Alþýðublaðið - 24.01.1996, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
4'
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996
bessastaðabardaginn
■ Alþýðublaðið fékktil liðs við sig hóp fólks sem er sjóað í kosningastarfi til að vega og meta styrkleika pg veikl
einstaklinga sem helst hafa verið orðaðir við forsetaframboð í vor. Staða þessara forsetaefna er að sönnu
kandídatarnir þekktir, aðrir nánast óþekktir, sumir hafa á sér or
Pálmi
Matthíasson
Plús: „Hann virðist vera gjör-
samlega flekklaus maður á allan
hátt. Ætli það sé ekki einn sterk-
asti kosturinn hans að hann hefur
enga snögga bletti í prívatlífinu."
„Pálmi er alþýðlegur í fasi og
hefur sýnt það í prestskap sínum
að hann lætur sér annt um fólk.“
„Hann býður af sér góðan þokka
og hefur alltaf verið að brillera í
sínu starfi. I gegnum tfðina er
hann búinn að ná beinum tengslum
við ótrúlega margt fólk í gegnum
giftingar, fermingar, skírnir og all-
ar veislurnar sem hann hefur kom-
ið í. Það er fullt af fólki sem hefur
verið í návígi við hann.“
„Hann er sléttur og felldur mað-
ur sem virðist laus við allt yfirlæti
og ætti því að geta höfðað til al-
þýðu manna, ekki ósvipað og Guð-
laugur Þorvaldsson 1980. Einhver
kallaði það reynar hæverskugrobb,
en eins og Guðlaugur og Kristján
Eldjárn hefur hann líka yfir sér
einhvern hógværan alþýðleika sem
margir íslendingar kunna vel að
meta.“
Mínus: „Það sem kannski háir
Pálma helst er hvað hann er búinn
að vera lengi í umræðunni. Það er
þegar farin að segja til sín þreyta.
Ég gef lítið fyrir það þótt hann sé
efstur í þessari DV-könnun. Þjóð-
arsálin er líka |>annig innrætt að
allan þennan tima sem hann hefur
verið efstur á blaði hefur hún leit-
að ákaft að snöggum bletti á hon-
um og það eru uppi áleitnar grun-
semdir um að hann risti ekki mjög
djúpt.“
„Séra Pálmi er vinsælastur
þeirra sem hafa verið nefndir, enda
tískuprestur. En hann mun ekki
hafa úthaldið og dalar frekar úr
þessu.“
„Menn fara ekki langt á því að
vera guðsmenn á þessum síðustu
og verstu tímum og ég held að
stjarna hans muni falla hratt þegar
út í baráttuna er komið. Þeir sem
til hans þekkja telja að hann muni
ekki vinna mikið á við frekari
kynningu.
„Ég sé ekki að Pálmi hafi mikið
fram að færa í þessari baráttu, að
minnsta kosti ekki þá hæfiíeika
sem maður ætlast til að þjóðhöfð-
ingi hafi.“
„Einhvern veginn finnst manni
Pálmi of léttvægur. Ég held að fólk
vilji fá forseta sem hefur meiri vigt
og getur skipt einhverju máli fyrir
þróunina í þjóðfélaginu."
„Ég hef enga trú á að hann verði
kosinn. íslendingar gera miklu
meiri kröfur en svo til persónu-
leikastærðar forseta síns eftir að
hafa vanist á forseta eins og Krist-
ján Eldjárn og Vigdísi til að svona
sviplitlir menn eigi möguleika á að
ná kjöri. Hann myndi bara rigna
niður á stéttinni."
Bakland: „Það er mikið talað
um stuðninginn sem Pálmi kunni
að hafa í íþróttahreyfingunni. Eins
og ég met það er hún ekki mjög
sterkt bakland og man raunar ekki
til þess að hún hafi skipt neinu
máli í svona kosningum. Lang-
sterkasta baklandið hans er ein-
faldlega fólkið sem hann hefur
verið að þjóna sem prestur."
Næstu skref: „Það þarf fyrst og
fremst að dýpka hann, láta hann
finna sér raunveruleg mál sem gera
hann meira gildandi í umræðunni
heldur en það eitt að hann sé þessi
glaðværi og bjartleiti prestur sem
út af fyrir sig getur alls staðar ver-
ið hvers manns hugljúfi."
Guðrún
Agnarsdóttir
PIús: „Hún er leiftrandi greind
og það er meira en segja má um
ýmsa sem gæla við hugmyndina
um Bessastaði. Hún er líka heims-
borgari og er búin að skapa sér
sess í hugum fólks sem baráttu-
kona fyrir mjúkum gildum og
mannkærleika."
„Guðrún er líkust Vigdísi af
þessu fólki og ef þjóðin ákveður
að hún vilji einhvers konar eftir-
mynd af Vigdísi gæti hún átt mikla
möguleika."
„Hún hefur þennan milda um-
hyggjusvip Vigdísar og gott lag á
að tala með almennum orðum í
eyru þjóðarinnar. Hún hefur líka
yfir sér nokkurn menningarbrag og
hefur sýnt ræktarsemi við menn-
ingararfinn. Hún er líka líkleg til
að halda þeim sið Vigdísar að
forðast pólitík og yrði vísast eins
konar framlenging á forsetatíð
hennar.“
„A stjórnmálaferlinum fannst
manni hún alltaf blátt áfram og
sönn. Það er helsti styrkur hennar,
fyrir utan að hún er þekkt persóna
og hefur talsvert mikla reynslu á
þjóðmálasviðinu.“
Mínus: „Það getur vel verið að
þjóðin sé alveg til í að skipta úr
þessum áferðarfallega kvenforseta
og yfir í eitthvað sem er ívið að-
gangsharðara. Guðrún er ekki sú
týpa, hún er ekta Vigdís númer
tvö.“
„Ég gef mér það að úr þvi verið
er að skipta um förseta á annað
borð sé fólk til í að fá eitthvað nýtt
inn á Bessastaði, nýja rödd, nýtt
handbragð. Ég held að Guðrún eigi
eftir að líða mest fyrir það.“
„Þreytan í kvennahreyfingunni
gæti skaðað hana. Það gæti jafnvel
komið henni illa að hafa verið
bendluð við Kvennalistann, enda
hefur hann núorðið frekar orð á sér
fyrir að vera sella en stjórnmála-
afl.“
„Hennar tími er liðinn. Hún hef-
ur engu bætt við sig eftir að hún
fór út af þingi."
„Það er að vissu leyti veikleiki
Guðrúnar að vera talin of áþekk
Vigdísi, en ef hún kemur kröftu-
lega fram og biðst ekki afsökunar
á sjálfri sér ætti hún að geta aukið
fylgi sitt. Hún er hæverskari en
Guðrún Pétursdóttir og má alls
ekki gefa kost á sér „vegna fjölda
áskorana" heldur í fullvissu um
eigið ágæti.“
Bakland: „Kvennalistinn getur
ekki talist vera sterkt bakland,
enda er hann í andaslitrunum. Ég
held að það sé borin von að í þess-
um forsetakosningum fari konur
sérstaklega að kjósa konu. Sá var
tíðarandinn þegar Vigdís var kosin
en varla lengur.“
Næstu skref: „Guðrún hefur á
sér ákveðinn stimpil væmni og
þarf að hrista hann af sér. Hún ætti
að vera fullfær um að gera það.
Hún skírskotar bæði til karla og
kvenna og nýtur eflaust ekki síðúr
fylgis meðal landsbyggðarfólks."
„Á sama tíma og Pálmi þarf að
dýpka sig allverulega, þá held ég
að Guðrún þurfi að hvessa sig og
láta meira að sér kveða í alvöru
þjóðmálaumræðu."
Davíð Oddsson
Plús: „Ef Davíð ætlar í framboð
er það alveg hárrétt hjá honum að
halda því opnu með þessunt hætti.
Ég er sannfærður um að hann ætlar
fram en hann kann að bíða og til-
kynnir það ekki fyrr en einhvern
tíma í apríl. Það er líka það eina
vitlega hjá honum. Svo tekur hann
þetta með áhlaupi, enda er hann
drjúgur kosningamaður þegar hann
fer af stað.“
„Mér finnst raunar hverfandi
möguleikar á að stjórnmálamaður
hreppi þetta, en þó held ég að Dav-
íð hljóti að koma helst til greina.
Þótt stjórnmálamenn hjá smáþjóð-
um virðist gjarnan smáir í sniðum,
þá hefur hann að vissu leyti öðlast
stærð sem nær að lyfta honum yfir
pólitíkina."
„Davíð hefur tileinkað sér lands-
föðurlegt yfirbragð og er næstum
hættur að vera ófyrirleitinn. Hann
getur líka brugðið fyrir sér menn-
ingararfinum án teljandi erfiðis-
muna. Meira að segja andstæðing-
ar hans eiga erfitt með að sjá fyrir
sér annan forsætisráðherra.“
„Hann er klókur og hefur mikla
reynslu. Það þekkja hann allir og
þótt hann sé umdeildur hefur hann
verið alllengi í þessum landsföður-
stellingum. Hann nær að vekja
traust. Þrátt fyrir allt finnst þjóð-
inni hann vera tákn um ákveðna
kjölfestu. Það frýr honum heldur
enginn vits. Honum hefur mælst
ágætlega í þessum áramótaávörp-
um sínum.“
„Hann á mjög góða konu sem er
honum örugglega mikill styrkur.
Hún er dálítið álfkonuleg, höfðar
vel til fólks og er skemmtileg and-
stæða við hvað hann er klossaður
sjálfur."
Mínus: „Veikleiki Davíðs er
fyrst og fremst sögulegs eðlis, það
er tregða þjóðarinnar til að kjósa
pólitíkus sem forseta. I öðru lagi er
fullt af fólki sem hefur horn í síðu
hans vegna þess að honum verður
einhvern veginn allt að gulli, það
tekst alltaf allt hjá honum. Þótt það
verði ekki endilega kosið um
vinstri og hægri í þessum kosning-
um, þá er enginn hörgull á miðju-
og vinstrafólki sem er alveg til í að
sjá hann tapa einu sinni."
„Davíð er einfaldlega hug-
myndalaus, gamaldags valdapólit-
íkus og það verður erfitt að telja
fólki trú um annað.“
„Fólk er með það milli tannanna
að hann sé einn af þessum fjöl-
mörgu lögfræðingum í Sjálfstæðis-
flokknum sem hefur aldrei farið til
útlanda og kann engin tungumál.
Síðan loðir við hann ákveðið sukk
sem hefur orðið að síendurteknu
spaugstofugríni og því er óvíst að
fólk geti hugsað sér hann í al-
þjóðasamskiptum á Bessastöðum."
„Aðalókosturinn er hvað hann er
búinn að vera Iengi í stjórnmálum
og hefur komist langt á frekjunni,
klókindum og böðulgangi. Það eru
margir til í að fara að refsa hon-
um.“
„Stjórnmálamenn umgangast
fólk og mynda tengsl við það með
skilyrðum nánast undantekningar-
laust. Fólk á Islandi vill ekki for-
seta sem elskar það skilyrt. Þess
vegna held ég að stjórnmálamenn
eigi mjög lítinn möguleika."
Bakland: „Davíð kemur sjálf-
sagt til með að hafa sterkan og
harðsnúinn hóp í kringum sig á
kosningaskrifstofunni. En ég hef
ekki trú á því að hinn almenni
sjálfstæðismaður sé endilega að
fara að kjósa hann sem forseta.
Hins vegar mun hann líklega eiga
auðveldara með að safna fé í kosn-
ingasjóð en aðrir. Þar gilda allt
önnur lögmál en í þingkosningum
og það getur verið erfitt fyrir ein-
staklinga sem eru í þessari baráttu
að sníkja peninga. Davfð ætti að
geta fengið þá í gegnum einhverja
þokkalega slípaða sjálfstæðiskan-
ala og það gæti skipt miklu máli,
þótt raunar sé hann svo þekktur að
hann er sá frambjóðandi sem þarf
minnst á fjármunum að halda.“
„Ég tel yfirgnæfandi líkur á að
hann verði forseti, aðallega á fram-
sóknarfylginu“
Næstu skref: „Það þarf fyrst og
fremst að halda Davíð á mottunni,
þokkalega kSíipptum og slank,
huggulegum og landsföðurslegum
eins og hann hefur verið síðustu
árin. Stundum gýs upp í honum
gamli strákskapurinn, hrokinn og
upphrópanirnar sem hann hefur
stundum gripið til, sérstaklega á
elleftu stundu í kosningabaráttu.
Þá fer hann allt í einu að vera orð-
Ijótur og það kemst upp að hann er
svolítið að plata þegar hann setur á
sig englavængina og landsföðurs-
svipihn. Þetta eru helstu mistökin
sem honum gætu orðið á.“
Olafur Ragnar
Grfmsson
Plús: „Ólafur Ragnar er hug-
myndaríkur maður, greindur og
hann á afburða konu. Hann hefur
semsé marga kosti að bera til að
verða forseti, enda heyrir rnaður út
um allt að fólk sem gæti ekki
hugsað sér að kjósa hann í pólitík
sé ekki mótfallið því að fá hann á
Bessastaði."
„Ólafur Ragnar hefur styrkleik--. ■
ana sem felast í því að vera þekkt-
ur, heimsborgari, gjörvilegur og á
leið út úr pólitík. Það er heldur
ekki trúlegt að hann muni vilja
breyta embættinu mjög.“
„Það frýr enginn Ölafi vits, hann
er leiftrandi klár. Hann hefur gíf-
urlega reynslu í alþjóðapólitík,
kann það allt utan að og er vel
kynntur í útlöndum. Hann er regltí-
samur, á gullfallega konu og skyn-
samar dætur, og er að því leytinu
afar vel fallinn til að verða forseti.
Það er allt fullkomið þeim megin.“
„Mér finnst að konan hans kæmi
vel til greina. Margir af þessum
mönnum eiga konur sem eru miklu
hæfari í þetta embætti."
Mínus: „Hann hefur náttúrlegá
sama veikleika og Davíð, hvað
hann hefur verið lengi í pólitík, og
jafnvel umfram Davíð, hvað hann
hefur verið grunaður um að verá
mikill tækifærissinni og lýðskrum-
ari fremur en raunverulegur pólit-
íkus. Það gæti reynst erfitt að fá
kjósendur til að gleyma hvað ferill
hans hefur einkennst af eilífum
upphrópunum, mótmælum og
sjálfumgleði."
„Ég held að Ólafur sameini flest
sem fólki finnst bogið við stjórn-
málamenn. Ég held líka að menn
sem hafa sýnt sig að vera mjög
metnaðargjarnir og hégómlegir
detti fljótt út úr þessu hlaupi."
Bakland: „Bakland Ólafs
Ragnars er ekki sterkt. Hann hefur
alltaf verið einfari í pólitík og á
engan hóp á bak við sig sem orð er
á gerandi. Hins vegar hefur hann á
sínum snærum nokkra flinka kosn-
ingamenn og sjálfur er hann raunar
rnikill kosningamaður og hefur
mikið úthald."
Næstu skref: „Það þarf að gera
nákvæmlega hið sama við Ólaf
Ragnar og Davíð - halda honum á
mottunni og koma í veg fyrir að
hann hlaupi á sig.“