Alþýðublaðið - 09.02.1996, Qupperneq 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996
Útboð
Rekstur m/s. Sæfara 1996-1999
Fólks- og vöruflutningartil og frá Grímsey
og vöruflutningartil og frá Hrísey
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í fólks- og
vegagerðin vöruflutninga til og frá Grímsey og vöruflutn-
inga til og frá Hrísey (rekstur m/s. Sæfara) maí
1996-maí 1999.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni á Ak-
ureyri og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjald-
kera) frá og með 12. febrúar 1996.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14:00 þann 4. mars 1996.
Verð útboðsgagna er 1.500 kr.
Vegamálastjóri
Húsnæði óskast
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á húsnæði fyrir sambýli
fatlaðra í Kópavogi, Garðabæ eða Hafnarfirði.
Um er að ræða a.m.k. 200-250 m2 einbýlishús í góðu
ásigkomulagi með rúmgóðum svefnherbergjum.
Nauðsynlegt er að húsnæðið sé á einni hæð og allt að-
gengi innan dyra sem utan í góðu lagi með tilliti til fatl-
aðra.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár- og
efni, herbergisfjölda, brunabótamat og fasteignamat, af-
hendingartíma og söluverð, sendist eignadeild fjármála-
ráðuneytisins, Arnarhváli, 150 Reykjavík, fyrir 20. febrú-
ar 1996.
Fjármálaráðuneytið, 8. febrúar 1996
Borgarholtsskóli aug-
lýsir eftir kennurum til
starfa haustið 1996
Borgarholtsskóli er framhaldsskóli við Mosaveg í Graf-
arvogi og er byggður af ríki, Reykjavíkurborg og Mos-
fellsbæ. Hann tekur til starfa haustið 1996 og mun á
fyrsta ári geta hýst 250-300 nemendur.
Borgarholtsskóla er ætlað stórt hlutverk sem starfs-
námsskóla og mun leggja áherslu á nýbreytni í starfs-
menntun á framhaldsskólastigi. Þar verður boðið upp á
nám í bíl- og málmiðnagreinum og nám og starfsþjálfun
á ýmsum starfstegundum brautum auk bóknáms til
stúdentsprófs.
Framundan er skapandi þróunarstarf og sækist skólinn
eftir starfskröftum þeirra sem hafa áhuga á að vinna af
heilum hug að eflingu bók-, hand- og siðmenntar ís-
lenskra ungmenna. Leiðarljós starfsmanna í samskipt-
um við nemendur er agi, virðing, væntingar.
Kennslugreinar og kennslusvið eru::
bíliðngreinar, danska, enska, félagsgreinar, fornám,
kennsla þroskaheftra/fjölfatlaðra, handíðir, íslenska, list-
greinar, líffræði, líkamsrækt, málmiðnagreinar, saga,
stærðfræði, tölvufræði og verslunargreinar.
Kennarar verða ráðnirfrá 1. ágúst. Ur þeirra hópi verða
verkefnaráðnir fjórir kennslustjórar frá 15. mars (í málm-
iðnum, á almennri braut, stuttum starfsnámsbrautum
og í fornámi/námi f. fatlaða), áfangastjóri og deildar-
stjórar frá 1. maí. Æskilegt er að kennarar geti kennt
fleiri en eina kennslugrein á fyrsta ári skólans.
Umsóknir skal senda skólameistara, Eygló Eyjólfsdóttur,
í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 R. fyrir
10. mars. í umsókn skal koma fram menntun kennara og
störf svo og umsagnirfyrri vinnuveitenda.
★Ath. Kennsla í bíliðngreinum er tilraunaverkefni
menntamálaráðuneytisins og aðila í atvinnulífinu.
Menntamálaráðuneytið
7. feb. 1996
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verður haldinn
þriðjudaginn 13. febrúar klukkan 20.30 á Kornhlöðuloftinu.
Á dagskrá er stjórnarkosning og venjuleg aðalfundarstörf.
Listi uppstillingarnefndartil stjórnar liggurframmi á skrif-
stofu Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8-10, viku fyrir aðalfund.
Stjórnin.
s k i I a b o ð
Gorbatsjov: Ef ég býð mig fram mun fólk flykkjast á kjörstaði. Bæði þeir sem styðja mig og þeir sem vilja mig
ekki, en enginn myndi vera afstöðulaus gagnvart Gorbatsjov.
■ Michael Gorbatsjov íhugar að bjóða sig
fram í rússnesku forsetakosningunum
Ef ég býð mig
fram mun
fólk flykkjast
á kjörstaði
í nýlegu viðtali við tímaritið Hello
útilokar Michael Gorbatsjov ekki
þann möguleika að hann bjóði sig
fram í rússnesku forsetakosningunum
sem fara fram í júnímánuði næstkom-
andi. v
„Eg útiloka ekki þann möguleika,"
segir Gorbatsjov. „Mér finnst nauð-
synlegt að við losum okkur við núver-
andi stjórnvöld. Við megum ekki
missa af' því tækifæri sem komandi
forsetakosningar gefa okkur til þess.“
Gorbatsjov segir að ósamstaða
milli lýðræðisflokka landsins standi í
veginum fýrir því að lýðræðisöfl verði
ráðandi í landinu. „Það þarf einungis
að líta á stefnuskrá hinna fimm eða
sex lýðræðisflokka til að sjá að það
eru einungis smáatriði sem skilja þá
að. Við höfum tíma til að jafna þann
ágreining, ekki mikinn tíma en samt
nægan.“
Gorbatsjov hefur trú á því að einn
leiðtogi geti sameinað fylgismenn lýð-
ræðislegu miðjuflokkanna og vinstri
flokkanna. „Ef stjómmálaöflin á miðj-
unni taka á sig mynd þá munu kjós-
endur styðja þá,“ segir hann.
En myndu rússneskir kjósendur
styðja Gorbatsjov? Margir stjómmála-
skýrendur telja það útilokað. Gorbat-
sjoí viðurkennir að óvíst sé að kjós-
endur veiti honum brautargengi. En
hann er sannfærður um að ef hann
byði sig fram myndi framboð hans
kalla fram viðbrögð kjósenda, og segir
af sjálfsöryggi: „Ég get sagt ykkur að
ef ég býð mig fram mun fólk flykkjast
á kjörstaði. Bæði þeir sem styðja mig
og þeir sem vilja mig ekki, en enginn
myndi vera afstöðulaus gagnvart Gor-
batsjov." Og hann bætir því við að
þeir finnist sem telji hann eiga sigur-
möguleika.
Gorbatsjov segir að á valdatíma
sínum hafi Sovétríkin notið aukinnar
virðingar umheimsins: ,;Þáð' er stað-
reynd að valdamenn í Washington
höfðu áhyggjur af því að Sovétríkin
nutu vaxandi velvildar. Alþjóðlegt
vald okkar var gífurlegt. Það vomm
við sem tókum frumkvæðið á þeim
tíma. Það vorum við sem bundum
endi á alræðisstefnuna og opnuðum
lýðræðisöflunum leið. Enginn ætti að
gleyma því.“
Gorbatsjov segir hnignun Rúss-
lands stafa af upplausn Sovétríkjanna.
„Þeir sem sundmðu Sovétríkjunum -
og þeir em við völd í dag - bera fyrst
og fremst ábyrgð á hnignun Rúss-
lands," segir hann. „Það eru þeir,
ásamt vinstri öfgamönnum og aðskiln-
aðarsinnum, sem bundu enda á lýð-
ræðsþróunina. Allt og sumt sem menn
þurfa að gera til að sannfærast um að
þetta er rétt er að líta á þá stjómarhætti
sem tíðkast nú í nokkmm lýðveldum
fyrrum Sovétríkjanna."
„Fólk þjáist, ekki einungis í efna-
hagslegu tilliti, heldur einnig andlega,
vegna þess að Rússland hefur glatað
styrk sínum og nýtur ekki lengur al-
þjóðlegrar virðingar," segir Gorbat-
sjov. Hann segir einnig: „Ég veit að
núverandi leiðtogar Rússlands eru
þess ekki megnugir, en mér finnst, að
brýna nauðsyn beri til að við losum
fólkið við þá minnimáttarkennd og
auðmýkingu sem hefur rekið það til
fylgis við öfgamenn."
Gorbatsjov ásamt eiginkonu sinni Raisu og barnabörnum, Anastasiu og
Xeníu. Tíma sínum skiptir hann milli fjölskyldu sinnar og fyrirlestraferða,
en hann gælir nú við hugmyndina um forsetaframboð.