Alþýðublaðið - 09.02.1996, Síða 7
FÖSTUDAGUR 9. FEBRUAR 1996
ALÞYÐUBLAÐK)
í kirkiuqarðinum
Kúnstugar
grafskriftir
Grafskriftir fylgja venjulega hefðbundnu formi og koma
því sjaldan á óvart. Áhugasömum grúskurum hefur þó tek-
ist að draga fram margan kúnstugan texta sem eftirlifandi
ættingjar sáu ástæðu til að letra á legsteina ástkærra ætt-
ingja sinna. Hér eru nokkur dæmi um áletranir á legstein-
um sem finna má í breskum kirkjugörðum.
í minningu
Charles Ward
sem lést í maí 1770,
63 ára.
Skyldurækinn sonur
ástríkur bróöir
og kærleiksríkur
eiginmaður
ES. Þessi legsteinn var ekki
reistur af Susan eiginkonu
hans. Hún lét reisa legstein
eftir John Salter seinni
eiginmann sinn og hafði þá
gleymt kærleika Charles Ward,
fyrri eiginmanns síns
Robert Lives Esquire
lögfræðingur
svo mikill friðarsinni
að þegar ágreiningur varð
milli lífs og dauða
gaf hann samstundis
upp andann
í þeim tilgangi að binda
endi á deiluna
þann 12. ágúst 1819
+
Hér hvílir
Hinn fátæki en
heiðarlegi
Bryan Tunstall
Hann var mjög fær
stangarveiðimaður
þar til dauðinn,
öfundarfullur
vegna færni hans
kastaði færi sínu,
veiddi hann
og landaði honum hér
þann 21. apríl 1790
Hér hvílir
eiginkona mín
Hér hvílir hún
Hallelúja
Hallelúja
+
Ferðamenn
Eg segi frá undrum
Daginn sem
Thomas Carter
gaf upp andann
fór úlfaldi
gegnum nálarauga
Far þú - og ef þú
ert ríkur
ger slíkt hið sama
Farðu vel
Kveðjur til þín
sem lest þetta
Megi Guð reynast
þér miskunnsamur
á erfiðleikadögum
þínum
\
Hér hvílir
í láréttri stellingu
ytri búnaður
Thomas Hinde
úrsmiðs
sem yfirgaf þetta líf úrvinda
í þeirri von að skapari hans
tæki við honum
og hreinsaði hann
og gerði á honum viðgerðir
og stillti hann inn
í annan heim
t
Hér hvílir
John Highley
en móðir hans
og faðir
drukknuðu á ferðalagi
frá Ameríku
Hefðu þau lifað
væru þáu einnig
grafin hér
Hér hvíiir iíkami
Lafði O'Looney
Hún var systur-
dóttir Burke
Venjulega sögð göfug
Hún var blíð, ástrík
og afar trúrækin
Einnig málaði hún
vatnslitamyndir
og sendi nokkrar
þeirra til sýningar
á Listasafninu
Hún var náfrænka
Lafði Jones
og slíkra er himnaríki
+
Helgað
minningu
lames Brush
majors
sem lést vegna
slysaskots
úr byssu þjónustu-
manns síns
þann 14. apríl 1831
Vel unnið starf þtí góði
og trúi þjónn
Undir þessum
steini hvíla
laskaðar líkamsleifar
Stephen Jones
sem lét taka af sér
fótinn án samþykkis
eiginkonu eða vina
þann 23. október 1842
og þann dag lést hann
31 árs
t
Hér hvílir
Martin Elginbodde
Vertu sál minni
miskunnsamur
Drottinn Herra
Eins og ég yrði þér
væri ég Guð
og þú værir
Martin Elginbodde
Donald Robertson
Fæddur 1. janúar 1785
Látinn 4. júní 1848
63 ára gamall
Hann var fríðsamur rólyndur maður, og
bar með sér að vera einlægur trúmaður
Dauði hans olli mikilli sorg - og hann stafaði af
heimsku Lawrence Tulloch frá Clotherton
sem seldi honum saltpéturssýru í stað epsomsalts
en hann lést af þessum völdum innan þriggja
stunda frá því hann tók skammtinn