Alþýðublaðið - 09.02.1996, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996
s k o ð a n
AmiMMD
21062. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Lúpulegir
sj álfstæðismenn
Vandræðagangur sjálfstæðismanna vegna mögulegs forseta-
framboðs Davíðs Oddssonar er að verða almennt aðhlátursefni.
Nú liggur fyrir, að landsfundi flokksins verður frestað fram á
haust til þess að Davíð Oddsson fái meira svigrúm vegna forseta-
kosninganna. En þótt kjörtímabil núverandi forystu sé lengt um
helming með þessum hætti þorir enginn að æmta eða skræmta:
slíkt ofurvald hefur Davíð Oddsson á undirmönnum sínum í
Sjálfstæðisflokknum. Garri Tímans gerir í gær stólpagrín að hug-
deigum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, enginn vogi sér að
segja upphátt að frestun landsfundar standi í sambandi við áhuga
Davíðs á Bessastöðum: „Þvert á móti láta þeir einsog þetta sé allt
hið besta mál, þó þeir finni að með hveijum deginum sem líður
veikist flokkurinn og formaðurinn líka.“
í Tímanum í gær var líka athyglisvert viðtal við Matthías
Bjamason fyrrverandi þingmann og ráðherra Sjálfstæðisflokks-
ins. Gamla kempan vandar flokksforystunni ekki kveðjur, segir
að frestun landsfundar sé gjörsamlega óskiljanleg og að það
myndi syngja í ýmsum ef Alþingi tæki uppá því að lengja kjör-
tímabil sitt með sama hætti. Þá segir Matthías: „Þingmenn þora
ekki að segja neitt eða spyija um framboðsmál Davíðs, leiðtoga
síns. Við erum allir hættir og famir, sem þorðum og létum ekki
ganga yfir okkur.“
í eina tíð vom sterkir einstaklingar í þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins, sem ekki létu hantera sig einsog strengjabrúður. Stund-
um skapaði þetta mikla spennu í flokknum, en einmitt sú spenna
kom flokknum til góða. Hún sýndi að í Sjálfstæðisflokknum vom
margar vistarvemr og pláss fyrir menn með ólíkar skoðanir og
áherslur. Matthías Bjamason var einmitt einn af þeim mönnum
sem ekki lét flokksforystuna segja sér fyrir verkum, og átti þess-
vegna ríkan þátt í að breikka ímynd flokksins.
En nú er af sem áður var: Ekki einn einasti þingmaður stendur
uppi í hárinu á Davíð, enginn hefúr kjark til að taka aðra afstöðu í
einstökum málum en flokkslínan gerir ráð fyrir. Skoðanakúgunin
er alger. Það var til að mynda raunalegt að fylgjast með því í
fyrra hvemig þingmenn flokksins á Vestfjörðum vom svínbeygð-
ir í sjávarútvegsmálum. Þeir höfðu geipað um það í kosningabar-
áttunni að þeir myndu „aldrei, aldrei, aldrei“ styðja ríkisstjóm
sem ekki gjörbreytti sjávarútvegsstefnunni. Það er skemmst frá
því að segja að vestfirsku fóstbræðumir, Einar Kristinn Guðfinns-
son og Einar Oddur Kristjánsson, máttu strax eftir kosningar éta
ofan í sig stóm orðin og hafa síðan hvorki heyrst né sést þegar
sjávarútvegsmál ber á góma. Og slík er lítilþægnin að Einar Odd-
ur sagði í viðtali við Alþýðublaðið á dögunum að hann mætti alls
ekki til þess hugsa að missa Davíð Oddsson úr landsstjóminni.
Davíð svaraði lofræðu Einars Odds með hárbeittu háði í Alþýðu-
blaðsviðtalinu fræga fyrir viku: ,3n mér þykir vænt um þessi orð
Einars, því hann taldi á sínum tíma að ég ætti alls ekki að verða
forrtiaður flokksins og hamaðist gegn því.“
Davíð, Davíður, Davfðari,
Davíðastur...
Síðastliðinn föstudag birti Alþýðu-
blaðið breitt og vítt viðtal við Davíð
Oddsson. A ljósmyndinni sem fylgdi
var Davíð sitjandi eins og verðandi for-
setisráðherra sæmir. Á vinsti hönd, í
baksýn, skein í auðan stól við skrifborð
sem var eins og táknrænn fyrir garnla
stólinn borgarstjóra. Myndin er að lík-
indum tekin á skrifstofu hans í Stjómar-
ráðinu og þá veit maður að hinumegin
við vegginn bíður hans þriðji stóllinn,
að vísu upptekinn ennþá en losnar eftir
nokkra mánuði: Forsetastóllinn.
Vikupiltar
Hallgrímur
Helgason
skrifar
Þó Alþýðublaðið sé prentað á þykkari
(og endingabetri) pappír en önnur blöð
má samt sjá það í gegnum þetta viðtal
að Davíð Oddsson er að velta því fyrir
sér að standa upp úr þessum stól sem
hann situr í á myndinni, uppúr stól for-
sætisráðherra, og færa sig á milli her-
bergja í Stjómarráði íslands. Davíð er
að hugsa um að fara í forsetaframboð.
Ja... hann er kannski ekki að hugsa um
að fara í forsetaframboð, heldur er hann
að hugsa um að verða forseti. Það væri
að minnsta kosti „dónaskapur gagnvart
embættinu" að útiloka þá hugsun.
Hvað á Davíð við með þessu orða-
lagi?: „Dónaskapur gagnvart embætt-
inu...“ Ég verð að játa mig heimskan
gagnvart þessum orðum. Ég skil þetta
bara ekki. Á hann við að það sé dóna-
skapur af sitjandi forsætisráðherra að
neita sér um forsetaframboð? Var það
þá dónaskapur af Steingrími Steinþórs-
syni árið 1952 að útiloka framboð? Var
Bjami Ben. dóni ’68? (Ég geri ráð fýrir
að Gunnar Thoroddsen hafi verið lög-
lega afsakaður frá meintum dónaskap
árið 1980.) Eða á Davíð hreinlega við
að hann sjálfur, þessi mikli maður, geti
ekki sýnt forsetaembætúnu þá h'úlsvirð-
ingu að sýna þvf ekki áhuga? Þar með
segir hann sig yfir það hafinn og þar
með segir hann sig sjálfkjörinn í emb-
ættið, bara spurning um hvort hann
nenni og vilji. Eða er hann að gefa í
skyn að Bessastaðir standi honum nán-
ast úl boða, færðir honum á silfurfaú, og
dónaskapur að þiggja ekki svo góða
gjöf.
„Þetta er náttúrlega, eins og krakkam-
ir segja, „sick“ (svo vimað sé í viðtalið)
en kannski bara ofur skiljanlegt út frá
hrokanum sem birúst í þessum orðum:
,Ég verð að segja alveg eins og er, að
menn hljóta að velta fyrir sér á hvaða
leið forsetaembættið er, miðað við þau
nöfrt sem hafa verið nefnd úl sögunnar.”
Þegar þetta er allt saman haft í huga
og þegar maður horfir á myndina af
honum - þar sem hann situr í stóli for-
sætisráðherra og búinn að sitja svona
lengi í honum og því skiljanlegt að hann
langi til að skipta um stól - þá vorkennir
maður honum næstum því að þurfa að
ganga í gegnum svo smálegt vesen eins
og kosningabaráttu. (Davíð segir að for-
setakosningabaráttan sé alltof löng, eigi
að vera miklu styttri, en í raun langar
hann til að segja að hún sé með öllu
óþörf. Og kannski er það útaf fyrir sig
rétt hjá honum, að hlífa okkur við því
endurtekna efni, nú þegar stefnir í að
kosningabaráttan snúist upp í einskonar
Ráðhúsdeilan II.) Já nei. Maður hálf
vorkennir Davíð. Það er verst að hann
geú bara ekki labbað sér yfir ganginn í
næsta herbergi og sest í forsetastólinn
þegar sá losnar.
Fyrirsögn viðtalsins er: „Pólitíkin er
ekki haldreipi mitt“ og öll eru svörin
eins og þess manns sem h'tur yfir farinn
veg, ánægður um öxl undir lok ferils;
hann rifjar upp hitt og þetta úr forsæús-
mennsku sinni og klykkir svo út með
(ögn þreyttur á stólnum) „Ég gæú verið
mjög sáttur viðað fara út á aðra braut
síðar meir... En pólitíkin er allt of
þröngur veruleiki, finnst mér.“
Ég endur tek: Þröngur vemleiki. Ger-
ist nú Davíð Davíður.
Einu sinni var lítill drengur sem hét
Davíð. Davíð átti heima í bæ fyrir aust-
an ljall sem með ámnum varð of þröng-
ur vemleiki fyrir hann og Davíð flutti
því til höfuðborgarinnar. Með ámnum
varð Davíð hins vegar svo Davíður að
það þurfú að gera hann að borgarstjóra
yfir allri borginni. En samt hélt Davíð
áfram að víkka, og varð enn Davíðari.
Að lokum var gripið til þess ráðs að
gera hann að forsætisráðherra yfir öllu
landinu. En allt kom fyrir ekki. Með ár-
unum varð hann Davíðastur allra og nú
er svo komið að eina lausnin er sú að
gera hann að forseta yfir öllum ráðherr-
unum og öllu landinu og bara öllu.
Nú þegar hann er orðinn Davíðastur
allra í þessu landi er það auðvitað ekkert
annað en dónaskapur að hann taki ekki
embættið að sér. Það yrði líúð jafnvægi
úr því ef hann þyrfti að hafa yfir sér
óvíðari manneskju. Er annars ekki hugs-
anlegt að breyta stjómarskránni þannig
að sami maður gæú setið í öllum þrem-
ur stólum samtímis, verið borgarstjóri,
forsætisráðherra og forseti allt í senn.
Jæja. Ókei. Gott og vel. Davíð vill
verða forseti. Og þó hann hafi í nafni
sínu nægilega „vídd“ til þess og sé að
sönnu prýðilega vel „vaxinn" í starfið,
þá veltir hann ýmsum efasteinum í huga
manns í þessu sama viðtali um það
hvort hann sé yfir höfuð heppilegur
þjóðhöfðingi.
Því hefúr verið fleygt gegn forseta-
draumi Davíðs að hann sé ekki nógu
mikill heimsmaður. Hann hafi aldrei bú-
ið erlendis, og tali ekki tungumál. Því
miður staðfestir forsætisráðherra þessar
grunsemdir í viðtalinu. Fyrir utan það að
gorta sig eins og „starstmck" unglings-
stúlka yfir því að hafa fengið klukku-
stund í starfskynningu hjá Margréti
Thatcher „við arineld" - þar sem fram
kemur að hann hafi ekki „komið að orði
allan fundinn” (maður vonar samt að
hann hafi þó skilið orð og orð) - nefnir
hann sólbjarta pikknikk-stund í grænu
grasi Þingvallagarðs yfir rauðvíni af
hernumdum svæðum í boði Símons
Peresar þar sem þessi síðar - og - nú
forsætisráðherra Israels hallaði að hon-
um leyndarmálinu - sem jafnvel Clinton
ekki vissi - um væntanlega friðarsamn-
inga við Palestínumenn. Auðvitað var
þama komið gullvægt augnablik í h'fi
þjóðar og þó einkum hennar fremsta
manns. En hvað gerir Davíð þegar hinn
mikli Peres hefur hvíslað í eyra hans al-
heimsviðburði í vændum? Hann hlær.
Hann byrjar að hlæja. Og hinn úúendi
ráðherra hváir. Með orðum Davíðs:
„Hann verður mjög undrandi og það er
ekki laust við að honum sámi.“ Maður
segir eins og krakkamir segja: „Djísus
Kræst.“
Hvers vegna hló Davíð? Fyrstu við-
brögð smáþjóðarhöfðingjans við há-
dramatískri heimsfregn voru ekki
kongratúlasjónir og annar virðingarvott-
ur, ekki einu sinni „skál fyrir því“, held-
ur „ha! ha! gott á hina“, þá sem mót-
mæltu heimsókn Peresar; andstæðinga
hans í kálgarði íslenskra stjórnmála.
Hinn davíði hugur var þrátt fyrir allt svo
heimavanur að hann sá ekki lengra en
rétt yfir Þingvallaheiðina. Ekki nema
von að Peresi hafi sámað að hafa kastað
perlu sinni í svo heimóttarlegt eyra.
Maður roðnar íyrir lands síns hönd, og
Davíðs, og fer að hugsa „höfum við
gengið úl góðs ...?“ Kannski erum við
bara ennþá nærsýnir sveitamenn og
byggðin í þessu landi tómir bæir, þó
þeir séu að vísu komnir með lendingar-
aðstöðu á hlaðinu hjá sér, þeir á Leifs-
stöðum.
Þegarjjöllin fœrast til
ogfriður leggur veggi
(flómum verða vatnaskil _ ,
og verpir luenan eggi.
Eitthvað er dapurleg sú tilhugsun, nú
þegar íslendingar em loks að ná sjálfs-
trausú á „alþjóðlegum markaði”, að sjá
fyrir sér þjóðhöfðingja vom sem feim-
inn og námsfúsan skóladreng í tíma hjá
Thatcer, eða pattaraleglan prakkara í
sveit, inní betri stofu að hlæja sig sadd-
an af sælgætinu sem frændi kom með
frá útlöndum á meðan allir hinir strák-
amir vom svo vitlausir að vera úti að
leika sér.
Hér er kannski komin skýringin á
hinni kotlegu andstöðu Davíðs Odds-
sonar við inngöngu okkar í Evrópusam-
bandið. Eða er hún kannski svo gallhörð
einfaldlega vegna þess að væmm við
meðlimir myndi væntanlegur forseti ís-
lands þurfa að lýsa því yfir í viðtali við
Aftenposten að það væri dónaskapur
gagnvart embætú forseta ESB ef hann
færi að útiloka framboð sitt eitthvað sér-
staklega. ■
S a a a t a 1 9 f e b r ú a r
Garri Tímans setur fram þá athyglisverðu kenningu að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé langt leiddur af meðvirkni: „Valhöll er í sí-
auknum mæli að taka á sig mynd heimilis alkóhólistans. Þar eru
allir hálfhræddir við áhrifavald og kraft formannsins og óttast að
gera nokkuð sem gæti orðið honum eða flokknum til hneisu eða
vansæmdar út á við. Svipað mynstur er hjá alkanum, þar sem
heimilisfólkið er allt orðið meðvirkt og dansar samkvæmt höfði
alkóhólistans, allt til þess að reyna að viðhalda sem hamingju-
samastri íjölskylduímynd út á við.“
Þetta skýrir vitanlega afhverju enginn af þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins fæst til að ræða opinberlega það sem er á allra vi-
torði: Að Davíð Oddsson er líMega á leið í forsetaframboð og
þessvegna er landsfundi flokksins frestað um heilt ár. En lúpuleg-
ur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins nú þolir illa samanburð við
þá sterku einstaklinga sem í eina tíð settu svip á flokkinn. ■
Atburðir dagsins
1827 Kímbsránið: brotist var
inn og peningum rænt á Kambi
í Flóa. Ræningjarnir voru
handteknir og dæmdir að lokn-
um umfangsmiklum og fræg-
um réttarhöldum. 1832 Baldvin
Einarsson lögfræðingur lést,
aðeins 31 árs. Hann gaf út árs-
ritið Ármann á Alþingi. 1881
Rússneski skáldjöfurinn Fjodor
Dostojevskí deyr, sextugur að
aldri. 1958 Leikrit Samuels
Becketls, Endatafl, bannað í
Lundúnum fyrir guðlast. 1959
Togarinn Júlí frá Hafnarfirði
fórst við Nýfundnaland og með
honum 30 menn.
Afmælisbörn dagsins
Tryggvi Þórhallsson 1889,
forsætisráðherra. Carolc King
1941, bandarísk söngkona og
lagahöfundur. Mia Farrow
1945, bandarísk leikkona, eink-
um ffæg fyrir hlutverk í mynd-
um Woody Allen.
Annálsbrot dagsins
Hengdi sig maður á Hlíðarenda
í Fljótshlíð. Mikill prestadauði
um allt Skálholtsstipú. Þann 2.
sunnudag eftir þrettánda kom
landsynningsstormur hræðileg-
ur, svo um Suðumes og Innnes
slógust til brots nær því 30
skip. í þeim sama byl andaðist
Björn Sturlason skáld á Þor-
kötlustöðum í Grindavík.
Sjávarborgarannáll 1621.
Málsháttur dagsins
Oft hefur ellin æskunnar not.
Orð dagsins
Sannleikurinn er .sá
að sannleikurinn
á vissu stigi
er verri en lygi.
Kristján frá Djúpalæk. 1916-1994.
Skák dagsins
Wilhelm Steinitz (1836-1900)
var fyrsú opinberi heimsmeist-
arinn í skák; sigraði Zukertort
árið 1886. Steinitz var í heilan
mannsaldur besti skákmaður
heims og lagði mikið af mörk-
um til þróunar iistarinnar.
Hann hefur hvítt og á leik gegn
Chigorin (1850-1908), rúss-
neskum snillingi sem var í
fremstu röð. Skákin var tefld í
heimsmeistaraeinvígi árið
1892.
n
HiÍM
■ ■!
■ 111
m m
wm, ig
■ \
m ■
8HB1 Wm
m&i
Hvitur leikur og vinnur.
1. Hxh7+! Kxh7 2. Dhl+ Kg7
3. Bh6+ Kf6 4. Dh4+ Ke5 5.
Dxd4+ Chigorin gafst upp
enda mál í næsta leik. Þrauta-
göngu svarta kóngsins er því
lokið. Steinitz sigraði í einvíg-
inu en tapaði heimsmeistaratitl-
inum skömmu síðar til Lask-
ers.