Alþýðublaðið - 22.02.1996, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 22.02.1996, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 j. ■ Alfreð Gíslason sókndjörf handboltahetja, þjálfari, atvinnurekandi og jafnaðarmaður að upplagi í viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur Eg verð seint atvinnu- pólitíkus Þegar KA varð bikarmeistari á dögunum vakti athygli handbolta- unnenda þegar þú brást þér inn á sóknina. Þú virðist hafa átt nœga innistœðu - spilarðu ekki alltof lítið með sjálfur? „Ég ætlaði að vera hættur, en ég hef gripið inn í vegna meiðsla leikmanna og reyni að vera eins lítið inn á'einS og ég get. Ég neita því ekki að ég hef gaman af þessu, sérstaklega þegar vel gengur. Ég hef reyndar átt við meiðsl að stríða síðustu tvö ár og hef þar af leiðandi ekki æft og svo er aldur- inn farinn að segja til sín. Þannig að þetta er nú ekki eins fjörmikið og þegar ég æfði, en skemmtilegt samt.“ Heldurðu að KA og Valur eigi eftir að leika til úrslita í Islands- mótinu ? „Já, ég tel það. Þetta eru sterk- ustu liðin í dag og raunar finnst mér einstefna þeirra fullmikil. Bæði liðin hafa borið af í mótinu. Ég bjóst satt að segja við jafnari keppni og að fleiri lið myndu blanda sér í baráttuna. En það er rétt að hafa í huga að enn getur margt gerst. Svo gæti farið að bæði liðin eða annað hvort þeirra kæmust ekki í úrslit. Önnur lið gætu komið á óvart og staðið uppi sem sigurvegarar, eins og til dæm- is Stjarnan, Haukar eða FH.“ Nú hafa Patrekur og Duranona verið mest áberandi í liðinu og skorað langflest mörk. Patrekur er líklega á leið til Þýskalands og Duranona auglýsir eftir vinnu á Spáni. „Patrekur fer til Þýskalands. Ég hef alltaf vitað að það kæmi að því að hann færi og hef verið til- búinn að aðstoða hann þegar mér fyndist hann tilbúinn til að fara. Það er komið að því núna. En það eru miklar líkur á því að Duran- ona verði áfram hjá okkur. Honum líður vel hérna og ekki verður annað skilið á honum en að hann vilji setjast hér að.“ En hefur það ekki slœm áhrif á liðsheildina að missa þungavigt- armenn, einn eðafleiri? „Jú, það er mjög*slæmt að missa slíka menn, hvort sem það er Pat- rekur eða Duranona. Bæði eru þetta frábærir handboltamenn og síðan eru þeir mjög góðir félagar. En í íþróttunum eins og mörgu öðru, þá kemur maður í manns stað og það er mitt að finna ein- stakling sem tekur við hlutverki þess sem fer. Ég set mér það markmið að leysa það.“ Nóg um handboltann í bili. Þú lœrðir sagnfrœði í Háskólanum. Hefurðu eitthvað sinnt þeim frœð- um, „Nei, því miður hef ég ekki gert það. Ekki nema að því leyti að ég les mér einstaka sinnum til heima fyrir. Málin hafa þróast þannig að ég hef haft svo mikið að gera í öðru að sagnfræðin hefur alveg dottið ofan af borðinu hjá mér. Annars gaf kunningi minn mér ættfræðiforrit og það varð til þess að ég fékk ættfræðidellu. Eftir það grúsk skynjaði ég sagnfræðina á annan hátt en áður og gerði mér enn betur grein fyrir því hversu íslandssagan er í rauninni ung. Ég get vel ímyndað mér að ég eigi eftir að sinna sagnfræðinni betur þegar ég er búinn að fá mig full- saddan af íþróttunum og þær af mér.“ Ef við snúum okkur að pólitík þá eru foreldrar þínir báðir virkir í starfi Alþýðuflokksins. „Ætli ég verði ekki að skrifast sem pabbapólitíkus. Sem krakki var ég settur í það að bera út Al- þýðumanninn á Akureyri. Ég kynntist mörgum alþýðuflokks- mönnum og þingmönnum, eins og Árna Gunnarssyni sem frá ung- lingsárum var minn uppáhalds- stjórnmálamaður og er ennþá. Það er stutt síðan ég varð flokksbund- inn og ætli maður hafi ekki leiðst út í þetta sem stuðning við kall- inn. En ég er jafnaðarmaður að upplagi." Hvernig finnst þér staða flokks- ins vera á landsvísu? „Mér finnst hún alltof veik mið- að við það sem flokkurinn á skil- ið. Ég hef í rauninni enga eina skýringu á því. Ég held að Al- þýðuflokkurinn hafi tekið að sér að vera málsvari margra óvinsælla mála, en nauðsynlegra. Hann líður fyrir það. Svo er vinstri hreyfingin búin að vera sundurlaus gegnum árin.“ Ertu sameiningarsinni? „Ég hef nú bara ekkert velt því fyrir mér.“ Gœtirðu hugsað þér að verða stjórnmálamaður? „Ekki eins og staðan er í dag. Nei. Ég verð nú að segja íþróttun- um það til hróss að þar fer fram ólíkt heiðarlegri barátta en í stjórnmálum. Nei, ég verð seint atvinnupólitfkus“. Ja, nú skal ég segja þér að ég lief heyrt marga segja að þú vœrir rétti maðurinn til að leiða flokk- inn í kjördœminu í nœstu kosning- um. Það eru þrjú ár f þcvr þannig að margt getur breyst. „Þá er nægur umhugsunarfrestur til að velta því fyrir sér. Já, þú ■ Ég sé mig ekki taka við fyrirmælum frá mönnum um það hvaða stefnu ég ætti að hafa í ákveðnum málum. Ef ég væri ekki sammála þá myndi ég ekki fylgja forskrift flokkslínunnar. segir nokkuð. Ég skal segja þér að ég sé mig ekki taka við fyrirmæl- um frá mönnum um það hvaða stefnu ég ætti að þafa í ákveðnum málum. Ef ég væri ekki sammála þá myndi ég ekki fylgja forskrift flokkslínunnar." Já, stjórnmálamaður með sann- fœringu, það þurfa allir flokkar á slfkum mönnum að halda. „Ég er ekki farinn að hugsa svona langt og reikna ekki með að gera það.“ Þú ert formaður menningar- málanefndar Akureyrar. Hvað er að frétta af menningu og listum fyrir norðan? „Það hefur verið mjög rnikil menningaruppbygging á Akureyri síðastliðin ár, en staðan í ár er þvf miður þannig að niðurskurðar- hnífnum hefur verið beitt á menn- ingarmál þannig að ég get ekki sagt að ég sé sáttur við bæjar- stjórnina. Hún beitir sér ekki í forgangsverkefnum eins og þeim að koma upp nýbyggingu við Amtsbókasafnið sem getur ekki borið allt það sem þar er staflað inn. Það hefur verið mín skoðun að viðbygging Amtsbókasafnsins ætti að vera forgangsverkefni í menningarmálum á Akureyrió í dag. Svo heyri ég að þú rekir nokkur fyrirtœki nyrðra. Hvað geturðu sagt mér um þau umsvif? „Ég sé urn Tryggingarmiðstöð- ina hér á Akureyri. Við erunt tvenn hjón sem eigum og rekum veitingahús, Við Pollinn. Við keyptum, gerðum hér upp gamalt hús, eitt af gömlu Gránufélags- húsunum sem gegndi merku hlut- verki í Islandssögunni sem fyrsta sjálfstæða verslunin hérna. Kon- urnar sjá um daglegan rekstur veitingahússins. Einnig hef ég einhver umsvif í eróbikk stúdíói. Svo er það bara þjálfunin." Ég heyri á öllu að þú hefur mik- ið á þinni könnu. Hvernig kemstu yfir þetta allt saman? „Þetta kemst upp í vana og kemur eins og af sjálfu sér. Ætli þetta snúist ekki um að nota tím- ann vel. Vinir mínir telja mig ekki mjög skipulagðan en einhvern veginn hefur mér samt tekist að komast yfir það sem ég á að kom- ast yfir.“

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.