Alþýðublaðið - 05.09.1996, Page 1
Fimmtudagur 5. september 1996 Stofnað 1919
132. tölublað - 77. árgangur
■ Þingflokkar Alþýðuflokks og Þjóðvaka sameinast í einn
Fyrsta skrefið á lengri leið
- segir Jón Baldvin Hannibals-
son formaður Alþýðuflokksins.
„Við munum í framhaldinu
leita eftir frekari samstarfi við
alla þá sem vilja veg jafnaðar-
stefnunnar sem mestan í
þessu þjóðfélagi."
„Þetta er fyrsta skrefið á lengri leið..
Þetta er ekki neinn lokaáfangi," segir
Jón Baldvin Hannibalsson formaður
Alþýðuflokksins í samtali við Al-
þýðublaðið, en tilkynnt var formlega
um sameiningu þingflokka Alþýðu-
flokks og Þjóðvaka á blaðamanna-
fundi í gær. Óformlegar viðræður
milli þingflokkanna hafa staðið yfir
með hléum frá því snemma sumar, og
samkomulag náðist nú eftir helgina.
Formanni Alþýðubandalagsins og for-
manni þingflokks Samtaka um
Kvennalista var tilkynnt um þessa
ákvörðun í morgun og um leið var
óskað eftir góðu samstarfi við þessa
flokka. „Við munum í framhaldinu
leita eftir frekari samstarfi við alla þá
sem vilja veg jafhaðarstefnunnar sem
mestan í þessu þjóðfélagi,“ sagði Jón
Baldvin.
„Reynslan af þessu samstarfi mun
skera úr um það,“ sagði Jón Baldvin
aðspurður hvort búið væri að ákveða
sameiginlegt framboði í næstu kosn-
ingum. „Það er fólkið sjálft sem er í
þessum flokkum og samtökum sem
munu taka ákvörðun um það í ljósi
reynslunnar. Hokksforingjar eru ekki,
og eiga ekki, að taka hina endanlegu
ákvörðun í nafni annarra."
Jón Baldvin segir klofning Al-
þýðuflokksins fyrir síðustu kosningar
hafa verið mikið áfall á sínum tíma.
,Að mínu mati var aldrei uppi svo al-
varlegur ágreiningur að réttlætti klofn-
ing,“ sagði hann. „Reynslan af sam-
starfi þingmanna Alþýðuflokks og
Þjóðvaka á síðastliðnu þingi á fyrsta
ári stjómarandstöðu staðfestir síðan að
milli þessara einstaklinga er enginn
málefnaágreiningur. Við vorum aug-
ljóslega samstiga í hverju stórmálinu á
fætur öðru. Þar að auki tókust góð
kynni og gott samstarf með þeim ein-
staklingum sem þarna eiga hlut að
máli, þannig að það var fullkomlega
rökrétt niðurstaða að þeir stigu það
skref að mynda einn þingflokk til þess
að treysta samstarf sitt.“
Samstarfsmenn Jóns Baldvins
segja að hann hafi lagt mikla áherslu á
að af þessari sameiningu yrði. Hann
sagði í samtalinu við blaðið að það
væri sér mikil persónuleg ánægja að
sameining þingflokkanna skyldi hafa
tekist. „Þetta er þýðingarmikill atburð-
ur og felur f sér fýrirheit um enn önn-
ur skref sem stigin verða í framtíðinni
til að treysta samstöðu jafnaðarmanna
og efla áhrif þeirra í íslensku þjóðfé-
lagi. Til þess er nú leikurinn gerður,"
sagði Jón Baldvin.
Ástargyðjan fylgdist af velþóknun með sögulegum endurfundum á Kornhlöðu-
loftinu þar sem tilkynnt var um stofnun Þingflokks jafnaðarmanna.
„Telja ritstjórar Morgunblaðsins að þeir hafi efni á því að setja
ofan í við Bolla Valgarðsson af því hann segir að Þorsteinn Pálsson
sé óhæfur ráðherra? Þorsteinn Pálsson eróhæfur ráðherra: það eru
engar fréttir, segir Hrafn Jökulsson á blaðsíðu tvö
Bessastaðabækurnar-fimmti hluti í Alþýðublaðínu í dag!
Þórhallur miðill, Sigursteinn Másson og Geirfinnsmálið,
fullar löggur - og margt fleira...
■ Einar Karl Haraldsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsinstil
starfa hjá Þingflokki jafnaðarmanna
Markmiðið er uppstokkun flokkakerfisins
■ Þingflokkur jafnaðarmanna
Ákveðin tímamót
-segir Gísli S. Einarsson.
„Ég tel að þetta sé rétt skref. Það opnar leiðir og gerir það verkum að ný sýn
blasir nú við fólki. Þetta er það sem mjög margir jafnaðarasinnaðir íslendingar
hafa verið að bíða eftir. Ég tel að þetta skref rnarki ákveðin tímamót," sagði
Gísli S. Einarsson þingmaður Alþýðuflokksins um sameiningu þingflokka Al-
þýðuflokks og Þjóðvaka.
■ Konur í forystu þing-
flokks jafnaðarmanna
Rannveig for-
maður, Svan-
fríður varafor-
maður
Rannveig Guðmundsdóttir verður
formaður Þingflokks jafnaðarmanna.
Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi
þingmanna Alþýðuflokksins og Þjóð-
vaka. Rannveig hefur verið formaður
þingflokks Alþýðuflokksins síðan í
fyrra. Varaformaður þingflokksins
verður Svanfríður Jónasdóttir, sem
gegndi formennsku í þingflokki Þjóð-
vaka.
Flokksstjórn
Alþýðuflokks-
ins fundar
„Þama verða lögð drög að undir-
búningi hins pólitíska starfs jaíhað-
armanna á þessu hausti og ég hvet
alla flokksstjómarmenn eindregið til
þess að mæta á fundinn og taka þátt
í umræðum," sagði Jón Baldvin
Hannibalsson, en flokksstjórnar-
fundar Alþýðuflokksins verður hald-
inn í Rúgbrauðsgerðinni laugardag-
inn 7. september frá kl. 10.00 til
13.00. Á dagskrá em málefni Þing-
flokks jafnaðarmanna og undirbún-
ingur flokksþings Alþýðuflokksins.
■ Einhugur um Hannes
Hólmstein í Háskólanum
Einróma mælt með
stöðu prófessors
fyrir Hannes
Á fundi deildarráðs félagsvísinda-
deildar Háskóla íslands síðastliðinn
föstudag var samþykkt með sautján
samhljóða atkvæðum að mæla með
því að Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son verði skipaður prófessor við deild-
ina. Miklar deilur urðu á sínum tíma
þegar Hannes kom þar til starfa, svo
einhugurinn um hann nú vekur athygli
innan Háskólans. Félagsvísindadeild á
tuttugu ára afmæli um þessar mundir,
og verður það haldið hátíðlegt um
næstu helgi. Háskólaráð ákveður hins-
vegar á næstunni hvort orðið verður
við samþykkt deildarráðs um skipan
Hannesar. f samtali við blaðið í gær
hafði Hannes þetta urn málið að segja:
„Deildarráðið gat auðvitað ekki sér
betri afmælisgjöf til deildarinnar en að
gera mig að prófessor!"
-segir Einar Karl.
„Ég hef verið ráðinn í einstök verk-
efni á vegum þingflokks jafnaðar-
manna og mun vinna að því að fá til
liðs hópa og einstaklinga sem eru
fylgjandi jafnaðarstefnunni en hafa
verið í hinum og þessum framboðum
til þessa. Markmiðið er að vinna að
uppstokkun flokkakerfisins og víðtæku
kosningasamstarfi fyrir næstu kosning-
ar,“ sagði Einar Karl Haraldsson í
samtali við Alþýðublaðið. Hann hefur
verið framkvæmdastjóri Alþýðubanda-
lagsins. Hann segir að frumkvæðið
hafi verið tekið án Alþýðubandalags-
ins en það sé ekkert sem útilokar Al-
þýðubandalagið frá framhaldinu. Sam-
kvæmt öðrum heimildum blaðsins
kom ráðning Einars Karls forystu-
mönnum Alþýðubandalagsins mjög í
opna skjöldu, og hafa þeir brugðist illa
við. Sjálfur segist Einar hinsvegar ekki
á leið úr Alþýðubandalaginu: „Ég kem
að þessu máli sem sjálfstæður ráðgjafi
og hef ekki áform um að breyta minni
flokksaðild á næstunni."
Um framhaldið sagði Einar Karl:
„Nú verða fundahöld til að kynna
þessar hugmyndir. Það hafa verið
nefndar hugmyndir og ég hef ýmsar
hugmyndir um það hvemig á að sinna
þessu áfrain. Ég lít á þetta sem brúar-
smíði. Það er verið að brúa bilið milli
ýmissa hópa og flokka. Ég lít líka á
þetta sem vegagerð til framtíðarinnar.
Þetta er spumingin um að troða aftur
götur sem eru grónar milli jafnaðar-
manna. Þetta er spurning um hug-
myndavinnu og stefnumótun. Aðalat-
riðið er að þetta er sett á dagskrá sem
sérstakt verkefni, vandinn er oft sá að
menn eru oft að vinna þetta innan
sinna flokka og þá út frá taktískum
viðhorfum í sínum flokkum. En þama
em tveir flokkar sem setja af stað sam-
eiginlegt verkefni - og þetta ætti vissu-
lega að opna nýja möguleika og nýjar
dyr. Það er ákveðin dýnamík í þessu.
Menn em ekki bara að renna saman
heldur eru þeir líka að setja málið á
dagskrá á annan hátt en verið hefur.“