Alþýðublaðið - 28.08.1996, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 28.08.1996, Blaðsíða 4
ALÞYÐUBLAÐIÐ s a m f é I a MIÐVIKUDAGUR 28. AGUST 1996 t ■ Stúlkubörnum er rænt og þær neyddar til að leika í klámmyndum. Sumar eru síðan drepnar þegar ekki er hægt að hafa frekari not af þeim, aðrar neyðasttil að halda iðjunni áfram. Barnaklám er einn mesti hryllingur nútímasamfélags. Guörún Vilmundardóttir og Kolbrún Bergþórsdóttir ræddu við nokkra ein- staklinga um skelfilegar staðreyndir Hvað enn þora ekki að spyija sig hvað er á seyði - en það hlýtur að vera næsta spurning," segir Marta Bergmann í samtali við Al- þýðublaðið. Marta er nýkomin frá ISPCAN ráðstefnu í Dublin þar sem ijallað var um glæpi gagnvart bömum, en þau mál em mjög í umræðunni þessa dagana vegna oerast? í hroðalegra mála er komið hafa upp í Belgíu og varða bamaníðslu og bamaklám. Hvað er á seyði? „Það er ógnvekjandi að það skuh vera til markaður fyrir neð- anjarðarstarfsemi þar sem böm era mynduð í kynlífsstelhngum og jafnvel í samræði,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir þingmaður og for- maður Kvenréttindasambands Is- lands. „Ég held að í vestrænum þjóðfélögum og sérstaklega á íslandi sé litið svo á að þessi starfsemi fyrirfinnist ekki. En að það gerist hér í miðri Evrópu að bömum sé beinlínis rænt til þess að þjóna þörfum þessa markaðar - það segir manni ansi mikið.“ KynUfsiðnaður þar sem böm hafa verið hráefnið, hefur í hugum fólks tengst . _ Austurlöndum, og margir I ■ íyllast skelfingu því hryll- B 1 ingurinn virðist vera að fær- ■ 1 ast nær okkur. Guðrún B Jónsdóttir félagsfræðingur hjá Stígamótum segir að þar hafi starfsfólk haft pata af bamaklámsmálum, því konur sem hafi kynnst hafi slíkum málum erlendis, hafi síðar leitað hjálpar hjá Stígamót- um. Guðrún Jónsdóttir segir að bamaklám virðist færast í aukana erlendis, og að miðað við reynslu af annars konar ofbeldi, séum við líklega ekki stikkfrí hér á landi. Bryndís Hlöðversdóttir segir umræðuna um bamaklám, eða kannski öllu heldur skort á henni, hér á landi minna um margt á um- ræðuna um sifjaspell eins og hún var um það leyti sem Stígamót vom stofnuð. „Fólk vildi ekki trúa því að sifjaspell ætti sér stað hér á landi. En staðreyndin er sú að sifjaspell era því miður ljótur og svartur blettur á íslensku þjóðfé- lagi. Nú kjósum við að líta svo á að bamaklám eigi sér ekki stað hér á landi, en um leið er það stundað í nágrannaríkjum sem við teljum síst minna siðmenntuð en við sjálf. Dæmi um bamaklám hér á landi em þekkt, og því sambandi vil ég minna á að það hafi fallið dómar um slík mál. Og við vitum að ekki komast öll slík mál upp á yfirborð- ið.“ Marta Bergmann tekur undir þetta sjónarmið: ,JFyrir tíu til fimmtán ámm var fyrst almennt farið að tala um að böm væri mis- notuð. Áður var sagt að þetta væm bara „einn og einn aumingi úti í bæ sem vissi ekki hvað hann væri að gera“. Menn afneituðu stað- reyndum. Það em einfaldlega ekki ijög mörg ár síðan fjölmiðlar hér

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.