Alþýðublaðið - 23.08.1996, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST1996 rÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 1996_________________________________ALÞÝÐUBLAÐID
s k i 1 a b o ð _E ó 1 i t ■3
5
ÆÐRI DÓMSTÓLL
S É R D E I L D
N r . 002618 1996
MÁLIÐ VARÐANDI
CLERICAL, MEDICAL ANDA GENERAL LIFE
ASSURANCE SOCIETY
og
MÁLIÐ VARÐANDI
CLERICAL MEDICAL INVESTMENT GROUP LIMITED
og
MÁLIÐ VARÐANDI
LÖGIN UM VÁTRYGGINGAFÉLÖG FRÁ 1982
HÉR MEÐ TILKYNNIST aö hinn 9. maí 1996 lagði Clerical, Medical and General Life Assurance Society (félagið)
fyrir æðri dómstól hennar hátignar á Englandi beiðni um:
1) tilskipun samkvæmt I. hluta fylgiskjals 2C laga um vátryggingafélög frá 1982 (lögin), sem heimili áætlun
(áætlunin) yfirfærslu til handa Clerical Medical Investment Group Limited (CMIG) á öllum langtíma vátrygg-
ingaviðskiptum, sem rekin eru af félaginu í Stóra Bretlandi, Gíbraltar og Lúxembourg; og
2) tilskipun er geri viðbótarráðstöfun í sambandi við framkvæmd áætlunarinnar samkvæmt 5. málsgrein I.
hluta. ..._
Skoða má afrit af beiðninni, áætluninni og skýrslu óháðs tryggingafræðings eins og krafist er í málsgr. 2(1)
fyrrnefnds I. hluta á skrifstofum þeim, er greinir í hjálögðu fylgiskjali á venjulegum skrifstofutíma í a.m.k. 21
dag frá fyrstu birtingu tilkynningar þessarar.
Beiðninni er vísað til flutnings hjá ritara félagsréttarins í konunglegu dómstólunum, Strand, London WC2A 2LL,
miðvikudaginn 2. október 1996 og hvaða aðili sem er, þ.á.m. hverskyns starfsmaður félagsins eða CMIG, sem
telur að framkvæmd áætlunarinnar mundi hafa neikvæð áhrif á sig, getur mætt sjálfur þegar málflutningur fer
fram eða látið lögmann mæta fyrir sig. Sérhver aðili, er hyggst mæta, og sérhver vátryggingaskírteinishafi fé-
lagsins, sem fellst ekki á áætlunina, en hyggst ekki mæta, ætti að tilkynna neðangreindum lögmönnum skrif-
lega með eigi minna en tveggja daga fyrirvara um slíka ætlan eða skoðanamun og ástæðu eða ástæður fyrir
þeirri afstöðu.
Afrit af beiðninni, áætluninni og skýrslu óháða tryggingafræðingsins munu lögmennirnir útvega hverjum
þeim, sem þarfnast þeirra áður en gefin eru tilskipun um samþykkt áætlunarinnar, en gegn greiðslu tilskilins
gjalds.
Dagsett 16. dag maímánaðar 1996
Lovell White Durrant
65 Holborn Viaduct
London EC1A 2DY
Tilv.: -A3/KWC/JTY
Lögmenn félagsins
THE SCHEDULE
Clerical, Medical and General Ernst8íYoung Ernst & Young International
Life Assurance Society Avenue Marcel Thiry 204 Endurskoöun & ráðgjöf ehf.
B-1200 Brussels Skeifan 11A
15 St James's Square Belgium 108 Reykjavík
London SW1Y 4LQ Ernst & Young lceland
3rd Floor Ernst & Young Building Revikon Ernst & Young
Central Exchange Building Harcourt Centre Kontroll und Beratungs-
93a Grey street Harcourt Street aktiengesellshaft
Newcastle Dublin 2 Aeulestrasse 60
NE16EA Republic of Ireland FI-9490 Vaduz Liechtenstein
Narrow Plain Ernst 8r Young
Bristol Studio Associato Ernst 8t Young
BS2 0JH Legale Tributario Compagnie Fiduciaire
Via G.B Vico 9 5 Boulevard de la Foire
Clerical Medical House 00196 Rome L-1528 Luxembourg
Trinity House Italy
Victoria Road Moret Ernst & Young
Douglas Drentestraat 20
Isle of Man Ernst & Young A/S 1083 Amsterdam
IM99 1LT Tagensvej 86 DK-2200 Copenhagen N Netherlands
201-203 West George Street Denmark Ernst 8r Young
Glasgow G2 2LL Tullins Gate 2
Tilintarkastajien Oy P O Box 6834
Suite 1406-1410 Ernst8íYoung St Olavs plass
14th Floor, Tower II Kauvokatu 8 N-0130 Oslo
The Gateway 00100 Helsinki Norway
25 Canton Road Finland
Tsim Sha Tsui Ernst 8r Young
Kowloon Hong Kong HDS Ernst 8i Young Edifício República
Société d'Avocats Avenída da República 90-3
Peter House Tour Manhattan 1600 Lisbon
Oxford Street Cedex21 Portugal
Manchester M1 5BA 92095 Paris La Défense 2
France Ernst & Young
9/10 West Centre Torre Picasso
Bath Street Ernst 8< Young Pza Pablo Ruiz Picasso
St. Helier Eschersheimer Landstrasse 14 28020 Madrid
Jersey 60322 Frankfurt am Main Spain
JE 4ST Germany Ernst 8r Young
Clerical Medical Investment Ernst & Young Adolf Fredriks Kyrkogata 2
Group Limited Suite 5 103 62 Stockholm
Trinity Road International House Sweden
Halifax, Bell Lane
West Yorkshire HX12RG Gibraltar Ernst 8< Young
Ernst & Young 3-5 llission Street
Praterstrasse 23 115 28 Athens
1021 Vienna Austria Greece
■ Guðmundur Ámi Stefánsson
Þurfum
ekki að
faraá
Ni.
taugum
í Alþýðublaðinu í gær var talað við alþýðu-
flokksmenn, vítt og breitt um landið, sem kvört-
uðu einróma yfir því að innra starf flokksins
væri lítið sem ekkert. Guðrún Vilmundaráóttlr
ræddi við Guðmund Árna Stefánsson varafor-
mann Alþýðuflokksins af þessu tilefni
s
Astandslýsingin er rétt, og vafalaust eru margar samverk-
andi skýringar á því. Flokkurinn hefur í gegnum árin verið
skipulagslega veikur. Það er áratuga gamalt vandamál
flokksins og engin ein skýring er á því. Hann hefur goldið smæð-
ar sínar. Flokkurinn hefur verið misstór úti um landið, og auðvit-
að verður starfið öflugara eftir því sem einingarnar eru stærri. I
mínu kjördæmi, Reykjaneskjördæmi, er flokkurinn mjög öflugur í
öllum stærstu þéttbýliskjörnum, og þar hefur flokksstarfið gengið
býsna vel. Það er byggt upp af heimafólki í kringum sveita-
stjómapólitíkina. Þar sem hann hefur átt í vök að verjast, til dæm-
is á Ausffjörðum,-þar sem hann hefur verið þingmannslaus, héfur
gengið illa að setja flokksstarf í gang. Þeir sem eru áhugamenn
um stjórnmál, vilja náttúrlega að þeirra þáttaka skili einhverju
markvissu, og það gerist ekki öðruvísi en fulltrúar séu í sveita-
stjórnum, nefndum eða ráðum, sem geta fylgt því eftir.“
Gœti því ekki verið öfugt farið - að flokkurinn sé svona lítill
vegna þess að flokksstarfið er veikt?
„Jú jú, þetta bítur sjálft sig í skottið, það gefur auga leið. En
það gengur ver að fá fólk til starfa, þegar ekki er til staðar einhver
pólitískur kjarni til að fylgja verkefnum eftir. Því er ekki að leyna
að þau vandamál sem sköpuðust af brotthvarfi framkvæmdastjóra
okkar á síðasta ári og ákvarðanir um að ráða ekki nýjan hafa gert
það að verkum að erfiðara er að skipuleggja það flokksstarf, sem
hægt er að skipuleggja frá aðalskrifstofu flokksins hér í Reykja-
vík.
En ég vil minna á það að flokksstarf í stjórnmálaflokki, sem
teygir anga sína til 40 eða 50 staða úti um land allt, má aldrei vera
miðstýrt frá aðalskrifstofu í Reykjavík. Hennar hlutverk er að
styðja við bakið á þeim neista sem til verður heima í héraði.“
Dustum rykið af ýmsum stefnumálum
Birgir Dýrfjörð sagði í blaðinu í gœr samband við flokksmenn
úti á landi of lítið og að það sé jafnvel að slitna?
„Það er einsog ég sagði áðan misjafnt eftir kjördæmum. Þing-
flokkurinn og framkvæmdastjórnin hafa lagt áherslu á að halda
sambandi við þingmannslausu kjördæmin, það er að segja bæði
Norðurlandskjördæmin og Austurland."
Er þvt' sinnt?
„Já, framkvæmdastjóri þingflokksins hefur sett upp ákveðið
tengslanet við trúnaðarmenn þar. Allt flokksstarf á rætur sínar í
héraði, það þekki ég vel úr minni heimabyggð. Langflestir finna
sig best, og fá kannski mestu um ráðið, þegar kemur að hlutum
sem standa þeim nærri, og þá er það sveitarstjórnarpólitíkin. Hlut-
verk landsflokksins er auðvitað að efla þessi tengsl og koma til
aðstoðar við uppbyggingu flokksfélaga, en flokksstarfi verður
aldrei stjómað frá skrifstofu í Reykjavík.“
Nú er kvartað yfir því að fáir komi að stefnumótun innan
flokksins, sem sé að verða að einskonar lokuðum klúbbi?
„Það held ég að sé mjög orðum aukið. Ég held að þeir sem vilja
láta til sín taka í Alþýðuflokknum eigi góða og greiða leið til að
láta sína rödd og sín stefnumið heyrast. An þess að ég vilji gera
lítið úr þessum athugasemdum hefur þetta heyrst áður um starf
Alþýðullokksins, einsog vafalaust allra stjórnmálaflokka. Við er-
um náttúrlega með þrískipt apparat; landsflokkinn, Kvenfélags-
samband og Samband ungra jafnaðarmanna. Þannig að þegar
menn grafa og grannskoða er sitthvað á seyði víða, ef menn vilja
gaumgæfa það.
En vissulega má betur gera. En menn leysa ekki vandamál, eða
verkefni einsog ég vil kalla það, af þessum toga með því að horfa
á skipuritin og formið, heldur byrjar þetta allt og endar í efninu.
Það er að segja: Erum við með slík verkefni á okkar málaskrá
sem laða að og kalla fram áhuga fólks. Það er lykill málsins."
Alþýðuflokksmenn eru auðvitað sammála um að málefnastaða
flokksins sé góð, en einhverjir segja að ekki hafi tekist að koma
skilaboðunum almennilega á framfœri.
„Það má auðvitað alltaf ydda málefnastöðuna og skýrgreina,
ekki síst núna þegar við fáum tóm til þess, í stjórnarandstöðu. Það
er ekki ný bóla, að þegar flokkur fer frá ríkisstjórnarborði eftir
átta ára samfellda setu verður ákveðinn sjokkeffekt, sem virðist
vera óhjákvæmilegur. Við eigum að takast á við þetta verkefni, en
þurfum ekki að fara á taugum.
En ég held að það sé alrangt að Alþýðuflokkurinn komi sínum
málefnum ekki nægilega vel á framfæri. Eftir 8 ár í ríkisstjórn
held ég að öllum sé ljóst fyrir hvað Alþýðuflokkurinn stendur.
Núna er tími og rúm til þess að flokkurinn dusta rykið af ýmsum
stefnumálum, sem kannski mjökuðust minna en við vildum í rík-
isstjórnarsamstarfinu. Það er hægt að segja sömu hlutina með
ýmsunt hætti, og í ríkisstjórn er flokkur auðvitað bundinn ákveðn-
um trúnaði við sinn samstarfsflokk, svo hlutirnir verða kannski
teknókratískari heldur en ef við fengjum að segja þá eigin orðum.
Núna þurfum við að einfalda ákveðna hluti, einsog til dæmis
varðandi utanríkismál og sjávarútvegsmál, sem virka flókin fyrir
almenning sem fylgist með pólitík í gegnum fjölmiðla. Við þurf-
um að gera málflutning okkar beittari. Það hangir saman við
flokksstarfið: Ekki er hægt að ydda baráttumálin ef ekkert er
flokksstarfið, og ef engin eru baráttumálin verður ekkert flokks-
starf."
Gef kost á mér áfram að óbreyttu
Þú segir að flokkurinn sé í sárum eftir brotthvarf úr ríkisstjórn
fyrir rúmu ári síðan?
„Ég sagði ekki í sárum, það eru þín orð. En auðvitað eru það
Guðmundur Árni: Ekki er hægt að ydda baráttu-
málin ef ekkert er flokksstarfið, og ef engin eru
baráttumálin verður ekkert flokksstarf.
viðbrigði að lenda í tiltölulega slæmum kosningum og fara frá
ríkisstjórnarborði eftir ágæta viðveru þar í átta ár.“
Ágœta viðveru, segirðu?
„Eg held að Alþýðuflokkurinn þurfi ekki að bera kinnroða
vegna þeirra verkefna sem hann vann í ríkisstjórn þessi átta ár.
Án þess að ég ætli að tíunda það hér.“
Hverjar verða helstu áherslur á flokksþinginu ínóvember?
„Ég vil ekki búa þær til fyrirfram: Verkefnahópar eru að fara af
stað, sem munu leggja þær línur. Það á að útfæra stefnumið Al-
þýðuflokksins, þannig að þau komi skýr og greinileg fram. Við
höldum uppá 80 afmæli flokksins og byggjum á góðum grunni og
að mörgu leyti glæstri fortíð - þó hún sé ekki vandræðalaus. Það
er góður grunnur til að horfa til næstu aldar."
Þú gefur kost á þér áfram?
„Ég hef ekki tekið ákvörðun um annað, og geri það að
óbreyttu.“ ■
Ávarp til íslendinga II
Lítil einstaklingsíbúð óskast
til leigu í hverfi 101.
Skilvísum greiðslum heitið.
Haraldur Jónsson, sími 5625704
Ungir jafnaðarmenn
Sambandsþing SUJ
Sambandsþing Sambands ungra jafnaöarmanna
verður haldið helgina 18.-20. október, í Breiðabliks-
skálanum í Bláfjöllum. Skv. 9. grein b í lögum SUJ,
skal fulltrúatala aðildarfélaga fundin með því að deila
10 í félagatölu þeirra mánuði fyrir sambandsþing.
Komi þá út brot, skal það hækkað upp, ef það er hálf-
ur eða meira, ella skal því sleppt. Þess skal gætt að
ekkert félag má tilnefna meira en 45 af hundraði af
fjölda þingfulltrúa, sem leyfilegurer skv. lögum.
Aðildarfélagi ber að tilkynna til skrifstofu sam-
bandsins, eigi síðar en viku fyrir þing um tilnefningu
fulltrúa og að því loknu gefur stjórn sambandsins út
kjörbréf til réttkjörinna fulltrúa.
Þeir sem sitja í sambandsstjórn, framkvæmdastjóri
sambandsins svo og ritstjóri málgagna, skulu sjálf-
kjörnir á sambandsþing með fullum réttindum. Þeir
aðilar tilheyra ekki fulltrúatölu þeirra aðildarfélaga
sem þeir eru félagar í, skv. grein 9a í lögum SUJ.
Dagskrá verður auglýst síðar.
Framkvæmdastjóri
Alþýðuflokkurinn
Lagabreytingar
Lagabreytinganefnd er skipuð af framkvæmdastjórn
til að vinna að tillögum um breytingar á lögum flokks-
ins. Samkvæmt 63. grein laga Alþýðuflokksins skal
nefndin senda flokksskrifstofu tillögur þessar eigi síð-
ar en mánuði fyrir flokksþing.
Nefndin óskar eftir tillögum að lagabreytingum vegna
47. flokksþings Alþýðuflokksins. Tillögur þurfa að ber-
ast nefndinni eigi síðar en mánudaginn 9. september.
Sendið tillögurnar merktar:
Alþýðuflokkurinn,
b.t. lagabreytinganefndar,
Hverfisgötu 8-10,
101 Reykjavík.
Frá skrifstofu
Alþýðuflokksins
Skrifstofan verður opin á þriðjudögum og
fimmtudögum eftir hádegi. Þeim sem vilja
fá upplýsingar um starf flokksins er bent á að
Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri
þingflokksins, verður til viðtals á
skrifstofunni á þessum tímum.