Alþýðublaðið - 07.03.1996, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. MARS 1996
s k o ð a n i r
MfflUBHÐID
21077. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð i lausasölu kr. 150 m/vsk
Þjónar kirkjunnar
Ástandið innan þjóðkirkjunnar verður súrrealískara með hveij-
um deginum sem líður. Engir virðast tala þar orðið saman nema
að viðstöddum lögmönnum og helstu túlkendur atburða þar innan
dyra eru lögmenn. Dyggustu þjónar kirkjunnar í dag virðist vera
stétt lögfræðinga, allt frá prófessorum við Háskóla Islands til
málflutningsmanna. Það eru að vísu gömul og ný sannindi að fá-
ar deilur eru illvígari en deilur um trú og æðri sannleika. Það er
einnig þekkt að bræðravíg og borgarastyijaldir eru erfiðari viður-
eignar en önnur stríð. Deilumar innan þjóðkirkjunnar eru nú um
það bil að ná bosnískum hæðum. Það virðist því full þörf á lög-
mönnum á hinu kærleiksríka heimili kirkjunnar.
í Morgunblaðinu í gær geysist Ragnar Aðalsteinsson lögmaður
Ólafs Skúlasonar fram á vígvöllinn og túlkar atburði á stjómar-
fundi í Prestafélaginu. Þar er tillaga Geirs Waage sögð hafa þann
tilgang einan að vega að biskupnum. „Þetta sé liður í valdabaráttu
innan kirkjunnar“ er haft eftir lögmanninum. Ragnar Aðalsteins-
son virðist álíka þreyttur á Geir Waage og biskupinn sjálfur.
Vamir Ólafs Skúlasonar hafa umfram annað beinst að því að þær
-konur sem borið hafa hann ásökunum séu strengjabrúður ein-
hverra afla sem vilji hann úr embætti. Ekki er hægt að skilja þetta
öðmvísi en svo að þessi öfl séu jafnt innan þjóðkirkjunnar sem
utan. Biskupinn hefur jafnvel bendlað séra Flóka Kristinsson
óbeint við málið og fengið bágt fyrir hjá siðanefnd Prestafélags-
ins.
Nú má búast við því að Geir Waage fái sér lögmann og mæti
með hann á næsta stjómarfund Prestafélagsins. Ef að líkum lætur
verða lögfræðingar álíka íjölmennir á næsta prestafundi og prest-
arnir sjálfir. Á meðan lögmenn verða smám saman að æðstu
prestum kirkjunnar fellur þjóðkirkjan í áliti hjá almenningi í land-
inu. í hugum almennings á kirkjan að vera málsvari sátta, fyrir-
gefningar og kærleika, en er þess í stað að breytast í helstu tekju-
lind lögmanna i landinu. Mikill meirihluti þjóðarinnar vill að Ól-
afur Skúlason segi af sér embætti biskups, enda er honum ekki
treyst. Her lögmanna breytir engu um þá staðreynd.
DV greinir frá því í gær að tveir prestar reyni nú allt hvað af
tekur að redda málum. Af hálfu biskupsmanna sé nú beitt „hand-
afli“ til að þagga málið niður, meðal annars með því að benda á
mikinn kostnað sem herkostnaður lögmanna hafi í för með sér. Er
kirkjan að bíða eftir því að landssöfnun hefjist til að verja kon-
urnar fjárhagslegu tjóni ofan á allt annað? Hinir nýju þjónar
kirkjunnar munu ekki auka hróður hennar meðal þjóðarinnar.
Innanmein kirkjunnar verður að leysa á annan og kristilegri máta.
Einkavinavæðing
Þorsteins Pálssonar
Laxveiðar ráðamanna hafa löngum verið stundaðar á vafasöm-
um grunni. Fyrrverandi forsætisráðherra stundaði til að mynda
slíkar veiðar af kappi í boði stórfyrirtækja, jafnvel á sama tíma og
málefni þeirra voru til umíjöllunar á skrifborði hans. Víða erlend-
is myndi slíkt framferði flokkast undir mútuþægni. Gjafir af
þessu tagi þyrfti ef vel ætti að vera að skrá hjá Alþingi þannig að
opinbert sé.
Þorsteinn Pálsson hefur nú einkavinavætt neyðarþjónustu
landsmanna og sá sem mest græðir á því er félagi hans í laxveið-
um. Kostnaður skattborgara við uppátækið skiptir hundruðum
milljóna á næstu árum. Við hlið SR-mjöls getur Þorsteinn Páls-
son nú bætt annarri rós í hnappagatið. Laxveiðiferðir dómsmála-
ráðherrans verða þjóðinni dýrar þegar upp er staðið. ■
Unga fólkið og Hafnarfjörður
Hafnaríjörður hefur að mörgu leyti
sérstöðu meðal sveitarfélaga á Islandi.
Flestir myndu svara því strax til og
segja að það væri vegna þess að þar
væru kratar svo sterkir í pólitíkinni og
að pólitíkin væri svo óvægin í Firðin-
um.
F^Mborðið I
Þetta er rétt, vissulega eru Aiþýðu-
flokksmenn sterkir í Hafnarfirði og
svo mun verða um langa framtíð og
þess vegna er pólitíkin líka svona
óvægin, því öfund og afbrýði þeirra
stjómmálaflokka sem vanir em því að
vera stærri en Alþýðuflokkurinn víð-
ast hvar er svo yfirgengileg að öll
meðul rétt og röng eru notuð til að
reyna að koma okkur krömrn úr þeirri
stöðu sem við erum og höfum verið í
hér í bæ. En það hefur mistekist hing-
að til enda á fúlmennska og geðillska
ekki upp á pallborðið hjá Hafnfirðing-
um.
En það er einmitt vegna þess að
kratar hafa stjómað Hafnarfirði und-
anfarin mörg ár að bærinn er orðinn
að fyrirmynd annarra sveitarfélaga. Eg
ætla hér í þessari stuttu grein að nefna
eitt dæmi.
Frá því Alþýðuflokkurinn tók aftur
við völdum í Hafnarfirði fyrir 10 árum
síðan, hefur fólksfjölgun verið hér
mjög mikil, sumir segja of mikil.
Þannig vom íbúar í Hafnarfirði 13.214
árið 1985 en vom 17.538 1. des. 1995.
Það sem meir er um vert er að það
er að langstærstum hluta ungt fólk
sem flytur í Fjörðinn. Þannig em nú
18% íbúa bæjarins á gmnnskólaaldri
sem er langt umlfam það sem gerist í
sambærilegum sveitarfélögum. Það
em um 300 fleiri nemendur í gmnn-
skólum Hafnarfjarðar heldur en í
Kópavogi, þó svo íbúar þar séu ennþá
fleiri en í Hafnarfirði. Þessar stað-
reyndir sanna okkur það að Hafnar-
fjörður er bær unga fólksins.
En hvemig skyldi standa á þessu?
Jú, bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa
lagt sig fram um það að búa sem best
að bömum og unglingum.
Skólamálin em þannig stödd að á
hveiju einasta hausti síðan 1986 hefur
verið opnaður nýr skóli eða viðbygg-
ing við skóla í Hafnarfirði og þannig
verður það áfram, því í haust verður
ný viðbygging tekin í notkun við Set-
bergsskóla.
Meðan önnur sveitarfélög em farin
að hyggja að einsetningu gmnnskól-
ans höfum við rétt undan þeirri fólks-
ijölgun sem hér á sér stað.
Leikskólar í bænum em margir og
vom tveir nýir byggðir á síðast hðnu
kjörtímabili, glæsilegar byggingar,
frábærlega útbúnar með góðu starfs-
fólki eins og reyndar allir skólar bæj-
arins. En betur má ef duga skal og nú
em menn farnir að velta fyrir sér nýj-
um leikskóla.
Hafnfirðingar horfa fram á það að
nýr tónlistarskóli verði tekinn í notkun
haustið 1997, og verður hann glæsi-
legasti tónlistarskóli landsins og þótt
víðar væri leitað. Fjölgun nemenda í
tónlistarnámi hefur verið geysileg
undanfarin ár og mun nýi skólinn
leysa úr miklum vanda þegar hann
verður tekinn í notkun.
Hvað varðar íþróttamálin í Hafnar-
firði þá veit alþjóð að Hafnfirðingar
standa þar fremstir allra sveitarfélaga
landsins og er nánast sama hvar htið
er yfir svið íþróttanna. Bæjaryfirvöld
hafa nefnilega gert sér grein fyrir því
að íþróttir eru mikilvægur þáttur í
uppeldi og forvamarstarfi og lagt sig í
líma við að gera aðstöðu fyrir íþrótta-
fólk sem allra best úr garði. Það hefur
líka skilað árangri. Iþróttahallir,
íþróttasvæði, sundlaugar, golfsvæði
og reiðskemma svo eitthvað sé nefnt
tala sínu máli um skilning bæjaryfir-
valda á þessum mikilvæga málaflokki.
Æskulýðsmiðstöðin Vitinn hefur
reynst mjög vinsæl af æsku bæjarins
og aðsókn að honum vaxandi með
hveiju árinu sem líður. Þær vom ýms-
ar óánægjuraddirnar sem heyrðust
þegar lagt var af stað með þá bygg-
ingu, en þær em löngu þagnaðar og nú
vildu allir Lilju kveðið hafa. Og í síð-
ustu viku var svo opnuð ný æskulýðs-
miðstöð í Hvaleyrarskóla, sem þjóna á
unglingum á Holtinu enda orðið langt
fyrir þau að sækja Vitann.
Ég hef nú farið á hálfgerðu hunda-
vaði yfir aðeins einn þátt í bæjarmál-
um Hafnfirðinga. Hægt væri að iaka
fyrir hvem málaflokkinn af öðmm og
þá skýrist það sjálfsagt fyrir utanað-
komandi hvers vegna Hafnarfjörður
hefur verið svo vinsæll á undanföm-
um áram.
I Hafnarfirði unir fólk sér vel, í
Hafnarfirði vill fólk búa af því að bæj-
aryfirvöldum er annt um það og vilja
gera sitt til þess að íbúunum, yngri
sem eldri, h'ði sem best í fallegu um-
hverfi.
Höfundur er bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
IEn það er einmitt vegna þess að kratar hafa stjórnað
Hafnarfirði undanfarin mörg ár að bærinn er orðinn að
fyrirmynd annarra sveitarfélaga.
Atburðir dagsins
1876 Alexander Graham Bell
fær einkaleyfi á nýrri uppfinn-
ingu sinni talsímanum. 1912
Frakkinn Henri Seimet verður
fyrstur til þess að fljúga í ein-
um áfanga frá París til London.
1917 Fyrsta jazzhljómplatan
gefin út. Á henni leikur hljóm-
sveit Nick La Rocca, Dixieland
jazz ættaðan frá New Orleans.
1936 Hersveitir Hitlers ráðast
inn í Rínarlönd. 1945 Níu árum
síðar halda amerískar hersveitir
yfir Rín og innrás Bandamanna
í Þýskaland er hafin. 1971
Svissneskir karlmenn sam-
þykkja að konur fái kosninga-
rétt og öðlist rétt til að gegna
opinberum stöðum.
Afmælisbörn dagsins
Edwin Henry Landseer 1802,
breskur myndlistarmaður sem
meðal annars skóp Ijónin á
Trafalgar torginu í London.
Maurice Ravel 1875, franskt
tónskáld, meðal verka hans era
Bolero og ballettin Daphnis og
Klói. Lord Snowdon 1930,
breskur ljósmyndari og fyrram
eiginmaður Margrétar prins-
essu. Ivan Lendl 1960, tékk-
neskur tennisleikari.
Annálsbrot dagsins
I Meðallandi á Síðu austur
hvarf maður, Sverrir að nafni:
fór með öðrum á rótafjall og
fannst ekki aftur, en tveimur
árum fyrr hvarf annar maður
giftur af rótarfjalli úr sama
plássi og fannst ekki aftur, en
þessi Sverrir, er nú hvarf, eign-
aðist konu hins, og meina
menn, að eitthvert tröll hafi
grandað þeim báðum eður aðrir
vættir.
Setbergsannáll 1626
Tilvitnun dagsins
Óspakur mælti: „Far þú eigi til
Álfur,“ segir hann, „þú hefur
haus þunnan en eg hef öxi
þunga.“
Óspakur Kjallaksson viö Áif hinn
litla er þeir deildu um hvalreka.
Málsháttur dagsins
Ekki er úti allt kveld, þótt
rökkvi.
Orð dagsins
Vœru eigi, vinur minn kœri,
vœngimir þungu,
svifi e'g samstundis yfir
svellaða hjalla;
heim til þín huga minn
dreymir,
er hríðamar kveða
lög, er þœr le'ku d þeim dögum,
sem löngu eru gengnir.
Jóhann Sigurjónsson
Skák dagsins
Jón L. Árnason er illa fjarri
góðu gamni á Reykjavíkur-
skákmótinu, en hann er því
miður hætmr atvinnumennsku í
skák. Jón L. er hugmyndaríkur
skákmaður og hefur oft unnið
glæsilega sigra. Lítum á lok
skákar hans gegn Zsuzsu Polg-
ar, nýbökuðum heimsmeistara
kvenna í skák. Skákin var tefld
í Búdapest árið 1989. Jón L.
Ámason hefur svart og finnur
leik sem vinnur lið.
Svartur leikur og vinnur.
1. ... Hxc3l! 2. Dxc3 Re4 og
vinnur lið. Einfalt og stíl-
hreint.