Alþýðublaðið - 15.05.1996, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
framboð & f iármöqnun
Næsti forseti lýðveldisins gæti
hæglega verið kostaður af tveim-
ur til þremur stórfyrirtækjum - án
þess að almenningur hefði hug-
mynd um það.
Hvað sem öllu tali um þúsund ára
Alþingi íslendinga líður flokk-
umst við vart undir þroskað lýð-
ræðisríki með engin lög um fjár-
reiður flokkanna eða upplýsinga-
skyldu um framlög til þeirra.
Það skiptir engu máli hvaða hlut-
verk forsetinn kýs sér, héraðs-
höfðingi eða farandsendiherra, ef
hann er inn við beinið aðeins
leiguliði.
máttu veita fjárstuðning. Þá var og
þak á þeirri upphæð sem frambjóð-
andinn sjálfur mátti nota í eigin
kosningabaráttu. Þá gerðu lögin ráð
fyrir opinberum framlögum til fram-
bjóðenda í forsetakosningum, en
þeirra var aflað með því að skatt-
greiðendur merktu við reit í skatt-
skýrslu og samþykktu þar með að
þrír dollarar af skattinum færu í
þessi framlög. Þá var sett á laggim-
ar tveggja flokka nefnd af hálfu
Bandaríkjaþings til að hafa eftirlit
með framkvæmd laganna og krefj-
ast upplýsinga um nöfn þeirra sem
legðu fram fjármagn, heimilisföng
og upphæðir. Þessi nefnd hefur þótt
standa sig vel í stykkinu í upplýs-
ingaskyldu sinni, þannig að nú hefur
fólk nokkuð nákvæmar upplýsingar
um kostnaðinn við að ná sæti í öld-
ungadeildinni eða fulltrúadeildinni
- og hverjir hafa borgað brúsann.
íhaldsmaðurinn James Buckley
öldungadeilarþingmaður fór fyrir
hópi manna í mál á þeirri forsendu
að lögin væru brot á tjáningarfrels-
isákvæði stjórnarskrárinnar. Með
Buckley dóminum fór hæstiréttur
Bandaríkjanna bil beggja. Hann
staðfesti takmörkin á fjárframlögum
einstaklinga og stuðningshópa en
taldi að takmörk á útgjöldum til
kosningabaráttu - það er ekki bein
framlög til frambjóðandans heldur
óbeinn stuðningur við flokk hans -
og takmörk á því hvað frambjóð-
andinn mætti eyða af eigin fé væri
brot á tjáningarfrelsinu. Síðasta skil-
yrðið var háð því að frambjóðand-
inn þægi ekki opinber framlög og á
því aðeins við í tilfelli auðkýfinga
eins og Steven Forbes, en eins og
margir muna vakti hann nýverið
mikla gremju annarra sem kepptu
um útnefningu repúblíkana í kom-
andi forsetakosningum vegna þeirra
gffurlegu fjármuna sem hann dældi í
baráttuna - næstum öllum arfi barna
sinna, eins og einhver orðaði það.
Rök margmilljónera eins og Forbes,
Ross Perots og fleiri eru að peningar
séu eina leiðin til að hrófla við þeim
sem þegar sitja að völdum - og setja
að auki lögin. Á þetta féllst hæsti-
réttur í Buckley dóminum fyrir tutt-
ugu árum. Einn dómari skilaði sér-
áliti þar sem sagði að kosningalög-
gjöf mætti líkja við lög um auð-
hringabann, en þau leyfðu að auð-
hringir væru leystir upp til að end-
urvekja samkeppni á hinum pólit-
íska markaði. Annar dómari, sem
var hlynntur niðurstöðu dómsins,
sagði í framhaldi af þessari samlík-
ingu að stundum væru peningar eina
aflið til að hrófla við einokun auð-
hringa og því mætti segja að þeir
gegndu hlutverki „trustbusters" -
embættismanns sem hefur eftirlit
með því að auðhringalög séu ekki
brotin. Dómarinn sem var á önd-
verðu máli sagði að takmörk á fjár-
stuðningi við flokka og frambjóð-
endur væru ekki brot á tjáningar-
frelsisákvæðinu. Málið snerist ein-
faldlega ekki um tjáningu heldur um
spillingu. Menn væru ekki að styðja
frambjóðendur með himinháum
upphæðum til þess að koma ákveðn-
um boðskap á framfæri - heldur til
þess að kaupa sér áhrif. Ef fram-
bjóðandi nyti stuðnings fárra, fjár-
sterkra aðila, stæði hann óhjá-
kvæmilega í þakkarskuld við þá að
kjöri loknu og væri því ntun líklegri
til að hampa sjónarmiðum þeirra
eða taka hagsmuni þeirra framyfir
hagsmuni annarra kjósenda.
Engin lög um fjárreiður
stjórnmálaflokka
Háskólakennarar sendu frá sér
ályktun fyrir nokkrum árum um að
settar yrðu reglu hér á landi um
upplýsingaskyldu stjórnmálaflokka
um fjárreiður sínar. Þjóðvaki hefur
tvívegis lagt fram frumvarp á þing-
inu um starfsemi og fjárreiður
stjómmálasamtaka og bent á að hér
á landi eru stjómmálaflokkar hvorki
framtalsskyldir né skattskyldir.
Guðný Guðbjörnsdóttir þingkona
Kvennalista hefur nýverið í fyrir-
spum til fjármálaráðherra óskað eft-
ir svömm urn fjárveitingar á ámnum
1986-1996 til sérfræðilegrar aðstoð-
ar við þingflokka, til útgáfumála,
um hversu mikið fé hafi árlega
komið til hvers stjórnmálaflokks og
hvaða reglur hafi gilt síðustu tíu ár
um skiptingu þessa fjár milli stjórn-
málaflokka til útgáfumála.
í tíð síðustu ríkisstjórnar voru
samþykkt lög um að fyrirtæki sem
styrktu stjórnmálaflokka gætu notað
0,5% af veltu sinni, og væri það
framlag frádráttarbært frá skatti.
Séu þessi lög réttlætt með tjáningar-
frelsinu, því em þá allar upplýsingar
um stóra styrktaraðila eins og hem-
aðarleyndarmál? Af hverju eru
flokkarnir svona ólýðræðislegir að
opna ekki bókhald sitt? Hér getur
verið um stórfelld fjárframlög að
ræða, þar af leiðandi óeðlilega mikil
áhrif ákveðinna fjársterkra aðila á
stóran hóp kjörinna fulltrúa - sem
geta ekki lengur staðið við stjómar-
skrárheit sitt um að vera bundnir
sannfæringu sinni, því þeir eru
bundnir einhverjum kaupsýslu-
rnönnum.
í flestum vestrænum ríkjum - fyr-
ir utan Island og hið sorglega dæmi
af móðurjörð Magna Carta, Bret-
landi - eru víðast ákveðin lög, þó
ekki sé um heildarlöggjöf að ræða,
sem lúta að þessum málum. Amer-
íkanar tala gjarnan um hin þroskuðu
lýðræðisríki Vestur-Evrópa enda
byggja þeir sína lýðræðishefð á
Magna Carta og merkilegu framlagi
Englendinga í þágu lýðræðis í gegn-
um aldirnar, en hvað sem öllu tali
um þúsund ára Alþingi Islendinga
líður flokkumst við vart undir
þroskað lýðræðisríki með engin lög
um fjárreiður flokkanna, upplýs-
ingaskyldu framlaga og svo fram-
vegis. Með þúsund ára sögu á bak-
inu og aðeins komin þetta stutt, er
nær að segja að við séum þroskaheft
lýðræði.
I Þýskalandi, Kanada, Svíþjóð,
Italíu, Frakklandi, Spáni, Dan-
mörku, Grikklandi, Portúgal, Hol-
landi, Noregi, Finnlandi og Ástralíu
eru lög um opinbera styrki til stjórn-
málaflokka. I ntörgum þessara ríkja
eru einnig einhver lög um framlög
og upplýsingaskyldu. í Þýskalandi
niega einstaklingar og fyrirtæki
styrkja stjórnmálaflokka upp að
1200 mörkum og fá þá helming frá-
dráttarbæran frá skatti. En þegar um
stærri upphæðir er að ræða lækkar
frádráttarbært hlutfall. Flokkarnir
verða að gera skýra grein fyrir öll-
um tekjum sínum og ef einn og
sami aðilinn styrkir flokk með hærri
upphæð en 20 þúsund rnörk á ári
verður að nafngreina hann. Um
kosningabaráttu gildir að hún er
greidd af almannafé. Til grundvallar
er lögð upphæð sem nemur um 5
mörkum á hvern kjósanda og er
þessum potti síðan skipt á milli allra
flokka sem fara að minnsta kosti
með 10 prósent atkvæða. Til að allir
hafi jafna ntöguleika fá smærri
flokkar ákveðinn lágmarksstyrk til
að standa straum af kostnaði við
kosningabaráttu.
Með opinberum framlögum að1
hluta er stjórnmálasamtökum í flest-
um þeirra ríkja sem hér um ræðir
tryggður aðgangur að kjósendum,
og þeir eru þá í aðstöðu til að hafna
óæskilegum stuðningi úr einkageir-
anum. Með þessum framlögum er
búið til gólf þar sem allir standa
nokkuð jafnir í upphafi, þó að það
sé ekki endilega þak.
Hnekkir fyrir lýðræðið
Það er löngu tímabært að opna
umræðu um fjárreiður stjórnmála-
flokka og fjárstuðning við fram-
bjóðendur-hvort sem er til þings
eða forseta. Það er hnekkir fyrir lýð-
ræðishugsjónina ef almenningur
hefur það á tilfinningunni að sumir
eigi í krafti fjármuna greiðari að-
gang að kjörnum fulltrúum, jafnvel
forsetinn, og það sé aðeins fyrir
sterkefnaða einstaklinga að fara í
framboð eða fólk á framfæri fyrir-
tækja. Spurningin snýst ekki ein-
göngu um hvað er heldur einnig
hvað virðist. Það er nauðsyn á víð-
tækari kosningalöggjöf, þar sem sett
eru inn ákvæði um fjárframlög
einkaaðila og opinbera styrki. Slík
lagaákvæði eru óhjákvæmileg í lýð-
ræðisríki til að draga úr áhrifum
fjársterkra aðila, jafna möguleika
einstaklinga og samtaka, efla heið-
arleika £ kosningabaráttu og auka
tiltrú almennings á kosningafyrir-
komulaginu.
Með því að lögbinda hámark á
framlög frá einstaklingum og fyrir-
tækjum verða frambjóðendur að
leita stuðnings mun víðar um leið
og dregið er úr áhrifum fárra, fjár-
sterkra aðila. Frambjóðendur verða
með þessum hætti skuldbundnir
breiðum hópi venjulegra kjósenda.
Takmörkuð lág framlög jafna áhrif
borgaranna í pólitískri þátttöku og
frambjóðendur þurfa í alvörunni að
leita út til fólksins eftir stuðningi.
Það skiptir engu máli hvaða hlut-
verk forsetinn kýs sér, héraðshöfð-
ingi eða farandsendiherra, ef hann
er inn við beinið aðeins leiguliði -
en slíkt hugtak er í álíka mikilli
mótsögn við jafnrétti og frelsi og
hugtakið lénsherra.
Forseti forsetanna - Abraham
Lincoln - vissi hver var kjami lýð-
ræðislegrar hugsunar. Þegar hann
kom til Richmond í Virginíu í lok
þrælastríðsins, hinn 4. apríl 1865,
daginn eftir að borgin hafði fallið í
hendur hers Norðurríkjanna gekk
hann um götu ásamt fámennu fylgd-
arliði. Þá þyrptist blökkufólkið að
honum, nýsloppið úr ánauð. „Ég
veit að ég er frjáls," hrópaði eldri
kona í gleðivímu, „því ég hef séð
föður Abraham og snert hann.“ Og
gamall maður sem hafði verið þræll
allt sitt líf kraup á kné fyrir framan
forsetann og laut höfði. Lincoln
hefði ekki verið mannlegur hafi
hann ekki verið snortinn. En hann
sagði við manninn: „Ekki krjúpa
fyrir mér. Það er ekki rétt að gera
það. Þú getur aðeins kropið fyrir
guði og þakkað honum frelsi þitt.“
Atferlið braut í bága við lýðræð-
ishugsjón Lincolns sem hafði sagt
við annað tækifæri: „Ég vil ekki
vera þræll og þess vegna ekki
herra.“
Með því að setja skýrar reglur um
takmarkaðar, tiltölulega lágar fjár-
hæðir sem einstaklingar mega
leggja fram í kosningasjóði, í þágu
lýðræðis og tjáningarfrelsis fyrir
alla, gefum við frambjóðendum færi
á því að viðra hugsjónir sínar og -
það sem meira er um vert - að
fylgja þeirn eftir að kjöri loknu. Við
losum þá úr fjötrum sérhagsmun-
anna og fáum þegar upp er staðið
forseta fólksins, kjörinn af fólkinu
og fyrir fólkið. ■
NLEIKAR
í Háskólabíói föstudaginn
17. maí kl. 20.00
MIÐASALA Á SKRIFSTOFU HIJÓMSVEITARINNAR OG VIÐ INNGANGINN
Petri Sakari, Manuela Wiesler,
hljómsveitarstjóri flautuleikari
ásamt
Sinfóníuhljómsveit fslands
Josef Haydn: Sinfónía nr. 22
Sigurbjörnsson: Euridice, flautukonsert
Jean Sibelius: Lemminkainen svita
Rauð áskriftarkort giída
SINFÓNIUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS (f\
Háskólabíói vib Hagatorg, sími 562 2255 V