt er sem
ságt er.
' Ekki skál mótmælt að hagræð-
ing geti verið í þessu fólgin.
En fram að þessu hefur Póstur
og sími getað rekið sína starf-
semi án þess að hafa heimild til
slíkrar gagnaöflunar.
Edgar J. Hoover stjórnaði
þandarísku alríkislögreglunni
Ptír.í 'hálfa öld. Lykillinn að
ÍW^tf'ög 'færsælú starfi, var
gagnaöflun um alla sem hann
taldi ógna stöðu sinni.
Símhleranir, segulbands- og
myndupptökur voru vinsælar og
árangursríkar til að ná tökum á
fólki.
Aðgangur að upplýsingum um
menn og málefni verða ekki
metnar til fjár.
Eins og mál hafa þróast síðari
ár er líklegt að spurningin sé
ekki hvort heldur hvenær mál
sem tengjast upplýsingaleka
koma upp á yfirborðið.
Eftir því sem tölvutækum upp-
lýsingum fjölgar um einstak-
linga, má ímynda sér að frelsi til
orða og æðis geti minnkað smá
saman.
Tæknin heldur áfram að aukast
og með markvissri tölvutækri
skráningu má vafalaust efla og
auka allt eftirlit.
Ef heldur sem horfir má búast
við að einn góðan veðurdag
vakni vaskir menn með örgjörva-
merki fremst á þriðja fætinum og
þurfi að mæta til aflestrar hjá
hinu opinbera og greiða uppá-
ferðaskatt í samræmi við notkun.
Tæknilega er það trúlega fram-
kvæmanlegt, eða þannig.
Með kveðju úr Rangárþingi.
Eftir því sem tölvu-
tækum upplýsingum
fjölgar um einstak-
linga, má ímynda sér
að frelsi til orða og
æðis geti minnkað
smám saman.
Stjórnarkosning verður í
Verslunarráði íslands
Um rtiiðjan næsta mánuð.
Einar Sveinsson, for-
stjóri Sjóvár-Almennra
ætlar að hætta sem for-
maður eftir fjögurra ára
setu. Að undanförnu hefur
staðið yfir örvæntingarfull
leit að eftirmanni hans, en
þeir sem vænlegastir hafa
þótt neita allir að taka for-
mennskuna að sér. Lagt
hefur verið að Kristni
Björnssyni forstjóra
Skeljungs, en hann hefur
verið varaformaður ráðs-
ins. Kristinn hafnar alfarið
að taka við formennsku,
en hann þykir mjög valda-
mikill í ráðinu og ertalið
að hann vilji fremur véla
um mál bakvið tjöldin.
Eins hefur verið leitað til
Páls Kr. Pálssonar for-
stjóra Sólar en hann er
einnig ófáanlegur og ber
við önnum og álagi. Fleiri
munu hafa verið beðnir
um að taka að sér for-
mennsku, en enginn hefur
Ijáð máls á því nema Kol-
beinn Kristinsson hjá
Myllunni-Brauð hf. Hann
mun mjög áhugasamur
um að taka að sér emb-
ættið, en mörgum í Versl-
unarráði finnst að ráðið
myndi veikjast við þá ráð-
stöfun enda hafa yfirleitt
„þungavigtarmenn" úr
viðskiptalífinu skipað for-
mannsembættið. Kolbeinn
er ekki talinn í þeirra hópi,
og er haft á orði innan
Verslunarráðs að taki
hann við muni Verslunar-
ráðið veikjast og standa
eftir á „brauðfótum"...
Ragnar Jónsson var
senuþjófur síðustu
viku þegar hann tilkynnti
fyrstur manna um forseta-
framboð. Ekki er vitað
hvað organistanum geng-
ur til, enda var hann til
skamms tíma gersamlega
óþekktur. Nú tengist hann
hinsvegar tveimur umtöl-
uðustu málum síðustu
vikna: Langholtserjum og
Bessastaðabardaga. Á
næstunni er hætt við að
Ragnar fái að kynnast
þeim funhita sem einatt
fylgir sviðsljósinu. Við
heyrum að Helgarpóstur-
inn sé að vinna úttekt á
ferli hans, og muni birta
sitthvað sem tæpast kem-
ur forsetaframbjóðandan-
um til góða í kosningabar-
áttunni...
„Hann hefur verið sleginn aftanfrá, ekki spurning... og við
fyrstu athugun, og þá miða ég við banasárið, myndi ég
segja að morðvopnið sé einhverskonar þungur og ávalur
hlutur."
fimm á förnum vegi
Hvað finnst þér um forsetaframboð Ragnars Jónssonar?
Katrín Garðarsdóttir versl-
unarmaður: Ég veit nú ekki
einu sinni hver maðurinn er.
Anton I. Antonsson bif- Valgerður Ágústsdóttir Fróði Ársælsson tilvon- Sæunn Þórðardóttir til-
reiðastjóri: Mér líst bara vel á verslunarmaður: Það er andi forsetaefni: Hver er vonandi forsetaframbjóð-
það. hlægilegt. hann, þessi Ragnar Jónsson andi: Mér finnst hann miklu
orgelleikari? betri sem orgelleikari.
JÓN ÓSKAR
v i t i m e n n
Félagsleg deyfð hefur
einkennt starfsemi verkalýðs-
félaganna um langt skeið og
er ólýðræðislegt skipulag þeirra
vafalaust ein ástæðan.
Forystugrein Morgunblaðsins í gær.
Fullyrðingu Þórðar að
skrattanum sé skemmt, læt ég
hann, mér fróðari, um að dæma,
hitt veit ég, að margur, er Lang-
holtskirkju ann, grætur.
Séra Sigurður Haukur Guöjónsson,
fyrrverandi sóknarprestur við Langholtskirkju.
Mogginn í gær.
Stórglæsileg skák í Morphy
stíl sem gleður augað. Efasemdar-
menn myndu hins vegar segja að
Anand hafi teflt, eins og hann væri
á kaffihúsi, en Gelfand eins og
hann væri á barnum.
Skákskýring í Morgunblaðinu í gær.
Það, að fólki eigi helst
að leiðast í kirkju, er að sjálfsögðu
kenning sem er samstofna öðrum
kenningum svo sem kenningunni
um að menn eigi ekki að hafa
gaman að kynlífi.
Garri íTímanum í gær.
Það er alveg óþolandi
að smáhópar eins og mjólkur-
fræðingar, flugumferðarstjórar
eða aðrir slíkir hópar geti lamað
allt þjóðfélagið.
Páll Pétursson
félagsmálaráðherra.
fréttaskot úr fortíð
Undirbúningur
Flestir meiri háttar stjómmálamenn í
Englandi hafa ýmis konar undirbún-
ing til þess að styrkja taugamar, áður
en þeir halda mikilsvarðandi ræður í
þinginu. Anthony Eden leikur tennis,
Lloyd George spilar golf, Sir Samuel
Hoare fer á skauta, Winston Churchill
vinur að múrverki í klukkutíma, setur
síðan upp hattinn og hjólar til Westm-
inster. Austen og Neviíle Chamberla-
in fá sér göngutúra einsamlir á róleg-
um stöðum. En old man Baldwin tek-
ur líftnu með ró. Hann reykir eina
pípu af góðu tóbaki.
Alþýðublaöið
sunnudaginn
19. apríl 1936