Alþýðublaðið - 02.04.1996, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 02.04.1996, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996 ALÞÝÐUBLAÐK) 5 m a m ó t Bláfátækir vatnsberar, karl og kona, draga vatnsvagn upp Bókhlöðustiginn í Reykjavík. Lögin komu eins og sending af himnum ofan fyrir fátækt fólk. tryggingar í 60 ár, segir dr. Bjarni Jónsson, en hann starfaði sem læknir ffá því árið 1936 og allt íram á þetta ár : „Lögin komu eins og sending af himnum ofan fyrir fátækt fólk. Al- menningur gat allt í einu leyft sér að leggjast inn á sjúkrahús, án þess að verða öreigar. Fólk þurfti ekki lengur að hika við að fara í bráðnauðsynlegar aðgerðir og það gat í fyrsta sinn hik- laust leitað til læknis hvenær sem var.” Stærsta breytingin sem komst til ffamkvæmda sama ár varðaði sjúkra- tryggingar. Nú var skylda að stofna sjúkrasamlög í öllum kaupstöðum Deilur um Sjúkrasamlag Reykjavíkur Sjúkrasamlög voru til í ýmsum bæjarfélögum, en ekki var skylduaðild að þeim og til þess að geta notið nokkurra réttinda þurftu menn að vera aðilar. Árið 1928 vom sjúkrasamlög á öllu landinu aðeins níu talsins. Þátttaka í þeim var mjög lítil og vom þá 13% Reykvíkinga 15 ára og eldri, en aðeins 2% allra lands- manna á sama aldri, aðilar að sjúkrasamlagi. Samkvæmt hinum nýju alþýðutryggingalögum átti að kjósa nýja stjóm sjúkrasam- laganna. Ný stjóm Sjúkrasamlags Reykjavíkur var kosin í febrúar 1936. Bæjarstjóm kaus stjómina og náðu tveir alþýðuflokksmenn og þrír sjálfstæðismenn kjöri. Alþýðublaðið sló því þá upp á for- síðu að Jóni Pálssyni, „brautryðjanda sjúkrasamlaganna” hefði verið bolað burt, en í stað hans valinn maður sem vildi samlagið feigt. Sá maður var dr. Helgi Tómasson. Hann var á þessum tíma formaður Læknafélags Reykjavíkur og þótti Vilhjálmi S Vil- hjálmssyni (VSV) það alveg sérstaklega óviðeigandi að formaður félags sem nýlega hefði átt í „erfiðum samningum” við Sjúkra- samlagið væri settur í stjóm þess. í inngangi greinar VSV segir að Helgi vilji að Læknafélagið hafi öll ráð sjúkra manna í hendi sér, síðan segir frá því að Helgi hafi á fundi Læknafélags Reykjavíkur lýst þeirri hugmynd, að Læknafélagið yfirtæki Sjúkrasamlag Reykjavíkur og færði síðan kerfið út eftir þeim línum sem seinna virtust heppilegar. Þetta kallar VSV kolsvart afturhald og þrátt fyrir að Helgi í viðtali við blaðið neiti því að ætla að eyðileggja sjúkrasamlagið innan frá, er það niðurstaða VSV að menn þurfi að vera við öllu búnir enda segir hann: “Það er kunnugt að Sjálfstæðisflokkurinn er í raun og vem and- vígur öllum alþýðutryggingum, en það er jafnframt orðið ljóst að hann þorir ekki opinberlega að helja baráttu gegn þeim. Ætlar hann nú að beita lævíslegum aðferðum til að eyðileggja þessa einu grein trygginganna ... sjúkratrygginguna, sem hann hefur afl til að eyðilegga af því að hann hefur meirihluta í stjóm Samlagsins?” Þrátt fyrir spumingarmerkið og það að Helgi Tómassons neiti því í viðtali að vilja Sjúkrasamlagið feigt, er greinilegt að VSV trúir öllu illu upp á Sjálfstæðisflokkinn í þessu sambandi. Ekki tókst sjálfstæðismönnum, þrátt fyrir meirihluta í stjóm Samlags- ins að koma því á kné - hafi sú verið ósk þeirra. Samlagið lifði allt þar til það, eins og önnur sjúkrasamlög landsins var lagt niður og starfsemi þess færð undir Tryggingastofnun árið 1990. Dóttir Helga, Ragnhildur Helgadóttir, varð síðar heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún var árið 1974 Alþýðutryggingalögin voru ekki aðeins bylting í réttindum íslensks alþýðufólks, heldur einnig pólitískt kraftaverk unnið á erfiðum tímum. fyrsti flutningsmaður fmmvarps til laga sem veittu öllum útivinn- nandi konum í fyrsta sinn rétt til greiðslna í fæðingarorlofi. landsins og allir íbúar þeirra 16 ára og eldri urðu að tryggja sig hjá sínu sam- lagi. Síðar voru svo stofnuð sjúkra- samlög í sveitum þannig að allir urðu sjúkratryggðir. Nokkuð sem nú þykir sjálfsagt. I fyrstu var reyndar sú tak- mörkun að aðeins þeir sem höfðu lægri árstekjur en 4.500 kr. gátu notið tryggingar úr kerfinu. Réttindin voru því tekjutengd, sem er athyglisvert í ljósi umræðna samtímans um tekju- tengingar ýmissa réttinda frá Trygg- ingastofnun. Réttindi til slysatrygg- inga urðu víðtækari og komið var á lífeyristryggingum fyrir alla. Þó að alþýðutryggingatrygginga- lögin árið 1936 væru byltingarkennd og bættu réttindi alþýðufólks veru- lega, þá voru þau auðvitað ekki full- komin. Á næstu árum átti sér stað veruleg endurskoðun laganna. Mesta breytingin varð með lögum um al- mannatryggingar sem voru samþykkt árið 1946. Með þeim var unnið mikið samræmingarstajf. Þetta var á tímum nýsköpunarstjórnarinnar svonefndu, sem var undir forsæti Ólafs Thors. Að henni stóðu Sjálfstæðisflokkur, Al- þýðubandalag og Alþýðuflokkur. Þessi stjóm setti sér m.a. það markmið I þessu húsi, Alþýðuhúsinu, hóf Tryggingastofnun starfsemi sína fyrir réttum 60 árum. Þar leigði hún fjögur herbergi, en í árslok árið 1936 störfuðu tíu manns hjá stofn- uninni. Nú starfa 190 manns hjá Tryggingastofnun í Reykjavík, auk þess sem umboð hennar eru hjá 25 sýsluskrifstofum um land allt. að koma á almannatryggingum, sem væru þá víðtækari en þær alþýðu- tryggingar sem fyrir vom. í stjómar- sáttmála hennar segir m.a. að ríkis- stjómin hafi: „ákveðið að komið verði á á næsta ári svo fullkomnu kerfi almannatrygg- inga, sem nái til allrar þjóðarinnar, án tillits til stétta eða efnahags, að Island verði á þessu sviði í fremstu röð ná- grannaþjóðanna.” Hvorki meira né minna. Þessi orð og það frumvarp sem fylgdi í kjölfar þeirra era samin á tímum stríðsgróða og uppgangs í samfélaginu. Sá metn- aður sem í þeim felst og sú sátt um að veita öllum tryggingar, sem í frum- varpinu fólst, hélst allt fram á áttunda áratuginn. Hv Öll fjárlögin í almanna- tryggingar? Það var þó ekki í raun íyrr en í upp- hafi þessa áratugar, að menn hér á landi gera sér ljóst að ekki er hægt að bæta endalaust við réttindin. Velferðarkerfið, eins og flest önnur kerfi, felur í sér innbyggða tilhneig- ingu til vaxtar. Það kostar alltaf meira og meira. Ekki aðeins vegna þess að réttindi samkvæmt því verða æ yfir- gripsmeiri, heldur líka vegna þess að öldruðum og öryrkjum fjölgai' stöðugt, læknavísindin verða líka æ fullkomn- ari og alltaf koma fram ný lyf og ný tæki sem borga þarf af sjúkratrygging- um. Auðvelt væri að nota ekki bara 22,8% af fjárlögum, einsog gert er ráð fyrir, fyrir árið 1996, heldur fjárlögin öll og meira til, í almannatryggingar. En það gengur auðvitað ekki. Þess vegna hefur þurft að spara í velferðarkerfinu. Skera niður og veita minna fé til almannatrygginga. Því miður hefur sú viðleitni allt of oft falist í því að rjúka upp með látum þegar setja þarf saman fjárlög, skera niður hér, hætta greiðslu þar, allt án nokkurar heildarsýnar. Arangurinn hefúr orðið sá að almannatrygginga- lögin hafa orðið flóknari og flóknari með hverju árinu sem liðið hefur. Þau þyrfti að einfalda. Forsenda slíkrar vinnu er að menn geri sér grein fyrir því hvert markmið almannatrygging- annna á að vera. Eiga þær að vera fýr- ir alla, án tillits til stéttar eða efhahags, eins og nýsköpunarstjórnin lofaði þjóðinni eða eiga þær fýrst og fremst að hjálpa þeim sem þurfa mest á hjálp að halda, ekki tryggja öllum aðgang, án tillits til tekna eða þjóðfélagsað- stæðna, eins og Sighvatur Björgvins- son, þáverandi heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra, sagði í viðtali við tímaritið Almannatryggingar haustið 1994? Nauðsynlegt er að setjast niður og ákveða hver framtíðarstefna íslenskra almannatrygginga á vera. Að slíkri forvinnu lokinni ætti að vera hægt að semja hið ágætast frumvarp um ný al- mannatryggingalög, en eins og Karl Steinar Guðnason, forstjóri Trygg- ingastofnunar ríkisins, segir í viðtali hér til hliðar: „Almannatryggingalög era aldrei fullsamin. Þau verða að taka mið af aðstæðum og breytast í takt við lifandi samfélag.” ■

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.