Alþýðublaðið - 02.04.1996, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 02.04.1996, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o ð a n Að rækta kálgarðinn sinn gæfa af einhveiju viti, hreinlega af því að það gefst ekki tími til alvöru um- ræðna. Með málefnahópum er verið að gera tilraun til þess að flokksmenn geti komið að málefnastarfi fyrir flokksþing og þannig haft allt um það að segja hvaða stefna verður tekin í hverjum málaflokki. Því vil ég hvetja alla sem áhuga hafa á málefnastarfi flokksins að koma nú til starfa og mæta á þá fundi sem auglýstir verða. Flokksfélögin eru mörg hver blóm- leg og sæl, en þó er víða pottur brot- inn í þeim efnum. Við þurfum að taka höndum saman um það að efla þessi félög með því að koma til starfa og safna félögum og fá fólk til að taka þátt í starfmu. Þama skiptir líka meg- inmáli að aðalskrifstofan í Reykjavík rakni úr rotinu og fari að þjóna flokks- félögum um landið eins og henni hef- ur verið ætlað að gera. Flokksmenn á hveijum stað þurfa líka að sýna frum- kvæði í þvf að hefja málefhastarf í sín- um bæjarfélögum fyrir næstu kosning- ar. Flokkurinn er jú auðvitað ekkert annað en fólk sem hefur þá hugsjón að gera megi þjóðfélagið eða bæjarfélag- ið örlítið betra en það er í dag. Okkur hefur svolítið hætt til þess að benda hver á annan og segja að allt sé öðrum að kenna og víst er að við höfum þann valkost að vera alltaf í fýlu, en við get- um líka ákveðið að taka til. Við höfum tímann fram að næstu kosningum til þess að byggja flokkinn upp að nýju og þann tfma þarf að nota vel. Og þó að ég og mínir líkar viljum líka að flokkurinn heiji nú þegar náið samstarf við aðra jafnaðarmanna- flokka er ekki þar með sagt að ekki eigi að byggja Alþýðuflokkinn upp. Það er nefnilega svo einfalt að ef við vinnum okkar eigin heimavinnu vel, þá verðum við sterkari hvort sem við verðum einn flokkur eða hluti af stærri heild. Við skulum þess vegna litlar áhyggjur hafa af því hvað aðrir eru að gera heldur einbeita okkur að okkar eigin starfi. Og ef við ræktum kálgarð- Og þó að ég og mínir líkar viljum líka að flokkurinn hefji nú þegar náið samstarf við aðra jafnaðarmannaflokka er ekki þar með sagt að ekki eigi að byggja Alþýðuflokkinn upp. Það er nefnilega svo einfalt að ef við vinnum okkar eigin heimavinnu vel, þá verð- um við sterkari hvort sem við verðum einn flokkur eða hluti af stærri heild. inn okkar vel munum við fá góða upp- skera - svona einfalt er það. skeru úr honum, en ef við sjáum ekki ________________________ vel um hann munum við ekkert upp- Höfundurerfélagsfræðingur. verið rætt undanfarið og vekur það alltaf jafn mikla furðu hversu dauflegt það er< Skipulagið virðist einhvern veginn áldrei virka alminnilega og nefni ég síðasta flokksstjórnarfund sem dæmí um það. Sá fundur var illa boðáðúr (sérstaklega fyrir lands- byggðarfólk) og illa kynntur enda var mætingin grátleg, sérstaklega í ljósi þeirrar mikilvægu umræðu sem þar fór fram að sögn þeirra sem mættu. En þrátt fyrir að ýmislegt megi betur fara er engin ástæða til þess að leggja árar í bát og einhvem tíma var sagt „eigi skal gráta Björn bónda heldur safna liði“. Það er nefnilega kominn tími til þess að flokksmenn allir - allir sem einn - fari að koma starfsemi flokksins af stað á nýjan leik. Nú stendur fyrir dyrum að hefja starf í málefnahópum flokksins þar sem stefna flokksins verður væntan- lega mörkuð. Þessir málefnahópar em mikilvægt skref í áttina að því að virkja hinn almenna flokksmann til þess að koma að málefnastarfi annars staðar en á flokksþingi. Það hefur nefnilega loðað við þennan flokk að á flokksþingi séu birt drög að stefnuskrá sem síðan ekki gefst tími til að gaum- Nú er að verða liðið ár frá síðustu kosningum og um leið ffá því að Al- þýðuflokkurinn hóf stjómarandstöðu sína. Núna þegar flestir flokksmanna hafa sleikt sár sín er kominn tími til að vinna að því að byggja þennan litla en ágæta flokk upp frá gmnni. Flokks- starf Alþýðuflokksins hefur nokkuð Pallborðið | Hreinn Hreinsson skrifar Stúdentablaðið er með fjörlegra móti um þessar mundir, enda vélar þar um ungt fólk sem sumt hefur sótt sér reynslu í blaðamennsku á almennum markaði. í síðasta tölublaði birtist meðal annars grein eftir ungan mann sem kallar sig einfaldlega Þórarin og mun hafa verið helst- ur frammámaður í Haka, einhvers konar brand- araframboði sem sem barðist við Vöku og Röskvu í síðustu stúd- entaráðskosningum. Segir hann að sér þyki ágætis árangur að hafa fengið 118 atkvæði í kosningunum, en játar um leið að maðkur hafi verið í mysunni. Segist hann í fyrsta lagi hafa falsað sex undirskriftir á framboðslistanum, í öðru lagi hafi flestir sem voru á listanum einnig skrifað sig á stuðnings- mannalista, en það mun vera óheimilt. í þriðja lagi segist Þórarinn hafa verið með áróður á kjör- stað, í fjórða lagi hafi hannlogið upp að kosningavaka sín yrði hald- in á Hótel íslandi og í fimmta lagi segist hann lik- lega hafa brotið ein- hverjar siða- regiur þegar hann sendi tölvu- póst á „heilu notenda- hópana". En Þórarinn, sem virðist nánast vera tukthústækur af þessu að dæma, segist áfram munu svífast einskis til að ná sínu fram... Vitað er að eigendur Helgarpóstsins, sem raunar er fremur á huldu hverjir eru, hafa mikinn áhuga á að losna við blaðið með einum eða öðrum hætti, þó án þess að þeir bíði af fjár- hagstjón. Fáir hafa hins vegar áhuga á að kaupa,en þó hafa borist fregnir um að einn mað- ur hafi nýskeð lýst áhuga á eignast blaðið. Var það Ástþór Magnússon, friðar- postuli í samtökunum Friður 2000. Ekki er vitað hvað Ástþór ætlaðist fyr- ir með blaðið - hvort hann ætlaði til dæmis að breyta nafni þess í Frið- arpósturinn... „Strákar - verið þið algjörlega hreyfingarlausir og látið ekki háfana bærast! Og í guðanna bænum ekki gera neitt ógnandi. Þeir vilja sennilega bara kíkja á krukkurnar okkar og það er best fyrir okkur að leyfa þeim það..." m e n n Við viljum ekki þessa viðskiptavini sem hætta hundruðum þúsunda eða milljónum. Siguröur Baldursson hjá íslenskum getraunum. DV á laugardag. Það eru hins vegar engar konur í félaginu þótt við höfum mjög gaman af konum - sumir meira en aðrir. Ásmundur Friðriksson einn af stofnfélögum Hrekkjalómafélagsins í Vestmannaeyjum. DV á laugardag. Þetta er svona Michelle Pfeiffer - týpan að syngja litlu standardana og stundum eru Las Vegas - dansarar með okkur eins og í bíómyndunum. Anna Mjöll Ólafsdóttir söngkona I Helgarblaöi DV. Ég ákvað að taka mér nafn sem sýndi fárán- leika þessara laga. Ég var eiginlega búinn að ákveða að heita Ljótur Boili eða Ljótur Drengur en var bent á að það gæti mögulega komið niður á börnum mínum. Eilífur Friður Edgarsson. Morgunblaðið á sunnudag. Mér er sýndur mikill heiður, þetta er alveg ótrúleg tilfinning, ég hef aldrei upplifað annað eins. Aðalheiður Millý Steindórsdóttir nýkjörin fegurðardrottning Suðurlands. DV í gær. Ríkisstjórnin hefur sigað mannýgum tarfi á varnarlaus gamalmennin í verkalýðsforystunni. Einar S. Guðmundsson nemi í DV í gær. fréttaskot úr fortíd fimm a förnum vegi Hvað gerðist á föstudaginn langa? Erna Oladóttir nemi: veit það ekki. Elín Jóhannsdóttir nemi: Ég hef ekki hugmynd um það. Olafur Örvar Ólafsson nemi: Þá var Jesú krossfestur. Einar Ingi Hreiðarsson nemi: Jesú var krossfestur á Golgatahæð. Sigurjóna Frímann snyrti- fræðingur: Þeir krossfestu Jesú á einhverri hæð. Hérinn skaut veiðimanninn I fyrsta skifti í sögu veiðimenskunnar hefir það komið fyrir, að héri skaut veiðimanninn. I borginni Keoel í Ungverjalandi bjó veiðimaður nokk- ur. Dag einn brá hami sér á veiðar, og ekki leið á löngu áður en hann skaut héra. Hann stakk héranum í veiði- tösku sína, setti byssuna á öxl sér og hélt áfram. En þá bar svo við, að hér- inn sparkaði með afturfótunum í dauðateygjunum og hitti gikkinn á byssunni. Skotið hljóp af og varð veiðimanninum að bana. Alþýðublaðið sunnudaginn 27. janúar 1935

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.