Alþýðublaðið - 09.07.1996, Side 8

Alþýðublaðið - 09.07.1996, Side 8
Alla daga Frá Stykkishólmi kl. 10.00 og 16.30 Frá Brjánslæk kl. 13.00 og 19.30 Bókiö bíla meö MMBUBLOIB Alla daga Þriðjudagur 9. júlí 1996 99. tölublað - 77. árgangur Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk ■ Ráðið í deildarstjórastöðu á Þjóðskjalasafni Guðmundur Magnússon hlaut stöðuna -talinn hæfastur 19 umsækjenda. Guðmundur Magnússon, fyrrum fréttastjóri DV og settur Þjóðminja- vörður árið 1992, var á dögunum ráð- inn deildarstjóri á Þjóðskjalasafnið. Það er menntamálaráðherra sem skip- ar í stöðuna að fengnu áliti þjóðskjala- varðar og stjómamefndar Þjóðskjala- safns. Sveinbjörn Rafnsson, einn þriggja nefndarmanna, sagði í samtali við Alþýðublaðið að einhugur hefði verið í nefndinni um val á umsækj- anda en 19 sóttu um stöðuna. ,JÞað var ánægjulegt hversu margir hæfir aðilar voru meðal umsækjenda," sagði Sveinbjöm. Það er engin tilviljun sam- kvæmt heimildum Alþýðublaðsins en sú saga hafði flogið meðal sagnfræð- inga að Guðmundi væri fyrirfram ætl- uð staðan og var lagt að mörgum hæf- um sagnfræðingnum að sækja um starfið. „Þetta er dæmigerð pólitísk ráðning," sagði heimildarmaður Al- þýðublaðsins úr röðum sagnfræðinga. „Við vorum búin að heyra að Guð- mundur fengi starfið og það var verið að spana fólk til að sækja um starfið til að gera honum glennu. Þeir geta sjálfsagt fært rök fyrir því hvers vegna Guðmundur Magnússon var ráðinn sem deildarstjóri á Þjóðskjalasafni á dögunum. þeir kjósa lærðan heimspeking í starf- ið fremur en sagnfræðing með master- gráðu í því fagi eða skjalfræðing. Hér er hugsanlega um nýja stefnu að ræða,“ sagði ónafngreindur sagnfræð- ingur sem var meðal umsækjenda. Guðmundur er með BA próf í sagn- fræði og heimspeki og Master of Sci- ence frá London School of Econom- ics. Nú er hann að ljúka við að skrifa sögu Eimskipafélagsins og sagðist í samtali við Alþýðublaðið í gær vera mjög sáttur við þessa niðurstöðu og að hann hefði allt eins átt von á því að fá stöðuna. Marco Polo 350 ■ Svefnpoki tjaidvagnar PUMORI 65 Bakpoki 9.860 Jterkur og laður poki ;óðu verði Innbyggð grind, okar 15.250 ............... Létt göngutjald. 2.2 kg. 2 manna. Tvöfalt með álbogum. stillanlegar bakólar. Gæðavara á góðu verði veiðij Mikið úrval tré- og plasthúsgagna O'somon ITALSKIR GONGUSKÓR LAX sólstóll á 5.900 y^áður 11.700 JURA gönguskór á 9.900 Landsins mesta úrval af tjöldum á sýningarsvæði gerðir Sf tjöldum J^ango Daiwa Eyjaslóð 7 Reykjavík S. 51 I 2200 Kees Visser á landinu Á rtMkrgun opnar í Gallerí Ing- ólfsstrætl 8 sýning á málverkum myndlistarmannsins Kees Viss- er. Þetta er sextánda einkasýn- ing Kees á íslandi, en hann sýndi fyrst í Gallerí Súm fyrir tuttugu árum. Kees, sem er af hollensku bergi brotinn, bjó á íslandi um árabil en býr nú í París og hefur sýnt verk sín í Hollandi og í Frakklandi síðasta árið. Hann er íslenskum myndlistarmönnum að góðu kunnur. Sýningin í Ing- ólfsstræti 8 er opin frá 14 til 18 alla daga nema mánudaga, og stendur til 2. ágúst. ■ Bókasumar Vöku-Helgafells Fimmtán sumarbækur í tilefni af fimmtán ára afmæli sínu hefur Vaka-Helgafell sent frá sér fimmtán nýjar bækur. Efnið er hið fjölbreytilegasta, þarna er að finna íslenskar forn- bókmenntir, smásögur, ljóð, til- vitnanir og fróðleik af ýmsu tagi. Bækurnar eru innbundnar og í handhægu broti, 80 blaðsíður að lengd og eru seldar á sérstöku tilboðsverði í sumar. Meðal þess- ara bóka eru Hrafnkels saga Freysgoða, Hávamál, Stjórnar- skrá lýðveldisins, úrval úr smá- sögum Halldórs Laxness og Ól- afs Jóhanns Ólafssonar og ljóða- perlur Jónasar Hallgrímssonar. Kannanir hafa sýnt að bóklestur landsmanna er takmarkaður yfir sumarmánuðina. Vaka-Helgafell hefur hug á að breyta þessu og sendir frá sér sumarbækur.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.