Alþýðublaðið - 21.03.1996, Qupperneq 1
Fimmtudagur 21. mars 1996 Stofnað 1919
45. tölublað - 77. árgangur
■ ASÍ bregst af hörku við frumvarpi um vinnulöggjöf. Benedikt Davíðsson: „Lög sem
stangast gjörsamlega á við vilja meirihluta þeirra sem eiga að búa við þau eru ónýt lög."
r
Arás á verkalýðshreyfinguna
fremur að ríkisstjómin hafi rofið grið í
málinu, frumvarpið sé árás á verka-
lýðshreyfmguna, enda séu flestar hug-
myndir í því til þess fallnar að rýra
sjálfstæði stéttarfélaga.
ASI hefur nú boðað formenn allra
aðildarfélaga sambandsins til fundar
næstkomandi föstudag. Þann dag mun
einnig verða fyrsta umræða um frum-
varpið á þingi og má búast við hörðum
umræðum. Ríkisstjómin leggur mikla
áherslu á að ífumvarpið verði að lög-
um á vorþingi.
„Ég er orðlaus," var það eina sem
Hrafnkell Jónsson, formaður Verka-
mannafélagsins Arvakurs á Eskifirði,
vildi segja eftir miðstjómarfund ASÍ.
Forseta ASI var hins vegar ekki orða
vant.
„Það kom okkur mjög á óvart að
ráðherrann skyldi grípa svona fram
fyrir hendur okkar,“ segir Benedikt.
„Ráðherrann var búinn að segja okkur
að það væri ætlan ríkisstjómarinnar að
leggja fram tillögu til breytinga á
vinnulöggjöfmni. Við höfðum ekkert
við það að athuga meðan samkomulag
yrði um innihald frumvarpsins. En
ffumvarp sem sett er fram í algjörri
andstöðu við alla verkalýðshreyfing-
una er ekki líklegt til að auðvelda
kjarasamninga.“
Ríkisstjórnin hefur sterkan þing-
meirihluta og getur því komið hvaða
frumvarpi sem er í gegnum þingið, en
Benedikt bendir á að eftirleikurinn gæti
orðið henni erfiður. ,Eög sem stangast
gjörsamlega á við vilja meirihluta
þeirra sem eiga að búa við þau em ónýt
lög. Þau nýtast ekki í framkvæmd. seg-
ir Benedikt. „Ef frumvarpið verður
samþykkt eins og það hggur fyrir í dag
þá er augljóst að stór hluti af vinnunni
við gerð næstu kjarasamninga fer í að
ná réttindunum aftur,“
Benedikt segir að ríkisstjómin sé nú
að gera hveija atlögunni á fætur ann-
arri að alþýðu landsins. „Mér sýnist að
þær atlögur ekki ætla að taka enda í
bráð.“
Kieslowskis
minnst
„Kvikmyndir em miklu frumstæðari
en bókmenntir, en þær era ekki léleg-
ur miðill ef maður vill segja sögu - og
það langar mig stundum,“ sagði pólski
kvikmyndagerðarmaðurinn Krzysztof
Kieslowski eitt sinn í viðtali. Hann
sagði líka að bestu kvikmyndagerðar-
menn heimsins væm annað hvort
dauðir eða hættir að gera myndir.
Hvort tveggja á við um Kieslowski;
hann lýsti því yfir fyrir einu og hálfu
ári að hann væri hættur að gera mynd-
ir og andaðist í liðinni viku í Póllandi.
Evrópsk kvikmyndagerð - og evrópsk
menning - sér að baki miklum meist-
ara, eins og lesa má í miðopnu Al-
þýðublaðsins í dag. Þar minnast
nokkrir kvikmyndamenn snillingsins
sem heillaði þá, til dæmis með mynd-
unum sem hann byggði á boðorðun-
um tíu, Tvöföldu lífi Veróníku og þrí-
leiknum sem hann spann út frá
frönsku fánalitunum, Bláum, Rauðum
og Hvítum.
Sjá miðopnu.
- segir í ályktun miðstjórnar ASÍ. Forseti ASÍ segir rík-
isstjórnina gera hverja atlöguna á fætur annrri að al-
þýðu landsins.
Ég vænti þess að þetta sé fremur
gert af vanþekkingu en mannvonsku;“
sagði Benedikt Davíðsson forseti ASÍ í
samtali við Alþýðublaðið í gær um
frumvarp stjómvalda um breytingar á
lögum um stéttafélög og vinnudeilur.
„Mér sýnist reyndar margt í framvarp-
inu benda til þess að það skorti nokkuð
á þekkingu á vinnurétti og almennum
samskiptaháttum og reynsluna af þeim
á undanförnum árum hjá þeim sem
hefur sett þetta saman með þessum
hætti. Það hlýtur eiginlega að vera, því
það er eina raunhæfa skýringin á því
hvemig það er saman sett. Ég endurtek
að ég vil ekki trúa því að þetta frum-
varp grundvallist á mannvonsku þeirra
sem það sömdu.“
Að loknum fundi í gær sendi mið-
stjóm ASÍ frá sér afar harðorða ályktun
þar sem hún fordæmir að stjórnvöld
skuli einhhða hafa lagt fram frumvarp-
ið á sama tíma og aðilar vinnumarkað-
arins voru í samningaviðræðum um
samskiptamál sín á milli. í ályktun ASÍ
segir að með kynningu á væntanlegu
lagaframvarpi hafi félagsmálaráðherra
slitið þeim viðræðum. Þar segir enn-
„Ef frumvarpið verður samþykkt eins og það liggur fyrir í dag þá er aug-
Ijóst að stór hluti af vinnunni við gerð næstu kjarasamninga fer í að ná
réttindunum aftur," segir Benedikt Davíðsson sem sést hér ráðfæra sig
við samstarfsfólk í ASÍ.
■ Innlend dagskrárdeild Sjónvarpsins
u msækjendu r
Sextán
Sextán umsækjendur era um stöðu
yfirmanns innlendrar dagskrárdeildar
hjá Sjónvarpinu. Utvarpsráð mun
Ijalla um umsóknimar á fundi næsta
miðvikudag en að því loknu kemur til
kasta Heimis Steinssonar útvarps-
stjóra að veita stöðuna. Umsækjend-
umir era: Agnes Johansen, dagskrár-
stjóri barnaefnis á Stöð 2, Asgeir
Valdimarsson hagfræðingur, Ásthild-
ur Kjartansdóttir kvikmyndagerðar-
maður, Bryndís Schram, fram-
kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs, Einar
Valur Ingimundarson umhverfisverk-
fræðingur, Halldór E. Laxness leik-
stjóri, Helgi H. Jónsson varafrétta-
stjóri, Helgi Pétursson markaðs- og
upplýsingastjóri, Hjálmtýr Heiðdal
kvikmyndagerðarmaður, Jón Gunnar
Grétarsson sagnfræðingur, Óli Örn
Andreasen kvikmyndagerðarmaður,
Sigurður Hr. Sigurðsson kvikmynda-
gerðarmaður, Sigurður Valgeirsson,
ritstjóri Dagsljóss, Sólveig Pálsdóttir
leikkona, Sveinn M. Sveinsson kvik-
myndagerðarmaður og Þorsteinn
Jónsson kvikmyndagerðarmaður.
■ Hervar Gunnarsson um forsetakjör hjá ASÍ
Það hefurverið rættvið mig
- verslunarmenn og iðnaðarmenn hvetja Benedikt
Davíðsson til að gefa kost á sér til endurkjörs
Jafndæg-
ur á vori
Nú eru jafndægur á vori eftir
óvenju blíðan og mildan vetur
sem flestir landsmenn þakka
sjálfsagt. Kannski er heldur
ekki laust við að fólk sé farið að
fínna örlítinn vorblæ í lofti, þótt
auðvitað kunni að gera einhver
hret. Einar Ólason Ijósmyndari
var á ferð í Vesturbænum í gær
og tók þessa mynd af manni sem
var að snyrta trjágróður í
glampandi sól.
„Ég get ekki sagt að ég hafi íhugað
framboð alvarlega, en ég get heldur
ekki neitað því að það hefúr verið rætt
við mig. En ég hef enga afstöðu tekið
ennþá,“ segir Hervar Gunnarsson, for-
maður Verkalýðsfélags Akraness og
annar varaforseti Alþýðusambands fs-
lands, en hann er einn þeirra sem hef-
ur sterklega verið orðaður við fram-
boð til forseta ASÍ.
Eins og Alþýðublaðið hefur skýrt
frá er nú mikil hreyfing innan Verka-
mannasambands íslands um að fá
Kára Amór Kárason, framkvæmda-
stjóra Ltfeyrissjóðs Norðurlands, til að
bjóða sig fram til forseta ASÍ. f sam-
talinu við Alþýðublaðið sagði Hervar
Gunnarsson að hann gerði fastlega ráð
fyrir því að hann myndi styðja Kára
Amór ef hann byði sig ffarn.
* Alþýðusambandsþing hefst í Kópa-
vogi 20. maí. Ýrnis teikn era á lofti
urn að þar vilji fylking ófaglærðra
komast til rneiri álirifa með því tryggja
sér formann ASÍ. Þá gæti komið til
átaka, enda er talið að fulltrúar versl-
unarmanna og iðnaðarmanna séu and-
snúnir því að frambjóðandi Verka-
mannasambandsins verði forseti.
Segja heimildir Alþýðublaðsins að
foringjar verslunarmanna og iðnaðar-
manna leggi nú fast að Benedikt Dav-
íðssyni, forseta ASÍ, að gefa kost á sér
til endurkjörs. Benedikt lýsti því yfir á
sínum tíma að hann rnyndi ekki sitja
nerna eitt kjörtímabil, en í seinni tíð
hafa yfirlýsingar hans í því efni ekki
verið jaftt afdráttarlausar.
Um þetta segir Hervar Gunnarsson:
„Það er náttúrlega öllum landsins lýð
ljóst að menn hafa ekki verið á einu
máli innan hreyfingarinnar. Þar af
leiðandi er ekki óeðlilegt að menn séu
að svipast um eftir kandídat sem þeir
telja að sé nærri þeim í skoðunum."
Hervar Gunnarsson: Geri fastlega
ráð fyrir að ég myndi styðja Kára
Arnór ef hann býður sig fram.