Alþýðublaðið - 21.03.1996, Qupperneq 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1996
s k i I a b o ð
c
Landsvirkjun
Hönnuður og yfirsmiður
hins íslenska flokkakerfis
Utboð
Einkasímstöðvar
Landsvirkjun óskar hérmeð eftir tilboðum í tvær
ISDN- einkasímstöðvar í samræmi við útboðsgögn
RKS-01.
I tilefni af áttræðisafmæli
Alþýðuflokksins
Til er ljósmynd á æskuheimili mínu
sem tekin var árið 1913. Ljósmyndar-
inn var franskur ræðismaður á íslandi,
André Courmont að nafni. Myndin er
í brúnum tónum og merkileg fyrir
margra hluta sakir. Til vinstri við
glugga situr maður við skrifborð, snýr
vinstri vanga í ljósmyndarann. Hann
heldur á blaði milli handanna, horfir
niður á það og les. Hann er gáfulegur,
ennið hátt og nefið beint. Eins og bros
í munnvikinu. En það er birtan sem er
svo sérkennileg, eins og hún hellist
inn um gluggann og lýsi enni, bijóst
og hendur mannsins. A myndinni er
einnig kona dökk yfirlitum með ung-
bam í fangi. Hún situr á sófa ljær ljós-
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjun-
ar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með
fimmtudeginum 25. mars 1996, gegn óafturkræfu
gjaldi að upphæð kr. 1.000 með VSK fyrir hvert ein-
tak.
Tekið verður á móti tilboðum á skrifstofu Landsvirkj-
unar að Háaleitisbraut 68, Reykjavík til opnunar
mánudaginn 15. apríl 1996, kl. 14:00. Fulltrúum bjóð-
enda er heimilt að vera viðstaddir opnunina.
Alþýðuflokkurinn
í Vestmannaeyjum
Alþýðuflokkurinn í Vest-
mannaeyjum boðar til
fundar laugardaginn 23.
mars klukkan 17.00, sem
haldinn verður á HB pöbb,
Heiðarvegi 1.
Lúðvík Bergvinsson
alþingismaður mætir
á fundinn.
Fundarefni
Þjóðmálin - Bæjarmálin -
Starfið framundan - Önn-
ur mál.
Stjórnin
Bæjarmálaráð
Alþýðuflokks
Hafnarfjarðar
Fundir bæjarmálaráðs flokksins
eru í Alþýðuhúsinu annan hvern
mánudag og hefjast kl. 20.30.
Húsið er opnað kl. 20.00.
Áfundunum eru bæjarfulltrúar,
fulltrúarstjóma og
félaga flokksins, fólk í nefndum
á hans vegum, flokksfólk og
annað stuðningsfólk.
Á þeim eru kynnt og rædd nál-
efni líðandi stundar sem og ann-
að er ástæða ertil á hverjum
tíma.
Næsti fundur ráðsins verður
mánudaginn 1. apríl.
Alþýðublaði
fyrir þá sem
stinga í stúf
Ungir jafnaðarmenn
Sambands-
stjórnarfundur
SUJ
Að þessu sinni hyggjast ungir jafnaðarmenn leggja land
undirfót og halda sambandsstjórnarfund norðan heiða,
á Akureyri. Jafnframt verða fundahöld í skólum og fyrir-
tækjum með þingmönnum flokksins.
Drög að dagskrá
Fimmtudagur:
16:00: Kappræður í Menntaskólanum milli Guðmundar
Árna Stefánssonar og Hannesar Hólmsteins Gissurar-
sonar.
Fundir í fyrirtækjum með þingmönnunum Guðmundi
Árna Stefánssyni og Lúðvíki Bergvinssyni og formanni
SUJ, Gesti G. Gestssyni.
Föstudagur:
14:00: Langferðabifreið leggur af stað frá Alþýðuhúsinu.
Fundir í fyrirtækjum.
20:30: Koma á Akureyri.
21:00: Móttaka og kvöldverður.
22:30 - Hið gróskumikla næturlíf höfuðstaðar Norður-
lands kannað.
Laugardagur:
11:00: Sambandsstjórnarfundur.
13:00-14:00: Hádegisverður.
16:00: Opinn stjórnmálafundur með þingmönnunum
Sighvati Björgvinssyni, Rannveigu Guðmundsdóttur og
bæjarfulltrúanum Gísla Braga Hjartarsyni, á veitinga-
húsinu Við Pollinn
19:00: Kvöldverður á veitingahúsinu Greifanum.
Afgangurinn af næturlífinu rannsakaður.
Sunnudagur:
13:00 Menningarferð í Listagilið undir leiðsögn Alfreðs
Gíslasonar, formanns menningarmálanefndar Akureyr-
arbæjar.
16:00: Brottför.
Verð pr. mann er einungis 3000 kr. með rútuferð og gist-
ingu. Gist verður í orlofsíbúðum. Þeir sem ætla með,
óháð því hvort þeir eru í sambandsstjórn eða ekki, skrái
sig hjá Þóru í síma 552 9244 eða 552 1979.
Hin árlega
Góugleði
Alþýðuf lokksfélags
Kópavogs
Verður haldin 29. mars klukkan 19:30.
Þeir sem vilja taka þátt og ekki hafa tilkynnt sig eru
beðnir að gera það hið fyrsta:
í síma 554 3603, 551 3790 eða 846 3753 Hreinn.
Eða í síma 564 3227, 897 3227 Baldvin
Nefndin
„Tveimur dögum eftir fæðingu
dótturinnar setti Jonas frá Hriflu
stofnþing Alþýðusambands íslands
og Alþýðuflokksins í Bárubúð.
Hann var aðalhöfundur fyrstu
stefnuskrárinnar og var frumrit af
henni með hans hendi lengi til, en
er nú glatað."
myndaranum, birtan fellur á hægri
vanga hennar og hún horfir niður á
bamið sem er vafið hvítum reifum og
umvafið birtu og móðurást. Konan og
maðurinn snúa bökum saman.
f þessari mynd má að mínu mati sjá
kjamann í h'fi afa míns og ömmu, Jón-
asar frá Hriflu og Guðrúnar Stefáns-
dóttur frá Granastöðum í Köldukinn.
Maðurinn er í forgrunni, konan í bak-
grunni, hann situr við skrifborð (penn-
inn var hans beittasta vopn) og les;
hún, móðirin htur niður að baminu -
þau snúa bökum saman.
Afi minn og amma eignuðust tvær
dætur. Sú eldri, sú sem sést á mynd-
inni, var skírð Auður eftir landnáms-
konunni djúpúðugu. Yngri dóttirin,
Gerður, fæddist þremur ámm síðar,
föstudaginn 10. mars árið 1916. Þetta
var sögulegt ár, árið þegar hið pólit-
íska flokkakerfi var að mótast, en Jón-
as frá Hriflu er talinn faðir þessa kerf-
is. Það kerfi átti sér hins vegar enga
móður. Tveimur dögum eftir fæðingu
dótturinnar setti Jónas frá Hriflu stofn-
þing Alþýðusambands íslands og Al-
þýðuflokksins í Bárubúð. Hann var
aðalhöfundur fyrstu stefnuskrárinnar
og var frumrit af henni með hans
hendi lengi til, en er nú glatað. Jónas
átti hugmyndina að því að gera Al-
þýðusambandið og Alþýðuflokkinn að
einni skipulagslegri heild, og sú skip-
an hélst í 24 ár.
Þessar hugrenningar leituðu á mig
við lestur Alþýðublaðsins 15. mars
þegar Alþýðuflokksmenn gátu í engu
þessa „yfirsmiðs“ síns, eins og núver-
andi formaður hefur nefnt Jónas, á átt-
ræðisafmæli flokksins.
Gerður Steinþórsdóttir.
r
Island-Palestína
heldur kaffifund
Félagið Island-Palestína efnir til
kaffifundar laugardaginn 23. mars á
veitingahúsinu Lækjarbrekku. Gestur
fundarins er Sigríður Soebech hjúkr-
unarfræðingur, en hún er nýkomin
heim ffá Palestínu þar sem hún starf-
aði í rúmt ár á vegum alþjóða Rauða
krossins. Sigurbjörg hafði umsjón
með stuðningi Rauða krossins við
heilsugæslu Palestínumanna og heim-
sótti í starfi sínu ekki færri en 190
heilsugæslustöðvar á Vesturbakkan-
um. Sigurbjörg mun segja frá starfi
sínu og viðhorfum og sýna myndir
sem teknar voru á meðan dvöl hennar
stóð. Fundurinn er öllum opinn og
hefstklukkan 15.30.