Alþýðublaðið - 13.03.1996, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐK)
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996
s k o ð a n i r
riÞYIIII BI/ÐII)
21080. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Frá fortíð
til framtíðar
Allt er í heimi hverfult. Tímamir breytast og mennimir með.
Og víst er það rétt og satt, að nútíminn virðist eiga fátt sameigin-
legt við tímana á öndverðri öldinni hvað þá ef litið er til fyrri
alda. Tæknibyltingin hefur haldið innreið sína og gjörbreytt þjóð-
félagsmyndinni á örfáum áratugum. Og að verulegu leyti til hins
betra, því velsæld hefúr aukist og afkoma fólks batnað. Það er þó
ekki algilt, því enn býr stærstur hluti veraidar við mikla fátækt.
Þannig að þótt skilin milli austurs og vesturs í heiminum verði æ
minni, þá verður munurinn milli lífsgæða suðurhvels jarðar og
norðurhlutans æ meiri - munurinn milli ríkra og fátækra eykst.
Islendingar hafa á hinn bóginn notið ríkulegra þeirra byltingar
í atvinnuháttum sem átt hefur sér stað. Á aðeins örfáum áratugum
höfum við komist út úr torfkofunum og baslinu til bjargálna - til
mikillar velsældar.
En sumt breytist hægt - eða alls ekki. Eftir sem áður er lífsins
gæðum misskipt. Ennþá eru það fámennir hópar sem skafa rjó-
mann ofan af og hafa allt til alls, á sama tíma og fjölmennur hóp-
ur launafólks býr afar þröngar aðstæður. Baráttan fyrir frelsi og
jöfnum rétti fólks til mannsæmandi lífs, sambærilegra möguleika
til öruggra afkomu, er enn í fullum gangi.
Það er með öðrum orðum þannig, að hin pólitíska barátta fyrir
frelsi, jafnrétti og bræðralagi er ennþá jafnbrýn og nauðsynleg og
hún var fyrir áratugum.
Alþýðuflokkurinn og Alþýðusamband íslands fagna 80 ára af-
mæli um þessar mundir. Saga hinnar pólitísku hreyfingar og
hinnar faglegu er að meira og minna leyti samofin, enda þótt þær
hafi með formlegum hætti skilið skiptum íyrir margt löngu. Það
breytir þó ekki hinu að baráttumálin og markmiðin hafa oftast
verið þau sömu.
Alþýðublaðið telur brýnt að þessi öfl, jafnaðarmenn og verka-
lýðshreyfingin freisti þess nú að bindast sterkari böndum. Það er
ekki síst nauðsynlegt nú á síðari tímum, þegar mikilvægt er fyrir
þau öfl sem vilja félagshyggjuna í öndvegi að standa saman gegn
framsókn skeljalausrar frjálshyggju, en málsvarar hennar trúa í
blindni á mátt þeirra sem meira mega sín. En ekki aðeins er um
að ræða vamarbaráttu jafnaðarmanna og verkalýðshreyfingar íyr-
ir áunnum árangri heldur og er brýnt fyrir jafnaðarmenn að sýna
fram á styrk jafnaðarstefnunnar til framtíðar, siðferðilegan, pólit-
ískan og efnhagslegan, þegar við nú senn rennum inn í nýja öld.
Jafnaðarstefnan er nefnilega hvoru tveggja í senn, sígild og
breytileg. Hún byggir ekki á kreddum og algildum lausnum,
heldur er íyrst og síðast lífsýn þeirra sem vilja öra framþróun en
um leið gæta að grundvallargildum á borð við réttlæti og jöfnuð.
Þótt íjölmargt hafi breyst til betri vegar fyrir tilverknað baráttu
jafnaðarmanna hér á landi síðustu áratugi, þá eru eftir sem áður
stór verkefni fyrir stafni. Enn er ólokið baráttu jafnaðarmanna
fyrir því, að þjóðin eigi landsins gögn og gæði, en ekki fáeinir út-
valdir sem hafa með vafasömum hætti slegið eign sinni á þau.
Hér er Alþýðublaðið að vísa til hálendisins, jarðvarmans, fall-
vatna og virkjunarréttinda. Hér er bent á fiskinn í sjónum. Jafnað-
armenn viðurkenna að sjálfsögðu eðlilegan eignarrétt einstak-
linga og hópa, en hafna sjálftöku. Kvótakerfið í okkar fiskveiði-
stjómarkerfi var aldrei hugsað sem endanlegt afsal á fiskimiðun-
um til örfárra kvótakónga. Afnotaréttur stórlandeigenda á sam-
eiginlegu landsvæði þjóðarinnar átti aldrei að mynda varanlegan
eignarrétt. Hér eru á ferðinni gmndvallaratriði í stjómmálum.
Ekki dægurþras um lítilvæg málefni, heldur einfaldlega spuming-
in um það, hver á Island. Og í þessum efnum sem öðmm em það
hagsmunir fjöldans, fólksins í landinu, sem Alþýðuflokkurinn ber
fyrir bijósti.
Alþýðuflokkurinn er síungur flokkur, sem byggir á traustum
gmnni. 80 ára saga hans greinir frá sigmm og ósigmm í með-
vindi og mótvindi. En umfram allt em jafnaðarmenn samferða
samtíðinni, nútímanum, en ekki fastir í fortíð gamalla viðhorfa.
Framtíðin er því Alþýðuflokksins.B
Ég skora á alla stuðningsmenn þína, vini og velunnara, að strengja
þess heit nú á áttræðisafmæli þínu, að forðast frekara skaðræði með
opinberum níðingshætti í garð hvers annars. Orku þeirra sem fylgja
stefnu þinni er betur varið til styrkingar innviða og gagnkvæmrar
hvatningar og uppbyggingar.
Heitstrenging á afmælisári
- 80 ára afmælisbarn ávarpað
Þá ertu áttræður blessaður minn.
Saga þín er saga réttlætisbaráttu á ís-
Iandi og minnisvarðar þínir eru verk
ódrepandi baráttumanna og fánabera
þinna, sem farið hafa með mikilvæga
málaflokka á tímum mótunar f ís-
lensku samfélagi. Heilbrigðis- og
tryggingarmál, banka- og viðskipta-
mál, menntamál og utanríkismál ís-
lendinga eru meðal þess sem halda
munu nafni þínu og heiðri á lofti um
ókomin ár, sökum þess hve vel þínir
Pallborðið
iíWSk Jakob
| 41Wdj Frímann
llim ^ ; .. Magnússon skrifar
menn hafa leyst þau af hendi á hveij-
um tfma. Að öðmm ólöstuðum átt þú
mestar þakkir skildar fyrir að Island er
annálað velferðarsamfélag meðal
þjóða. Megi hljómprúð rödd þín og
krafa um frelsi, jafnrétti og bræðralag
áfram verða Islendingum til hvatning-
ar og blessunar um ókomin ár og ald-
ir. Málgagn þitt hefur notið krafta
margra hæfustu penna þjóðarinnar og
nýtur í dag ritsjórnar metnaðarfulls
skálds og fagurkera, sem á síðustu
misserum hefur lyft blaðinu í nýjar
hæðir menningarlegrar og skapandi
umfjöllunar.
Formaður þinn er einn merkilegasti
og mikilhæfasti stjómmálamaður 20.
aldarinnar á Islandi, hvers framsýni og
mælska ber. af öðru því sem hugsað er
og sagt á Alþingi voru. Stefna þín í
öllum mikilvægustu þjóðmálum er
kristaltær, virt og dáð af stórum hluta
landsmanna, hugsjónir þínar og
stefnumið eru sú framtíðartónlist sem
vaxandi hluti ungs fólks á íslandi telur
vænlegast að dansa eftir inn í nýja öld.
Hverju sætir þá að íylgi þitt mælist
á undanfömum missemm hæst 16%
og allt niður í 4%?
A áttatíu ára ferli þínum virðist
áhöfn þín æði oft hafa stokkið fyrir
borð og skilið þig eftir fáliðaðan í
ólgusjó stjómmálabaráttunnar.
Avallt hefur þó tekist að endumýja
áhöfnina og halda innanborðs vel
mönnuðu og samstilltu liði, að
minnsta kosti þar til babb kemur í bát-
inn á ný: þá virðist liðsmenn þína oft-
ar en ekki skorta þrek og vilja til að
útkljá sín mál í anda bræðralags:
'Menn' byrja að vega að'saniherjum
sínum bölva þeim og rægja þá. Og
eins og jafnan þegar gripið er til
vopna að óyfirveguðu máli, þá hættir
mönnum til að skjóta sjálfa sig í fótinn
- og það sem verra er, - flokkinn sinn
í leiðinni. Þó að menn vegist sem bet-
ur fer sjaldan, í eiginlegri merkingu,
með vopnum á íslandi okkar daga, þá
er eins og að í seinni tíð hafi menn
uppgötvað fjölmiðla sem kjörin vopn,
er grípa megi til, jafnvel í smæstu inn-
anborðsdeilum. Hvers kyns óvild eða
öfúnd er veitt útrás með meiðandi og
svertandi skrifum um náungann.
Reyndar hefur í þeim skilningi ríkt
eins konar skálmöld á íslandi um all-
langt skeið og er þar engum hlíft. Að
minnsta kosti „eitt mannorðsmorð á
viku“ var til skammst tíma það sem
fjármagnaði Pressuna og síðar Helg-
arpóstinn. Meira að segja DV, sem í
eina tíð var ritstýrt af metnaðarfullum
og vandvirkum ristjóra sem tók blaða-
menn á teppið fyrir hvers kyns óná-
kvæmni, gerir nú út á lægstu hvatir
mannskepnunnar og prentar vísvitandi
ósannindi og nánast hvaða óþverra
sem kynni að auka sölu á blaðinu. Þú,
gamli Alþýðuflokkur, hefur ekki farið
varhluta af þeim bölvaða vopnagný.
Sárgrætilegast hlýtur þó að vera inn-
anborðsskakið, svo tilgangslaust og
skaðlegt sem það óhjákvæmilega er.
Það liggur í augum uppi að sæmi-
lega viti borið nútímafólk á erfitt með
að ganga tilliðs við söfnuð þar'sém
allt logar í ófriði, þar sem samh'erjai1
og bræður beijast f sífellú, hversu há-
leit sem stefnumið söfnuðsins kunná
að vera á sviði þjóðmála. Bræðráflökk
þinn Framsóknarflokk og samstarfs-
aðila þinn lil skamms tíma, Sjálfstæð-
isflokk skortir margt af því sem þig
prýðir, en þessir söfnuðir háfa notið
þess að þar vinnur fjöldi einstaklinga
óeigingjamt starf á bak við tjöldtn',-én
leysir döilúr sínar og inhri'mál'^ömú-
- leiðis að-mestu-á-bak-vfð'tjrikÍMirf
kyrrþey. Á þeim bæjum virðist trú-
mennska hins almenna flokksmanns
við flokk og flokksystkin hafa skapað
ákveðna tiltrú kjósenda, sem margir
eru þó að líkindum jafnaðarmenn í
hjarta sínu eins og við íslendingar er-
um auðvitað langflestir.
Trúmennskan, það er lykilorðið. Sá
sem gengur til liðs við þig af heilum
og hreinum hug, honum ber að heita
þér únmennsku, styrkja þig og efla til
ífekari dáða, beina vopnum sínum frá
þér en ekki að þér. Eg skora á alla
stuðningsmenn þína, vini og velunn-
ara, að strengja þess heit nú á áttræðis-
afmæli þfnu, að forðast frekara skað-
ræði með opinberum níðingshætti í
garð hvers annars. Orku þeirra sem
fylgja stefnu þinni er betur varið til
styrkingar innviða og gagnkvæmrar
hvatningar og uppbyggingar. Aðeins
þannig getur þú, kraftmikill og endur-
nærður á níræðisaldri, valdið því
veigamikla hlutverki sem þér er ætlað
á komandi ámm og áratugum. Þá fyrst
geta jafnaðarmenn á íslandi sameinast
til dáða, með hið gagnkvæma traust
og trúmennsku að leiðarljósi.
Að lokum,- til hamingju með af-
mælið gamli.
Höfundur er starfsmaöur í utanríkisþjónustinni.
Atburðir dagsins
1881 Alexander 11 Rússakeisari
drepinn með sprengju, af öfga-
sinnum í Pétursborg. 1894
Fyrsta nektarsýningin í at-
vinnuskyni fer fram i Davan
Fayoneau Music Hall í París.
1930 Plútó sú reikistjarna sem
fjærst er sólinni uppgötvuð.
1961 Pablo Picasso 79 ára að
aldri kvænist hinni 37 ára fyrir-
sætu Jacqueline Rocque. 1983
Samtök uin kvennalista stofnuð
á lúndi á Hótel Esju í Reykja-
vík.
Afmælisbörn dagsins
Sigurður Guðmundsson mál-
ari 1883. Pcrcival Lowell
1855, bandarískur stjömufræð-
ingur. rannsóknir hans á Uran-
us leiddu til uppgötvunar Plútó.
Tessie O’Shea breskur
skenuntikraftur, þekkt undir
heitinu „Tveggja tonna Tessie"
vegna stærðar sinnar.
Annálsbrot dagsins
Á vori þessa árs um fráfæru-
leyti gengu fyrir sunnan og
austan blíð logn í hálfan mán-
uð.I þeim lognum skeði það.að
sjórinn fyrir öllum Garði,
Strönd og öllum Innnesjum
varð með sérlegri eður smolti
yfirdreginn bæði djúpt og
grunnl undir landið. Þá sömu
fitu þoldu ei sjófuglar, svo þeir
drápust sumir í fitunni, og
mjög margir voru teknir sem
hálfdauðir af sjómönnum.
Sumir skriðu upp í ljörugrjót
og voru þar kraftlausir teknir.
Sjávarborgarannáll 1651
Tilvísun dagsins
Þú munt ráða ferðum þínum
Bolli, segir konungur, því þér
eruð um flest einráðir íslend-
ingar.
Ótafur Haraldsson
Noregskonungur
Málsháttur dagsins
Oft er dyggð undir dökkum
hámm
Orð dagsins
Hirðirinn rdfar um lieiðar
ogfjöil
og horaður verður að svelta;
en lijörðin erfarin til
lielvítis öll,
því hundurinn kunni' ekki
að gelta.
Káinn
Skák dagsins
Ungverski stórmeistarinn Far-
ago hefur aldrei náð í fremstu
röð enda melnaður hans mjög
bundinn við að gera jafntefli.
Farago hefur hvítt og á leik í
skák dagsins gegn enska stór-
meistaranum Stuart Conquest.
Sá síðamefndi tefldi á Reykja-
víkurmótinu sem lauk um helg-
ina en náði ekki á verðlauna-
pall.
Hvílur leikur og vinnur.
Df6+! Dxf6 2. exf6+ Kxf6 3.
Rxf4 og hvítur hefur unnið
heilan mann.