Alþýðublaðið - 17.07.1996, Side 1
■ Mikill titringur er innan borgarráðs vegna flutnings Landmælinga á Akranes.
Rætt um að „kaupa" fyrirtæki utan af landi til borgarinnar
Ótímabærar yfirlýsingar Sigrúnar
- segir Pétur Jónsson formaður atvinnumálanefndar Mfplfy
um orð Sigrúnar Magnúsdóttur að ekkert sé athuga-
vert viðflutning Landmælinga. IflLyáKr*
„Borgarráð í heild sinni, með sjálf-
stæðismenn innanborðs, samþykkti
sérstaka tillögu þar sem flutningur
Landmælinga ríkisins til Akranes var
harðlega gagnrýndur," segir Pétur
Jónsson formaður atvinnumálanefndar
Reykjavíkurborgar í samtali við Al-
þýðublaðið. Frétt Ríkissjónvarpsins á
mánudagskvöld vakti mikla athygli en
þar var vitnað ítrekað í orð Sigrúnar
Magnúsdóttur, oddvita R-listans og
framsóknarkonu, þess efnis að fátt eitt
sé athugavert við flutninginn. I því
sambandi hafa menn bent á að Sigrún
er eiginkona Páls Péturssonar ráðherra
Framsóknarflokksins en Guðmundur
Bjamason framsóknarmaður og heil-
brigðisráðherra stendur fyrir búferla-
flutningunum. Pétur segir að menn
séu ekki aldeilis sammála því sem
kom fram í máli hennar. „Þetta eru
mjög svo ótímabærar yfirlýsingar hjá
Sigrúnu. Hún er vissulega oddviti R-
listans en hún hefur verið í fríi og hef-
ur því lítið verið inní umræðunni. Það
er verkaskipting innan listans. Sigrún
er með skólamálin á sinni könnu,
mjög heit mál, en það hefur fallið í
minn hlut að annast atvinnumálin,"
segir Pétur.
Alþýðublaðið hefur heimildir fyrir
því að innan borgarráðs hafi verið rætt
um möguleikana á því að ,,kaupa“ fyr-
irtæki af landsbyggðinni til borgarinn-
ar. Pétur staðfesti það en sagði það
einungis vera á umræðustigi. Hann
sagðist ekki sammála því í grundvall-
aratriðum en eitthvað þyrfti að gera til
að spoma við þróuninni.
„Það má kannski segja sem svo að
okkur muni ekki um þessi þrjátíu störf
hjá Landmælingum," segir Pétur. „En
þetta er komið sem fyllir mælinn. Það
er gengið í það að ræna atvinnutæki-
færum frá okkur. Sveitarfélög gera
það með ýmsum hætti og beita meðal
annars viðskiptaþvingunum. Nú kem-
ur ríkið til viðbótar. Þetta er ekki hægt
auk þess sem ekki er forsvaranlegt að
flytja fólk hreppaflutningum með sov-
Pétur Jónsson: Hvar eru ráðherrar
Reykjavíkur? Hvar eru Björn
Bjarnason, Friðrik Sophusson, Dav-
íð Oddsson og Finnur Ingólfsson?
éskum hætti."
Pétur segir glögga menn hafa bent á
þá sérkennilegu staðreynd að þrátt fyr-
ir átaksverkefni fækki ekki á atvinnu-
leysisskrá Reykjavíkurborgar. Honum
sýnist ljóst að mikið af því fólki sem
njóti félagslegrar þjónustu Reykjavík-
urborgar sé utan af landi og hafi flutt
til borgarinnar á undanfömum tveimur
Sigrún Magnúsdóttir. „Borgarráð í
heild, með sjálfstæðismenn innan-
borðs, samþykkti harðorða gagn-
rýni á flutning Landmælinga," seg-
ir Pétur.
ámm. Og Pétur lýsir eftir ráðhermm
Reykjavíkurborgar: „Hvar er Björn
Bjamason? Hvar er Davíð Oddsson?
Hvar er Finnur Ingólfsson? Hvar er
Friðrik Sophusson? Það er ljóst að all-
ir ráðherrar hafa þurft að leggja bless-
un sína yfir þessa flutninga Landmæl-
inga. Af hverju heyrist ekkert frá
þeim?“
Byrjað að grafa. Ármannsfell fékk graftrarleyfi á eigin ábyrgð og áformar að reisa þrjú stórhýsi. Hávaðamengun er langt yfir leyfilegum mörkum, sé
miðað við reglur um nýja byggð.
■ Guðrún Jónsdóttir fulltrúi í skipulagsnefnd Reykjavíkur segir að það hafi
alvarlegar afleiðingar fyrir R-listann ef samþykkt verður að reisa stórhýsin
þrjú við Sæbraut
Prófmál fyrir R-listann
- segir Guðrún. Gagnrýnir embættismenn harðlega
fyrir að leggja ekki fram skýrslu, þar sem fram kemur
að hávaðamengun er langtyfir leyfilegum mörkum.
„Mér finnst það vera prófmál hvem-
ig Reykjavíkurlistinn tekur á þessu.
Afleiðingamar verða mjög alvarlegar
fyrir R- listann ef þessi hús verða
byggð þrátt fýrir þær upplýsingar sem
við höfum um hávaðamengun þama,“
sagði Guðrún Jónsdóttir, fulltrúi R-list-
ans í skipulagsnefnd Reykjavíkur, í
samtali við Alþýðublaðið í gær. Næsta
föstudag mun skipulagsnelhd Reykja-
víkur taka ákvörðun um hvort leyfi
verður veitt til að reisa þrjár íbúða-
blokkir við Kirkjusand, skammt frá
Sæbraut. Þegar er bytjað að grafa íýrir
byggingunum, á vegum Ármannsfells
hf.
Guðrún Jónsdóttir gagnrýnir emb-
ættismenn borgarinnar harðlega, og
segir að þeir hafi ekki látið skipulags-
nefnd í té allar fyrirliggjandi upplýs-
ingar. „Borgarskipulag lagði ekki fram
skýrslu sem til var í stofnuninni, þegar
skipulagsnefnd tók málið til meðferðar
í vor. Afgreiðsla nefndarinnar hefði
áreiðanlega verið með öðmm hætti, ef
neíhdarmenn hefðu séð skýrsluna."
Skýrslan sem um ræðir var unnin af
Steindóri Guðmundssyni verldfæðingi
hjá Rannsóknarstofnun byggingariðn-
aðarins. Þar kemur meðal annars fram
að hávaði við húsin þijú er langt yfir
þeim mörkum sem sett vom í reglu-
gerðum. Samkvæmt byggingareglu-
gerð má hávaði við húshhð þegar um
nýbyggingar er að ræða ekki fara yfir
55 desibil (dB). Þess má geta að hækk-
un um þijú dB þýðir tvöföldun hávaða.
Steindór komst að þeirri niðurstöðu að
hávaði á fjórðu til sjöundu hæð hússins
sem á að standa næst Sæbraut yrði
61,5 til 66 dB. f hinum húsunum
tveimur, sem eiga að vera sex og níu
hæða, yrði hávaði allt að 66 dB.
Þessi skýrsla var ekki lögð fram
þegar skipulagsnefnd tók málið fyrir. |
Guðrún segir að útreikningar annarra '
verkfræðinga séu á sömu nótum. Al-
menna verkfræðistofan reiknaði út, að
miðað við 80 kílómetra hraða umferð-
arinnar við Sæbraut geti hávaði við
húsvegg komist í allt að 71,3 dB.
Guðrún segir óverjandi að leyfa
byggingu húsanna, miðað við fyrir-
liggjandi upplýsingar, enda um að
ræða geysiíeg frávik frá bygginga-
reglugerð. Armannsfell, sem stendur
fyrir framkvæmdum, hefur sagt að
byggingamar eigi ekki að lúta reglum
um nýja byggð, en Guðrún segir slíkan
málflutning ífáleitan: ,J>etta á ekki að
ganga út á að finna ákvæði sem gætu
réttlætt slíkar byggingar. Við eigum
við að halda okkur við að tala um
fyrsta flokks húsnæði ef þama verður
byggt á annað borð.“
Guðrún segir að hún muni leggjast
gegn því að skipulagsnefhd samþykki
byggingarnar. Hún vildi hinsvegar
ekki segja til um að öðm leyti í hveiju
afstaða hennar verður fólgin, en kvaðst
ætla að skýra félögum sínum í Reykj-
avfkurlistanum frá því fýrst.
Heillaskeytin
streyma til
Olafs og
Guðrúnar
Að loknum forsetakosningum hefur
Ólafi Ragnari Grímssyni og Guðrúnu
Katrínu Þorbergsdóttur borist mikill
ljöldi heillaskeyta, kveðja og bréfa frá
hundruðum landsmanna og fólki víða
um heim. Auk þess hafa þjóðhöfðingj-
ar og forsætisráðherrar margra ríkja
og stjómendur alþjóðastofnana sent
Ólafi árnaðaróskir, óskað honum
heilla í starfi og lýst vonum um gott
samtarf við íslenska þjóð. Meðal
þeirra sem sent hafa slíkar kveðjur
em: Karl Gústaf Svíakonungur, Martti
Ahtisaari forseti Finnlands, Poul Nyr-
up forsætisráðherra Danmerkur, Gro
Harlem Bmndtland forsætisráðherra
Noregs, Edmund Joensen lögmaður
Færeyja, Lars Emil Johansen formað-
ur landsstjómar Grænlands, Bill Clin-
ton Bandaríkjaforseti, Roman Herzog
forseti Þýskalands, Jacques Chirac
forseti Frakklands, Oscar Luigi Scal-
faro forseti Ítalíu, Jiang Zemin forseti
Kína, Ryutaro Hashimoto forsætisráð-
herra Japans, Jose Maria Aznar for-
sætisráðherra Spánar, Ezer Weizman
forseti ísraels, Vaclav Havel forseti
Tékklands, Arpad Goencz forseti
Ungverjalands, Lennart Meri forseti
Eistlands, Algirdas Brazauskas forseti
Litháens, Michal Kovac forseti Sló-
vakíu, Franjo Tudjman forseti Króa-
tíu, Milan Kucan forseti Slóveníu,
Kim Young Sam forseti Kóreu, Liam-
ine Zeroul forseti Alsír, Zine E1 Abid-
ine Ben Ali forseti Túnis, Antonio
Mascarenhas forseti Grænhöfðaeyja,
Boutros Boutros Ghali framkvæmda-
I stjóri Sameinuðu þjóðanna, Javier
I Solana framkvæmdastjóri Nató,
i Jacques Diouf framkvæmdastjóri
| FAO, Leni Fischer forseti þings Evr-
! ópuráðsins, Emma Bonino sjávarút-
| vegsstjóri Evrópusambandsins.
i Kolbrún Bergþórs-dótt-
\ ir skrifar um ástfangnar
I jómfrúrá 18. öld.
Sjá miðopnu.
i
i
i
i Menningarvitinn Jakob
| Bjarnar Grétarsson læt-
\ ur Ijós sitt skína.
Sjá Orðin tóm á blaðsíðu 2
i
i
| Arnór Benónýsson
i rakkar niður Stone Free.
Sjá blaðsíðu 5
Björn Arnórsson hag-
fræðingur skrifar um hina
eilífu og innstæðulitlu
umræðu um sameiningu
vinstrimanna og segir:
Ekki meir, ekki meir!
Sjá blaðsíðu 3
Vinstrimenn sameinuðust
hinsvegar um helgina og
fóru saman í lautarferð.
Allt um það á blaðsíðu 7