Alþýðublaðið - 15.05.1996, Page 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ1996
tmBUBID
21111. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Króatía er ekki
Evrópuríki
Evrópuráðið í Strassborg stendur nú frammi fyrir því hvort
fresta eigi aðild Króatíu að ráðinu. Reyndar ætti slík ákvörðun
ekki að vefjast fyrir neinum: Króatía er á hraðri leið til einræðis,
mannréttindi eru léttvæg metin, frelsi íjölmiðla fótum troðið og
leikreglur lýðræðisins þverbrotnar. Þrátt fyrir þetta kemur ekki á
óvait þótt aðild Króatíu verði samþykkt - linkind Evrópu gagn-
vart glæpamönnum Balkanskagans er löngu kunn.
Franjo Tudjman forseti Króatíu leysti nýverið upp lýðræðislega
kjörna borgarstjóm í höfuðborginni Zagreb, þarsem pólitískir
andstæðingar hans voru við völd, og freistar þess nú að skrum-
skæla kosningareglur til að tryggja að flokksmenn hans komist til
valda. Áður hafði Tudjman látið smíða fráleitar kosningareglur
fyrir þing landsins, beinlínis í því skyni að tryggja eigin völd. Þá
hefur Tudjman frá upphafi valdaferils síns þrengt mjög að fjöl-
miðlum, og er nú svo komið að króatískir fréttamenn segja að
meira frelsi hafi ríkt í tíð Júgóslavíu sálugu en í Króatíu nútímans
- jafnvel í Serbíu er tjáningarfrelsi á hærra stigi.
Franjo Tudjman barðist með sveitum Títós í seinna stríði. Þá
geisaði vitfirringsleg borgarastyrjöld í Júgóslavíu, meðfram því
sem sveitir kommúnista börðu á hemámsliði nasista. Tudjman
var einn yngsti hershöfðinginn í Alþýðuher Júgóslavíu en var
fangelsaður um 1970 fyrir að kynda undir elda þjóðemishyggju í
Króatíu. Hann hafði sem hemaðarsagnfræðingur meðal annars
skrifað um og afneitað þeirri helför sem króatískir fasistar stóðu
fyrir á hendur Serbum og gyðingum í heimsstyijöldinni. Króatía
var þá leppríki Þjóðveija, og í landinu vom reknar einhverjar við-
urstyggilegustu útrýmingarbúðir Evrópu.
Franjo Tudjman hefur verið í fararbroddi þeirra sem hafa
skmmskælt söguna og afneitað staðreyndum um glæpi króatískra
fasista. Það er til marks um algera ósvífni forseta Króatíu að ný-
verið lagði hann til að líkamsleifar Ante Pavelic, leiðtoga hinnar
fasísku Króatíu, yrðu grafnar upp og jarðsettar í króatískri moldu.
Því er einungis hægt að jafna til þess, að þýskir ráðamenn vildu
heiðra minningu Adolfs Hitlers. Jafnframt lýsti Tudjman yfir því
að flytja ætti jarðneskar leifar Títós frá Belgrad til Króatíu, enda
hefði hann verið einn mikilhæfasti stjómmálamaður króatískrar
sögu.
Ást Tudjmans á lýðræði er álíka lítil og virðing hans fyrir sann-
leikanum. Allar götur síðan stríðið í Júgóslavíu hófst fyrir réttum
fimm ámm hefúr Tudjman leikið tveimur skjöldum. Á sama tíma
og Króatar og Serbar börðust átti hann leynifundi með Slobodan
Milosevic, forseta Serbíu, þarsem þeir lögðu á ráðin um skiptingu
Bosmu-Herzegóvinu. Tudjman beitti sér fyrir bandalagi múslima
og Króata í Bosrnu, en notaði fyrsta tækifæri til að stinga banda-
menn sína í bakið. Króatar sem sekir em um stríðsglæpi þurfa
ekki að óttast um sinn hag: þeir em verðlaunaðir á maigvíslegan
hátt og auglýstir upp sem hetjur.
Þegar Slóvenía og Króatía, tvö af sex lýðveldum Júgóslavíu,
lýstu yfír sjálfstæði sumarið 1991 bundu margir vonir við að lýð-
ræði og almenn velmegun yrði hlutskipti þjóðanna, þótt þær
þyrftu að kaupa frelsi fyrir blóð. Slóvenar hafa notað tímann vel,
lífskjör fara batnandi og mannréttindi em virt í hvívetna. Öðm
máli gegnir um Króatíu. Þar situr fasisti í forsetastóh; maður sem
afheitar voðaverkum sögunnar fyrir hönd þjóðar sinnar og virðir
ekki gmndvallarmannréttindi. Meðan svo háttar til á Króatía enga
samleið með þeim ríkjum Evrópu sem kenna sig við frelsi og
lýðræði. ■
Er Roger Moore
aö leika Ólaf Ragnar?
Víkurblaðið á Húsavík er með
fjörlegustu blöðum landsins. í nýj-
asta tölublaðinu skrifar dálkahöf-
undurinn Víkur-Skuggi um forseta-
málin og Ólaf Ragnar, og er ekkert
að skafa utan af hlutunum. Við
gluggum í pistil Víkur-Skugga en
lítum svo á grein Hjörleifs Gutt-
ormssonar um sfldveiðisamninginn.
Víkur-Skeggi segir:
„Víkur-Skugga finnst voðalega erf-
itt að geta ekki haldið áfram að gagn-
rýna fólk sem ekkert hefur skánað.
Eins og til dæmis fólk sem er í fram-
boði til forseta og líklegt er að nái
kjöri. Þannig er það orðið nánast von-
laust að sproksetja Ólaf Ragnar
Gnmsson í ræðu og riti eftir að hann
mældist með 70 prósent fylgi til for-
setaembættis.
Ef einhver saklaus vinstrimaður og
samheiji Ólafs í pólitík leyfir sér að
minnast á það að Ólafur sé einhver
mesti tækifærissinni í íslenskri pólitík,
frekjuhundur í fjölmiðlum til margra
ára og strigakjaftur á þingi, þá um-
hverfast alræmdir frjálshyggjumenn
og segja: Svona tölum við ekki um
mann sem er að verða forseti!
Hvers vegna ekki? Ólafur Ragnar er
nákvæmlega sami maðurinn og þegar
meirihluti þjóðarinnar úthúðaði hon-
um og hans litla flokki uppstyttulaust,
og leggur einmitt áherslu á það sjálfur
að hann hafi ekkert breyst. Ef þorri
þjóðarinnar taldi ástæðu til að tala illa
um Ólaf fyrir nokkrum mánuðum, þá
eru þær ástæður enn fyrir hendi.
Hinvegar er það ekki rétt hjá Ólafi
að hann hafí ekkert breyst, því hann
hefur að minnsta kosti breytt um stfl.
Hann þótti aldrei tiltakanlega kirkju-
rækinn, en situr nú stíft í kirkjum þeg-
ar fjölmiðla er von. Og anti-sportistinn
er farinn að mæta glaðhlakkalegur á
boltaleiki. Og sanniði til að þegar for-
setaframbjóðendur ntunu leiða saman
hesta sína í sjónvarpi, þá kemur virki-
lega í Ijós að Óli hefur breytt um stfl.
Hingað til hefur hann vaðið yfir sér
hógværari og prúðari viðmælendur í
umræðuþáttum, hunsað stjórnendur
og haldið orðinu endalaust af dæma-
lausum frekjugangi. Sem forsetafram-
bjóðandi verður hann kurteis, tillits-
samur og fágaður í umræðuþáttum og
leyfir keppinautum sínum að skjóta
inn orði ef þeir óska þess.
Nei, skoðanakannanir sýna að Ólaf-
ur Ragnar er kominn með óvæntan
geislabaug. Og maður veit ekki lengur
hvort Ólafur er að leika Dýrling, Ro-
ger Moore að leika Ólaf eða yfirleitt
hver er að leika á hvem og hvem skal
kjósa!“
Sýnd veiði en ekki gefin
Hjörleifur Guttormsson skrifar
forystugrein í Austurland, málgagn
Alþýðubandalagsins þar eystra.
Þingmaðurinn er ekki par hrifinn
af sfldveiðisamningnum og segir:
„Samningurinn sem utanríkis- og
sjávarútvegsráðherra undirrituðu í
Ósló 6 maí á eftir að verða afar um-
deildur. Með honum er áætlaðri 1100
þúsund tonna veiði á þessu ári skipt
milli fjögurra landa þannig að í hlut
íslands koma 190 þúsund tonn eða
sem svarar um 17 prósentum af heild-
inni en í hlut Norðmanna kom um 63
prósent. Ekki fer milli mála að sam-
komulag var innsiglað nú eingöngu
vegna þess að Islendingar og Færey-
ingar drógu einhliða úr kröfum sínum
eða sem nam 75 þúsund tonnum.
Því er haldið fram af ráðherrum að
samningur sem fylgir aflaskiptingunni
í formi bókunar geti leitt til þess að
hlutur Islendinga eigi eftir að hækka
til muna, ef síldin fer að veiðast í ís-
lenskri lögsögu. Það er því miður sýnd
veiði en ekki gefin þar eð orðalag
bókunarinnar er bæði tvírætt og óljóst.
Því er hætt við að 17 prósent aflahlut-
deildin geti orðið harla lífseig, þótt
auðvitað reyni íslendingar að hífa
hana upp á við eftir bestu getu í fram-
tíðinni. Ljóst er að til lengri tíma litið
skiptir hvert prósent sem gefið var eft-
ir í Ósló um helgina miklu máli.
Alveg er eftir að koma böndum á
síldveiðar Evrópusambandsins og
engan veginn víst að það reynist jafn
auðvelt og ráðherramir gáfu í skyn við
heimkomu. Af þeim sökum getur
heildarveiði úr stofninum átt eftir að
fara mun lengra yfir æskileg mörk en
samkomulag landanna fjögurra felur í
sér.
Einn versti agnúinn á samningnum
er síðan það ákvæði sem heimilar
Norðmönnum og Rússum sfldveiðar
innan íslenskrar fiskveiðilögsögu.
Þannig mega Norðmenn í ár veiða allt
að 127 þúsund lestir í lögsögu okkar
og Rússar 5 þúsund tonn án þess að
um gagnkvæman veiðirétt sé að ræða.
Fyrir lá samkvæmt Jan Mayen samn-
ingnum frá 1980 að við áttum rétt á
„sanngjörnum hlut“ í síldveiðum í
lögsögu Jan Mayen og áttum því ekki
nú að þurfa að kaupa fullan aðgang
þar dýru verði. Svo er að sjá að þetta
hafi verið mikið feimnismál hjá ráð-
herrunum, því að þess var í engu getið
á fundi þeirra með utanríkismálanefnd
Alþingis fyrir utanför þeirra síðastlið-
inn laugardag.
Auðvitað felast í samningnum já-
kvæðir þættir enda enginn ágreiningur
um það milli flokka eða stjórnar og
stjómarandstöðu að leita bæri samn-
inga ef viðunandi flötur fyndist. Það
er hins vegar mat flestra í stjómarand-
stöðu svo og samtaka útgerðarmanna
og sjómanna að hér hafi íslensk stjóm-
völd gengið lengra en réttlætanlegt gat
talist og að leita hefði átt betra sóknar-
færis síðar. Vafalítið munu stjómar-
flokkar tryggja samningnum meiri-
hluta á Alþingi og síðan verður það
reynslan sem sker úr um hvort hér var
eðlilega á málum haldið." ■
5 . m a
IHann þótti aldrei tiltakanlega kirkjurækinn, en situr nú stíft
í kirkjum þegar fjölmiðla er von. Og anti-sportistinn er farinn
að mæta glaðhlakkalegur á boltaleiki.
Atburðir dagsins
1718 Lögfræðingur í Lundún-
um fær einkaleyfi á vélbyssu.
1800 Georg III Englandskóngi
sýnt misheppnað banatilræði.
1941 Alþingi samþykkir að
fresta þingkosningum um allt
fjögur ár vegna hernámsins.
Vilmundur Jónsson þingmaður
Alþýðuflokksins sagði af sér
þingmennsku vegna þessa.
1972 George Wallace rfkis-
stjóri í Alabama skotinn fimm
sinnum af tilræðismanni, en
lifði af. 1987 Bandaríska leik-
konan Rita Hayworth deyr.
1987 Bandaríski leikarinn John
Travolta kemur til íslands
ásamt níu manna fylgdarliði.
1988 Sovétmenn byija að flytja
herafla sinn burt frá Afganist-
an.
Afmælisbörn dagsins
Frank Baum 1856, bandarísk-
ur höfundur, kunnastur fyrir
Caldrakarlinn í Oz. James
Mason 1909, bandarískur leik-
ari. Mike Oldfield 1953,
breskur tónlistarmaður.
Annálsbrot dagsins
Tvær konur urðu sér að skaða,
önnur stakk sig dauða, en hin
skar sig á háls. Einn drengur
hengdi sig á Vestfjörðum.
Seiluannáll 1658.
Sigur dagsins
Hvað er oss nauðsynlegt til sig-
urs? Dirfska, dirfska, dirfska.
Danton.
Þögn dagsins
Engi er allheimskur, ef þegja
má. Grettis saga.
Málsháttur dagsins
Eftir mörgu rennur refur.
Orð dagsins
Margoft tvítugur
meira hefur lifað
svefnugum segg,
er sjötugur hjarði.
Jónas Hallgrímsson.
Skák dagsins
Finnski stórmeistarinn Heikki
Westerinen hefur marga hildi
háð á löngum ferli. Hann hefur
aldrei komist í fremstu röð, en
hinsvegar stundum hampað
þeim vafasama titli að vera
stigalægsti stórmeistari í heimi.
Westerinen, sem er afar smá-
vaxinn og strangur á svip ein-
sog geðstirður bamaskólakenn-
ari, er samt enginn auli og hef-
ur stundum sigrað okkar menn.
En hann er í hlutverki fómar-
lambsins í skák dagsins gegn
Friðrik Ólafssyni. Skákin var
tefld á Reykjavíkurskákmótinu
fyrir 20 árum: Friðrik hefur
svart og á leik.
Svartur leikur og vinnur.
1. ... Hg4! 2. Rxc5? Örþnfa-
ráð. 2. ... Bxc5 og hvítur gafst
upp. Eftir 3. hxg4 Dh6+ 4. Rh2
Bd6 5. Dxd4+ f6 6. f4 Bxf4
verður ekki frekari vörnum
komið við.