Alþýðublaðið - 07.03.1996, Side 1
Fimmtudagur 7. mars 1996 Stofnað 1919 38. tölublað - 77. árgangur
■ Biskup fellst á kröfu séra Flóka
Biskup víkur úr
í Langholtsdeilunni
- fer fram á það við kirkjumálaráðherra að hann skipi
annan mann í sinn stað
Biskup íslands, Ólafur Skúlason,
hefur fallist á þá kröfu séra Flóka
Kristinssonar að hann víki sæti við
úrlausn Langholtsdeilunnar.
Ástæðan er kvörtun séra Flóka til
siðanefndar Prestafélagsins vegna
ákveðinna ummæla biskups í fjöl-
miðlum og meðferð siðanefndarinn-
ar á henni.
Flóki sendi siðanefndinni bréf
fyrir skömmu og kvartaði undan
þeim ummælum biskups að Sigrún
Pálína Ingvarsdóttir sem sakað hef-
ur Ólaf Skúlason um kynferðislega
áreitni „væri búin að vera í viðtöl-
um hjá séra Fióka Kristjánssyni í
allan vetur“.
Sagði séra Flóki í bréfinu að þessi
ummæli biskups væru úr lausu lofti
gripin og ekki sæmandi biskupi að
halda fram slíkri ósannaðri stað-
hæfingu. Siðanefnd tók undir sjón-
armið séra Flóka, eins og skýrt var
frá í Alþýðublaðinu í gær. Því hefur
biskup farið þess á leit við Þorstein
Pálsson kirkjumálaráðherra að
hann setji annan í sinn stað til að
úrskurða í málinu.
Ólafur Skúlason.
Rannveig: Fagna því að rekstri
heimiiisins verði haldið áfram. Það
er það sem skiptir máli.
■ Rekstri meðferðar-
heimilisins á Kleifarvegi
haldið áfram
Fagna niður-
stöðunni
-segir Rannveig
Guðmundsdóttir
■ Umdeild utandag-
skrárumræða um
kynferðislega áreitni
Ekkert
hik á mér
- segir Guðný Guðbjörnsdóttir
og fer fram á að Davíð Odds-
son verði til svara
„Ef einhvern tíma er skilningur á
mikilvægi þessa máls, um það hvemig
eigi að taka á kynferðislegri áreitni al-
mennt f þjóðfélaginu, þá skyldi maður
ætla að það væri núna,“ segir Guðný
Guðbjömsdóttir þingkona Kvennalist-
ans, en hún hefur sem kunnugt er farið
fram á utandagskrárumræðu í þinginu
um kynferðislega áreitni.
Eins og komið hefur fram í Alþýðu-
blaðinu eru margir þingmenn lítt
hrifnir af því að hefja umræðu um
þetta mál á þingi á þessum tíma, enda
verði varla komist hjá því að ræða þar
um mál Ólafs Skúlasonar biskups.
Guðný segir þetta byggt á misskiln-
ingi: „Ég er ekkert að fara að ræða um
þetta' biskupsmál. Ég hef fulla samúð
með báðum málsaðilum í því tiltekna
máli,“ segir Guðný. „Ég vil einmitt
fyrirbyggja að hlutimir komist í óefni
eins og í þessu máli. Það þarf að fmna
farvegi í stjómkerfmu til þess að mál
fái rétta
meðhöndl-
un strax,"
H ú n
neitar því
þó ekki að
talað verði
um mál
biskups í
þessu sam-
hengi: „Ég
tek það
sem dæmi
um mál
sem sýnir
að kerfið
er vanbúið
að taka á
þessu. Ég
kem ekki Guðný Guðbjörnsdótt-
inn á það ir: „Ef einhvern tíma er
að öðru skilningur á mikilvægi
leyti,“ seg- þessa máls, þá skyldi
ir Guðný maður ætla að það
sem hefur væri núna."
farið fram
á að Davíð Oddsson verði viðstaddur
umræðuna. „Það er ekkert hik á mér
með þetta og það skiptir mig engu
máli hvort umræðan frestast fram í
næstu viku.“
Ein í kirkju
Deilurnar í kirkjunni virðast engin áhrif hafa á þessa konu sem leitaði friðar í guðshúsi
við upphaf prófastastefnu, enda stendur kirkjan þrátt fyrir allt á bjargi sem er ekki alveg síðan í gær. A-mv,>d: e oi
„Það er ástæða til að fagna því að
rekstri heimilisins verði haldið áfram. Það
er það sem skiptir máli,“ sagði Rannveig
Guðmundsdóttir um þá yfirlýsingu Ingi-
bjargar Pálmadóttur í utandagskrárum-
ræðum á Alþingi í gær að rekstri með-
ferðarheimilisins á Kleifarvegi yrði ekki
hætt. Sjúkrahús Reykjavíkur hefur séð
um rekstur heimilisins en tilkynnti nýlega
að vegna spamaðaraðgerða myndi það
hætta rekstrinum.
Rannveig sagðist fagna yfirlýsingu
heilbrigðisráðherra, en minnti á að mál
meðferðarheimilisins á Kleifarvegi væri
sama eðlis og mál Bjargs; þama væri lílil
og viðkvæm stofnun með heimilismenn, í
þessu tilfelli böm, sem byggju þar ein-
hver ár í senn. „Það er orðið svo aðþrengt
að stofnunum ríkisins að það er freistast
til þess að leggja rekstur slíkra heimila
niður. Það hefur sem betur fer ekki orðið
niðurstaðan að þessu sinni og ég fagna
því,“ sagði Rannveig.
Lúðvík með
viðtalst íma
Lúðvík Bergvinsson, þingmaður
Alþýðuflokksins - Jafnaðar-
mannafiokks ís-
lands, verður
með viðtalstíma á
skrifstofu flokks-
ins, Alþýðuhús-
inu, Hverfisgötu
8-10, á fimmtu-
dag milli kl. 17-
19.
■ Sigrún Pálína Ingvarsdóttir segist tilbúin að takast á við það sem gerist
Þrýstingurinn er gífuriegur
-segir Sigrún. Hvernig sem málin verða dæmd hef ég sannleikann mín megin.
„Hvernig sem málin verða dæmd
þá hef ég sannleikann mín megin,“
segir Sigrún Pálína Ingvarsdóttir ein
þeirra kvenna sem sakað hafa biskup
um kynferðislegt áreiti, í samtali við
Alþýðublaðið.
I DV í gær var haft eftir presti að
„handafli" sé nú beitt af hálfu biskups-
manna til að þagga málið niður. Stutt
er síðan biskup réði lögfræðinga sér til
halds og trausts í málinu og í samtali
við Alþýðublaðið sagði Sigrún Pálína
að hún gæti ímyndað sér að sú leið
væri farin til að hræða konumar. Þeg-
ar Sigrún Pálína var spurð um það
hver viðbrögð hennar væru við því að
ein kvennana hefði dregið mál sitt til
baka sagði hún: „Þetta styrkir þá
kenningu að verið sé að beita ákveðn-
um brögðum til að fá konumar til að
draga kærur sínar til baka. Þrýstingur-
inn er gífurlegur á alla lund og það er
misjafnt hvemig einstaklingar bregð-
ast við honum.“
Sigrún Pálína var spurð að því
hvað henni þætti um þau orð sem
biskup hefur viðhaft um þátt kvenn-
anna og var á þá leið að hið illa gengi
um Ijósum logum.
„Mér finnst æði sérkennilegt að
biskup fslands skuli leyfa sér að nota
þannig orðbragð og beina því að ein-
staklingum," sagði Sigrún.
Sigrún segist vera að svipast um
eftir lögfræðingi og bíði eftir því hvort
biskup stefni sér fyrir dómstóla. „Ég
er tilbúin að takast á við það sem ger-
ist,“ segir hún og tekur fram að hún
eigi stóran vina- og kunningjahóp sem
standi með henni. „Það er mikið
hringt í mig. Þar er bæði um að ræða
fólk sem þekkir mig og svo þá sem
ekki þekkja til mín. Fólk alls staðar af
að landinu veitir mér stuðning og það
er mér mikils virði. Hvemig sem mál-
in verða dæmd þá hef ég sannleikann
mín megin. Ég hef bolmagn til að bera
það sem gerist því sannleikurinn og
það að halda æm sinni skiptir miklu
meira máli en peningar.“
Sigrún Pálína: Ég hef bolmagn
til að bera það sem gerist því
sannleikurinn og það að halda
æru sinni skiptir miklu meira
máli en peningar