Alþýðublaðið - 22.02.1996, Síða 3
FIMMTUDAGUR 22. FEBRUAR 1996
ALÞYÐUBLAÐIÐ
s k o ð a n i r
Kosið í Háskólanum
Stúdentaráð Háskóla íslands hélt
upp á 75 ára afmæli sitt í nóvem-
ber á síðasta ári. I dag ganga stúd-
entar við Háskólann enn að kjör-
borðinu og velja fulltrúa í Stúd-
entaráð og Háskólaráð. Sem fyrr
eru það fylkingarnar Vaka og
Röskva sem bjóða fram lista en
þessar tvær fylkingar hafa ást við
síðustu ár. Að auki hefur komið
fram þriðja framboð: Haki, listi
Pallborð I
öfgasinnaðra stúdenta, sem er að
mestu leyti skipaður nemendum úr
raunvísindadeild. Þeirra helsta
kosningamál er að leggja niður
Lánasjóð íslenskra námsmanna og
setja stúdenta á launaskrá hjá rík-
inu. Röskva hefur borið sigur úr
býtum síðustu fimm ár og því setið
við stjórnvölinn óslitið síðan 1992.
Hún hefur nú 17 fulltrúa, Vaka 12
og listi Óháðra 1.
Nýlega var kosningalögunum
breytt, fulltrúum í Stúdentaráði
fækkað úr 30 í 22 og kosning
þeirra skilyrt af úrslitum kosninga
árið eftir, en fulltrúar eru kosnir til
tveggja ára. Það er gert til þess að
Stúdentaráð endurspegli úrslit
kosninga hverju sinni. Hver fylk-
ing mun því alltaf hafa tvöfaldan
þann fulltrúafjölda sem er kosinn á
hverju ári. Eins og staðan hefur
verið, hefur sá möguleiki verið
fyrir hendi að sú fylking sem tapi
kosningum haldi eftir sem áður
meirihluta í ráðinu vegna stórs sig-
urs í kosningum árið á undan.
Röskva er til að mynda í þessafi
aðstöðu núna eftir stórsigur í kosn-
ingunum í fyrra. Frá og með næsta
ári munu fulltrúar á seinna ári því
eiga á hættu að detta út ef þeirra
fylking tapar manni eða mönnum.
Kosningabaráttan í ár hefur öðru
fremur einkennst af ólíkri afstöðu
gömlu fylkinganna tveggja til svo-
nefndrar skylduaðildar að Stúd-
entaráði. Vaka vill afnema hana,
telur að með þjónustusamningi við
Háskólann um hlut SHÍ í innritun-
argjöldum hafi meirihluti Röskvu
selt sjálfstæði Stúdentaráðs fyrir
peninga stúdenta sem hafa ekkert
val um hvort þeir greiða til þess
eða ekki. Vaka telur að með þessu
hafi Háskólayfirvöld alltaf síðasta
orðið um það sem Stúdentaráð að-
hefst. Þessu er Röskva ósammála
og hefur svarað þessari ádeilu í
einni setningu: „Allir borga, allir
njóta - ekki sumir borga, allir
njóta.“ A baksíðu síðasta Röskvu-
blaðs má jafnframt lesa stutt viðtal
við Sveinbjörn Björnsson rektor
Háskólans, þar sem hann segir
„Háskólinn virðir sjálfstæði Stúd-
entaráðs og vill að það sé sem
mest.“ Hann segist ekki geta skilið
hvernig þessi samningur geti ógn-
að sjálfstæði ráðsins, hér sé um að
ræða þjónustusamning hliðstæðan
þeim sem ríkið sé að gera við ýms-
ar stofnanir sínar og séu gjarnan
gerðir til að auka sjálfstæði þeirra.
Haki hefur ekki enn lýst yfir skoð-
un sinni á þessu máli, en leggur til
að stúdentar taki Hótel Sögu eign-
arhaldi, Háskólinn taki við rekstri
Búnaðarbankans, guðfræðideild
verði lögð niður og „athugað verði
sérstaklega ástæður þess að Fram-
sóknarflokkurinn sé enn til og
hvernig eigi að útrýma honum."
(Úr stefnuskrá Haka).
Kjörsókn í háskólakosningum er
yfirleitt dræm á íslenskan mæli-
kvarða, í kringum 50%. Sam-
kvæmt upplýsingum Stúdenta-
blaðsins er það hins vegar mun
betra en almennt gerist hjá þjóðun-
um í kringum okkur. ■
Kjörsókn í háskólakosningum er yfirleitt
dræm á íslenskan mælikvarða, í kringum 50%.
Samkvæmt upplýsingum Stúdentablaðsins er
það hins vegar mun betra en almennt gerist
hjá þjóðunum í kringum okkur.
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
Ikvöld verður haldinn fund-
ur í Leikfélagi Reykjavíkur
og er talið líklegt að þar
kunni að draga til tíðinda eft-
ir átökin innan félagsins síð-
ustu vikurnar. Sem kunnugt
er hefur Viðar Eggertsson,
leikhússtjóri frá og með
næsta leikári, sagt upp
nokkrum fastráðnum leikur-
um, meðal annars Guð-
mundi Ólafssyni, Jóni
Hjartarsyni, Valgerði Dan
og Soffíu Jakobsdóttur.
Að auki hefur Sigurður
Karlsson, leikari og fyrrver-
andi formaður Leikfélagsins,
sagt upp störfum og ber fyrir
sig óvissuástandi innan fé-
lagsins. Er þá á braut margt
af því fólki sem hefur borið
hitann og þungan af starfi
Leikfélagsins í ár eða máski
áratugi og er jafnvel sagt
hafa myndað með sér ein-
hvers konar „leikhúseig-
endafélag". Samkvæmt
heimildum Alþýðublaðsins
fyrirhuga einhverjir félags-
manna að láta sverfa til stáls
vegna þessa á fundinum í
kvöld og eru jafnvel með
vantrausttillögu á stjórn
Leikfélagsins í bígerð. í
stjórn Leikfélagsins sitja
Kjartan Ragnarsson, sem
mun hafa safnað að sér
miklum völdum þar innan-
húss og er maðurinn bak við
ráðningu Viðars, Sigrún
Edda Björnsdóttir, fyrrum
stjúpdóttir Kjartans, og
Þorsteinn Gunnarsson,
eiginmaður þeirrar sömu
Valgerðar Dan og nýskeð
fékk uppsagnarbréf. Eftir
að hafa lagst undir feld
mun Valgerður hafa sagt
lausu hlutverki sínu í Hinu
Ijósa mani, leikgerð á
sögu Halldórs Laxness
sem Bríet Héðinsdóttir
er nú að æfa í Borgarleik-
húsinu. Og það sem
meira er: Þorsteinn Gunn-
arsson mun ætla að sýna
konu sinni samhug í verki og
ganga líka út úr sýningunni,
en þar hefur hann verið að
æfa eina burðarrulluna...
Mörgum sýnist að hug-
myndir um forseta-
framboð Ólafs Ragnars
Grímssonar hafi fengið
furðu góðan hljómgrunn og
er jafnvel sagt að þessi með-
byr hafi komið Ólafi Ragnari
sjálfum svo þægilega á
óvart að hann sé allverulega
farinn að hugsa sér til hreyf-
ings í framboðsmálum. Er
raunar fullyrt að stuðnings-
I |
menn hans gangi rösklega
fram í liðskönnun þessa dag-
ana og telji fulla ástæðu til
bjartsýni á sigurlíkur síns
manns eða að minnsta kosti
góða niðurstöðu úrforseta-
kjöri. Ef allt gengur eftir eru
jafnvel sagðar likur á að Ól-
afur Ragnar tilkynni framboð
sitt innan mánaðar...
Veislan gekk með miklum ágætum og allir skemmtu sér
konunglega þangað til Marteinn gekk laumulegur að búri
marðanna og opnaði dyrnar.
fimm á förnum veg
9 Hvers vegna eru launin svona lág á íslandi?
Öskar Helgason nemi: Það
er vegna þess að þetta er launa-
stefna ríkisstjómarinnar.
Sverrir Reynisson nemi: Guðrún Thorsteinsson Hjörtur Jónsson kaffi-
Þeir sem að ráða vilja hafa bankamaður: Það er vegna húsakarl: Vegna þess að
þetta svona. þess að verkalýðshreyfmgin er skattar em of háir.
alltof máttlaus.
Aldís Guðbjörnsdottir
skrifstofumaður: Verka-
lýðshreyfingin stendur sig
ekki.
JÓN ÓSKAR
m e n n
Menn sá ekki korni
á steinsteypu, það þarf að
undirbúa jarðveginn.
Geir Gunnar Geirsson bóndi
í Tímanum í gær.
Spurningin sem við hljótum
að spyrja okkur hlýtur að vera
sú hvort það sé í lagi að kenn-
arar kunni ekki að kenna.
Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Sigurður Hólm Gunnarsson félagar í
Samtökum áhugafólks um bætta kennslu.
Morgunblaðið í gær.
Þetta er enn ein
staðfesting þess að landbúnað-
arráðuneytið virðist oftar
gæta hagsmuna framleiðenda
í landbúnaði en neytenda.
Úr forystugrein
Morgunblaðsins í gær.
Maður er nú búinn
að fá sig fullan upp í háls af
forseta- og fiskifréttum.
Lesendabréf r
DV í gær.
Þó er ein atvinnugrein
sem íslenskt menntafólk
lætur blómgast innanlands:
veikindaiðnaðurinn.
Guðbergur Bergsson í
DV í gær.
Þetta ástand hefur
gert einokunarkerfi landbún-
aðarins að ríki í ríkinu,.
sem hefur „skýran og einbeitt-
an“ vilja til „alvarlegra og
ámælisverðra“ lögbrota.
Jónas Kristjánsson í leiðara
DV í gær.
frettaskot úr fortíd
Jarðskjálfti
bjargar
föngum
Nýlega fundust allsnarpir jarð-
skjálftakippir í Suður - Portugal, og
sló miklu felmtri á fólkið. Ekkert
manntjón varð en hús skemdust mik-
ið. Gamall kastali frá dögum Már-
anna, sem notaður hafði verið sem
fangelsi, hrundi, og tókst mörgum
föngum að strjúka.
Alþýðublaðið
sunnudaginn
6. janúar 1935