Alþýðublaðið - 07.03.1996, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 7. MARS 1996
ALÞÝÐUBLAÐK)
3
s k o ð a n
Hlutverk biskups er
að vera siðferðileg fyrirmynd
Þessi skuggi mun, ef ekkert er að gert, loða við
herra Ólaf það sem eftir er jafnvel þó hann taki
hvern á fætur öðrum og kæri fyrir meiðyrði og
fái þá sakfellda fyrir (enda er miklu léttara að
sanna meiðyrði en kynferðisofbeldi). Fólk mun
halda áfram að efast enda er réttlætiskennd og
siðferðisvitund margra misboðið.
Einhvem veginn finnst mér að sú
umræða sem átt hefur sér stað undan-
farið um biskup íslands hafi sífellt
Pallborðið
|<;| f Hreinn
Hreinsson
Jt skrifar
færst lengra frá kjama málsins. Um-
ræðan er farin að snúast um að vor-
kenna biskup og hvort réttlætannlegt
sé að „einhveijar konur útí bæ“ geti
rænt hann mannorði sínu án þess að
koma ffam með áþreifanleg sönnunar-
gögn. Einhvem tíma hefði samúð með
fómarlömbum kynferðisofbeldis verið
meiri, en á einhvem óútskýrðan hátt
virðist fólk taka öðruvísi afstöðu
gagnvart biskupi en öðmm ofbeldis-
mönnum enda virðist ekki vera sama
hvort það er Jón, séra Jón eða Jón
biskup sem í hlut á.
Málið snýst um það að nokkrar
konur hafa hetjulega gengið fram fyrir
skjöldu og sagt ffá því að herra Ólafur
Skúlason biskup hafi beitt þær kyn-
ferðislegu ofbeldi eða áreitt þær á
kynferðislegan hátt fyrir mörgum ár-
um síðan. Ekki hefur komið fram
hvað nákvæmlega átti sér stað en þrátt
fyrir það hefur herra Ólafur sagt að
þessi mál séu uppspuni auk þess sem
hann hefur látið að því hggja að óvild-
armenn sínir standi á bak við mál-
flutning kennanna. Ljóst er að málið
er þess eðlis að réttarkerfið getur ekki
tekið það upp þar sem máhð er fymt
lögum samkvæmt. Einnig virðist sem
kirkjan og siðanefndir hennar ráði
ekki við málið enda má telja líklegt að
ráð hennar og nefhdir hneigist til að
vera hliðhollar yfirmanni sínum þann-
ig að sá sannleikur sem þar kæmi út
gæti verið allavega enda erfitt að vera
hlutlaus í máli sinna eigin félaga.
Formlega séð er því líklegt að herra
Ólafur geti setið í embætti sínu óhagg-
aður eins lengi og honum sýnist enda
vel vopnaður lögspekingum sem veija
hann með kjafti og klóm. Mér virðist
sem þetta sé sú leið sem herra Ólafur
ætlar að fara.
Þeir sem áhuga hafa á að kynna sér
mál af þessu tagi gera sér fyllilega
grein fyrir að sárgrætilega fá mál
komast í gegnum réttarkerfið og þau
mál sem enda með dómi eru aðeins
agnarh'tið brot af þeim sem raunveru-
lega eiga sér stað. Mjög erfitt er að
sanna það að einhver hafi beitt kyn-
ferðisofbeldi en þrátt fyrir að engan sé
hægt að sakfella er ekki þar með hægt
að segja að ofbeldi hafi ekki verið
beitt. Þess vegna tel ég að þó að aldrei
verði hægt að sanna neitt í þessu máh
sé ekki hægt að álykta annað en að
konumar séu að greina satt og rétt frá.
Spumingin er hvort fómarlömb eða
gerendur eiga að njóta vafans í svona
málum og í þetta sinn er það sjálfur
biskupinn sem fer ffam á það að njóta
vafans. En ef vafi leikur á siðferði
biskups er ansi langt gengið að mínu
mati þar sem hann er fyrirmynd ann-
arra.
Þeir sen lenda í því að vera beittir
kynferðisofbeldi eiga flestir við mikla
vanlíðan að stríða í langan tíma og
margir hveijir eiga í erfiðleikum alla
sína ævi. Það er mjög auðvelt að skilja
reiði þeirra kvenna sem nú hafa stigið
ffam. Þær em reiðar vegna þess að sá
maður sem þær segja að hafi beitt sig
kynferðisofbeldi er biskup íslands og
er því talsmaður kristilegs siðferðis og
að mfnu mati á hann að vera siðferði-
leg fyrirmynd. f dag er miklum
skugga varpað á embættið og er það
vegna mannsins sem í því situr. Þessi
skuggi mun, ef ekkert er að gert, loða
við herra Ólaf það sem eftir er jafnvel
þó hann taki hvem á fætur öðrum og
kæri fyrir meiðyrði og fái þá sakfellda
fyrir (enda er miklu léttara að sanna
meiðyrði en kynferðisofbeldi). Fólk
mun halda áffam að efast enda er rétt-
lætiskennd og siðferðisvitund margra
misboðið.
Málið er þess eðhs að ekki verður
við unað að ekki sé hægt að rannsaka
það vegna einhverra formlegra fyrir-
stöðu réttarkerfisins. Mín skoðun er
því sú að biskupinn eigi að segja af sér
og setja eigi af stað einhvers konar
rannsóknamefnd sem kanna eigi rétt-
mæti sakargiftanna. Ef það er ekki
gert mun þetta mál fylgja biskupsemb-
ættinu þann tíma sem herra Ólafur sit-
ur. Herra Ólafur ætti að íhuga það
hvort rétt sé að hans persóna sé að
gera kirkjuna ótrúverðuga í allri um-
ræðu um siðferðileg gildi í þjóðfélag-
inu. Hfutverk biskups og kirkjunnar er
nefnilega að vera ímynd góðs siðgæð-
is og því spyr maður sig hvaða skila-
boð er verið að senda þjóðinni þegar
sjálfur yfirmaður kirkjunnr rígheldur í
embættið þrátt fyrir að vera borinn
þungum sökum sem beinKnis beinast
að kjama kristilegs siðferðis. Er þess
virði fyrir herra Ólaf að sitja áfram
einungis til þess að sitja, því hlutverki
sínu sem biskup getur hann að mínu
mati alls ekki valdið lengur - því mið-
ur.
Höfundur er félagsráðgjafi.
Innanbúðarmenn í Sjálf-
staeðisflokknum telja enn
að miklar líkur séu á forseta-
framboði Dav-
íðs Oddsson-
ar. Vinsældir
Guðrúnar
Pétursdóttur
eru sísttil þess
fallnar að
draga úr Davíð,
enda getur
hann ekki
hugsað sér að
þessi höfuð-
fjandi hans
setjist að á
Bessastöðum.
Sjálfstæðis-
menn segja að Davíð muni
virkja vini sína í menningare-
lítunni til að vitna opinber-
lega, líktog hann gerði fyrir
borgarstjórnarkosningarnar
1986. Þar er um að ræða
menn einsog Sigurð Páls-
son, Kjartan Ragnarsson,
Þórarin Eldjárn og fleiri.
Síðan muni hinn ötuli fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins, Kjartan Gunnars-
son, sjá um að virkja
flokksmaskínuna í þágu Dav-
íðs. Með þessu telja stuðn-
ingsmenn forsætisráðherra
að kominn sé sá kokteill
sem dugar til að fleyta
Davíð á Álftanesið...
Stólræða sem séra
Kristinn Björns-
son, sóknarprestur á
Hvammstanga flutti á
æskulýðsdegi þjóðkirkj-
unnar síðastliðinn
sunnudag hefurvakið
mikla athygli og berst
nú víða meðal presta.
Séra Kristinn þykirtaka
þar óvenju sterkttil
orða og er varla hægt
að skilja ræðu hans öðruvísi
en að hann sé að fjalla um
mál Ólafs Skúlasonar bisk-
ups. I ræðunni sagði séra
Kristinn meðal annars: „En
svo eru það þeir sem vita
ekki að þeir eru blindir. Ég
þekki mann í hárri stöðu,
sem hefur sagt mér og
mörgum öðrum að hann sjái
ekki að hann hafi gert neitt
rangt. Samt eru til konur
sem kvarta undan því að
hann hafi verið þeim vondur
og að hann hafi svikið þær.
Þærtreystu honum eins og
þið, börnin hér og ungling-
arnir, eigið að geta treyst
föður ykkar og móður... Þær
leituðu til mannsins, allar
ungar að árum, í vanda sín-
um og í þeirri von að hann
gæti veitt þeim frið í hjart-
anu. Það stendur líka í guð-
spjalli dagsins að Kristur
hefur látið kirkjunni eftir sinn
frið, sem er annar en sá frið-
ur sem heimurinn veitir. í
staðinn fengu þær yfir sig
ofbeldi og skömm sem þær
hafa þurft að búa við síðan
og bera eins og hverja aðra
fötlun. Lengi vel var þeim
ráðlagt af vinum sínum að
þetta yrði að vera svona og
þær gætu ekki verið að tala
um þetta við neinn utanað-
komandi. Þeim var ráðlagt
að þegja og harka það af sér
sem yfir þær var gengið.
Hvertrúir ungri konu eða
ungling þegar orð hennar
eru á móti orðum virðulegra
manna?"
„Því miður Bjarni minn..., þetta er sá skammtur sem þér
var úthlutaður í upphafi ferðarinnar og þú færð ekki dropa
meira. Ég hef ekki hugmynd um afhverju þú situr uppi
með eina glasið sem lekur, en þú getur engu um kennt
nema eigin óheppni."
fimm á förnum vegi
Finnst þér að megi dansa á páskum? Nýtt frumvarp gerir ráö fyrir mjög rýmkuöum ákvæöum um skemmtanahald á stórhátíðum
Edda Þorsteinsdóttir
verslunarstjóri: Já, mér
finnst það eins eðlilegt og að
opna á miðnætti suma daga.
Sigga Stína Hrafnkels-
dóttir hárgreiðslumeistari:
Já, af hverju ekki.
Arndís Bergsdóttir nemi:
Já, að sjálfsögðu.
Richard Ólafur Briem arki-
tekt: Já, mér finnst að megi
dansa alla daga og allar nætur.
Bergljót Ylfa Pétursdóttir
húsmóðir: Já, en það verða
samt að vera ákveðnar reglur?
JÓN ÓSKAR
m e n n
Öll trúarbrögð geta tekið
á sig misfagrar myndir og
mörg af helstu grimmdarverk-
um mannkynssögunnar má
rekja tii trúarofstækis af ein-
hverju tagi.
Forystugrein
Morgunblaösins í gær.
Ég átti mér draum um framtíð
þjóðar minnar. Hvernig hefur
sá draumur ræst? Eruð þið sú
þjóð sem mig dreymdi um?
Njöröur P. Njarövík prófessor í
Morgunblaöinu í gær.
Sennilega þyrftu prestar
landsins að fara í fótboltaskóla
hjá Val og rifja upp að þeim
er ætlað að vinna stríð en ekki
bara orustur, og vera hermenn
Krists.
Birgir Guðmundsson ó víöavangi í
Tímanum í gær.
Ef tveggja metra stór sköp
væru teiknuð upp á vegg og
þetta gert á vinnustað mætti
kalla það kynferðislegt áreiti.
Níls Gíslason íbúi á Akureyri.
DV í gær.
Dómsmálaráðherra hefur af-
hent laxveiðivinum sínum og
einkavinum flokksins neyðar-
línu landsins að gjöf.
Jónas Kristjánsson í leiðara
DV í gær.
Framsóknarflokkurinn sér-
hæfir sig ekki, heldur stundar
allar tegundir spillingar jöfn-
um höndum.
Úr sama leiðara.
fréttaskot úr fortíd
Margar
eru raunir
mannanna
Nýlega lést í Englandi póstþjónn, 69
ára gamall. Það var merkilegt við
þennan póstþjón, að einu sinni á
hveijum degi í 21 ár hafði hann
hlaupið upp og niður stiga í vita, en í
stiganum eru 403 tröppui ! - Jafnvel
hlaupagarpurinn Magnús Guðbjöms-
son myndi neita slíkri stöðu, þó hún
væri 5 sinnum betur borguð en stað-
an, sem hann hefir hér hjá pósthús-
inu.
Alþýðublaðið
sunnudaginn
30. mars 1935