Alþýðublaðið - 09.02.1996, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 09.02.1996, Qupperneq 1
■ Hörð gagnrýni stjórnandstöðunnar á ástandið í heilbrigðismálum Ingibjörg í tjóður- bandi Friðriks - segir Össur Skarphéðinsson formaður heilbrigðisnefndar. Hástemmd loforð Framsóknar svikin. Lokanir sjúkradeilda aukast og þjónustugjöld hækka. Stefnan í heilbrigðismálum mörkuð í fjármálaráðuneytinu. „Fyrsta ganga Ingibjargar Pálma- dóttur er í stríðu tjóðurbandi Friðriks Sophussonar tjármálaráðherra og mig grunar að henni muni reynast torvelt að sh'ta sig lausa og móta eigin stefnu. Þeir sem kyssa einu sinni á vöndinn gera það aftur,“ sagði Össur Skarp- héðinsson formaður heilbrigðisnefnd- ar Alþingis við utandagskrárumræður í gær um ástandið í heilbrigðismálum. Kristín Ástgeirsdóttir, þingmaður Kvennalista, hóf umræðuna en margir alþingismeim tóku þátt í henni. Stjóm- arandstaðan gerði harða hríð að ríkis- stjóminni, einkum Ingibjörgu Pálma- dóttur heilbrigðisráðherra og Friðrik Sophussyni fjármálaráðherra. Fram- sóknarflokkurinn var einkum gagn- rýndur fyrir að hafa svikið algerlega öll kosningaloforð um að margvísleg þjónustugjöld yrðu afnumin og að sjúkradeildum yrði ekki lokað. Þess í stað hefðu lokanir stóraukist og ný þjónustugjöld verið tekin upp. Nokkra athygli vakti að Friðrik Sophusson stóð í eldlínunni við um- ræðumar og talaði mun lengur og oft- ar en heilbrigðisráðherrann. Þetta sagði Össur að væri til marks um hver sé hinn raunverulegi ráðamaður í heil- brigðismálum. Össur sagði ennfremur: „Ingibjörg Pálmadóttir hefur svikið flest loforð sem forysta Framsóknar- flokksins gaf um heilbrigðismál fyrir Össur: Ingibjörg herðir aðhalds- skrúfurnar og gengur miklu lengra í niðurskurði en síðasta ríkisstjórn. kosningar. Það er áfellisdómur yfir hinum unga ráðherra, sem lagði vösk uppfrá Skaga í Herrans nafni og fjöm- tíu en hefur nú steytt einsog Pourquoi pas? á sínu Þormóðsskeri, og kemst ekki þaðan meðan fjámiálaráðherrann les á kompásinn dag hvem og gefur stefnuna.“ Össur sagði að öll hin hástemmdu loforð Framsóknar hefðu verið svikin. Ingibjörg hefði í veigamiklum atiiðum fylgt þeirri stefnu sem ráðherrar Al- þýðuflokksins mörkuðu á síðasta kjör- tímabili, en hún hefði hinsvegar hert aðhaldsskrúfurnar fastar og gengið miklu lengra í niðurskurði. MM st©fnun3 Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra og Friðrik Sophusson fjármálaráðherra við utandagskrárumræðurnar um ástandið í heilbrigðismálum á Alþingi í gær. Athygli vakti að Friðrik hafði sig mun meira frammi í umræðunum en Ingibjörg, og sagði Össur Skarphéðinsson að það væri til marks um að hann læsi á kompásinn dag hvern og gæfi stefnuna; heilbrigðisráðherra væri í tjóðurbandi fjármálaráðherrans. A-mynd: E.ÓI. ■ Stjórnarliðar deila á Alþingi Árni snuprar Siv Til harðra orðaskipta kom milli stjómarþingmaimanna Áma M. Mat- hiesen, Sjálfstæðisflokki, og Sivjar Friðleifsdóttur, Framsóknarflokki, við umræður á Alþingi um heilbrigðismál í gær. Siv hélt því íram að uppsaihaðan vanda ríkissjóðs mætti eingöngu rekja til verka og stefhu síðustu ríkisstjómar. Árni mótmælti orðum Sivjar mjög harkalega, og spurði hvort þingmaður- inn héldi virkilega að hallinn væri ekki meðal annars til kominn vegna lang- varandi stjómarsetu Framsóknar. Jafn- framt sagði Ami, að kannski væri hægt að fyrirgefa nýjum þingmanni van- þekkingu af þessu tagi, en sér virtist sem ffamsóknarmenn sem setið hefðu í fjárlaganefnd, héldu fram samskonar ijarstæðu. Ámi klykkti út með því að segja að þingmenn sem höguðu máli sfnu á þennan veg væm vanhæfir til að fara með fjármál fyrir hönd ríkisins. Siv Friðleifsdóttir. Sökuð um fá- fræði og vanhæfni af samherja í stjórnarliðinu. Það fór ekki framhjá Birni að helsti hljómleikasaiur landsins heldur ekki vatni. ■ Sinfóníutónleikar Bunan stóðá Bjöm Það fór ekki framhjá gesmm á tón- leikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í Háskólabíó á miðvikudagskvöldið að húsið lekur allheiftarlega, eins og raunar hefur verið vitað um alllanga hríð. Eftir úrkomuna síðustu daga draup vatn úr lofti hússins, en starfs- menn reyndu eftir megni að koma föt- um og tuskum undir lekann. Einn tónleikagesta varð þó líklega öðmm tfemur var við lekann. Það var Bjöm Bjamason menntamálaráðherra sem sat í fráteknu sæti aðeins stein- snar þar frá að mesta bunan kom niður úr loftinu. Eins og kunnugt er veltir Bjöm nú alvarlega fyrir sér byggingu tónlistarhúss í Reykjavík og skipaði reyndar nefnd í vikunni til að fjalla um hana. Var mál manna á tónleikun- um að lekinn mikli hefði komið niður á hárréttum stað og að þar hefði þörfin á tónlistarhúsi verið árétmð við hann á ótvíræðan hátt. ■ Afmælisrit Ein bók handa Halldóri Halldór Guðmundsson, útgáfustjóri Máls og menningar, átti fertugsafmæli í gær og var eðlilega margt um dýrðir. Það er ábyggilega ekki mörgum sem hlotnast sá heiður að vera tileinkað afmælisrit á svo ungum aldri, en hollvinir Hall- dórs sáu í hendi sér að öðruvísi væri ekki við hæfi að heiðra þennan umsvifa- mikla forleggj- ara. Afmælisritið inniheldur rit- smíðar eftir ýmsa samstarfsmenn hans og samherja. í ritinu munu ýmsir syndga ögn ffá því sem þeir einatt fást við: Guðmundur Andri Thorsson yrkir sonnettu, Sigurður Svavarsson setur saman limru, Gyrðir Elíasson yrkir ljóð með hefðbundnum hætti, en Össur Skarphéðinsson er skrifáður fyrir smá- sögu. Af öðium sem eiga ritverk í bók- inni má nefha Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur, Þröst Ólafsson, Ómólf Thorsson, Einar Kárason, Einar Má Guðmundsson og Mörð Ámason sem skrifar um þegar Halldór fór einu sinni í framboð - fyrir Fylkinguna. Margt bendir til þess að af- mælisritið verði einhver fágætasta bók sem hefur komið út á íslandi, því hún kemur aðeins út í einu eintaki. Það var prentað af fullri alvöm í prentsmiðjunni Odda, rétt eins og almennileg bók, og var afhent Halldóri í veislu í gærkvöldi. Halldór Guðmundsson.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.