Alþýðublaðið - 09.07.1996, Síða 4

Alþýðublaðið - 09.07.1996, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ1996 f r é t t i r ■ Frá Tryggingastofnun Nýjar reglur um uppbót á lífeyri Frekari uppbót á lífeyri frá Trygg- ingastofnun verður ekki lengur greidd einstaklingum sem hafa heildartekjur umffam 75.000 krónur á mánuði eða eignir í peningum eða verðbréfum umfram 2,5 milljónir króna. Er þetta í samræmi við regiugerð og ákvæði al- mannatryggingalaga, þar sem segir að heimilt sé að greiða frekari uppbætur „ef sýnt þykir að lífeyrisþegi geti ekki ffamfleytt sér án þess.“ Heiibrigðis- og tryggingamálaráðu- neytið setti þessi tekju- og eignamörk eftir samráð við fulltrúa félaga aldr- aðra, Öryrkjabandalagsins og Sjálfs- bjargar. Miðað er við algengar tekjur á almennum vinnumarkaði. Svokölluð frekari uppbót er greidd þeim elli- og örorkulífeyrisþegum, sem bera kostnað vegna lyfja, umönn- unar eða húsaleigu. Uppbótin er reikn- uð út sem ákveðið hlutfail af grunniíf- eyri og er hlutfallið mishátt eftir að- stæðum umsækjenda. Yfir átta þúsund einstaklingar hafa fengið frekari upp- bót greidda mánaðarlega undanfarin ár. Auk tekjumarkanna hafa verið sett- ar nákvæmari reglur um hlutfall upp- bótar vegna lyijakostnaðar, umönnun- arkostnaðar og húsaleigu. Upphæð uppbótar ræðst þannig af upphæð húsaleigu, umönnunarþörf eða lyfja- kostnaði umsækjanda, auk tekna. Þessar reglur eru settar til þess að tryggja jafhræði í afgreiðslu umsókna um ffekari uppbót. Verið er að endurskoða greiðslu frekari uppbóta í samræmi við nýju reglurnar, en endurskoðunin getur orðið til þess að uppbætur lækki eða falh niður vegna eigna eða tekna líf- eyrisþega. Þeir lífeyrisþegar sem missa upp- bót, fá sent bréf þar að lútandi frá líf- eyrisdeild Tryggingastofnunar og gefst þeim tækifæri til að gera athuga- semdir við upplýsingar um tekjur eða eignir. Miðað er við að endurskoðun á eldri úrskurðum um frekari uppbót ljúki fyrir 1. september næstkomandi. □MISSANDI í SUMARBÚSTAÐINN Allir vilja geta notiö þess besta í mat og dnykk, hvert sem leiðin liggur. Þess vegna eru G-vörurnar ómissandi í sumarbústaöinn. G segir til um fnamleiöslu- aðfenðina sem einkennir G-vönur. Pá en vanan snögghituð við hátt hitastig. Með því móti verður hún geymsluþolnani og heldun jafnfnamt fenskleika sínum og naeningangildi. G-vönun þanf ekki að geyma í kaeli. G-MJÓLK Góð mjólk sem aldnei bnegst - ísköld og svalandi eftin kaelingu í naesta fjallalæk! Og svo en G-mjólkin líka fnábæn í alla matangenð. KAFFIRJÓMI Tilvalinn í kaffið og þnælgóðun í súpun og sósun. Sömuleiðis vinsæll út á skyrið og gnautinn. G-RJÓMI Gerir góða fenð enn betni. Pú notan hann eins og annan eðalnjóma, óþeyttan út á benin, þeyttan með kökunni og ísnum eða sem leynivopn í súpugerðinni. ■ Guðlaugur Tryggvi Karlsson á hestamannamóti Riðið undir sunn- lenskri sól Síðasta fjórðungsmót hesta- manna fyrr og síðar á Hellu var haldið í blíðskaparveðri á Gaddstaðaflöt um helgina. Bú- ið er að fiölga landsmótum um helming þannig að þau verða haldin annað hvert ár sunnan- lands og norðan. Þar með eru fjórðungsmótin dottin út. Hæst bar á þessu móti glæsilegur ár- angur markvissrar hrossarækt- ar í héraðinu auk þess sem hin óvænta frávísun á hestinum Óði vakti mikla athygli. Hann stóð efstur í A-flokkskeppni og þar með mestur gæðinga hér- aðsins en var dæmdur úr leik vegna kergju. Hann hlýddi ekki þegar hann átti að leggja af stað í brokkkeppnina enda ný- kominnfrá merum. Þorkell Bjarnason, hrossaræktar- ráðunautur í 35 ár á hesti sínum kveður hér áhorfendur en enginn hefur átt meiri þátt í að móta ís- lenska hestinn á þessum tíma en Þorkell. Mikil tilþrif voru í kynbótakeppn- inni. Gunnar Arnarsson á stóðhestinum Otri til vinstri, en hann fékk fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á mótinu, er hér á flugaskeiði.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.